Morgunblaðið - 29.10.1957, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 29.10.1957, Qupperneq 13
Þriðjudagur 29. okt. 1957 MORGUNBT AÐIÐ 13 Handknattleikskeppni hatin: Daufir leikir — en Valur, ÍR og Víkingur sigruðu í M.fl. KEPPNISTÍMABIL handknattleiksins er hafið. Hér í Reykjavik hófst það fyrir alvöru um helgina og er það upphaf Reykjavíkur- meistaramótsins, sem mun ljúka 8. desember en fram að þeim tíma verður keppt hvert laugardafgs- og sunnudagskvöld. Mót þetta er umfangsmikið en virðist af handknattleiksráðinu og handkhattleiks- dcmarafélaginu vera vel skipulagt, ef áætlun stenzt. Svo verður og að vera í þessari vinsælu og fjölmennu íþ-.óttagi-ein, sem æ fleiri laðast að, þó þröngt sé um handknattleiksmenn. Mynd frá Lahti, vettvangi heimsmeistarakeppn innar 1958 í norrænum skíðagreinum. Stökk- pallurinn er byggður samkvæmt nýjustu stökkstílskröfum. Hann er 54 m hár. Húsið er „keppn- ismiðstöðin“ þar sem eru starfsmenn, blaðamenn o. fl. Fyrir framan húsið er rásmark og enda- mark í göngukeppnum. Er göngumennirnir koma að marki ganga þeir ofan hússins undir stökk- pallinn þar sem auglýsingaskiltið „asko“ er, niður að áhorfendasvæðunum, og aftur að húsinu. Hin fagra Lahti verður vettvangur heiqismeistarakeppni í göngu og stökki Forráðamenn vonast til að sjá r Islemlinga meðal keppenda VORIÐ 1955 var svo ákveðið, að Finnland skyldi sjá um keppni í norrænum greinum heimsmeistaramóts skíðamanna, þ.e.a.s. göngu og stökki. Finnar ákváðu að bærinn Lahti skyldi vera keppnisstað- urinn, en þar fór fram sams kohar heimsmeistarakeppni 1938. Undir- búningi í Lathi er nú senn lokið og það því ánægjulegt að vera í hópi norrænna íþróttablaðamanna er boðið var að skoða framkvæmdirn- sr allar, en fundarmönnum á þingi norrænna íþróttafréttamanna var boðið til Lahtis. ★ Vilja íslendinga með Form. undirbúningsnefndarinn- ar í Lahti Yrjö Kaloniemi og fram kvæmdastjóri héimsmeistara- keppninnar þar Arnold Rosen- qvist tóku á móti hópnum og skýrðu undi'tbúning. Þeir bentu fyrst á fánastengur þar sem blöktu fánar Norðurlandanna 5 í tilefni heimsóknar blaðamann- anna. Þeir létu ákveðna ósk í ljósi að þessir 5 fánar mættu standa þarna meðan heimsmeistara- kerpnin stæði sem merki um að cll Norðurlöndin ætt.u kepuendur. Var þessari ósk ei./kum bemt til ísiendinga og Dana sem viðstadd- ir voru, og henni er hér með skilað til ísl. skíðaíþróttahreyf- ir.gar. ★ Undirbúningur Geysimikill og kostnaðarsamur undirbúningur fór fram í Lahti vegna heimsmeistarakeppninnar. Skíðasvæðið, þ. e. a. s. viðbragðs- lína og mark í göngukeppni og stökkpallurinn liggja í miðbiki borgarinnar og mun það eins- dæmi í sögunni. Stökfcpallurinn, sem er 54 m að hæð blasir við og sést langt að. Vegna breytinga og bygginga hefur orðið að flytja á brott eða færa til um 100.000 rúmmetra jarðvegs. Auk þess hef ur verið grafið fyrir leiðslum ýms um og frárennslisrörum Af ný- byggingum má nefna „keppnis- miðstöðina“, þar sem gott rúm fyr ir starfsmenn keppninnar, blaða- menn, útsendingarklefar fyrir út- varpsmenn, herbergi dómara og fl. Þá er heiðursgestahúsið, þar sem m. a. er stúka fyrir forsetann, veitingasalur og fyrir framan op- ið svæði og sæti fyrir gesti og áhorfendur. Þá hafa verið fcyggð 5 matsöluhús fyrir utan þau sem íyrir voru, auk ýmissa smábygg- inga til ýmislegra nota. Svæðið fyrir áhorfendur rúmar um 150 þús manns. Stökkpallurinn hefur verið er.d urbættur á margan hátt, dómarar hafa fengið nýjan klefa og ýmis- legt verið gert til hagræðis fyrir keppendur og starfsmenn. Kostnaðurinn við byggingarnar vegna heimsmeistarakeppninnar námu er blaðamennnnir heim- sóttu staðinn 30 millj. marka eða um 600 þúsuod s. kr. Mótið sjálft Keppin í Lahtis fer íram dag- ana 1—9 marz 1958. Þar verður keppt í 15 km, 30 km og 50 km göngu, auk göngu kvenna og boð- göngu karla og kvenna og auk þess í norrænni tvíkeppni og skíðastökki, sem fram fer síðasía keppnisdaginn. Búizt er við full- skipuðum áhorfendasvæðum oft- ast nær. Geysilegan undirbúniug þarfn- ast slík mót sem þessi en öll áform Finna hafa staðist og hafa þeir hlotið viðurkenningu alþjóða skíðasambandsinS fyrir. Eitt má nefna en það er heimsókn 5—600 blaðamanna, sem þurfa beztu skil yrði til vinnu, og af stuttri heim- sókn í hópi norrænna blaða- manna mátti glögglega finna óskipta ánægju þekktra skíða- fréttamanna um aðstæður allar. Sérstakur skóli mjög glæsilegur , verður „pressu-miðstöðin“. Allt er þegar skipulagt — og tilbúið. ★ Áhugi og skilyrði Finnar eru meðal fremstu þjóða heims í skíðaíþróttum einkum göngu og stökki. Á síðari árum hafa þeir áunnið sér konungs- tignar í stökkinu. Þeir leggja og mikið upp úr æfingum og keppni skíðamanna. Þarna í Laliti — sem þýðir vík — er stendur á flöíu landi, hefur verið byggður glæsi- legur stökkpallur. Stökkmetið er 78 metrar. f Lahti er frægasta stökkfélag Finna. Á einum tíma átti það 20 skíðastökkmenn í keppni í 6 löndum á sama tima. Þegar við komum þangað voru ungir sem gamlir að æfingum. Það var enginn snjór, en þeir æfðu jafnvægið og stökkkra/t í þar til gerðum dýnum. Þegar snjórinn kemur þá er jafnvægið komið — ekkert að gera nema stökkva og stökkva. Mættum við eignast smáa lík- ingu að slíkum palli — og áhuga í iíkingu við það sem þarna gat að líta. — A. St. Erfið og dýr keppni í HINNI nýútkomnu bók, „Knattspyrna 1956—57“, svarar formaður sænsku nefndarinnar. er sér um heimsmeistarakeppn- ina — eða úrslit hennar í Sví- þjóð, nokkrum spurningum um úrslitakeppnina, þar sem m. a. kemur fram: Á 7 millj. s. kr. verða að nást inn fyrir aðgöngumiða ef keppn- in á að bera sig. ★ Fyrsta miðapöntunin kom í júlí 1955 (3 árum fyrir keppn- ina og var frá Kaliforníubúa. Þýzkaland hefur pantað mest af miðum eða 10 þús. Flest lönd hafa eitthvað pantað, jafnvel S-Ameríkuríkin, þó fjarlæg séu. Verði fullt „hús“ á öllum 32 leikum úrslita- keppninnar verða áhorfendur samtals 1,200,00 (miðað við að hver maður sæki aðeins einn leik). Svíar geta þó ekki sleg- ið aðsóknarmetið frá Brazilíu 1950 er úrslitakeppnin fór þar fram. ★ Miðarnir kosta 5—50 krónur (sænskar). Miðar á alla leik- ina á Rásunda-vellinum í Stokkhólmi, m. a. á úrslita- leik, kosta 64 kr. ódýrast, stæði, og allt að 225 kr. fyrir dýrustu sæti. Dauf byrjun Upphaf þessa Reykjavíkurmóts ber mjög keim af stuttum æfir.ga- tíma fram að mótinu. Ekkert meistaraflokksliðanna er á sunnu dag kepptu sýndu þá leikni og getu er liðin höfðu áunnið sér er áleið sl. vetur. Það brá aðeins fyrir fallegum leik, en heildar- svipurinn er enn sem komið er ekki góður. Vafalaust er ástæð- unnar aðeins að leyta í stuttum æfingatíma, enda er slíkt skiljan- legt. Víkingur — Ármann 13:11 Á sunnudagsKvöidið kepptu í m-.fl. karla Víkingur gegn Ár- manni. Leikuiinn yar daufur og an tilþrifa að mesíu. Bezti upp- byggjandi á vellinum var Sig. Jónsson í Víking. Ármannsliðið var nú daufara en í fyrra, skipu- lagslítill er leikur þess og nú vant ar það sem í fyrra gerði strik í reikiningin — langskot eins og Jón Erlendsson beitti svo árang- ursríkt. Víkingar náðu forvstu og höfðu hana nær óslitið og unnu 13:11. Virðist horfa bjartara hjá þeim en áður, þó enn vanti á að leikur liðsins ógni hinum sterkari lið- um okkar. Vikingur hefur kallað fram gamla jaxla t d. Axel Ein- arsson. Þeir kunna leikmn og eru styrkar stoðir í liðinu, þó æfingu skorti. Ármannslið'ð er ósam- stillt en góðir menn inn á milli t.d. Hannes.Hali. — Mörk Vík- ings skoruðu Sig. Jónss 6, Björn, Axel og Sig Bj. 2 hver og Pétur Bj. 1. Mörk Ármanns skoruðu: Hannes Hall 5. Friðrik og Sig. Jörgensen 2 hvor, Hallgrímur og Kristinn 1 hvor. ★ Þróttur — ÍR 12:14 ÍR tók sem vænzt var forystu, en hún var knöpp og Þýzka- landsförunum gekk ver með að opna vörn Þróttarmanna en búizt var við. Langskot Gunnlaugs, föst og örugg réðu því að í hálf- leik stóð 7:4 ÍR í vil. En í síðari hálfleik sóttu Þrótt- armenn sig, komust undarlega oft og tiltölulega fyrirhafnarlítið gegnum ÍR-vörnina, bæði í horn- unum og fyrir miðju marki. Stóð um tíma 8:7 og síðar 9:8 fyrir ÍR. En þá sýndu þeir aðeins lit og komust í 14:9. Er það eini góði kafli þeirra í leiknum, en brá oft fyrir fallegum leik. En Þróttar- menn hertu sig og mmnkuðu bilið í 14:12. — Mörk ÍR skoruðu: Gunnlaugur 6, Matthías 4, Óli Örn, Þorleifur, Rúnar og Óli Jónsson 1 hver. Mörk Þróttar skoruðu: Bóbó 6, Grétar 3, Jón Ásg. 2 og Björn 1. ★ Valur — Fram 12:11 Þessi leikur var einn af úrslita- leikjum mótsins — fyrirfram áætlað. Hann virtist og ætla að verða jafn, en á fegurð cg tilþrif skorti. Eftir um 7 mín. stóð 2:2. Þá náðu Frammenn góðurn kafla, einkum smaug Karl í gegn og Rúnar. Forskot Fram varð meira og meira og í hálfleik stóð 8:3 þeim í vil! Ýmsir munu hafa talið leikinn afgerðan. En Valsmenn komu ákveðnir til síðari hálfleiks og tóku öll völd á vellinum í sinar her.dur. Það smá saxaðist á forskotið unz það hvarf — 10:10 varð staðan. Skoraði Ásgeir tvö síðustu mörk- in er þurfti til að jafna og hann hélt áfram og skoraði önnur tvö svo að Valur hafði 2 yfir. Þá tókst Rúnari að minnka svo leik lauk með 12:11. Þessi síðari hálfleikur var ákaflega spennandi. Vals- menn áttu öruggan og góðan leik og með þessari lokasókn þeirra fékk kvöldið sem verið haíði heldur dauft, skemmtilegri blæ. Svona á að berjast í handknatt- leik. „Gömlu“ Valsmennirnir eins og Valur Ben. og Ásgeir réðu úrslitum. Hinir yngri áttu drjúgan þátt einkum Jóh. Gísla- son. — Hjá Fram féll allt ein- kennilega snögglega saman. Sennilega hafa þeir í hálfleik tal- ið leikinn unninn og kumið of öruggir inn á aftur. Beztan leik áttu Karl, Rúnar og Hilmar. Mörk Vals skoruðu: Ásgeir 5, Jó- hann 3, Geir 2, Valur og Hilmar 1 hvor. Mörk Fram skoruðu: Karl 4, Rúnar 3, Einar 2, Hilmar ól. og Birgir 1 hvor. Á laugardag urðu úrslit þessi: 2. fl. kvenna Þróttur — Valur 4:4 Ármann A — Ármann B 6:4 M.fl. kvenna Fram — KR 7:4 3. fl. karla A-lið A-riðill: ÍR — KR 8:6 B-riðill: Árm. — Þróttur 8:13 2. fl. karla A-lið A-riðill: ÍR — Þróttur 14:9 B-riðill: Víkingur — Valur 7:5 Á sunnudag kepptu í 3. flokki karla B-lið: Fram — KR 12:3 (KR vantaði 2 menn). Þróttur — ÍR 8:6 Æfingar hafnar HAFNARFIRÐI. — Nú eru æfing ar íþróttafélaganna almennt «3 hefjast og verða í vetur hjá Sund félagi Hafnarfjarðar, sem hér segir: Yngri flokkur á mánud. og miðvikud. kl. 7—8 s d. — Eldri fl. á sunnud. kl. 9 f. h., mánud. miðvikud. og fimmtud. kl. 8,15 síðd. Dýfingar og sundknattleikur er á mánudögum kl. 9 s.d. Geta nýir félagar látið skrá sig á ofangreindum æf'ngadögum. Handknattleikur er æfður hjá F.H. og Haukum öll.kvöld vikunn ar í leikfimishúsinu og meistarafl. F.H. æfir einu sinni í viku í Há- logalandi. Eins og sagt hefir ver- ið frá áður, hefir flokkurinn ver- ið boðinn í keppnisför til Þýzka- lands og mun halda utan 2. nóv. n.k. Meistaraflokkurinn er nú I mjög góðri æfingu, enda hafa piltarnir lagt hart að sér síðustu mánuðina. Núna fyrir skömmu unnu þeir t.d. hraðkeppnina i handknattleik. — G.E.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.