Morgunblaðið - 03.10.1957, Side 13

Morgunblaðið - 03.10.1957, Side 13
Fimmtudagur 3. okt. 1957 MOttaUlSBLAÐlÐ 13 Hverjir ráðo skattpíningunni ? í ræðu sirmi á fundi Sjálfstæð- isfélaganna s.l. sunnudag, kom Gunnar Thoroddsen nokkuð inn á skatta- og útsvarsmál, og kvaðst haf séð í Tímanum þann hinn sama dag, ásamt mynd af sér, að hann væri mesti „skattpíningar- maður“ Sjálfstæðisflokksins og hefði gengið „lengra í skattaálög- um en nokkur annar vaidamaður á íslandi fyrr og síðar“ Þetta kvað borgarstjórinn í Reykjavík furðulega staðhæfingu’ þar sem útsvarsstiginn í Rvík hefði lækkað en ekki hækkað á síðasta ári og hefði ætíð verið lægri en í ýmsum bæjarfélögum öðrum, þar sem stuðnir.gsmenn núverandi stjórnar hafi um langt skeið farið með völd. Hins vegar * kvað hann sig hafa reynt isamt öðrum Sjálfstæðismönnum á Al- þingi, að fá þungum útsvars- byrðum létt af borgurum kaup- staðanna með því að fá því fram gengt, að söluskatturinn rynni að einum fjórða hluta til bæja- og sveitafélaga, þar sem hann væri á lagður og eftir íbúatölu. Þessi tillaga sín hefði fengið þær undir tektir hjá Tímamönnum, að varð- að hefði stj órnarslitum, ef fram yrði knúin. Það þarf ekki að eyða mörgum orðum um, hver er mesti skatt- píningarmaður hér á landi. Það er sjálfur fjármálaráðherra Fram sóknarflokksins. Með skattpín- ingu ríkisins, sem hann gengst öll um mönnum fremur fyrir, hefir æ ofan í æ verið gengið svo á skatt- stofna bæja- og sveitafélaga, að til vandræða horfir. Með stríðs- gróðaskattinum var það gert. Með söluskattinum var það gert. En í staðinn hefir bæja- og sveita félögum ekki verið séð fyrir nýj- um tekjustofnum, svo að þau verða að ná svo til öllum tekjum sínum í útsvörum. Þetta á ekki einungis við Reykjavík, heldur engu síður við Akureyri og önnur bæjarfélög úti á landi. Á kaupstaðaráðstefnunni á ísafirði s.I. haust var einróma samþykkt tillaga um, að bæjar fél. værj heimilað að leggja veltuutsvör á samvinnufélög eins og annan rekstur. Þessari tiliögu hefir ekki verið anzað af stjórnvöldum. Enn munu þau ætlast til, að samvinnu félögunum sé hlíft við þeim álögum, er allir aðrir verða að bera. Enda verður hiut'ur þeirra í gjaldabyrðum bæja- og sveitafélaga minnkandi með ári hverju. Við lausn verkfallsins 1955 var bæja- og sveitafélögum lögð ný byrði á herðar. Hún var framlag til Atvinnutryggingasjóðs og var bæjarfélögum ekki lagður til tekjustofn í staðinn. Hér a Akur- eyri er þessi nýi gjaldpóstur á fjárhagáætlun þessa árs 700 þús. krónur. Alla þessa upphæð verð- ur að taka með útsvarshækkun- um á almenningi. Hið sama gildir í Reykjavík nema þar má reikna með, að þessi upphæð nemi a. m. k. 5—7 millj. króna. Hvernxg get- ur Tíminn fært slíkar hækkanir bæjarútgjalda á kostnað borgar- stjórans í Reykjavík eða bæjar- stjórna á Akureyri eða Hafnar- firði, og stimplað borgar- eða bæjarstjöra mestu „skattpíningar menn“ landsins af þexm sökum. Tíminn ætti að sjá sóma sinn í, að nota ekki orðið „skatta- kóngur" um menn, sem vegna skattpíningar ríkisins verða að taka á bæjarfélögin álögur, sem þeir hafa ekki beðið um. („íslendingur" á Akureyri) 388 nemendur í Gagn- fræðaskóla Akureyrar AKUREYRI, 1. okt. — í dag kl. 5 var Gagnfræðaskóli Ak- ureyrar settur í samkomusal skólans að viðstöddum fjölda nemenda óg gesta svo sem húsrúm frekast leyfði. — Jo- hann Frímann, skólastjóri, flutti setningarræðu. Alls verða 388 nemendur í skól anum, sem mun starfa í 4 bekkj- um og 15 deildum. Er þetta 40 nemendum fleira en var í fyrra og hefir verið fjölgað um eina bekkjardeild. Verða þá 6 verk- námsdeildir og níu bóknáms- deildir. Sýnilegt er að á næstu árum mun fjölgun verða í Gagn- fræðaskóla Akureyrar en hann er nú fjölmennasti framhalds- skóli utan Reykjavíkur. Nýir kennarar verða Sigursveinn Jó- hannsson, sem áður var kennari á ísafirði og Oddur Kristjánsson húsameistari sem taka mun að sér viðbótarkennslu í handa- vinnu, og einnig annast smíða- kennslu unglingadeilda Mennta- skólans sem eru til húsa í Gagn fræðaskólanum, svo sem verið hefir að undanförnu. Matreiðslukennslan mun mjög verða aukin á þessu hausti, þar sem nú verður öllum stúlkum bæði í verklegum og bóklegum deildum fyrsta bekkjar kennd matreiðsla. Stafar þetta af því að sú kennslugrein hefir verið felld Tveir barnaskólar starfa nú á Akureyri Yfir 1000 born í þeim báðum AKUREYRI, 1 okt. — 1 dag kl. 2 var Barnaskólinn á Akureyri sett- ur í Akureyrarkirkju. Eins og kunnugt er skiptist skólinn nú x tvennt með tilkomu hins nýja Oddeyrarskóla. Hefur Eiríkur Sig- urðsson, fyrrum yfirkennari við Barnaskólann, verið ráðinn skóla- Stjóri við hinn nýja skóla, en við starfi hans sem yfirkennara tekur Tryggvi Þorsteinsson, sem lengi hefur verið kennari við skólann. niður í barnaskólanum. Þrír kennarar sem verið hafa laus- ráðnir hafa nú verið skipaðir fastráðnir, þau Kristbjörg Krist- jánsdóttir, Þorbjörg Finnboga- dóttir og Sigurður Óli Brynjólfs- son. Verið er að byggja við aðal- álmu skólans en sú viðbót verð- ur ekki fullbúin á þessum vetri. Vegna þrengsla í skólahúsinu, hefir Iðnskóli Akureyrar, sem frá byggingu þessa skólahúss, hefir starfað þar, nú orðið að leigja sér húsnæði í húsi Hús- mæðraskóla Akureyrar til bráða birgða. Er þetta til nokkurs ó- hagræðis þar sem flestir 1/nnar- ar Iðnskólans eru jafnframt fasta kennarar Gagnfræðaskólans. Þá hefir Gagnfræðaskólinn einnig orðið að leigja sér eina kennslustofu í íþróttahúsi bæjar- ins. Alls starfa 23 kennarar við skólann að meðtöldum skóla- stjóra, þar af eru 17 fastráðnir og sex stundakennarar. _ vig. Hannes J. Magnússon skóla- stjóri flutti skólasetningarræðu, en Eiríkur Sigurðsson skólastjóri lýsti kennslu við nýja skólann sem ekki getur enn tekið form- lega til starfa vegna þess að bygg ingu hans er ekki lokið. Mun kennsla þar fara fram í leigu- húsnæði annan hvern dag fyrst um sinn. Ker.nsla í sérgreinum svo sem hand^vinnu, leikfinv og teiknun fellut niður fyrst í stað. Munu börmn þess í stað Ijúka námi í skyldusundi. Við setningu skólans flutti sr. Kristján Róbertsson bæn svo sem jafnan hefir verið siður síðan far ið var að setja skólann í kirkj- unni. Fjöldi nemenda og allmarg ir aðstandendur voru við skóla- setninguna. Talsverðar breytingar verða nú á kennaraliði skólanna. Gamli skólinn mun leggja hinum nýja til kennslukrafta í leikfimi, en að öðru leyti hefir Oddeyrarskóli sjálfstætt kennaralið. Þar munu Höfnm kaupendur á hendinni að eftirtöldum bifreiðum: (■ injiiM Chevrolet '53, ’54, 1955. — Volkswatfen ’55—’58. Ford Consul, Zephyr Zodia - ’55. Skoda Statii-n ’55—’57. og að vörubílum ’53- Athugið, höfum til sölu yfir 500 bíla af flestum gerðum. Verð vU allra hæfi. Leitið tii okkar áður en þér festið kaup annars staðar. eða -’57. auk skólastjóra starfa fimm kenn arar. þeir Eiríkur Stefánsson, Theódór Daníelsson, Hilmar Jó- hannsson og tveir nýir kennarar Guðmundur Ólafsson og Sigurð- ! ur Flosason. Á þessu hausti j hætta þrír gamalkunnir kennar- ; ar sem starfað hafa við Barna- j skólann sumir um fjölda mörg | ár. Eru það þeir Helgi Ólafsson, ( Einar Þorvaldsson og Elín Bjarnadóttir. Eftirtaldir nýir kennarar taka til starfa við gamla Barnaskólann: Elín Sig- urjónsdóttir, Jón Gunnlaugsson, Jóhann Sigvaldason og Jens Sum arliðason. Alls munu starfa 25 fastráðnir kennarar og einn stundakennari við skólann sem er í 29 deildum. Þetta er í fyrsta sinn í fjölda mörg ár sem gamli bai-naskólinn kemst af með eigin húsnæði, en þá er hann líka fullsetinn. Alls eru um 800 börn í gamla barna- skólanum en um 240 í Oddeyrar- | Afgresðslustúlka óskast strax UUisimidi, Langholtsvegi 49 Sendisveinn Röskan sendisvein vantar okkur nú þegar. Vinnutími kl. 6—12 f. h. JHiprgimblaMh Sími 2-24-80 Sendisveínn óskast fyrir skrifstofu okkar. Helgi Magnússon & Co, Hafnarstræti 19 Trésmíðaverkstæði til solu Vér höfum til sölu trésmíðaverkstæði, hús og margar trésmíðavélar af fullkomnustu gerð ásamt smærri verk- færum. Eignin er á 1300 ferm. leigulóð í nágrenni Reykjavíkur. — Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar. Málflutningsskrifstofa Áka Jakobssonar og Kristjáns Eiríkssonar — Sími 11453 (Sölum. Bjarni Pálsson, heimasími 12059) Hafnarfjörður Hæð og ris í timburhúsi til sölu. — 3 herb. og eldhús á hæð og 1 herb. og eldhús í risi. Laust nú þegar. Útb. kr. 35—45 þúsund. Bifreiðasalan Bókhloöust. 7. íáxmi 49168. > | Guðjón Steingrímsson hdl, Reykjavíkurvegi 3, Hafnarfirði Símar 50960 og 50783 j 1 Iðnaðarfyrirtæki Nú liggur fyrir að stað- setja iðnfyrirtæki í Boi-gar nesi. Þeir, sem óska eftir að gjörast meðeigendur, gjöri svo vel að senda afgreiðslu blaðsins tilboð með fram- lags-upphæð ca. og nafni, merkt: „Einkamál — 6818“ fyrir 15. október. Glœsileg íbúð til leigu nú þegar í alveg nýju húsi. Sér hitaveita og öll nýtízku þægindi. — íbúðin er 4 herbergi og eldhús, sérstaklega vönduð og falleg. — Fyrirframgreiðsla. — Tilboð er greini fjölskyldustærð sendist Mbl. fyrir föstu- dagskvöld, merkt: „Útsýni — 6824“. ^ Ljósprentun | Getum aftur tekið að okkur ljósprentun teikninga: Afgreiðum oftast teikningarnar meðan þér biðið. Tökum einnig afrit af ógagnsæum fyrirmyndum. Landstólpin Ingólfsstræti 6 — Sími 22760 Til leigu ibúð Ný og nýtízkuleg 2 herbergi og eldhús með þvottahúsi, á hæð, ca. 70 ferm. Leigist sanngja.nt gegn góðu láni. Tilboð merkt: , Hagkvæmt — 6834“, sendist Mbl., fyr- ir 5. þ. m.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.