Morgunblaðið - 03.10.1957, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ
NV-gola, skýjað öðru hvoru
223. tbl. — Fimmtudagur 3. október 1957.
Hugleiðingar
að leiðarlokum. — Sjá bls. 11.
Hver var afstaða Hrœðslubandal. til samvinnu við kommúnista?
Þeirra eigin orð fyrir og eftir kosningar
Úr ræðu Eysteins Jónssonar á
fundi Framsóknarfélagsins í
Reykjavík, samkvæmt frásögn
„Tímans“ 2. okt. 1956:
1ffcg&r hefM svo komið í
Ijés, .ft meirihluti .t Alhingi náð-
m ekki, {>átí líttit munaöi, þá
hefð« verið athugaðir mögnieík-
ar á að tnynda HjÍGnihiutastjórn
umí.-t-tahímtóaiagíilns, *g kvntííí i
ijós, m slíkt var ekki hægt. M
l)á vmð smtfö við Aiþýðuhand:*-
íagi* aat stjórnítrHtynunn. og
væfl það i fullu satnræmi við
Itrmsan swálfiutniug fyrir k«sm
ittgar. ...,—
Ritstjórnargrein í Tímanum 21.
júní 1956:
Hvergi vestan járo-
tjaitls i Evrófsu, Asju eða M-
rjku hefir vertð f«y«duð stjórn
jr.f'. hátttýku kommúnisú sein-
: ustu 10 árt«, Pví vetdur Moskvu
> ÞJóousta þeírra. hetta gitdír
ekki síður hér. bað breytir ekki
neití jþessari staðreyncí, jþótt
kommúnistar flaggi moð þeim
FiBitboga, Manntbal og AKreð.
Keir crn ekkert annað eö áhrífa
lausir bandingjar kommúnista.
Me$ Aíþýðubandalagínu verður
því efcki hægt að mynda starf*
hæfa stjórn.
Eina iejðka — aiejna ieSðín
— til að kötna á starfhæfrí
vinstri stjóm, er að tryggja
meíríhiuta hartdalags umbóta-
nokkmiu l kmmngitmm 24.
jftol.
Tíminn 24. júní 1956 (á kosn-
ingadaginn):
■^SVO kynlega bregður nú við, að
málgögn Framsóknarflokksins og
aðalleiðtogar halda því nú statt
og stöðugt fram, að stjórnarsam-
starf Hræðslubandalagsins við
kommúnista sé í „fullu sam-
Mynd af Eysteini Jónssyni í
Tímanum í gær. — Talar
hann í „fullu samræmi við
fyrri yfirlýsingar"?
ræmi“ við yfirlýsingar þeirra
fyrir kosningar. Hver einasti
kjósandi veit að sjálfsögðu að
þetta eru hrein ósannindi. Bæði
Alþýðuflokksmenn og Framsókn-
armenn lýstu því yfir fyrir kosn-
ingarnar sumarið 1956 að sam-
starf við kommúnista kæmi ekki
til greina.
Um þetta þýðir lítt að karpa
við Tímann. En almennings
vegna og skyldunnar við sögu og
sannleika er rétt að fólki gefist
kostur á að sjá með eigin augum
ummæli málgagns Framsóknar-
flokksins, um afstöðuna til sam-
vinnu við kommúnista nú; og
beri þau síðan saman við ummæli
málgagna þessara sömu flokka
fyrir kosningar.
Fylgja hér með Ijósmyndir af
nokkrum ummælum „Dags“ og
„Tímans“ um þessi mál.
Ummæli Eysteins Jónssonar á
fundi Framsóknarmanna í Eyja-
firði, samkvæmt frásögn „Dags“
18. september 1956:
Hitnn mimjtist é banduiag
Ffamsóknaril,- ög ,AIþýöuH. j
síómtu kt>ming&b og h^fSí vm~~
iS stefnt að hreinujn meídhluta.
R»nn hefðt ei.ki asþst, svo sent
kunnugt v»rt ög . hefði þá aí
sjáHsögðu vevið tekinn sá kostm
að semja við AÍÞýSubajidalagiA i
samrJBttú víS þarr yfidýsittgar
þem gefnar höföu verið í sam -
þttjtdí við nauðsyn á sr>mstarf
v»ð þou öfi, aem mjktisráðand
' v«tu ittnan alþyðusamukanna.
í „Degi“ 23. júní 1950 (daginn
fyrir kosningar) er mjög fagnað
yfirlýsingu formanns Alþýðu-
flokksins, Haralds Guðmunds-
sonar i útvarpsumræðunum, um
að stjórn með kommúnistum eft-
if kosningar komi ekki til greina.
Lýsir „Dagur“ síðan þeirri skoð-
un sinni:
aó ekki komi |wó heJdur tiJ
jtokkurra mála, ad tckió
veífii wpj> neíits ko»ar ssaw-
starf vfta sa«»staðí» við
kommúnista, ú ftvctju svm
gengur að kosningum loktt-
um. í angum nJJra rélt-
Ekkert samstarf við komm-
ista um stjórnarmyndiiii
þjóðvifjlnn hefír jaá frogn a8 f»ra Itði stnu viS lok
kosnin^abardagans, »8 „ákveStí haft verið t herbúdum
hræðsJybamíaJagsins a8 faíta til okkar om sfjórnarsam-
vinno ofhr kosningar".
Blns og margbúið er að lýsa yfir af hátfo Alþýðo-
flokksms og Framsóknarflokkstns, er þefta uppspuni frá
i. rófom og ekkerf samstarf verSur haft við þetta banda-
»' lag kommúnísfanna um sf jórnj af því a8 þeir ero ekkt
’oóti samstarfsháefarl en áður, þóft þeír hafi skipt um
nafirt.
Etna leiðtn til að fá vinstristjórn er að veite umbóta-
flókkonom Hreinan meírihluta. •'
Loks er ástæða til þess að
minna á ummæli Alþýðublaðsins
á kjördag, 24. júní 1956:
VINSTRI MENN!
Ná m loksins komíð hið
tangþráða tækiíæri til þess
að útilnka áhrif KÖMM-
C'NISTA á tslenzk þjóðmál
og koma á fót FRJÁLS-
LYNÐRI UMBÓTA-
STJÓRN.
Lesandi góður, hvað segir heil-
brigð dómgrcind þín um sann-
ieiksást og manndóm Eysteins
Jónssonar og annarra leiðtoga
Hræðslubandalagsins, sem halda
því nú fram, að smvinna þeirra
við kommúnista sé í „fullu sam-
ræmi“ við yfirlýsingar þeirra
fyrir kosningar?
Fundur í Fullfrúaráði Sjálf
sfæðisfélaganna í kvöld
Dra»nótalíátiir
tekimi í landliel^i
FYRIR NOKKRUM dögum var
bátur úr Vestmannaeyjum stað-
inn að dragnótaveiðum við svo-
nefndar Smáeyjar við Vest-
mannaeyjar. Flugvél frá Land-
helgisgæzlunni kom yfir bátinn,
þar sesi hann var að veiðum.
Var það vélbáturinn Sævar og
játaði skipstjórinn brot sitt í
gær. Dómur mun ekki vera geng
inn í máli þessu.
í KVÖLD klukkan 20.30 heldur
FuIItrúaráð Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík fund í Sjálfstæðis-
húsinu. Er þetta fyrsti Oundur
Fulltrúaráðsins á þessum vetri og
verður dagskráin sú, að Bjarni
Benediktsson, ritstjóri, flytur
ræðu um stjórnmálaviðhorfið, en
að ræðu hans lokinni hefjast al-
mennar umræðiur, um bæjarmál,
strrfsemi Fulltrúará'ðsins og und
irbúning bæjarstjórnarkosning-
anna. Loks verður kosin uppstill-
inganefnd fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar.
Fulltrúar eru minntir á að fjöl
menna á þennan fyrsta fund
Fulltrúaráðsins á þesstam vetri
og mæta stundvíslega. Áríðandi
er, að menn sýni fulitrúaráðs-
skírteini sín við innganginn.
Heilbrigðisnefnd fjallar um
óþef frá fiskimjölsverksmiðju
HEILBRIGÐISNEFND bæjarins hefur fyrir skömmu fjallað um
bréf frá borgarstjóra, út af. starfrækslu Síldar- og fiskimjölsverk-
miðjunnar á Köllunnarkletti. — Fjallaði nefndin um þau óþæg-
ii’di, sem íbúar í nálægum hverfum hafa af þeim óþef, er frá verk-
smiðjunni leggur er þurrkað er þar mjöl.
Heilbrigðisnefnd gerði á sínum
tíma kröfur um að verksmiðjan
gerði fullnægjandi ráðstafanir
til eyðingu á þessari ólykt. sem
kemur frá reyknum er myndast
við síldarmjöls- eða fiskmjöls-
þurrkun.
A þessum fundi nefndarinnar
var erindi borgarstjóra svarað
m. a. á þessa leið......“
„Skilyrði heilbrigðisnefndar um
fullnægjandi ráðstafanir til eyð-
ingar á ólykt frá reyk, hefur verk
smiðjan enn ekki uppfyllt, þótt
heilbrigðiseftirlitið hafi ár eftir
ár gert ítrekaðar kröfur hér að
lútandi.
Það skal tekið fram, að verk-
smiðjan gerði fyrir um tveim
árum tilraun í umræddu skyni,
en árangur varð lítill. Ástæða er
þó til að ætla, að verulegs árang-
urs megi vænta af aðferðum sem
enn ekki hafa verið reyndar hér.
Enn verða bæjarbúar cyrir
meiri og minni óþægindum vegna
ólyktar frá síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunni og stórt íbúðar-
hverfi er að rísa upp í nágrenni
við verksmiðjuna.
Heilbrigðisnefnd heinir því
þeim eindregnu tilmælum til
bæjarráðs, að það framlengi ekki
leigumála um lóðir við verk-
smiðjuna, fyrr en hún hefur, að
dómj nefndarinnar, leyst frairan-
greint vandamál á viðunandi
hátt.“......
Aðeins 78 oi 478 með rétt Ijós
„UMFERÐARVIKAN" er nú á 4. degi. í kvöld munu verða síðustu
forvöð að fá l.iós ökutækja stilit, án kostnaðar, en allir eru hvatt:r
til að láta stilla ljós ökutækjanna, þó að þeir eigi ekki kost á að
njóta ókeypis stillingar. Það er eigið öryggi og öryggi annarra, sem
krefst slíkrar athugunar á ljósunum. Reynslan sýnir að full ástæða
er til að láta athuga ljósin.
Á öðru kvöldi ljósastillinganna var komið með 478 bif-
reiðir í athugun. Reyndust 78 hafa rétt ljós, 280 fengu ljós
sín leiðrétt, en 120 þurfa frekari aðgerða við.
Stöðug aðsókn var að öllum verkstæðunum.
Annar þáttur „umferðarvikunn
ar“ eru verðlaun FÍB fyrir góð-
an akstur.
Félag íslenzkra bifreiðaeigenda
sæmdi í gær ökumenn eftirtal-
inna bifreiða viðurkenningu fyr-
ir góðan og gætilegan akstur:
R-1412. Eigandi: Bifreiðastöð
Steindórs. R-1745. Eigandi: Ás-
geir Jakobsson, Langholtsvegi 17
R-2517. Eigandi: Guðrún Jóns-
dóttir, Tjarnargötu 40. R-5100.
Eigandi: Haukur Ólafsson, Hlíð-
arg. 33, Kópavogi. R-7055. Eig-
andi: Gunnlaugur Pálsson, Vest-
urbrún 36. R-7247. Eigandi: Gísli
Hermannsson, Laugarnesvegi 74.
R-8660. Eigandi: Heildsöluv. Ag.
Ármanns, Klapparstíg 38. R-9602.
Eigandi: Eiríkur Ketilss., Skafta-
hlíð 15.
Menntaskólaselið selt?
í RÆÐU sinni við setningu
Menntaskólans í gær, gerði rektor
skólans, Kristinn Ármannsson,
Menntaskólaselið í ölfusi að um-
talsefni, þar eð það væri nú orð-
ið „vandræðabarn" skólans.
Skólaselið var byggt fyrir um
20 árum og er það eign skólans
og nemenda hans. Húsið er allt
úr timbri, flekahús frá Sviþjóð.
Viðhaldskostnaður hússins er
mikill orðinn, en fé það sem skól-
inn fær til síns eigin viðhalds
hrekkur naumlega til skólans
sjálfs, hvað þá heldur til Selsins.
Að því er nú hallast að selja það,
og reisa annað skólasel vestan
fjalla, nær bænum.
Rektor sagði að í sumar hefðu
nemendur farið austur í Sel í
sjálfboðavinnu við að mála allt
húsið og bæri að þakka það og
meta. í fyrra hafi verið stofnað-
ur sérstakur Selsjóður, til þess
að standa straum af nauðsyn-
legu viðhaldi. Meðan ekki hefur
endanlega verið gengið frá sölu
selsins mun skólinn áfram nota
það.
NÚ eru skólarnir að byrja og
veldur það miklum breytingwm
á útburðarstarfsliði blaðsins. Má
búast við að þetta valdi nokkr-
um erfiðleikum við að koma
blaðinu til kaupenda a.m.k.
fyrstu daga mánaðarins. En að
sjálfsögðn verður allt gert til að
flýta fyrir útburðinum.