Morgunblaðið - 29.10.1957, Qupperneq 20
Vestan og- NV kaldi, él, en
bjart á milli
245. tbl. — Þriðjudagur 29. október 1957
íþrótfir
Sjá bls. 13
Vaxandi vöruskortur
Uggvænlegt gjaldeyrisástand
VÍÐSVEGAR að af landinu
spyrjast nú fregnir um
margskonar óþægindi vegna
vöruskorts. Ástæðan til
hans er hið hörmulega á-
stand, sem nú ríkir í gjald-
eyrismálunum.
Eins og Morgunblaðið
skýrði frá í ágústmánuði sl.,
versnaði gjaldeyrisaðstaðan
raunverulega a m k. um 300
millj. króna á fyrsta valda-
bæta skuldarupphæð ríkis-
ins við Export-Import-bank
ann 65 millj. krónum, sem
notaðar voru til að borga
greiðsluhalla bankanna við
útlönd-
Andvirði birgða af inn-
lendum afurðum til útflutn
ings var um 90 millj- krón-
um lægra en á sama tíma í
fyrra.
Loks hefur enn stórlega
gengið á birgðir af erlend-
um vörum í landinu. Heild-
arástandið er því nú sízt
betra en var í júlí-lok í sum
ar-
Um þessar staðreyndir
þegir stjórnarliðið, en hamp
ar einstökum tölum, sem
slitnar eru úr samhengi og
gefa allsendis ófullnægj-
andi mynd af hinu uggvæn-
lega ástandi-
10 syslkini gáfu Sfaðarhraunskirkju fagra
alfarisföflu við endurvígslu hennar
ári V-stjórnarinnar. Ástand
ið var þá svo alvarlegt, að
mjög var dregið úr gjald-
eyrisgreiðslum- Af þeim sök
um hægðist nokkuð um í
ágúst, en nú hefur aftur sótt
í sama far.
Samkvæmt þeim heim-
ildum. sem Morgunblaðið
hefur fengið, var ástandið í
september-lok þetta:
Nettóskuld bankana við
útlönd var um 90 milljónir
króna á móti 70 millj. kr- á
sama tíma í fyrra. Aðrar
skuldbindingar bankanna
við útlönd eru um 6 millj.
kr. hærri en á sama tíma í
fyrra. Óinnkomnar erlend-
ar innheimtur eru um 4
millj. kr. lægri en þá, m.ö.o.
er aðstaðan óhagstæðari um
30 millj. kr.
Við þennan halla ber að
Orðsending trá
Morgunblaðinn
VEGNA inflúenaufaraldurs
vantar börn til blaðburðar
Meðan þannig stendur á þarf
blaðið að fá börn og unglinga
til að hlaupa í skarðið og taka
að sér blaðburð
Börn þau, sem vilja hjálpa
til eru vinsamlegast beðin að
hringja til afgreiðslu Morgun-
blaðsins, sími 22480, eða koma
og tala við afgreiðsluna Aðal-
stræti 6. ___
SÍÐASTLIÐINN sunnudag var
Staðarhraunskirkja í Ilraun-
hreppi í Mýrasýsiu, endurvígð,
og tekin í notkun, eftir gagn-
gerða viðgerð. Kirkjan hefur
ekki verið notuð í tvö ár. Athöfn
þessa framkvæmdi séra Sigurjón
Guðjónsson, prófastur að Saur-
bæ, í veikindafjarveru biskups.
Viðstaddir voru fjórir prestar.
Við þetta hátíðlega taekifæri,
afhentu 10 systkini frá Hítardal,
kirkjunni forkunnar fagra altaris
töfiu, málaða af Barböru Árna-
son. Gjöfin er færð kirkjunni
til minningar um látna foreldra
þeirra Sigríði Teitsdóttur og
Finnboga Helgason, sem bjuggu
allan sinn búskap að Hítardal,
og látinn bróður þeirra, Pétur.
Gefendurnir eru, sem fyrr segir,
börn þeirra hjónanna, Kristófer,
Leifur, Teitur, Björn, Helgi,
Kristján, Bergþór, Gunnar, Héð-
inn og Kristín.
Kristján
Cuðmundsson
er nú látinn
KRISTJÁN Guðmundsson, Hóls-
vegi 15, hér í bæ, sem aðfaranótt
19. þessa mánaðar varð fyrir bíl
á Borgartúni og stórslasaðist,
lézt af afleiðingum slyss þessa að-
faranótt sunnudags í Lanadkots-
spítala. Kristján, sem var 57 ára
að aldri, komst aldrei til meðvit-
undar þá viku alla sem hann lá
í sjúkrahúsinu eftir slysið.
Kristján lætur eftir sig tvær
Kirkjunni bárust einnig fleiri
gjafir þennan dag, aðallega pen-
ingagjafir. Prófasturinn sr. Sig-
urjón Guðjónsson, þakkaði gjaf-
irnar, og sérstaklega altaristöfl-
una sem er stórrausnarleg gjöf.
Fjölmenni var í kirkjunni. Kirkju
kór Borgarness söng við undir-
leik frú Stefaníu Þorbjarnar-
dóttur.
Hvassafell utan
til viðgerðar
í GÆR var SÍS-skipið Hvassafell
tekið upp í slipp hér í Reykjavík
til viðgerðar eftir strandið á
Siglufirði á dögunum.
Fyrri athugun sem fram fór á
skipinu leiddi í ljós að botninn er
mjög illa farinn og göt á honum.
Viðgerðin sem nú fer fram á
skipinu er þó aðeins til bráða-
birgða því að ráðamenn útgerð-
arinnar munu hafa ákveðið að
láta fullnaðarviðgerð fara fram
i erlendri viðgerðarstöð.
Það mun taka 10 daga til hálf-
an mánuð að gera Hvassafellið
sjófært til millilandasiglingar.
HAFNARFIRÐI — Inflúenzan
herjar mjög hér í bænum og eru
mikil veikindi meðal skólabarna.
Hefir það ráð nú verið tekið að
loka barnaskólanum um óákveð-
inn tíma, en Flensborgarskólinn
starfar enn. Gaf héraðslæknirinn,
Ólafur Einarsson, blaðinu þær
upplýsingar í gær, að veikin væri
fremur væg, flestir fengju hita
í tvo til þrjá daga, og ekki hefði
enn borið á fylgikvillum. — G. E.
Togaranum Karlsefni
lagt upp í bili
Stórfel It fap á veiðum fyrir
innanlandsmarkað
TOGARINN Karlsefni kom til
Reykjavíkur sl. miðvikudag og
hefur skipinu nú verið lagt upp
í bili. Ástæðurnar fyrir því eru
eftirfarandi: Þangað til í fyrra-
haust hefur það verið þannig að
togaraeigendur hafa fengið að
ráðstafa ferðum sínum eftir því
sem þeim þótti heppilegt vegna
markaðarins, eins og hann er á
hverjum tíma. En í fyrrahaust
var sú regla tekin upp, að ríkis-
stjórnin og þó sérstaklega sjávar-
útvegsmálaráðherrann, sem hef-
ur þessi mál með höndum, hefur
skammtað togurunum ferðir
þeirra á erlendan markað. Hafa
aflabrögðin nú undanfarið verið
mjög treg en markaður erlendis
bins vegar mjög hár, þannig að
þau skip, sem verið hafa í sigl-
ingum hafa getað selt mjög sæmi-
lega erlendis, þó að þau flest
hefðu tiltölulega litla farma. —
Einnig kemur það til greina að
mjög mikið hefur aflazt af þeim
fisktegundum, sem ekki eru vel
séðar til vinnslu í frystihúsum
hér heima og hefur því miklu
minna en ella fengizt fyrir þann
fisk, sem landað hefur verið til
frystihúsa hér í landi.
Sem dæmi um það, hve mikill
er munurinn á innlenda og er-
Ienda markaðnum nú, má taka
það tilfelli, að togari, sem Iand-
aði erlendis í síðustu viku og
hafði J43 smálestir af fiski innan-
borðs, sem er um það bil hálf-
fermi, seldi í Vestur-Þýzkalandi
fyrir 108 þúsund mörk, eða um
420 þús. ísl. kr. En fyrir þennan
afla hefði togarinn fengið hér inn
anlands aðeins um 120 þús. kr.
Togarinn Karlsefni hefur farið
2 ferðir á erlendan markað í
september og október, en sam-
kvæmt fyrirmælum frá sjávarút-
vegsmálaráðherra fær hann ekki
leyfi til löndunar erlendis í nóv-
ember. Þótti eigendum skipsins
heppilegra, eins og aflabrögðin
eru nú, að leggja skipinu í nóv-
embermánuði, þar sem fyrirsjáan
legt væri að hver veiðiferð til
sölu á innlendum markaði mundi
hafa í för með sér tap fyrir út-
gerðina, sem næmi ekki minna
en 150—200 þús. kr. á hverja
veiðiferð.
Skólum lokað vegna
inflúenzufaraldursins
í GÆRMORGUN var sú ákvörðun tekin á fundi skólastjóra barna-
og gagnfræðaskólanna hér í Reykjavík, að skólunum skyldi vera
iokað fram yfir næstu helgi. Er þetta bein afleiðing hinnar skæðu
inflúénzu, sem herjar hér í Reykjavík. Var ákvörðun þessi tekin
í samráði við borgarlækni.
Inflúenzan hefur nú verið um
það bil vikutíma á farsóttarstig-
inu. Á þessum tíma hefur gífur-
legur fjöldi fólks hér í bænum
tekið veikina. Hafa læknar skýrt
svo frá að þeir geti'hvergi nærri
annað öllum sjúklingunum. Virð-
ist veikin enn vera í vexti.
í gærmorgun var tala sjúkra
nemenda í barnaskólum frá
25—35%, en í gagnfræða-
skólum voru forföllin hærri,
allt upp í 50%. — Forföll
kennara voru í svipuðu hlutfalli.
Inflúenza hefur herjað hér
meira og minna ár hvert. Hún
hefur ekki orðið janfskæð nú og
síðan 1937. Þá varð að loka skól-
um bæjarins vegna þess hve in-
flúenzufaraldurinn varð skæður.
í lok þessarar viku mun verða
tekin ákvörðun um það hvort
skólarnir hefji starfið aftur á
mánudaginn kemur. Fer það að
sjálfsögðu eftir því á hvaða stigi
faraldurinn verður þá.
Um helgina varð Þjóðleikhúsið
að hætta sýningum á óperunni
Tosca og eins Horft af brúnni,
vegna þess hve margir af leik-
endum eru veikir.
„H*md dauðans“
í Þjóðleikhúsinu
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur samið
við Kristján Albertsson um rétt
til þess að sýna
leikrit hans
,Hönd dauðans“.
VTorgunblaðið
hefur frétt, að í
ráði sé að sýna
leikinn á næsta
hausti, en þó sé
ekki óhugsandi,
að hann verði
sýndur einhvern
tima eftir nýár. Leikritið hefur
vakið mikið umtal og hafa vafa-
laust margir áhuga á því að sjá
það á leiksviði.
Þá hafa sjúkrahúsin í bænum
eindregið hvatt fóik til þess, nú
meðan inflúenzan er svona al-
menn og skæð, að flók leggi sem
allra minnst leið sína í sjúkra-
húsin. Er þetta gert vegna sjúk-
linganna fyrst og fremst, því að
starfslið sjúkrahúsanna var þeg-
ar í haust bólusett við veikinni.
Á skipum, farmskipum og tog-
urum, hefur veikin víða tekið allt
að alla áhöfnina. Hafa togarar
orðið að leita hafnar þar eð svo
margir skipverja voru veikir. I
gær fór togarinn Hvalfell á veið-
ar ,en hann var búinn að liggja
hér inni í upp undir viku. Hafði
hann leitað hafnar vegna inflú-
enzu. I gær kom togarinn Ingólf-
ur Arnarson af veiðum. Hafði
veikin herjað svo á skipsmenn, að
tala manna á dekki á að hafa
komizt niður í fjóra.
Hellisheiðin þung
SELFOSSI, 28. okt. — Hér i upp-
sveitum Árnessýslu er kominn
talsverður snjór. Um þessa helgi
tóku bændur fé sitt á gjöf því að
alveg er haglaust orðið.
Færð á þjóðvegum er enn
greið. Mjólkurflutningarnir yfir
Hellisheiði hafa nokkuð tafizt því
að þar er orðin þæfingsfærð fyr-
ir hina stóru bíla, en ýtur hafa
ekki verið þar. Hefur því umferð
minni bíla verið um Krísuvíkur-
veginn, sem er greiðfær.
Hætt við hljóm-
leika í kvöld
FRAMKVÆMDASTJÓRI Sin-
fóníuhljómsveitarinnar, Jón Þór-
arinsson, sagði Mbl. í gær, að
fresta yrði sinfóníuhljómleikum
þeim, sem verða áttu í kvöld,
Það er inflúenzan sem nokkrir
af hljómsveitarmönnum hafa
tekið.