Morgunblaðið - 06.11.1957, Side 12
12
MORCUHBLAÐIÐ
MiðviJiudagur 8. nðv. 1957
eftii
■r~* h I John
tdciS—te--TCk
»na og var farinn út aftur, spurði
Adam óþolinmóður: — „Hefur
eitthvaö slsemt komið fyrir,
Horace?“
„Nei, það heid ég ekki. Adam,
voruð þið ekki skiiin að lögum, þú
og hún — konan þín?“
Adam stirðnaði í sætinu: —
„Nei", sagði hann. — „Hvers
vegna spyrðu að því?“
„Hún framdi sjálfsmoið í nótt“.
Það komu kippir í andlitið á
Adam og augu hans fylltust af
tárum. Hann reyndi að ná sjórn
* tilfinningum sínum, en sú
tiiraun lians mistókst algerlega.
Hann grúfði andlitið niður í hend
»r sér og brast í ákafan grát: —
„Ó, ástin mín“, kveinaði hann með
sárum ekka: — „Ósköp hefurðu
áit bágt“.
Quinn sat hijóður og lét hann
afskiptalausan og eftir nokkra
stund sefaðist gráturinn og Adam
leit upp: — „Ég biðst afsökunar,
Ho raee“, sagði hann stillilega.
Lee kom inn og rétti Adam vott
handklæði. Hann þurrkaði sér um
augun og fékk Lee það svo aftur.
„Þeíta kom svo óvænt", sagði
Adam og varð vandræðalegur á
svipinn: — „Hvað á ég að gera?
Ég ætla að kannast við hana sem
lögmæta eiginkonu mína og sjá
om útför hennar".
„Það ættirðu ekki að gera",
sagði Horace — „ekki nema þér
finnist þú verða að gera það. En
það var ekki þess vegna sem ég
kom“. Hann tók samanbrotnu
erfðaskrána upp úr vasanum og
rétti hana til Adams.
Adam horfði skelfdur á blaðið
í höndum héraðsfógetans. „Er —
er þetta blóð úr henni?“
„Nei, þetta er ekki hennar blóð.
Lestu það sem stendur á blaðinu".
Adam las hinar tvær línur, en
hélt svo áf-ram að stara á blaðið
með fjarrænu augnaráði: —
„Hann veit það ekki — að hún er
móðir hans“.
„Hefurðu aldrei sagt honum
það?“
„Nei“.
„Herra minn ti*úr“, sagði héraðs
fógetinn.
„Ég er viss um að hann vill ekki
erfa neitt eftir hana“, sagði Adam
alvarlega. — „Við skulum bara
rífa þetta blað í sundur og gleyma
því. Ef Aron vissi þetta, þá
myndi hann ekki taka við neinu
•em hún hefði átt“.
„Ég er hræddur um að það sé
ekki hægt“, sagði Quinn. „Hún
hafði öryggishólf í bankanum. Ég
ætla ekki að segja þér frá því,
hvernig við náðum í erfðaskrána
og lyklana. Ég fór í bankann. —
Beið ekki eftir neinum dómsúr-
»kurði. Hélt að ég myndi kannske
finna einhver hjálpargögn þar“.
Hann sagði ekki sem var, að hann
hefði búizt við að finna þar fleiri
ljóanyndir. — „Bob gamli leyfði
mér að opna hólfið. Ef í raunir
rekur, getum við alltaf neitað að
hafa gert það. I hóifinu eru rúm-
lega hundrað þúsund dollarar í
peiðu fé. Stórir bunkar af peninga
•eðlum — og ekkert annað“.
„Ekkert ?“
„Jú, aðeins einn hlutur — hjú-
*kaparvottorð“.
Adam hallaði sér aftur á bak í
•tólnum. Svipur hans var aftur
•rðinn fjarrænn. Hinn ósýnilegi
▼arnarmúr var aftur risinn upp
O—---------------------□
Þýðing
Sveriii Haraldsson
□----------------------n
á milli hans og heimsins. Hann
kom auga á oollann sinn og fékk
sér sopa úr honum. — „Hvað
finnst þér að ég ætti að gera?“
surði hann rólega og ákveðið.
„Ég get aðeins sagt þér hvað
ég myndi gera“, sagði Quinn hér-
aðsfógeti. — „Þú þaift ekki að
fara eftir mínum ráðum frekar
en þér sjálum sýnist. Ég myndi
nú þegar kalla drenginn hingað
inn og segja honum allt — segja
honum alveg eins og er. Ég myndi
jafnvel segja honum hvers vegna
ég hefði ekki sagt honum það
fyrr. Hann er — hvað gamall?"
„Sautján ára“.
„Hann er að verða fulltíða mað
ur. Fyrr eða síðar verður hann
hvort sem er að heyra þetta. Og
þá er bezt að hann fræðist um það
allt í einu“.
„Cal reit það“, sagði Adam. —
„Ég skil það ekki, hvers vegna
hún hefur arfieitt Aron að öllu“.
„Nei, það má guð vita. Detturi
þér nokkur sérstök ástæða í hug?“
„Nei, alls ekki nein. Ég verð
víst að gera eins og þú segir. —
Myndirðu vilja vera hérna hjá
mér?“
„Já, ef þér er einhver styrkur
í nærveru minni“.
„Lee“, kallaði Adam. — „Segðu
Aroni að ég þurfi að tala við hann.
Hann er komihn heim, er það.
ekki?“
Lee kom i dyrnar. Stóru augna-
lokin huldu augu hans eitt andar-
tak, en svo horfði hann á Adam.
— „Nei, hann er ekki kominn enn
þá. Hann er kannske farinn aft-1
ur í skólann".
„Nei, það kemur varla til mála.
Þá hefði hann áreiðanlega kvatt
okkur. Við héldum dálitla veizlu
í fyrra dag, Horace og skáluðum
fyrir heimkomu Arons, í kampa-
víni. Hvar er Cal?“
„Inni í herberginu sínu“, sagði
Lee.
„Kallaðu á hann. Hann veit ef-
laust hvar Aron er“.
Cal virtist vera þreyttur og lé-
magna, en andlit hans var hörku-
legt og athugult og lymskulegt og
skömmustulegt.
„Veiztu hvar bróðir þinn er?“
spurði Adam.
„Nei“, sagði Cal.
„Hefur þú ekki verið með hon-
um?“
„Nei“.
„Hann hefur ekki verið heima í
tvær nætur. Hvar er hann?“
„Hvernig ætti ég að vita það?“
sagði Cal. — „Á ég kannske að
gæta hans?“
Höfuð Adams hneig niður og
það fór veikur skjálfti um allan
líkanva hans. Einhvers staðar inni
í hugarfylgsnum hans leiftraði lít
ið óskiljanlega skært blátt ljós.
Hann sagði loðnum rómi: —
„Hann er kannske farinn til há-
skólans aftur“. Varir hans virt-
ust máttvana og hann muldraði
eins og maður sem talar upp úr
svefni. — „Haldið þið það ekki
líka — að hann sé farinn þang-
að?"
" Quinn héraðsfógeti reis úr sæti.
„Þetta, sem við ætluðum að
gera“, sagði hann ■— ,,getur að
skaðlausu beðið betri tírna. >ú
þarfnast hvíldar, Adam. Þetta hef
ur orðið mikið áfall fyrir þig“.
Adam leit á hann: •— „Áfall —
o, já. Þakka þérir fyrir, Georg.
Þakka þér innilega fyrir".
„Georg?"
„Þakka þér hjartanlega fyrir",
sagði Adam.
Þegar héraðsfógetinn var far-
inn, hélt Cal til herbergis síns.
Adam hallaði sér aftur á bák í
stólnum, og innan stundar var
hann sofnaður og hraut með opn-
um munni.
Lee stóð stundarkorn og horfði
á hann, áður en hann fór aftur
fram í eldhúsið. Hann opnaði
bi auðstaukinn og tók þar upp litla
bók í skinnbandi með nafni næst-
um ólæsilegu, vegna þess að gyll-
ing stafanna var næstum máð af.
— Hugleiðingar Marcusar Aurel-
iusar í enskri þýðingu.
Lee þurrkaði stálspangargler-
augun sín með handklæðinu. Síð-
an opnaði han* bókina og blaðaði
í henni. Og hann brosti með sjálf-
um sér meðan hann leitaði að sér-
stökum kafla, sér til trausts.
Hann las hægt og myndaði orð-
1 in með vörunum: — „Hafðu það
jafnan í huga að allir hlutir ger-
ast við breytingu og minnstu þess
að ekkert er eðli alheimsins kær-
ara en að breyta þeim hlutum sem
eru og gera nýja hluti líka þeim,
því að allt sem lifir eða er til, er
að nokkm leyti sæði þess er verð-
ur“.
Lee renndi augunum niður eftir
bókarsíðunni. — „Þú átt innan
lítillar tíðar að deyja og þú ert
ekki enn laus við áhyggjur. Þú
óttast það, að ytri hlutir og aðstæð
ur kunni að særa þig. Þú ert ekki
mildur og vingjarnlegur við alla.
Og þú neytir ekki vitr þíns og þekk
ingar til þess eins að breyta rétti-
lega“.
Lee leit upp frá lestrinum og
hann svaraði bókinni, eins og
hann hefði svarað einhverjum öld-
ungi ættar sinnar. „Það er satt“,
sagði hann. — „Þetta er mjög erf-
itt. Ég blygðast mín. En gleymdu
þv' ekki, að þú segir líka: —
„Veldu ávallt skemmstu leiðina og
skemmsta leiðin er hin náttúrlega
— gleymdu því ekki“. Hann fletti
blöðunum, unz hann kom að saur-
blaðinu, þar sem nafnið Samúel
Hamilton hafði verið ski'ifað með
breiðum snikkarablýanti.
Skyndilega varð Lee gripinn
kæti. Hann fór að hugsa um það,
hvort Samúel Hamilton myndi
nokkurn tíma hafa saknað bókar-
innar eða grunað hver valdið hefði
hvarfi hennar. Lee hafði virzt
það eina rétta að stela henni. Og
hann hafði aldrei iðrast eftir því.
Fingur hans gældu við lin skinn-
spjöldin, þegar hann tók hana og
s*akk henni aftur niður í brauð-
staukinn. — „Auðvitað vissi hann
hver tók hana“, sagði hann við
sjálfan sig. — „Hver annar hefði
getað stolið Marcusi Aureliusi?
Hann gekk inn í dagstofuna og
settist á stól við hliðina á Adam,
sem svaf djúpum, værum svefni.
2.
Cal sat við borðið í herbergjnu
sínu, studdi olnbogum á borðplöt-
una og lét höfuðið hvíla í höndum
sér. Hann hafði sáran höfuðverk,
ónot í maganum og hin súr-sæta
viskílykt angaði umhverfis hann
og af honum, fyllti nasir hans,
loddi við hverja flík, 1-íkamans og
olli honum velgju.
Cal hafði aldrei drukkið áður,
hafði aldrei þurft þess. En för
hans til Kate hafði ekki veitt hon-
um neina fróun og hefndin hafði
verið án nokkurrar sigurgleðí. —
Hann mundi ekki cftir atburðum
kvöldsins nema sem óljósum hræri
UNGUR LAGHENTUR
maður
óskast strax. — Upplýsingar í Skóverksmiðjunni
Þór, Skipholti 27.
at sundurlausra orða, sýna og
• ifinninga. Hann gat ekki greint
I á milli veruleika og ímyndunar.
I Þegar þeir komu ut úr húsinu,
[ hafði hann lagt handlegginn yfir
öxl bróðurins, sem var snöktandi
og hikstandi, en Aion hafði barið
hann til jarðar með eldsnöggu
hnefahöggi. Aron hafði staðið yf-
ir honum í myrkrinu, en svo snú-
ið sér skyndilega við og hlaupið í
burtu, grátandi eins og örvita
barn. Cal heyrði enn hásan grát-
inn, sem yfirgnæíði hratt fótatak
bróðursins. Cal hafði legið kyrr,
þar sem hann féll um koll, undiir
háa þyrnigerðinu í húsagarði
Kates. Hann heyrði blástur og
skrölt eimlestarinnar í fjarska og
hvin bifreiðanna, sem um veginn
fóru. Svo hafði hann Tokað augun-
um, en opnaði þau brátt aftur og
leit upp, þegar hann heyrði létt
fótatak og skynjaði nálægð ein-
hverrar lífandi veru.
Einhver laut niður að honum
og honum datt í hug, að það væri
Kate. En svo rétti þessi mannvera
sig upp aftur og gekk hlióðlega
í burtu.
Eftir nokkra stund hafði Cal svo
risið á fætur, dustað af sér rykið
og lagt af stað í áttina til Main
Street. Hann gat ekki annað en
undrast það, hversu lítil áhrif
þessi atburður bafði á tilfinningar
hans. Hann fór að raula lágt fyr-
ir munni sér: — „There is a rose
that grows in no mans land and
it is wonderful to see -----“.
Allan laugardaginn hafði Cal
haldið kyr’-u fyrir inni í herberg
inu sínu. LTm kvöldið fékk hann
Joe Laguna til að kaupa handa
sér viskíflösku, þar sem hann var
of ungur til að kaupa hana sjálf-
ur. Joe vildi gjarnan slást í fé-
lagsskap við Cal, en varð að gera
sig ánægðan með einn dollara sem
Cal gaf honum og fór niður í
krána, til að kaupa sér einhverja
hressingu fyrir hann.
Cal fór beint inn í sundið, bak
við Abbot Hause og fann skotið,
þar sem hann bafði setið með Rab
bit Holman hið sögulega kvöld,
þegar hann sá móður sína í fyrsta
skipti. Hann settist flötum beinum
á jörðina og svo neyddi hann sig
til að drekka úr flöskunni, þiátt
fyrir megnustu velgju og ógleði.
Tvisvar sinnum kastaði hann upp,
en hann hélt samt áfram að
drekka, þangað til jörðin fór að
bylgjast og snúast undir honum
og götuljósið hnitaði stóra og tign
arlega hringi.
Loks rann flaskan úr höndunum
á Cal og hann vatt út af, en jafn-
vel þegar öll meðvitund hafði yfir-
gefið hann, hélt hann áfram að
kasta upp.
Alvörugefinn, stutthærður hund
ur, með hringað skott, kom snuðr-
andi inn í húsagarðinn og stans-
aði öðru hverju, lyfti öðrum aft-
urfætinum og kastaði af sér vatni.
Hann varð var við Cal og fór í
stóran krók fram hjá honum. Joe
Laguna varð hans einnig var og
fann hann. Jœ tók flöskuna, sem
lá upp við fótinn á Cal, hristi
liana, bar hana upp að ljósinu
og sá að hún var nærri hálf. Hann
skyggndist um eftir tappanum, en
sá hann hvergi. Svo gekk hann í
burtu og hélt þumalfingri sínum
i flöskustútnum, svo að ekki skyldi
gusast upo úr henni.
1 grárri dögun vaknaði Cal til
hins dapurlega lífs, skjálfandi af
kulda, og dróst heimleiðis. Hann
þurfti ekki að ganga langa leið,
aðeins út úr sundinu og þvert yf-
ir götuna.
Lee hc’7rði til hans við dyrnar
og kannaðist fljótt við þefinn sem
af Cal lagði, þegar hann staulað-
ist og skjögraði inn eftir forstofu-
gólfinu, til herbergis síne og hneig
út af í rúmið sitt.
Cal var glaðvakaiidi, en það var
því líkast sem höfuðið á honum
væri alveg að klofna í sundur,
Hann hafði ekkert mótstöðuafl
gegn sorginni, ekkei-t varnarlyf
gegn smáninni. Eftir nokkra stund
reyndi hann að hrista af sér slen-
ið. Hann fór I kalt bað og nuddaði
og neri líkamann. Hann vissi að
hann varð að játa sök sína fyrir
föðurnum og biðjast fyrirgefning-
ar. Og bann varð að auðmýkja sig
fyrir Aroni — ekki aðeins núna,
heldur alltaf. Án þess gat hann
ekki lifað. En þegar kallað var á
hann og hann stóð inni í stoíunni
hjá föður sínum og Quinn héraðs-
fógeta, var hann samt engu að
síður þijóskur og ofsafenginn,
eins og grimmur hundur og hatr-
ið til hans sjálfs, beindist gegn öll
um öðrum — hann var vesæll og
fyrirlítlegur ræfill, sem engum
unni og enginn unni.
Svo sat hann aftur inni í her-
berginu sínu og sektarvitundin
lamaði hann og hann hafði ekk-
ert vopn, sem hann gæti varizt
henni með
Skyndilega varð hann ofsalega
hræddur um Aron. Hann gat hafa
slasast á einn eða annan hátt. —
Hann gat hafa lent í einhverjum
erfiðleikum. Það var Aron, sem
ekki gat séð um sig sjálfur. Cal
vissi að hann -'arð að leita Aron
uppi og koma með hann heim og
jera hann aftur að þeim sama og
hann hafði áður verið.
Og þetta varð að gerast, jafnvel
þótt Cal þyrfti að fórna til þess
sjálfum sér. Og þá greip hugmynd
in um fórn hann jafnsterkum tök-
um og venjulega, þegar sakhitánn
maður á í hlut. Aðeins fórn gat
hjálpaf Aroni og komið honum
heim aftur_
Cal gekk yfir að skrifborðinu
sínu og tók þunna, flata pakkann
upp úr skúffunni. — Svo litaðist
hann nm í herberginu, kom auga
á litla glerskál í glugganum og lét
hana á borðið fyiir framan síg.
Hann andaði djúpt og naut hress-
andi áhrifa hins ferska loíts. Því
næst tók hann einn peningaseðil-
inn, biai.t hann saman eftir
miðju, kveikti á eldspítu og bar
hana að seðlinum. Hinn þykki
pappír skorpnaði saman og varð
svartur, svo læstist eldurinn upp
eftir honum og þegar hann var
rétt kominn að fingurgómunu»i á
áflútvarpiö
Miðvibudagur é. nóvembc r:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50—14,00 Við vinnuna: — Tón-
leikar af piötum. 18,30 Tal og tón
ar: Þáttur fyrir unga hlústend-
ur (Ingólfur Guðbrandsson náms-
stjóri). 18,55 Framburðarkennsla
í ensku. 19,05 Þingfréttir. — Tón-
leikar. 20,30 Lestur fornrita: —
Hallfreðar saga vandi-æðaskálds;
XI. (Einar ÓI. Tveinsson prófess-
or). 20,55 Einleikur á píanó: Gina
Bachauer leikur (plötur). 21,10
Leikrit Þjóðleikhússins (fram-
baldsleikrit): „Islandsklukkan"
efti Halldór Kiljan Laxness;
fyrsti hluti. — Leikstjóri: Lárus
Pálsson. Leikendur: Brynjólfur
Jóhannesson, Baldvin Halldórsson,
Lárus Pálsson, Árni Trj’ggvason,
Steindór Kjörleifsson, Herdís Þor
valdsdóttir, Þorsteinn Ö. Step-
hensen, Emelía Jónasdóttir, Anna
Guðmundsdóttir, Klemenz Jónsson,
Ævar Kvaran, Lárus Ingólfsson,
Edda Kvaran, Jón Aðils, Gestur
Pálsson, Valur Gíslason og Valdi-
mar Helgason. — Þorsteinn ö.
Stephensen flytur nokkur inn-
gangsorð, og Lárus Pálsson les
prólógus eftir höfund leikTÍtsins.
22,10 Iþ-óttir (Sigurður Sigurðs-
son). 22,30 Harmonikulög: Kunn
ir harmonikuleikarar og hljóm-
sveitir leika (plötur). 23,10 Dag-
skrárlok.
FimmlwinRHr 7. nóvember:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50—14,00 „Á frívaktinni", sjó-
rnannaþáttur (Gnðrún Erlends-
dóttir). 18,30 Fomsögulestur fyr-
ir börn (Helgi Hjörvar). — 18,50
Framburðarkennsla í frönsku. —-
19,05 Þingf réttir. — Tónleikar.
20,30 Kvöldvaka: a) Björn Th.
Björnsson listfræðingur ies kafla
úr bók eftir Peter Hallberg: Hall-
dór Kiljan í klausfcri Saint Mau-
rioe de Clei-vaux. b) íslenzk tón-
list: Lög eftir Árna Björnsson. c)
Finnborg Örnólfsdóttir les kvæði
eftir Helga Valtýsson. d) Ólafur
Þorvaldsson þingvörður flytur
minningabrot um séra Þórarin
Böðvarsson í Görðum. 21,45 1»-*
lenzkt mál (Asgeir Biöndal Magn-
ússon kand. mag.). 22,10 „Söngs-
ins unaðsmál": Guðrún Sveinsdótt
ir talar um þróun sönglistar. —
22,40 Tónleikar (plötur). — 23,00
Dagskiárlok.