Morgunblaðið - 19.10.1957, Page 2
*
2
M O R C v 7V F? r 4 Ð 1Ð
Laugardagur 19. okt. 1957
Fró Alþingi
FUNDIR voru í gær í báðum
deildum Alþingis. í efri deild
flutti Bernharð Stefánsson stutta
ræðu um frumvarp um áfram-
haldandi innheimtu 50% eigna-
skattsviðauka (Sjá Mbl. 12. okt.)
Var því vísað til 2. umræðu og
fj árha gsnefndar.
í neðri deild var stjórnarfrum-
varpi um jarðhita (sjá Mbl. í
dag) vísað umræðulaust til 2.
umr. og allsherjarnefndar. Karl
Guðjónsson (K) flutti framsögu-
ræðu um frumvarp um að undan
þiggja skatti tekjur af eftirvinnu
svo og nætur- og helgidagavinnu.
Frumvarps þessa var getið í
blaðinu í gær. í framsöguræðu
sagði Karl Guðjónsson m. a. að
verkalýðsfélögin hefðu fulla
heimild til að banna eða tak-
marka eftirvinnu og gripu þau
til þess ráðs, myndi útflutnings-
framleiðslan bíða mikinn hnekki.
Frumvarpinu var vísað til 2. umr.
og fjárhagsnefndar.
Útbýtt hefur verið 3 nýjum
þingskjölum. Ingólfur Jónsson og
Sigurður Ó. Ólafsson fiytja til-
lögu um eftirgjöf lána og Pétur
Ottesen frumvarp um nýja skip-
an á greiðslu kostnaðar við skóla,
er ríki og sveitarfélög reka í
sameiningu. Beggja þessara þing
skjala verður getið sérstaklega
í Mbl. Þá flytja Bernharð Stef-
ánsson og Friðjón Skarphéðins-
son tillögur um vegamál í Eyja-
firði.
^ Vegir
í Árnessýslu
SIGURÐUR Ó. Ólafsson flytur
tillögur á Alþingi um breytingar
á vegalögum. Fjalla þær um 3
vegi í Árnessýslu: Sólheimavegur
liggi af Biskupstungnabraut hjá
Minni-Borg, um Sólheima,
Kringlu og Bjarnastaði, á Bisk-
upstungnabraut austan Svína-
vatns. Skarðsvegur liggi af Gnúp
verjavegi sunnan Geldingaholts,
um Ásbrekku og Skarð, á Skeiða-
og Hreppaveg hjá Laxárholti.
Laxárdalsvegur liggi af Gnúp-
verjavegi neðan Hamarsheiðar,
hjá Mástungum og Skáldabúðum,
að Laxárdal.
Stúdentar
STÚDENXARÁÐSKOSNING
ARNAR eru í dag. Kosningaskrif-
stofa Vöku, félags lýðræðissinn-
aðra stúdenta, er í Vonarstræti 4,
RÍmar 24477 og 10530.
Listi Vöku er
D-listinn
Gullöldin okkar — síðasta sýning
HIN snjalla revýa, Gullöldin
okkar, sem búið er að sýna 64
sinnum við ágætar undirtektir,
verður sýnd í síðasta sinn annað
kvöld í Austurbæjarbíói. For-
svarsmenn revýunnar hafa tjáð
blaðinu, að þeir hafi viljað gefa
sem flestum kost á að sjá þessa
síðustu sýningu og þess vegna
tekið Austurbæjarbíó, á þeim
tíma sem öllum ætti að henta
bezt, eða kl. 9,15. — Eins og
kunnugt er fara með aðalhlut-
verk í Gullöldinni þau Haraldur
Á. Sigurðsson, Steinunn Bjarna-
dóttir, Lárus Ingólfsson, Karl
Guðmundsson, Sigríður Hannes-
dóttir og Hjálmar Gíslason.
Félagsmálaráðherra og liðsmenn hans
reyna eflir mætti að spilla fyrir því að fólk
greiði úlsvör sín lil bæjarsjóðs
BORGARSTJÓRI svaraði á fundi
bæjarstjórnar í fyrradag fyrir-
spurn frá Þórði Björnssyni, bæj-
arfulltrúa Framsóknarmanna,
um innheimtu útsvara. Kom
fram, að innheimtan hefur geng-
ið betur til ágústloka á
þessu ári en undanfarin
ár. Um hver mánaðarmót nú
hefur komið fram, að 2—3%
meira hefur verið greitt í bæjar-
sjóð en í sama mánuði fyrir ári.
í september voru útsvars-
greiðslur lægri en búizt var
við. Allar líkur benda til þess
að orsakirnar séu aðgerðir
rikisstjórnarinnar og tilburðir
og tilraunir Hannibals Valdi-
marssonar til að ómerkja á-
lagningu útsvara í Reykja-
vík.
Að vísu brugðust ýmsir þann-
ig við tilræðinu, að þeir inntu
greiðslur sínar fyrr af hendi en
sl. ár, en því miður hafa of marg-
ir dregið að greiða, og innheimtu
aðgerðum vaTð að fresta. Hefur
mjög verið að því unnið af sam-
herjum ráðherrans að hvetja
menn til að fara sér hægt í að
greiða og til að kæra. Blöð birtu
fyrirmyndir að kærum og ýmsir
lögfræðingar, er stjórninni
standa nærri, höfðu fjöldafram-
leiðslu á kærubréfum.
Afleiðingin hefur orðið sú,
að um 4 milljónir kr. vantar á
Ráðherranefnd f jallar uin fríverzlun
PARÍS, 18. okt. — f dag lauk
fundi Efnahagssamvinnustofnun-
arinnar og sóttu hann fulltrúar
17 landa. Var fjallað um sam-
eiginlegan Evrópumarkað og frí-
verzlunarsvæðið svonefnda. Að
undanförnu hafa nefndir serfræð-
inga fjallað um þessi mál, en ráð-
herrarnir, sem fundinn sátu,
ákváðu nú að sérstök ráðherra-
nefnd skyldi taka málið að
sér. Formaður þessarar nefndar
er brezki ráðherrann Maudling,
sem hefur með höndum Evrópu-
mál í brezku stjórninni. Honum
hefur verið falið að semja spurn-
ingalista til þess að fá fram hin
ýmsu sjónarmði aðildarríkjanna
um ýmis umdeild vafaatriði.
Störfum sínum á hann að hafa
lokið fyrir næsta ráðherrafund,
sem verður í lok nóvembermán-
aðar. Þau vandamál, sem hér er
um að ræða. eru meðal annars
andstaða Breta gegn því að frí-
Biblíuskóli Fíladelf-
íusafnaðarins
EINS og undanfarin haust hefur
Fíladelfiusöfnuðurinn Biblíu-
skóla á þessu hausti. Skólinn
hefst mánudaginn 21. þ. m. og
lýkur þriðjudaginn 5. nóvember
næstkomandi.
verzlunin nái til landbúnaðar-
vara — og krafa Frakka um að
fríverzlunarsamnmgarnir verði
sniðnir eftir samningum megin-
landsríkjanna sex um sameigin-
legan markað.
Ekkert athugavcrt
STOKKHÓLMI, 18. okt. — Vax-
andi óánægju gætir í Svíþjóð
vegna þess að sænsku stjórnar-
völdin hafa ekki stöðvað sölu
„Sangen om den röde rubin“ i
bókaverzlunum landsins. Eru það
aðallega kristileg samtök, sem
hér um ræðir. Kristilega dagblað
ið hefur að undanförnu ráðizt
harkalega á stjórnarvöldin og
sagt, að frá Svíþjóð væri sorp-
inu nú dreift yfir Norðurlönd. —
Fréttamaður NTB átti í dag tal
við sænska dómsmálaráðherr-
ann og spurði, hvort hann hefði
í hyggju að banna bók Mykle.
Ráðherrann sagði, að þessi bók
sem allar aðrar hefði farið um
hendur dómsmálaráðuneytisins
— og þar hefði ekki fundizt neitt,
sem bryti í bága við prentfrelsis-
lögin.
Snæddu með
að útsvörin, er standa undir
nær öllum íbúðabyggingum
og öðrum framkvæmdum og
útgjöldum bæjarins, hafi
greiðzt jafnvel í bæjarsjóð í
september og ráð var fyrir
gert.
Borgarstjóri ræddi nokkuð um
fjárhag bæjarins að öðru leyti og
minnti á hin stórkostlegu van-
skil ríkissjóðs, er um sl. mánaða-
mót skuldaði bæjarsjóði um 23
millj. kr.
Þórður Björnsson veittist
með gífuryrðum að borgar-
stjóra fyrir að minnast á skipti
rikis og bæjar í fjármálum.
Af því tilefni tók Jóhann Haf-
stein til máls og kvaðst undrast
mjög framkomu Þórðar. Hann
notaði bæjarstjórnarfundi til að
lesa blaðamönnum Tímans fyrir
og þættist nú bíða frétta af fjár-
hag bæjarins í ofvæni. Þórður
ætti þó sæti í bæjarráði, er væri
raunverulega fjárhagsnefnd bæj-
arstjórnarinnar, og hann væri
því ekki að biðja um neitt, sem
honum væri ókunnugt um eða
hann ætti ekki þegar aðgang að.
Hluti ríkisins í skolakosfnaði
Frumvarp Péturs Ottesen
PÉTUR Ottesen flytur frumvarp
á Alþingi varðandi greiðslu kostn
aðar við skóla, sem reknir eru
sameiginlega aí ríki og sveitafé-
lögum.
Efni frumvarpsins er þetta:
Ríkissjóður greiði 90% af
stofnkostnaði heimavistarskóla
gagnfræðastigs svo og húsmæðra-
skóla — í stað 75%, eins og
nú er.
Ríkið greiði einnig 90% (í
stað 75% nú) af hitakostnaði
þessara skóla, ef þeir njóta ekki
jarðhita. Þá gerir frumvarpið ráð
fyrir meiri þáttöku ríkisins í
greiðsiu þess kostnaðar við fyrr-
nefnda skóla, sem ekki er sér-
staklega nefndur í lögum.
Frumvarp þetta er flutt með
hliðsjón af tillögum sem samdar
voru haustið 1956 á fimdi full-
trúa nokkurra sýslufélaga er
standa undir kostnaði af héraðs-
skólum og húsmæðraskólum 1
sveitum.
I greinargerð er sagt, að skóla-
kostnaður sveitafélaga sé mjög
misjafn, sum sveitafélög greiði
ekkert til skólahalds, önnur þurfi
að kosta marga skóla. Hins vegar
séu menntastofnanimar yfirleitt
ekki nema að litlu leyti sóttar af
nemendum úr þeim sýslum, er
kostnaðinn bera. Þegar tillit er
tekið til þessa, telur flutnings-
maður sanngjarnt að gera þæf
breytingar á núgildandi lögum,
sem fram koma í frumvarpi hans.
Frumvarp samhljóða þessu var
flutt í fyrra, en mætti mótstöðu
stuðningsflokka rikisstjórnarinn-
ar og náði ekki fram að ganga.
Æskulýðsfulltrúi
í KVÖLD býður Hjálpræðisher-
inn s.major Arvid Strand vel-
kominn til íslands með móttöku-
samkomu, er haldin verður í sai
Hj álpr æðishersins.
S.major Arvid Strand er yfir-
maður æskulýðshreyfingar Hjálp
ræðishersins á Islandi, Færeyjum
og í Noregi. Hann er þekktur
atorkumaður innan æskulýðs-
starfs Hjálpræðishersins á Norð-
urlöndum.
A morgun heldur majórinn til
Akureyrar. Hann mun einnig
heimsækja Siglufjörð og Isafjörð
í þessari ferð.
Að lokum heldur hann sam
komur í Reykjavík frá sunnudegi
2. nóv. til föstud. 8. nóv.
Dulles
Ingolf Kolshus.
Biblíulestrar verða daglega kl.
2, 5 og 8,30. Sunnudaga, fimmtu-
daga og laugardaga verða þo
vakningarsamkomur kl. 8,30.
Söfnuðurinn hefur lagt áherzlu
á að fá valdan kennimann til að
vera aðalkennara skólans í ár
sem undanfarið. Er það Ingolf
Kolshus frá Ósló, sem er vel
þekktur kennimaður innan
Hvítasunnuhreyfingarinnar. Auk
hans kenna innlendir forstöðu-
menn og trúboðar.
Eins og áður er öllum heimill
aðgangur jafnt að Biblíulestrun
um og vakningarsamkomunum,
meðan húsrúm leyfir.
Biblíuskólinn verður settur
mánudaginn 21. þ. m., kl. 8,30.
Foringjar
ræðast við
LONDON, 18. okt. — Fullvíst er
talið, að Adenauer kanslari sæki
Macmillan heim í næsta mánuði
til þess að ræða við hann um við-
horfin á alþjóðavettvangi. Mac-
millan fer vestur um haf til víð-
ræðna við Eisenhower í næstu
viku — og geta þeir Macmillan
og Adenauer þá borið saman
bækurnar með hliðsjón að því,
sem Eisenhower hefur lagt til
máianna.
Gegn ísrael
TEL AVIV, 18. okt. — Ben
Gurion, forsætisráðherra fsraels-
ríkis, réðist í dag harkalega á
Ráðstjórnarríkin í ræðu er hann
flutti á fundi flokks síns. Kvað
hann Rússa nú gera allt, sem í
þeirra valdi stæði til þess að egna
Arabaríkin gegn ísrael. Áróður
gegn ísrael væri daglegt brauð
i blöðum Ráðstjórnarinnar —
og hann væri ætlaður til þess að
gera Arabaríkin enn hliðhollari
Rússum — og opna þeim leiðina
inn I löndin fyrir botni Miðjarð-
arhafsins.
WASHINGTON 18. okt. — Eisen
hower forseti sæmdi Filip prina
í dag gullorðu bandaríska land-
fræðifélagsins með sérstakri við-
höfn í Hvíta húsinu. Síðar sat
Filip fund með vísindamönnum
og var honum þá m.a. sýnt líkan
af gerfitungli því, er Bandaríkja-
menn ætla að skjóta út í geim-
inn. Síðar í dag var móttaka I
brezka sendiráðinu Elísabetu og
Pilip til heiðurs. í kvöld sátu þau
kvöldverðarboð Dullesar utan-
ríkisráðherra og konu hans.
OTTAWA, 18. okt. — Yfirforingi
Kyrrahafsflota Kanadamanna lét
svo um mælt, að Kanadamenn
mundu granda hverjum þeim ó-
kunnum kafbát, sem sýndi sig
innan landhelgi Kanada. Undan-
farið hefur orðið vart ókunnra
kafbáta við Kanadaströnd.
í f angelsi ?
OSLÓ, 18. okt. — Norska stjórn-
in hefur enn einu sinni snúið
sér til sýrlenzku stjórnarinnar
og beðið um upplýsingar um
norskan ríkisborgara, sem hvarf
í Sýrlandi í sumar — 'og ekkert
hefur síðan spurzt til. Hefur
norska stjórnin haft veður af því,
að maður þessi, Helleren að
nafni, sé í haldi hjá Sýrlending-
um. Það var í júlí s. 1., að Heller-
en fór yfir sýrlenzku landamær-
in — frá Tyrklandi. Var hann í
einkaferð um löndin fyrir botni
Miðjarðarhafsins. Norska stjórn-
in hefur hvað eftir annað innt
sýrlenzku stjórnina eftir mann-
inum, en ávallt fengið sama svar-
ið: „Við vitum ekkert um þenn-
an mann“.
Skiptar skoðanir
NEW YORK, 18. okt. — Fulltrúi
Hollands í stjórnmálanefnd Alls-
herjarþings S. Þ. lét svo um
mælt í ræðu í dag, að það væri
skoðun hollenzku stjómarinnar,
að gagnkvæmt samkomulag um
að tilraunum með kjarnorkuvopn
yrði hætt, mundi ekki tryggja
heimsfriðinn á neinn hátt. Hann
kvað djúpið nú svo mikið milli
stórveldanna, að slíkar skuldbind
ingar þeirra yrðu harla léttvæg-
ar. Það yrði að fást örugg trygg-
ing fyrir því að samkomulagið
yrði haldið.
Ráðstjómarríkin, Indland og
Japan eru fylgjandi slíku banni,
en íulltrúar Breta og Bandaríkja-
manna telja, að slíkt bann, eða
samkomulag, komi einungis til
greina sem liður í allsherjaraf-
vopnunarsamkomulagi, sem og
næði til framleiðslu kjarna-
kleyfra efna.