Morgunblaðið - 06.11.1957, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.11.1957, Blaðsíða 16
VEÐRIÐ Norðan gola léttskýjaff. 252. tbl. — Miðvikudagur 6. nóvember 1957 Manntalsskrifstofan. Sjá bls. 9. Fjallvegir onstan Öxnadalsbeiðar algjörlega ófærir bifreiðum Yíða umbrolafærð í byggð TALSVERÐ snjókoma hefur verið undanfarna daga norðanlands og austanlands. Víða hefur kyngt niður xniklum snjó. Fjallvegir hafa teppst unnvörpum þessa daga en aðrir eru ilifærir. Verst færð mun vera í byggð í Þingeyjarsýslum og örðugleikum bundiff að koma mjólk til Húsavíkur. Fjallvegir allt frá Öxnadalsheiði austur til Héraðs það sem vegir ná, eru tepptir, eftir því sem fréttarritarar Morgunblaðsins á þessu svæði skýrðu frá í gærdag. Á Vestfjörðum er snjólétt víðast hvar í byggð, en fjallveir frá Patreksfirði til ísa- fjarðar tepptir, en það eru Kjölur, Hálfdán, Hrafnseyrarheiði, Gemlufellsheiði og Breiðadalsheiði. Einn bíll á leið norður. Þrátt fyrir ófærð og slæma veð tirspá, lagði einn áætlunarbíll frá Norðurleiðum af stað norður til Akureyrar í g ærmorgun kl. 8. Var færðin sæmileg norður fyrir Holtavörðuheiði, en umbrotafærð í Víðidal milli Hrútafjarðar og Blönduóss. Var öll Húnavatns- sýslan mjög seinfarin vegna skaf- hríðar. Kom bíllinn að Blöndu- ósi kl. 8 í gærkvöldi. Hugðist bílstjórinn halda áfram til Varma hlíðar í gærkvöldi og áætlaði að vera kominn þangað um mið- nætti, ef allt gengi að óskum, en hann ætlaði sér þrisvar sinnum lengri tíma þessa vegalengd en undir venjulegum kringumstæð- um, enda þá vitað að Vatnsskarð er mjög þungfært. Norðurleiðir ákváðu í gær, að bíllinn sneri við í Varmahlíð, þar sem þá var vitað að Öxnadalsheiði var ófær. Þung færð. Fréttaritari blaðsins á Skaga- strönd símaði í gær, að færð á vegum milli Blönduóss og Skaga- strandar væri þung. í gær og fyrradag snjóaði þar talsvert. Ekki hefur verið mokað ennþá, enda hægt að framkvæma nauð- synlega flutninga, en lítið þyrfti til að vegir tepptust alveg í hér- aðinu. Búið að tnoka Vatnsskarð. Fréttaritari blaðsins á Sauðár- króki kvað færð orðna mjög þunga í Skagafirði í gærdag. — Ekki hefði þó verið mokað ann- ars staðar en á Vatnsskarði, en það var ófært sl. laugardag. Snjór var hvergi djúpur í Skagafirði og hægt að komast milli bæja á bílum og mjólkurflutningar gengu seinna en venjulega. Élja- gangur var þar í gær og nokkur snjókoma og undanfarna sólar- hringa hefur snjóað af og til. Vaðlaheiði ófær. Frá Akureyri var símað, að Vaðlaheiði hefði verið ófær síð- an fyrir síðustu helgi. Dals- mynnisvegurinn er farinn ennþá, en hann er hugsaður sem vetrar- vegur milli Akureyrar og Fnjóskadals, þegar Vaðlaheiði lokast. Hefur verið unnið að hon um undanfarin sumur. Þessi veg- ur var þó mjög snjóþungur í gær. 1 nágrenni Akureyrar var færð mjög örðug. í gær snjóaði tals- vert í Eyjafirði og var skafrenn- ingur svo að dró í skafla. Síðan um helgi hefir snjóað á hverjum degi og mest í logni, svo jafnfall- inn snjór hefur verið til þessa. Stórhríð í Mývatnssveit. Fréttanvari blaðsins í Mývatns- *veit símaði í gær eftirfarandi: 1 dag er hér stórhríð að heita má, og var talsverður snjór fyrir. Vegir eru óðum að teppast í hér- aðinu og fjallvegir þegar tepptir. Trukkbíll fór í gær til Húsavíkur með mjólk úr Reykjadal og Aðal- dal. Var hann nærri því allan daginn á leiðinni. Fyrir þetta hret var einna verst færð á Mý- vatnsheiði, en nú má heita að hún sé jafnslæm alls staðar. Ekki er um aðrar ferðir að ræða héðan en mjólkurferðir tvisvar í viku til Húsavíkur. Ófært yfir Mývatnsöræfi. Alveg er ófært austur yfir Mý- vatnsöræfi að Grímsstöðum. Ann ars er oft fært þangað á vetrUm þótt annars staðar sé ófært.Nárha skarð er nú algerlega teppt og raunar víðar á þeirri leið. Líkur eru á þessi vegur verði opnaður aftur ef unnt reynist, vegna póst- ferða og líka vegna þess að fjöldi fjár Mývetninga gengur ennþá í Meðallöndum milli Nýjahrauns og Jökulsár á Fjöllum. Þarf að líta eftir fénu, sem venjulega gengur þarna fram undir jól, og koma því til byggða. Verður það ekki gert nema á bílum, og er því mjög nauðsynlegt að halda þessum vegi opnum. Milli bæja hér í sveitinni er nokkurn veginn fært bílum. Mikil fannkoma í Borgarfirði eystra. Frá Borgarfirði eystra bárust þær fregnir í gær, að Vatnsskarð væri teppt, en það er vegurinn til Héraðs og eini fjallvegurinn sem um er að ræða er liggur frá Borgarfirði. Þar hefur verið mjög umhleypingasamt um tíma, en versta veðrið var í gær. Hlóð þá niður miklum snjó. Var talið að vegir í byggð myndu teppast þar í gær. Vatnsskarð var fært til mánaðamóta. Óvíst er hvort það verður opnað meira i vetur. Jafnfallinn snjór á Mið-Héraði. Frá Egilsstöðum var símað að Fjarðarheiði væri teppt síðan um siðustu helgi. Snjóað hefur tals- vert síðustu daga en engin stór- viðri komið. Ýta þurfti snjó af flugvellinum í gær og mjólk hef- ur ekki verið flutt til Seyðisfjarð- ar síðan um helgi. Vegurinn um Fagradal, milli Reyðarfjarðar og um, en hann er aðal samgöngu- Egilsstaða var þó fær stórum bíl- leiðin milli Egilsstaða og Fjarð- anna.Verður lagt kapp á að halda honum opnum í lengstu lög. Á Miðhéraði var jafnfallinn snjór í gær og færð mjög þung. Reynt að komast Fjarðarheiði á snjóbíl. Frá Seyðisfirði bárust eftirfar- andi fréttir: í dag er verið að reyna að komast yfir Fjarðar- heiði á snjóbíl. Heiðin er fær allt upp undir brún beggja vegna, svo ekki er langur kafli sem ófær er. Lítill snjór er í byggð. í dag er nokkurt fjúk, en hvergi skafl- ar. Norðanátt hefur verið hér i 2—3 daga. Hríðarveður á Reyðarfirði. Frá Reyðarfirði var símað: Norðan hríðarveður . hefir geisað hér sl. sólarhring með talsverðri fannkomu. Færð á vegum er nú orðin mjög þung og sumir vegir algjörlega ófærir bílum, öðrum en snjóbílum. Oddsskarð, vegur- inn milli Neskaupstaðar er teppt- ur og einnig Fjarðarheiði til Seyð isfjarðar. Fagradalsvegurinn til Egilsstaða er að teppast. Eina fjallaleiðin sem hér er fær, er vegurinn til Eskifjarðar, en haldist þessi norðanátt í einn dag til, þarf ekki að efa, að allir ak- vegir hér fyrir austan teppist að meira eða minna leyti. Nýjar hœkkanir á kinda- kjöti og sauðfjárafurðum Það er leitað til lögreglunnar um hin ýmsu vandamál dag- legs lífs í höfuðborginni. XJm daginn var ljósmyndari Mbl. á ferð í Hlíðarhverfinu. Sá hann þá hvar lögreglumaður var þar í húsagarði, smeygði hann sér léttilega úr jakkan- anum, reisti stiga upp að svöl- um, og var á örskotsstund kominn upp á handriðið, en þaðan gat hann teygt sig upp í grindur svalanna á næstu hæð fyrir ofan, þangað upp las hann sig. Konan í þeirri íbúð hafði læst sig úti, og hafði leit- að aðstoðar lögreglunnar, sem brá skjótt við. Ætlaði sem laumu- larþegi til Rvikur SELFOSSI, 5. nóv. — Stroku- fanginn, Jóhann Víglundsson, sem slapp úr höndum gæzlu- manna á Litla-Hrauni í fyrradag, er flytja átti hann og félaga hans tvo á vinnuhælið eftir strok þeirra á sunnudaginn, náðist í gærdag milli kl. 5 og 6 og var fluttur að Litla-Hrauni þegar, þar sem hans er nú vel gætt. f skotti á olíubil Jóhann fannst í skotti á olíubíl frá Reykjavík sem staddur var á Eyrarbakka. Hafði hann falið sig þar í ýmis konar dóti og ætlaði að komast sem laumufar- þegi til Reykjavíkur. Það var gæzlumaður frá Litla- Hrauni sem fann Jóhann. í gær- dag skiptu leitarmenn sér niður í öll kauptúnin fyrir austan Fjall, Selfoss, Eyrarbakka, Stokkseyri, Þorlákshöfn og Hveragerði, og var hver einasti bíll sem til Reykjavíkur fór athugaður vand- lega. Ekki hafði bílstjóri olíu- bílsins hugmynd um að Jóhann hafði falið sig þarna. Sýndi Jó- hann engan mótþróa er hann var fluttur að Litla-Hrauni. — G. Stjörnurn- ar nœst! MOSKVU, 5. nóv. — I dag skýrði Tassfréttastofan frá því, að rúss- neskir vísindamenn séu að vinna að flugskeyti, sem hægt er að skjóta til næstu stjarna. Kom þetta fram í grein, sem rússneski vísindamaðurinn Nikolayev ritar nýlega í blaðið Sovietskaya Ross- ya Vísindamaðurinn segir, að geislaáhrif og annað, sem nauð- synlegt er að vita deili á í sam- bandi við slíkar geimfarir, verði nú kannað með því að fylgjast með hundi þeim, sem dvelzt í Sputnik II. ÞJÓÐVILJINN birtir i gær grein^ um dýrtíðina undir yfirskriftinni: „Mál er að linni“, og segir þar: „Allir kvarta undan því að dýr- tíðin sé mikil og skal því sízt mótmælt“. Þessi ummæli Þjóðviljans eru staðfest í nýjuistu verðlagsregl- unum, sem birtar hafa veriff, en þær koma frá Framleiðsluráði landbúnaðarins og varða verð- hækkanir á kindakjöti í heilum og hálfum skrokkum úr kr. 26,70 pr. kg. í kr. 28,50 pr. kg., hangi- kjöt í lærum úr kr. 30,20 pr. kg. i kr. 32,20 pr. kg. í heildsölu en í kr. 36,80 í smásölu úr kr. 34,60 pr. kg. Hangikjöt i frampörtum hækkar í kr. 26,50 pr. kg. í heild- sölu úr kr. 24,65 pr. kg. og úr kr. 29,30 i smásölu upp í kr. 31 pr. kg. Lifur, hjörtu og nýru hækka úr kr. 19 pr. kg. upp í 21,25 pr. kg. i smásölu, sviðnir hausar úr kr. 18,25 pr. kg. i smásölu upp í 21,55 pr. kg. Það er von að Þjóðviljinn segi: „Mál er að linni“. En vafalaust verður þetta ekki seinasta verð- hækkunin, sem fólk fær að verða fyrir. Friðrik - Larsen biðskák Wageningen, 5/11 (Reuter) t 6. UMFERÐ svæðakeppninnar í skák fóru leikar þannig: Friðrik og Larsen: biðskák. Troianescu (Rúmeníu) vann Niephaus (Vestur-Þýzkalandi). Kolarov (Búlgaríu) og Trifuno vic (Júgóslavíu): jafntefli. Ivkov (Júgóslavíu) vann Lind- blom (Noregi). Stáhlberg (Svíþjóð) vann Clarke (Bretlandi). Orbaan (Hollandi) og Teschner (Vestur-Þýzkalandi): biðskák. Uhlmann (Austur-Þýzkal.) vann Hanninen (Finnlandi). Donner (Hollondi) vann Dúck- stein (Austurríki). Alster (Tékkóslóvakíu) og Szabo (Ungverjalandi): jafnt. Staðan er þá þannig: Szabo 5'A v., Uhlmann 4 v. og biðskák, Donner 4 v., Friðrik 3(4 v. og , biðskák, Trifunovic og Stáhl- berg 314 v., Larsen 3 v. og tvær , biðskákir. Fyrirhugað að endur vekja stúdenta- kórinn NOKKRIR framtakssamir stúd- entar hér í Reykjavík, hafa nú ráðist í það, að endurvekja hinn gamla stúdentakóí-, s*m legið hefur niðri um 2—3ja ára skeið. Hefur undirbúningsnefnd verið sett á laggirnar til að hafa með höndum framkvæmd málsins. Undirbúningsnefndin hefur ekki látið sitja við orðin tóm. hefur þegar ráðið söngstjóra og er það dr. Hallgrímur Helgason tónskáld. Mun hann einnig æfa hinn væntanlega kór. Kórinn er hugsaður sem blandaður kór, og er ætast til að sem flestir kven- stúdentar gerist meðlimir hans. Einnig ef ætlunin að jafnt eldri stúdentar sem yngri gerist kór- félagar. Þeir sem hafa áhuga á þessum söngmálum eru þvi beðnir að mæta á fundi á Gamla-Garði á fimmtudagskvöldið kl. 9, en þá mun endanlega verða gengið frá kórstofnuninni, eða réttara sagt endurvakningu gamla stúdenta- kórsins. Kosið í Norður- londaróð A DEILDAFUNDUM á Alþingi I gær fóru fram kosningar í Norð- urlandaráð. Kosningu hlutu: í efri deild: Sigurður Bjarna- son og Bernharð Stefánsson. —■ Friðjón Þórðarson og Páll Zóp- hóníasson til vara. í neðri deild: Bjarni Benedikts- son, Iimil Jónsson og Einar Ol- geirsson. — Til vara: Magnús Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason og Karl Guðjónsson. Fulltrúarnir eru valdir að við- hafðri hlutfallskosningu. Kjör- tími þeirra er þar til ný kosning hefur farið fram á næsta reglu- legu Alþingi. Happdrætti S.Í.B.S. f GÆR var dregið í 11. flokki Vöruhappdrættis S.Í.B.S. Dregið var úm 600 vinninga að fjárhæð alls kr. 745.000,00. Hæstu vinn- ingar komu á eftirtalin númer: 200 þús. kr. nr. 15510. Miðinn seldur í Reykholti, Borgarfirði. 50 þús. kr. nr. 33747. Miðinn seldur í umb. Grettisg. 26, Reykjavík. 10 þús. kr. nr. 454 18529 23327 25378 25535 34452 42196 44738 53093 59201. 5 þús. kr. nr. 4012 9047 10119 12014 19681 21930 26857 29131 29377 33033 33237 34195 39825 40754 47751 49027 49858 51950. (Birt án ábyrgðar). Kvöldvaka Heimdallar sunnudag a FYRSTA kvöldvaka Heimdallar á þessum vetri var haldin í Sjálf- stæðishúsinu nk. sunnudagskvöld og hefst hún kl. 8,30. Heimdallur hefur gengizt fyrir kvöldvökum fyrir unga Reykvíkinga undanfarna vetur. Hafa þær tekizt vel og orð- íð vinsæll þáttur í skemmtana- lífinu, enda vel vandað til allra dagskráratriða. Félagið hefur jafnan lagt áherzlu á að stilla að- gangseyri að kvöldvökum sínum mjög í hóf og mun svo enn verða nú í vetur. Er því þess að vænta, að þær verði sem fyrr fjölsóttar af skólaæskunni og öðru ungu fólki í höfuðstaðnum. Orðsending frá Morgunblaðinu VEGNA inflúenzutaraldurs vantar börn til blaðburðar. Meðan þannig stendur a þarf blaðið að fá börn og unglinga til að hlaupa í skarðið og taka að sér biaðburð Börn þau, sem vilja hjálpa til eru vinsamlegast beðin að hringja til afgreiðslu Morgun- blaðsins, simi 22480, eða koma og tala við afgreiðsluna Aðal- stræti 6.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.