Morgunblaðið - 06.11.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.11.1957, Blaðsíða 1
Ferð félagsmálaráðherra íslands og forseta neðri deildar Alþingis til Moskvu er þjóðarhneyksli segir Bjarni Benediktsson Ómakleg ummæli um eina af okkar þýðij»narmestu og beztu viðskipta- þjóðum segir LúBvik Jósefsson FÉLAGSMÁLARÁÐHKRRA fslands, Hannibal Yaldimarsson, forseti neðri deildar Alþingis, Einar Olgreirsson, eru farnir úr landi til að vera við hátiðahölöd í tilefni af 40 ára afmæli kommúnista- hjltingarinnar í Rússlandi. Hefur flokkur þeirra óskað þess, að varamenn taki sæti þeirra á Alþingi. Fyrri váramaðurinn, Eðvarð Sigurðsson, hefur áður setið á þingi, en.kjörbréf hins, frú öddu Báru Sigfúsdóttur, var lagt fram í fyrradag. Afgreiðslu þess var þá frestað, og kom málið aftur fyrir í gær. Þingið féllst á tillögu kjörbréfanefndar um að bréfið skyldi tekið gilt, en framsögumaður annars hluta nefndarinnar, Bjarni Benediktsson, gerði í ræðu at- hugasemdir vegna þess tilefnis, er varð til að varamaðurinn settist á þingbekk. Benti hann á, að það væri í fullkominni óþökk meiri hluta fslendinga, er ráðherra og einn af forsetum Alþingis fara til hátíðahaldanna í Moskvu, enda væri hér um þjóðarhneyksli að ræða og fullkomna vansæmd fyrir islenzku þjóðina. Gísli Guðmundsson (F) hafði framsögu fyrir annan hluta kjör- bréfanefndar. Kvað hann Áka Jakobsson hafa verið fjarverandi er nefndin athugaði kjörbréfið, en hún væri sammála um að leggja til, að það yrði samþykkt, en annar hluti hennar vildi gera athugasemd út af tilefni þess, að varamaðurinn er til kallaður. Bjarni Benediktsson tók þá til máls og sagði: Herra forseti. Ég vil fyrst taka fram, að ég er alveg jafnrétt- kjörinn framsögumaður nefnd- arinnar eins og háttvirtur þing- maður N.-Þingeyinga og á ekki síður en hann að nefnast því nafni, úr því að hæstv. forseti hafði þá nafngjöf um hann. Nefndin klofnaði og kaus sér sinn hvorn framsögumann. Án þess að það skipti miklu máli, þá er það rétt sem rétt er. Út af fyrir sig, þá er nefndin sammála um það, að við það kjörbréf, sem hér liggur fyrir, sé ekkert að athuga, að sá maður sem þar er sagður kjörinn sé réttkjörinn sem 2. varaþingmað- ur Alþýðubandalagsins fyrir Reykjavík. Hins vegar töldum við tveir í kjörbréfanefnd, að þetta mál væri svo vaxið, að við vild- um láta koma fram athugasemd um tilefni þess, að þessi hv. full- trúi er kvaddur til þingmennsku. °5 Eg skal þó ekki fara að rekja hér formleg atriði, sem vissulega skipta þó máli í þessu sambandi, um skyldu þingmanna til að gegna þingstörfum og að þing- menn mega ekki kalla varamenn sína nema annað hvort forföll hamli eða þeir hafi fengið leyfi forseta til brottfarar. Um þetta eru ákvæði í kosningalögum og þingsköpum. Hitt er rétt, að það hefur yfirleitt ekki verið fylgzt sérstaklega með því, að því er ég hygg, hingað til, hvorki af for- setum — og þetta mundi einkum heyra undir deildarforseta — né þingheimi, hvort um raunveru- leg forföll eða fjarvistarheimild- ir sé að ræða og ég geri það út Engin eldflaug á leið tiltunglsins MOSKVU, 5. nóv. — Frétta- maður Moskvuútvarpsins sagði í dag: Við höfum engar fréttir haft af því, að rúss- nesk eldflaug sé á leið til tunglsins. Fregnir um það að Hússar hafi sent eldflaug til tunglsins hafa birzt í blöðum á Vesturlöndum undanfarið Kommúnista- foringi ferst MOSKVU, 5. nóv. — í gær fórst flugvél á Moskvuflugvelli, sem flutti meðlimi í rúmönsku stjórn inni til borgarinnar. Tass skýrir frá því, að fjórir menn hafi far- izt, þar af einn Rúmeni. Var það Preoteasa, sem átti sæti í rúmenska æðstaráðinu. — Nokkr ir aðrir úr rúmönsku sendinefnd- inni særðúst lítillega og var líð- sn þeirra góð í dag. Preoteasa var utanríkisráð- herra Rúmeníu þangað til í júlí sl., að hann var leystur frá störf- um. Eisenhower WASHINGTON, 5. nóv. — Til- kynnt var í Hvíta húsinu í kvöld, að Eisenhower forscti mundi flytja ræðu til bandarísku þjóð- arinnar í sjónvarp og útvarp á fimmtudagskvöld og fjalla þar um atburði síðustu daga á tækni- sviðinu. og hafa sumar þeirra hermt, að rakettan mundi koma til tunglsins á byltingarafmæl- inu 7. nóvember. — Þá var þess einnig getið, að Rússar hefðu í hyggju að senda enn einn gervihnött út í hjimin- hvolfið og yrði hann einnig með tilraunadýr innanborðs. Fundum stjórn- múlunefndur- innur frestuð NEW YORK, 5. nóv. — Rússar tilkynntu í gær, að þeir mundu ekki lengur taka þátt i fundum afvopnunarnefndarinnar ef ekki yrði gerð breyting á skipan henn ar, en sem kunnugt er hafa þeir stungið upp á því að stofnuð verði ný nefnd þar sem fulltrúar alira aðildarríkja S.Þ. eiga sæti. Dulles utanríkisráðherra Banda- ríkjanna lét svo um mælt er hann ræddi við blaðamenn í dag, að útlit værir fyrir að Rússar ætl- uðu á þennan hátt að reyna að þröngva Vesturveldunum til þess að ganga að' tiilögu Rússa. Hins vegar mundu störf svo fjölmennr ar nefndar verða harla árangurs- lítil. Fundum stjórnmálanefndar S.Þ. hefur verið frestað til þess að fulltrúarnir í nefndinni geti ráðgazt við rikisstjórnir sinar vegna þessarar skyndilegu á- kvörðunar Rússa. Gaillard hlaut traust FARÍS, 5. nóv. — Gaillard hlaut i kvöld traust franska þingsins og var þar með bundinn endi á hina 36 daga löngu stjórnar- kreppu. Hann varð 38 ára í dag og er yngstur þeirra er gengt hafa forsætisráðherraembætti í Frakklandi. í stjóm Gaillards eiga sæti menn úr nær öllum flokkum öðrum en kommúnista- flokknum. Pineau fer með utan- ríkismál og Lacoste með Alaír- mál. Er Gaillard kynnti þing- heimi stefnuskrá sína í dag sagði hann, að Frakkar yrðu að færa miklar fórnir til þess að losna úr efnahagsvandræðunum. Gengis- lækkun kæmi ekki til greina en hann krafðist víðtæks valds á sviði efnahagsmála, sem hann kvað verða fyrsta verkefni stjórn arinnar. Alsirmálið yrði síðan tek ið til meðferðar og kvað hann takmark stjórnarinnar verða að binda endi á skærurnar þar og koma á takmarkaðri heimastjórn í Alsír. SEINUSTU FRÉTTIR Atkvæðagreiðslan um trausts- yfirlýsingu til handa Gaillard fór á þá leið, að hann hlaut 332:173. Vísindamenn heyrðu gelt í „Sovéthundinum” Fi'h. á bls. 3. LUNDÚNUM, 5. nóv. — Sputnik II. hafði um kvöldmatarleytið farið 1 millj. mílu kringum jörð- ina. Moskvuútvarpið tilkynnti í kvöld, að hundinum liði vel. Forseti rússnesku visindaaka- demíunnar, prófessor Nesmeya- nov, skýrði frá því í dag, að rétt væri, að í Sputnik II. væru rann- sóknatæki, sem vega um Vi tonn. Frá Kína berast þær fregnir, að vísindamenn í Nanking hafi tekið mynd af Sputnik II. Rússneskir vísindamenn skýrðu frá því I dag, að í ráði væri að ná hundinum aftur til jarðar, áður en vika er liðin. Einnig skýrðu þeir frá því, að hundur- inn mundi lenda í fallhlíf á rúss- nesku landi. Þegar Sputnik þaut yfir Lond- on siðdegis í dag, heyrðust ein- hver ókennileg hljóð frá honum og halda vísindamenn, að þarna hafi verið um að ræða gelt í „Sovéthundinum“. Rússar hafa tilkynnt, að Sput- nik II. hafi lent í loftsteinabelti án þess að skaddast nokkuð, og bendir það til þess að belti þetta sé ekki eins hættulegt geimför- um og áður var talið. Hálfrar aldar byltingarafmæli Rússa haldið á tunglinu! MOSKVU, 5. nóv. — í dag var Ráðstjórnarþjóðunum, sem byrja hátiðahöldin i tilefni af fertugsafmæli byltingarinnar á morgun, til- kynnt, að Rússar mundu auðveldlega geta haldið hátíðlegt háifrar aldarafmæli byltingarinnar á tunglinu. Sjötta meginlandið Issakov prófessor segir í grein sem hann ritar í Komsomsla- skaya Pravda, að ekki líði á löngu áður en tunglið verði kall- að sjötta meginlandið. Lenin Fyrsta kjarnorkuknúða ísbrjótn um verður hleypt af stokkunum á byltingarafmælinu. Hann hlýt- ur nafnið Lenin. Rússar halda því fram, að hann getið gengið í heilt ár án þess að taka elds- neyti. Aðalræðan Fréttamenn segja, að búast megi við því, að á hersýningu Fd NatQiikin kjornorku- skey ti ? WASHINGTON 5. nóv. — Dulles lét svo um mælt á fundi með blaðamönnum í dag, að æskilcgt væri að Bandaríkin létu banda menn sína í Nato hafa birgðir af fjarstýrðum vopnum. Hvort þau vopn yrðu kjarnorkuvopn hefði enn verið ákveðið — sagði hann, en málið yrði tekið til um- ræðu á ráðherrafundinum í Par- ís. Lét hann það uppi, að franska stjórnin hefði farið þess á leit að fá kjarnorkuflugskeyti hjá Bandaríkjamönnum. Rauða hersins á Rauða torginu á byltingardaginn verði sýnd mörg ný vopn, hin ægilegustu manndrápstæki. Líklegt er talið, að Krúsjeff haldi aðalræðuna á afmælinu. Góður árangur LUNDÚNUM, 5. nóv. — í dag var aðalritari Atlantshafsbandalags- ins, Paul Henri Spaak, spurður að því, hvort gervimánarnir Rússnesku mundu hafa áhrif á störf NATO. Hann sagði, að því væri ekki að neita, að Rússar hefðu náð góðum árangri í geim- vísindum og væri ekki annað hægt að segja en lánið hefði leik- ið við þá i þeim efnum. — Að öðru leyti lét hann spurningunni ósvarað. WASHINGTON, 5. nóv. — Á blaðamannafundi í dag gerði Dulles fall Zhukovs að umræðu- efni. Kvað hann atburði þessa hafa leitt í ljós að veldi Krúsjeffs er mikið, en hvort styrkur hans hefði aukizt við fall marskálks- ins mundi framtíðin ein geta skor ið úr um. Dularfullur hlutur KAIRO, 5. nóv. — Margir urðu sjónarvottar að því í Alexandriu í dag, að lítill glóandi hlutur féll til jarðar og kom niður í garð að baki skóla eins í borginni. Vís- indamaður, sem kvaddur var til, skýrir svo frá, að hlutur þessi væri átta sentimetrar að lengd og sjö sentimetrar að þvermáli, og virðist vera úr gummí. Á annarri hlið þessa hlutar voru tvö safn- gler, einn sentimeter að þver- máli hvort um sig, og hinum megin hafa einnig verið tvö safngler, en annað þeirra hefur losnað af hlutnum. Vísindamað- urinn kom fram með þá tilgátu, að hlutur þessi væri hluti af ratsjársamstæðu, sem eldflaug hefði borið út í geiminn — og fullyrti hann það, að hluturinn hefði fallið úr meiri hæð en nokk ur flugvél hefði komizt hingað til. LONDON, 5. nóv. — Tilkynnt hef ur verið í London, að hópur brezkra vísindamanna á sviði eldflaugasmíði fari innan skamms vestur um haf til þess að ráðgast við bandaríska vísindamenn un framtíðarverkefnin. Dulles sagð'i, að Zhukov hefði: NEW YORK, 5. nóv. — Hammar- skjöld hefur gefið út skýrslu um hreinsun Súez-skurðarins. Kost- aði verkið 8,4 millj. dollara og var greitt af 11 aðildarríkjum S.Þ. Bandaríkin greiddu meira en helminginn. Leggur Hammar- skjöld til, að féð verði endur- Tyrklandi! greitt með því að láta skip, er var ekki sigla um Súez-skurðinn greiða byggður á neinum rökum. Í3% hærri siglingagjöld. . m. a. verið ákærður um ævin- týramennsku í utanríkismálum, en hins vegar hefðu Rússar birt hótanir sínar í garð Tyrkja á meðan Zhukov var á ferð I Júgó- slavíu og Albaníu. Síðar hefðu Rússar neyðzt til þess að láta af andróðrinum gegn I vegna þess að hann j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.