Morgunblaðið - 12.10.1957, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 12.10.1957, Qupperneq 16
VEÐRIÐ S-A stinningskaldi, rigning öðru hverju. 231. tbl. — Laugardagur 12. október 1957- Ný viðhorf Sjá grein á bls 9. Verður bætt á þjóðina 300 milljónum sköttum og króna tollum? i nýjum Hvoð vantar Eystein nú mikið? EFTIR þeim upplýsingum, sem fyrir liggja eru nú horfur á að vinstri stjórnina vanti miklar nýjar tekjur til þess að geta komið saman fjárlögum og staðið við skuldbindingar sínar gagnvart at vinnuvegunum. Koma þar fyrst og fremst þessi þrjú atriði tii greina: 1. Til þess að afgreiða fjárlög greiðsluhallalaus þarfnast Ey steinn 91 miilj. kr. nýrra Oenkö í harðri raun I FYRRINOTT tefldi ungverski skákmaðurinn Benkö í Silfuv- tunglinu í Reykjavík við 51 mann og hafði sigur á 36 borðum. Jafn- tefli varð í 15 skákum. Taflið stóð frá kl. 8 um kvöldið og allt til kl. 4.30 um nóttina. Benkö teflir fjöltefli í Iðnskól- nýju og varan- i anum á Selfossi kl. 2 e.h. á morg- framkvæma hin legu úrræði“ vinstri stjórnarinn- ' un. ar í efnahagsmálunum. Má segja tekna. Er þá miðað við fjár- að í þessu hafi fjármálaráðherr- lagafrumvarpið eins og það er þegar það er lagt fram. 2. Venjulega hækkar fjárlaga- frumvarpið um nokkra tugi millj. kr. í meðferð Alþingis. Á síðasta þingi, er var fyrsta þing, er vinstri stjórnin hafði forystu á, hækkaffi það t. d. um tæpar 100 millj. kr. Af þessum ástæðum mun ríkisstjórnin a. m. k. þurfa á nokkrum tugum millj. kr. að halda í nýjum tekjum. 3. Fullvíst er að Útfiutningssjóð mun um næstu áramót skorta mikið fé til þess að standa við skuldbindingar sínar gagnvart útgerðinni, sennilega ekki undir 100 millj. kr. en að líkindum miklu hærri upp- hæð. Er þá árið 1957 aðeins tekið með í reikninginn. Hef- ur fjármálaráðherra þegar lýst því yfir að stórfelldur greiðsluhalli muni verða hjá sjóðnum á árinu. Aukinna tekna þarf svo enn að afla lil starfsemi hans á næsta ári. ÆFING EYSTEINS Enda þótt vinstri stjórnin hafi leynt þing og þjóð fjölmörgum atriðum í sambandi við efnahags- málin og það öngþveiti, sem skap azt hefur á valdatíma hennar, er það þó nú þegar augljóst, að stjórnina, með fjármálaspeking- inn Eystein Jónsson í fararbroddi vantar ekki minna en um 300 millj. kr. í nýjum tekjum til þess að afgreiða fjárlög og fleyta þjóðarskútunni fram á næsta árið. — Það verður nú vafalaust næsta verkefni Eysteins Jónssonar að leita uppi nýja tekjustofna, skatta- og tollaálögur til þess að ann sæmilega æfingu!! Aida - ný snyrti- stofa opnuð í dag í DAG verður opnuð á Hverfis- götu 106 A, ný snyrtistofa, sem nefnist Aida. Verður þar veitt öll venjuleg snyrting önnur en hársnyrting, svo sem andlits- snyrting, handsnyrting, nudd og einnig hefur snyrtisofan háfjalla- sól, sem er af nýrri og vandaðri gerð. Húsnæði snyrtistofunnar er hið vistlegasta og smekklega búið og áhöld góð. Eigendur snyrtistof unnar Aida, eru Solveig Gísla- dóttir og María Anna Lund, sem báðar hafa nýlokið námi í þess- ari starfsgrein í Kaupmannahöfn. Baudarískur •i í körfu- knattleik Á sunnudaginn er væntanlegur frá Þýzkalandi John A. Norland- er, bandarískur þjálfari í körfu- knattleik. Kemur hann á vegum í. S. í. og íþróttafélaga þeirra í bænum, sem iðka körfuknatt- leik, en einnig mun hann fara til Keflavíkur og Laugarvatns og veita þar tilsögn. Auk þess að vera þjálfari, er Norlander mjög þekktur körfu- knattleiksmaður í heimalandi sínu, og er það von þeirra, sem að komu hans standa, að hún megi verða lyftistöng fyrir íþrótt ina hér á landi. Sœlgœtisgerð stöðvast vegna hráefnaskorts VÉLARNAR í sælgætisverksmiðj unni Víkingi hafa staðið aðgerð- arlausar þessa viku og rúmlega 30 manna síarfslið verksmiðj- unnar varð að leggja niður vmnu þar. Ástæðan er að vegna gjald- eyrisörðugleika hefur ekki tekizt að halda í horfinu með efnis- kaup til verksmiðjunnar, svo hrá- efni gekk alveg til þurrðar í lok fyrri viku. Þá var starfsfóikinu sagt að verksmiðjan yrði efnis- laus að minnsta kosti þessa viku alla jafnvel eitthvað lengur. Ekki er kunnugt um aðra stöðv un vegna hráefnisskorts en víða Nýir þjóðvegir í N-ísa- fjarðarsýslu Frumvarp Sigurðar Bjarnasonar FYRSTA þingmannafrv., sem lagt var fram á hinu nýbyrjaða Alþingi var frv. frá Sigurði Bjarnasyni um breytingu á vega- lögum. Er þar lagt til að nokkrir vegir í Norður-ísafjarð- arsýslu verði teknir í þjóðvegatölu. Eru það þessir segir: Vegur um Skjaldfannadal, 1'Skálavíkurvegur frá Bolungarvík er æði þungt fyrir fæti hjá iðnrek endum við öflun hráefna. Forsetar þingdeilda endurkosnir I GÆR voru fundir bæði í sameinuðu Alþingi og deild- um. Voru kosnir forsetar og skrifarar, og allir þeir,. sem gegndu þessum störfum á síð- asta þingi, endurkosnir. Bern- narð Stefánsson er forseti efri deildar, en Einar Olgeirs- son forseti neðri deildar. Þá var kjörbréfanefnd valin. Þingsetningarfundi í samein- uðu Alþingi, sem frestað var að loknu forsetakjöri í fyrradag, var haldið áfram í gær. Voru þá kosnir varaforsetar og skrifarar. 1. varaforseti var kosinn Gunn- ar Jóhannsson, með 27 atkvæð- um, en auðir seðlar voru 17. Karl Kristjónsson var kjörinn 2. vara- forseti með 27 atkv., Áki Jakobs- son hlaut 1 atkv., auðir seðlar voru 17. Friðjón Þórðarson og Skúli Guðmundsson voru valdir til skrifarastarfa án atkvæða- greiðslu. Tveir listar komu fram við kosningar í kjörbréfanefnd. Voru á þeim jafnmargir menn og kjósa átti, og urðu þeir því sjálfkjörn- ir. Þessir eiga sæti í nefndinni: Gísli Guðmundsson, Áki Jakobs- son og Alfreð Gíslason (af lista stjórnarinnar). Bjarni Bene- diktsson og Friðjón Þórðarson (af lista Sjálfstæðismanna). Að þessu loknu var fundi slit- ið í sameinuðu þingi. Fundur í efri deild. Jóhann Þ. Jósefsson, aldurs- forseti í efri deild, setti fyrsta fund hennar og lét fara fram forsetakjör. Forseti var kosinn Bernharð Stefánsson með 9 at- kvæðum, Sigurður Bjarnason hlaut 5 atkv. Varaforsetar voru kosnir Frið- jón Skarphéðinsson og Alfreð Gíslason, báðir með 9 atkvæð- um, en 6 seðlar voru auðir. — Skrifarar deildarinnar verða Eldsvoði í Blesugróf Slökkviliðshílar tefjast Grunnavíkurvegur frá Sandeyri um Snæfjallaheiði í Grunnavík, Laugardalsvegur af Ögurvegi hjá Laugardalsárbrú fram Laugar- dal að Efstadal, Reiðhjallavegur af Bolungarvíkurvegi í mynni Syðridals að Reiðhjallavirkjun, Varðarkaffi í Valhöll í dag kl. 3-5 s.d. um Skálavík ytri. Flutt samkvæmt ósk héraðsbúa í greinargerð frv. segir m.a. „Með frv. þessu er lagt til, að nokkrir vegir í Norður-ísafjarð- arsýslu verði teknir í þjóðvega- tölu. Brestur enn þá mikið á, að sveitir héraðsins séu komnar í vegasamband. Vcldur það bænd- um og markaðssvæði þeirra í sjáv arþorpunum og ísafjarðarkaup- stað miklu óhagræði. Greiðar sam göngur eru hyrningarsteiun at- vinnulífsins, ekki sízt í sveitun- um. Frv. þetta er flutt samkvæmt ósk hreppsnefnda í ýmsum hreppum Norður-ísaf jarðar • sýslu“. UM NÍULEYTIÐ í gærkvöldi barst tilkynning til slökkviliðs- ins um, að eldur væri laus að D-götu 5 í Blesugróf. Var brugð- ið skjótt við og haldið áleiðis þangað inn eftir. Bílarnir urðu fyrir talsverðum töfum af völd- um ökumanna, sem ekki gættu þess að lækka ljós sín og víkja úr vegi. Er komið var að gatna- mótum Réttarholtsvegar og Bú- staðavegar renndi bíll sér fram fyrir slökkviliðsbifreið, sem ók með ofsahraða eftir Bústaðaveg- inum og munaði ekki hársbreidd, að stórslys yrði. Slökkviliðið komst þó á áfanga stað að lokum og var þá nokkur eldur í geymslu. Hann varð að vísu kæfður fljótlega, en tjón hafði þá orðið nokkurt í geymsl- unni svo og í íbúðarherbergjum af völdum vatns og var ekki dvalizt í húsinu í nótt. Svo hagar til í húsi þessu, að geymslan, sem eldurinn var í, er yfir þvottahúsi. Sigvaldi Hjartarson, sem býr þarna, hafði verið að svíða lambahausa í þvottahúsinu, og er álitið, að neisti hafi hrokkið í loftið og eldurinn síðan komizt upp í geymsluna. Varð þess ekki strax vart, því að Sigvaldi hafði brugð- ið sér frá. Karl Kristjánsson og Sigurður Óli Ólafsson. Fundi var síðan slitið, er sætaskipun hafði verið ákveðin og framlögðum skjöl- um lýst. Fundur neðri deildar Jón Sigurðsson á Reynistað. aldursforseti í neðri deild, stjórn- aði þar forsetakjöri. Einar Ol- geirsson var kosinn forseti. — Hlaut hann 18 atkv., Jón Sig- urðsson hlaut 10, en 2 seðlar voru auðir. 1. varaforseti var kosinn Halldór Ásgrímsson með 18 atkv., Áki Jakobsson fékk 1, en auðu skiluðu 11 þingdeildar- menn. Áki Jakobsson var síðan kosinn 2. varaforseti með 19 at- kvæðum, 10 seðlar voru auðir. Magnús Jónsson og Páll Þor- steinsson voru kosnir skrifarar. Fundi var slitið að loknum sams konar störfum og fóru fram í lok fundar í efri deild. Samkvæmt þessu hafa Fram- sóknarmenn forseta efri deildar, kommúnistar forseta neðri deild- ar og Alþýðuflokksmenn forseta sameinaðs þings. Varaforseta- störfum er einnig skipt milli stjórnarflokkanna. Þing kemur næst saman á mánudag og eru þá fundir í sam. þingi og báðum deildum. Á dag- skrá eru kosningar í fastanefndir. Enn eru 6 menn ókomnir til þings, þeir Alfreð Gíslason, Áki Jakobsson, Eiríkur Þorsteinsson, Kjartan J. Jóhannsson, Pétur Ottesen og Guðmundur I. Guð- mundsson. Sjálfsfæðisiél. HAFNARFIRÐI. — Hinn árlegi haustraarkaður Sjálfstæðisfélag- anna, sem vera átti s.l. sunnu- dag, en var þá frestað sökum berklavarnardagsins, verður í Sjálfstæðishúsinu á morgun og hefst kl. 4. Hefir mjög verið vandað til markaðsins, en þar verður hægt að fá alls kyns matvæli, fatnað og fleira, við vægu verði. Fjöltefli á sunnudaginn á vegum HElMDALLAR SKÁKMEISTARINN Ingi R. Jó- hannsson teflir fjöltefli á vegum Heimdallar á sunnudaginn kl. 2. Fjölteflið fer fram í Valhöll við Suðurgötu. Heimdallur hóf þessa starfsemi í fyrra, fyrstur stjórn- málafélaga. Var þá margt um manninn og komust oft færri að en vildu. Þeir Friðrik Ólafsson, Ingi R. Jóhannsson o. fl. skýrðu þar skákir og tefldu fjöltefli. — Heimdallur hefur nú þessa starf- semi sína að nýju, enda mikill og vaxandi áhugi fyrir hendi. Heim- dellingar og aðrir, sem kynnu að hafa áhuga, eru hvattir til þess að koma í Valhöll á sunnudag, og taka með sér töfl, sé þess nokk- ur kostur. Spilakvöld Þórs á Akranesi ÞÓR, félag ungra Sjálfstæðis- manna á Akranesi heldur spila- kvöld í Hótel Akranesi sunnu- dagskvöldið 13. þ. m. kl. 8,30, stundvíslega. Allt Sjálfstæðisfólk er hvatt til að mæta. „i R. Jóhannsson Aínueli Heimis SJÁLFSTÆÐISFÓLK á Suð- urnesjum er minnt á afmælis- hóf Heimis, félags ungra Sjálfstæðismanna í Keflavík, sem hefst í kvöld kl. 9 í Ung- mennafélagshúsinu. I hófinu mun Ólafur Thors flytja ávarp og ýmis atriði önnur eru á dagskrá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.