Morgunblaðið - 19.10.1957, Blaðsíða 7
I/augardagur 19. okt. 1957
MOJtCinSBlAÐlB
f
Þjóðdonsor kenndir í
mörgum
barna og
STARFSEMI Þjóðdansafélags
Reykjavíkur hófst miðvikudag-
inn 16. okt. í Skátaheimilinu við
Snorrabraut. Kennsla verður með
■vipuðum hætti og undanfarin
ár og verður kennt í 11 flokkum
barna og fullorðinna.
Kennsla í barnaflokkum mun
▼erða á miðvikudögum og verður
kennt í 5 flokkum. Aherzla er
lögð á að kenna ýms undirstöðu-
■triði dansa. Jafnframt eru kennd
ir fjölbreyttir barnadansar,
gömlu dansarnir og í framhalds-
flokkum og eldri flokk byrjenda
«ru kenndir vikivakar og erlend-
ir þjóðdansar. Aðsókn í barna-
flokkana hefur verið mjög mikil,
■vo að færri hafa komizt að en
þcss hafa óskað. Aðsókn drengja
flokkum
unglinga
hefur farið vaxandi og má geta
þess að í tveim flokkunn voru
jafnmargir drengir og stúlkur
sl. ár.
Kennari yngstu barnanna
(byrjenda) verður frú Matthildur
Guðmundsdóttir kennari, en
Svavar Guðmundsson kennari
mun annast kennslu í öðrum
barnaflokkum. Stefnt verður að
sameiginlegrj sýningu fyrir for-
eldra barnanna næsta vor, en
vegna þrengsla var ekki hægt
að koma við slíkri sýningu sl vor.
Unglingaflokkur ^ (piltar og
stúlkur) verður i Edduhúsinu á
miðvikudagskvöidum. Sýningar-
fiokkur félagsins verður einnig
á miðvikudagskvöldum á sama
stað.
Nokkur breyting verður é starf-
semi fullorðinsflokka. Byrjenda-
flokkur í þjóðdönsum verður á
miðvikudagskvöldum í Edduhús-
inu. Hinir vinsælu flokkar í
gömlu dönsunum svo og fram-
haldsflokkur í þjóðdönsum verða
í Skátaheimilinu á sunnudags-
kvöldum. Kennt verður í þriggja
vikna námskeiðum og er óilum
heimil þátttaka.
Einu sinni í mánuði verður
skemmtikvöld fyrir alla flokka-
fullorðinna og gesti.
Auk þeirra kennara, sem önn-
uðust kennslu hjá félaginu sl.
vetur, en þeir eru frú Matthilóur
Guðmundsdóttir, frú Sigríður Val
geirsdóttir og Svavar Guðmunds-
son, bætist félaginu nýr kennari
frk. Minerva Jónsdóttir.
Minerva Jónsdóttir, sem er
iþróttakennari að menntun, var
i sýningarflokki félagsins fyrstu
starfsárin, en er nú nýkomin
heim eftir þriggja ára nám við
eina af þekktustu dansxennara-
stofnunum Evrópu. Stundaði hún
nám við Laban Art og Movement
Centre í Englandi.
íbúS til sölu
Fyrsta hæð hússins nr. 24 við Sólheima. — Ibúðin er
156 ferm. að stærð og selst fokheld.
Upplýsingar á staðnum og í síma 15694 á laugardag og
sunnudag.
ár
Ufvegsmenn
Útvegum eikarbyggða fiskibáta frá Danmörku,
Noregi og Skotlandi.
Verðið mjög hagstætt.
Afgreiðslutími stuttur.
IMagnús O. Olafsson
Hafnarhvoii.
Atvinna
Hið mjúka Rinso þvæli
skilar dósamlegum þvotti
Hið freyðandi RINSO þvær allt og þvær vel. Og þvott-
urinn er lifandi og sem nýr, og hendurnar mjúkar, eins
og þær hefðu aldrei komið í vatn. Það er vegna þess, að
Rinso freyðir sérstaklega vel, — og er milt og mjúkt
og drjúgt.
Þúsundir húsmæðra um allan heim vita, að Rinso ber
af öllum þvottaefnum, af því að hið mjúka Rinso þvæli
gefur alltaf fullkominn árangur og skilar fatnaðinum
sem nýjum.
Freyðandi Rinso er sjálfkjörið í þvottavélar.
Nýja mógkonan
hennar mömmu
Þegar nýja mágkonan hennar mömmu
heimsótti okkur í fyrsta skipti tjaldaði
mamma því sem til var og bar á borð
þær beztu kökur, sem hún hefur nokkurn
tíma bakað.
En það voru ekki kökurnar, sem vöktu
mesta hrifningu, heldur mjallhvíti dúk-
urinn á borðinu. Þegar mamma sagði, að
hann væri þveginn úr Rinso, varð móg-
konan ekkert hissa. „Ég kaupi sjálf alltaf
Rinso. Þvotturinn verður svo lifandi",
sagði hún. „Það jafnast ekkert á við það“.
RINSO þvær betur
— og kostor minno
Ábyggilegur maður óskast til afgreiðslu- og
skrifstofustarfa.
Þarf að kunna vélrilun.
Umsóknir ásamt meðmælum, ef til eru, leggist inn
á vörubílastöðina Þrótt fyrir 24. þ. m.
HafnarfjörSur
Unglinga eða eldri mann vantar til að bera blaðið
út í hálfan vesturbæinn. — Hátt kaup.
Talið strax við afgreiðsluna Strandgötu 29.
Barber — Greene
Hleðslufæki
Sparið mannafl; biðtíma og fé
Barber-Greene hleðslutækin eru hraðvirkustu tæki
sinnar tegundar þegar um mokstur á lausu efni er að
ræða. — Auðveld í notkun.
Enga æfingu þarf til að fara með tækin. Flutningur
milli staða er auðveldur. — Hleðsluhraði á sandi, möl,
kolum og öðrum efnum er allt að 2 teningsmetrar á mín-
útu. — Tækin eru fáanleg á beltum og hjólum.
í flutningi milli staða fer hjólavél með allt að 20 km hraða.
LAUGAVEG 166.