Morgunblaðið - 27.10.1957, Blaðsíða 23
Sunnudagur 27. okt. 1957
MQRGVNBl4Ð1Ð
2S
766 stúdentar í
anum í vetur
Háskólahátsbin var i gær
HÁSKÓLAHÁTÍÐIN var haldin í gær, fyrsta vetrardag, að venju.
Háskólarektor dr. Þorkell Jóhannesson flutti ræðu, og flutt var
hátíðaljóð skólans eftir dr. Pál ísólfsson við ljóð eftir Þorstein
Gíslason. Þorsteinn Hannesson og dómkirkjukórinn sungu undir
stjórn dr. Páls. 179 stúdentar innrituðust nú í skólann, en nem-
endafjöldi alls er 776. Viðstaddir hátíðina voru forseti íslands,
ráðherrar, sendiherrar, ýmsir gestir, kennarar og stúdentar.
í upphafi ræðu sinnar minntist I
rektor dr. Jóns Jóhannessonar, I
er andaðist 4. maí, með þeim orð-
um m.a. að dr. Jón Jóhannesson
hafi fortakalaust verið einn hinn
fremsti fræðimaður í sögu ís-
lands sem þjóðin hefur eignast
um langt árabil. Hefur háskóli
vor og ísl. fræði yfirleitt beðið
þungt áfall við andlát slíks
manns.
Rektor rakti sögu hinna nýju
háskólalaga er samþykkt voru á
síðasta þingi en með gildistöku
þeirra voru felld úr gildi 18 lög
og lagaákvæði ný og gömul varð-
andi háskólann. Drap hann og
nokkuð á umræður þings um að
takmarka aðgang að ýmsum
deildum skólans og um eftirlit
kennara með námi nemenda.
Kvaðst hann vona að hér eftir
sem hingað til muni samskipti
háskólakennara og stúdenta mót-
ast af velvild og trúnaði af beggja
hálfu og að fráleitt væri að reisa
þurfi með lögum þann múrvegg
á milli þeirra sem hvorugir fái
yfirstigið.
Kennaralið
*
Með haskólalögunum voru
stofnuð 3 ný prófessorsembætti
— í eðlisfræði. í uppeldisfræðum
og í lyfjafræði. Hefur verið skip-
að í þessi embætti svo og embætti
prófessors í lífeðlisfræði sem
stofnað var 1955 en ekki skipað í
fyrr. Hinir nýju kennarar eru:
Davíð Davíðsson, próf. í lífeðl-
isfræði, Kristinn Stefánsson, próf.
í lyfjafræði, Matthías Jónasson,
próf. í uppeldisfræði, Þorbjörn
Sigurgeirsson, próf. í eðlisfræði.
Ivar Danielsson dósent í lyfja-
fræði lyfsala. Nýja kennara bauð
rektor velkomna og árnaði heilla.
Þá hvað hann dr. Halldór Hall-
dórsson hafa verið skipaðan próf.
eftir 6 ára starf sem dósent. í
guðfræðideild varð sú breyting á
kennararliði að próf. Þórir K.
Þórðarson hefur fengið leyfi frá
kennslustörfum en við starfi hans
hefur tekið sr. Haraldur Sigmar.
í heimspekideild hefur komið
nýr sendikennari frá Bandaríkj-
unum og einnig nýr sendikenn-
ari frá Spáni, og nýtur til þess
styrks frá ísl. ríkinu. Þessa kenn-
ara alla bauð rektor velkomna
til starfa.
Heimsóknir
Rektor gat gesta er heimsótt
höfðu háskólann á árinu. Minnt-
ist hann fyrst heimsóknar sænsku
konungshjónanna og finnsku
forsetahjónanna.
Fyrir milligöngu British Coun-
sil fóru fram skipti á prófessor-
um til fyrirlestra. Próf. Einar
Ól. Sveinsson fór til Englands til
fyrirlestrahalds og dr. Franklin
frá London hélt fyrirlestra hér.
Þrír prófessorar komu fyrir milli
göngu Evrópuráðsins til fyrir-
lestra hér. Af öðrum heimsókn-
um nefndi rektor heimsókn
rektors Kaupm.hafnarháskóla og
próf. Jan Petersen er var and-
mælandi við doktorsvörn Krist-
jáns Eldjárns.
Þá gat rektor utanferða ísl.
prófessora og ræddi um nauð-
syn ferðalaga þeirra fyrir vís-
indalegt og menningarlegt sam-
starf við þær þjóðir er íslend-
ingar standa næst. Þakkaði hann
stuðning ríkisvaldsins við þess-
ar ferðir.
Húsnæðisskortur
Þá ræddi rektor um húsnæðis-
skort er háskólinn byggi við. Æ
ofan í æ hefur skólanum verið
neitað um leyfi til byggingar
náttúrugripasafns og var því
keypt hæð við Hlemmtorg. Er
það til bráðabirgða en bætir úr
brýnni nauðsyn. Háskólanum hef
ur verið sagt upp húsnæði er not-
að hefur verið til efnafræði-
kennslu. Háskólaráð vill byggja
Dr. Þorkell Jóhannesson
háskólarektor.
hæð við suðurálmu íþróttahúss til
að koma upp fullkominni kennslu
stofu í lífeðlisfræði. Neitað er um
fjárfestingaleyfi og þó liggur þak
álmunnar undir skemmdum af
leka og úrbóta er nauðsyn. Mætti
úr bæta með hinni nýju bygg-
ingu, fengist leyfi. En það fæst
ekki og horfir nú sem leggja þurfi
í kostnaðarsama viðgerð. Fénu er
því á glæ kastað.
Háskólinn er vaxandi stofnun
í þjóðfélagi og hætt er við að
við drögumst aftur úr, ef ekki er
betur að gætt, sagði rektor. Eng-
in smuga er nú til í háskóla-
byggingunni eftir að lífeðlis-
kennarastóllinn og lyfjafræði-
kennslan hefur fengið til umráða
húsnæði það er Húsmæðrakenn-
araskólinn hafði. Aðrar deildir
verða að takmarka aðgang að
námi meira en æskilegt er vegna
húsnæðisskorts, t.d. tannlækna-
deildin. Efnafræði- og eðlisfræði
kennslan skortir húsnæði. Bók-
hlöðu verður og að finna stað.
Tillaga hefur komið fram um að
byggja nýtt húsnæði fyrir lækna-
skólann á lóð Landspítalans.
Mundi þá batna hagur lækna-
deildarinnar, en á því er full
þörf, og einnig mundi rýmkast
mjög í háskólanum sjálfum. All-
ir sjá af 20 ára sögu háskólans
á núverandi stað hve ör þróunin
er og það er kannski að verða
í seinustu lög að ákveða nú ríf-
legra svæði undir byggingar
skólans sem nægja muni framtíð-
inni. Þáttur vísindastarfs og
margháttaðra rannsókna og
fræða í atvinnu- og menninga-
lífi þjóðarinnar hlýtur að verða
æ ríkari er tímar líða og slíku
starfi verður að skapa rúm. Mikil
verkefni bíða háskólans og
skylda okkar er að ætla fram-
tíðinni allt það svigrúm sem við
höfum tök og efni á.
Þá þakkaði rektor Alþingi og
ríkisstjórn fyrir lög um visinda-
sjóð. Sá sjóður getur unnið mest
þjóðnytjaverk á þann hátt að
gefa ungum efnilegum vísinda-
mönnum tækifæri til að vinna að
vísindastörfum, sem síðar gætu
Háskól-
orðið vísir mikilla og þarflegra
umbóta í þjóðlífi voru.
Nemendafjöldi.
Síðar vék rektor að nemenda
fjölda á kennsluári því, sem er
að hefjast. 179 stúdentar hafa inn
ritast í háskólann og skiptast
þannig: 1 guðfræði 3, í læknis-
fræði 35, í tannlækningum 3 og
lyfjafræði og lyfsala 4, í lögfræði
24, í viðskiptafræði 18, í heim-
spekideild 78 og í verkfræði 14.
Tala stúdenta í deildum skólans
er nú sem hér segir: í guðfræði-
deild 40, í læknisfræði 346, (þar
af 15 í tannlækningum og 6 í
lyfjafræði lyfsala), í lagadeild
126, í viðskiptadeild 94, í heim-
spekideild 220, í verkfræði 40.
Alls eru því 766 stúdentar við
háskólann.
Á sl. ári útskrifuðust úr deild-
um skólans 61 kandidat þar af
2 úr guðfræðideild, 18 úr laga-
deild, 3 úr tannlækningum, 10
úr lagadeild, 11 úr viðskipta-
deild, 12 úr heimspekideild og
8 úr verkfræðideild.
Síðan sneri rektor máli sínu
til nýstúdenta og bar saman rétt-
indi stúdenta nú og fyrr, og hvað
þau mjög hafa minnkað á seinni
árum. Skyldurnar hafa hins veg-
ar engan veginn minnkað heldur
þyngst til drjúgra muna síðustu
öldina eða svo. Háskólinn býður
ykkur, nýstúdentar, aðstæðu til
að nema þau fræði sem þið hafið
kosið, þó sú aðstaða sé ekki í öllu
fullkomin, t. d. að því er varðar
bókakost, þá eigið þið við betri
aðstæður að búa en t. d. þeir
er luku prófi fyrir 30 árum.
Gæta skulu menn að þeim er
naumur tími mældur og ný verk-
efni kalla að jafnskjótt og hverj-
um áfanga er náð. Við íslend-
ingar eigum því láni að fagna,
að vera ung og vaxandi þ'jóð í
stóru landi, sem hvergi nærri er
numið. Miklu hefur þokað til
betra horfs, en sá árangur er
hverfandi hjá því sem ógert bíð-
ur. Alls staðar blasa við ný verk-
efni, ný tækifæri, nýir möguleik-
— Bókmenntir
Frh. af bls. 17
að stofna hér búnaðarskóla, en
ritgerð Jóns um þetta efni birt-
ist í „Nýjum Félagsritum" árið
1849. Síðar skrifuðu margir um
málið og talsvert var um það
rætt, en Þingeyingar urðu fyrst-
ir til þess, að semja tillögur og
semja bænaskrá um það, að
stofnaður yrði hjá þeim búnað-
arskóli. Aðrir komu á eftir. í
Flatey á Breiðafirði var fengizt
við búnaðarfræðslu, segir höf.,
veturinn 1857—1858. En stjórn-
in tók öllum málaleitunum um
skólastofnun dauflega. Loks kom
þó tilskipun um stofnun búnað-
arskóla, árið 1872. Dróst þó enn
á langinn. Var fyrsti íslenzki
búnaðarskólinn stofnaður í Ól-
afsdal árið 1880 af Torfa Bjarna-
syni.
í sjötta kaflanum er ýtarlega
rakin forsaga búnaðarskólans á
Hólum, en hann var settur á
stofn 14. maí 1882.
í næstu köflunum er svo fjall-
að um ýmislegt skólanum við-
komandi, svo og bújörðina Hóla
og byggingar á staðnum. En í
ellefta kafla segir frá starfsliði
skólans, allt frá byrjun, ævifer-
ill skólastjóra og kennara rakinn
í stuttu máli, og myndir af þeim
öllam. Er sá kafli langur, að von-
um. Þá er sagt skilmerkilega frá
kennslunni, en því næst er nem-
endatal. Loks eru kaflar um
skólabúið og tilraunir ýmsar, vel
ritaðir, og fróðlegir þeim, sem
áhuga hafa á búskap. Síðast
er þáttur um félagsmál og mann
fagnað.
Bókin er glæsileg að öllum
búnaði, prýdd myndum, og vel
frá henni gengið.
ar. Framtíðin kallar á krafta okk
ar. Hér búið þið ykkur undir
ævistarfið og það hversu ykkur
farnast, er ekki að litlu leyti und
ir því komið, hversu trúlega þið
vandið til verka ykkar hér. Tími
ykkar hér á ekki aðeins að færa
ykkur Iærdóm, heldur líka mennt
un, andlegan og líkamlegan
þroska. Notið tímann vel, því
hann líður vel.
Síðan hvatti hann til þátttöku
í félagslífi og sagði: Saga stúd-
enta síðasta aldarfjórðung er
auður af mikilfenglegum kosn-
ingasigrum, en hún er einstak-
lega fátæk af flestu því er miðað
gæti að því að bæta aðstöðu stúd
entanna sjálfra. Taldi rektor að
hin pólitíska eyðimerkurganga
Stúdentaráðs hafi hafizt fyrir 25
árum og kvaðst ekki trúa því,
að það væri eintóm tilviljun að
síðan hefði lítið miðað að fram-
þróun hagsmunamála stúdenta.
Ipó bað hann engan skilja orð
sín svo að stúdentar ættu ekki
að hafa afskipti af stjórnmálum.
Slíkt er sjálfsagt, en þeir yrðu
að standa saman er kæmi að
málum stúdenta sjálfra. Það vant
ar félagsheimili er eflt gæti fé-
lagslíf stúdenta og stúdentar
verða að hafa foringja. Kannski
dylst í ykkar hópi, nýstúdentar,
maður eða menn á borð við Lúð-
vík Guðmundsson, er hafði for-
göngu um byggingu fyrsta stúd-
entagarðsins. Hið forna merki
stúdenta þarf að reisa og þá mun
ekki standa á stuðningi alþjóðar.
Látið skilninginn á aðstöðu og
hlutverki landnámsmannsins
vera ykkar leiðarljós hér í skól-
anum og viðhorfi til ævistarfsins
síðar. Minnist orða Stephans G.:
„Það að vaxa og verða að liði
mannsins hæsta hlutverk er“.
Síðan afhenti rektor nýstúdent-
um háskólaborgarabréf sín.
Hjartans þakkir færi ég öllum þeim, er heiðruðu mig
með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 70 ára afmæli
mínu 19. okt. sl.
GuSjón Brynjólfsson,
Vegamótum, Isafirði.
Maðurinn minn og faðir okkar
IBSEN GUÐMUNDSSON
frá Súgandafirði, andaðist að Landakotsspítala laugar-
daginn 26. þ. m.
Lovísa Kristjánsdóttir og börn.
Faðir okkar
BJARNI SIGURÐSSON
skrifstofustjóri, andaðist 26. þ.m.
SigurSur Bjarnason,
Eiríkur Bjarnason.
Eiginmaður minn
GUÐBJARTUR PÉTURSSON
andaðist að Elliheimilinu Grund, 23. okt. Jarðarförin fer
fram frá Fossvogskirkju 30. ókt. kl. 1,30.
Fyrir mína hönd, barna og annarra vandamanna.
Kristjana Kristjánsdóttir,
Óðinsgötu 25.
Útför konu minnar
RAGNHEIÐAR BLÖNDAL LÁRUSDÓTTUR
fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 29. okt. kl.
10,30 árdegis. Athöfninni verður útvarpað.
Blóm vinsamlegast afbeðin.
Guðmundur Guðmundsson,
Selfossi.
Útför föður okkar og tengdaföður
ÓSKARS BJARNASEN
Mmsjónarmanns Háskólans, fer fram frá Fríkirkjuruú,
þriðjudaginn 29. okt. kl. 2 e.h.
Athöfninni verður útvarpað.
Börn og tengdaböm.
Þökkum hjartanlega auðsýnda hluttekningu vináttu
við andlát og jarðarför
ÓLAFAR HAFLIÐADÓTTUK
Alveg sérstaklega þökkum við hjónunum í Stórholti 24,
er buðu henni sjúkri að dvelja á heimili sínu, og voru
henni svo óendanlega góð.
Sigurður Hafliðason
Klara Tómasdóttir, Hafdís Sigurðardóttir,
Vigdís Sigurðardóttir, Klara Sigga Árnadóttir.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför konu
minnar, móður okkar og systur
VALBORGAR KARLSDÓTTUR
frá Seyðisfirði.
Michael Sigfinnsson, Karl Michaelsson,
Jónína Michaelsdóttir, Laila Michaelsdóttir,
Ásta Michaelsdóttir, Linda Michaelsdóttir,
Ingibjörg Karlsdóttir, Svavar Karlssoo,
Dóra Jóhannesdóttir