Morgunblaðið - 29.11.1957, Síða 9
Föstudagur 29. nóv. 1957
MO* CT'ivttT 4ftlÐ
9
Páll V. G. Kolka:
Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar
frá Balaskarði
SJÁLFSÆVISÖGUR þær, sem
ritaðar eru af sæmilegri hrein-
skilni, gefa alljafna dágóða lýs-
ingu á skapgerð og sálarlífi höf-
undarins, en eru lika oft stór-
merkileg heimild um umhverfi
hans og aldarhátt á hans tímum.
Þær vaxa því oft að gildi, eftir
því sem árin líða, þótt aðrar sam-
tímabókmenntir, sem meira voru
metnar í upphafi, verði eins og
slitin og fúin flík, sem enginn
kærir sig um að nota. Enginn,
að örfáum grúskurum undan-
teknum, les nú franskar skáld-
sögur frá 18. öld, leikrit þess
tíma eru hvergi sett á svið, en
allmargir lesa enn Játningar
Rousseau’s, þessa hálfgeggjaða
heimspekings, sem varð ráðvillt-
um skýjaglópum dáð og mikils
metið leiðarljós. Dagbók Pepys
bregður upp fróðlegum smá-
myndum af stjórnarfari og dag-
legu lífi í London á 17. öld, auk
hrikamynda af svartadauðaplág-
unni þar 1665 og brunanum
mikla 1666, enda mun hún vera
einhver bezta heimild, sem til
er um þessa atburði. Svipuðu
máli gegnir um dagbækur Bos-
well’s og lýsingu þeirra á ensku
þjóðlífi hundrað árum seinna.
Það er rótgróinn eðlisþáttur ís-
lendinga að vilja hlýða sögum og
að segja sögur, ekki hvað sízt
af sjálfum sér. Skáldum og rit-
höfundum, eins og Gunnarí
Gunnarssyni, Guðmundi Haga-
lín og Þórbergi Þórðarsyni, endist
það efni í mörg bindi, þar sem
endurminningarnar eru aðeins
uppistaða og skáldskapurinn er
skrautlegt ívaf, niðurraðað með
stílbrögðum og listbrellum kunn-
áttumannsins. Algerð andstaða er
heimaofið vaðmál alþýðumanns-
ins, sem ekkert kann til slíks
handbragðs, en notar efnið eins
og það kemur fyrir í eðlilegum
sauðarlitum, oft með leiðinlegum
hnökrum og bláþráðum. Þetta
grófa vaðmál getur þó þolað slit-
ið engu síður en glitvefnaðurinn
Sigurður Ingjaldsson
og jafnvel betur, þegar um það
er að ræða að fá óskreytta og
óskreytna mynd af samtíð sögu-
ritarans, af lífinu sjálfu eins og
því var lifað, ekki í hugarheimi
skáldsins, heldur á grýttri alfara-
leið almúgans.
oo—oo—oo
Sjálfsævisaga Sigurðar Ingj-
aldssonar frá Balaskarði verður
eitt af allramerkilegustu heimild-
arritum í þessum flokki, þegar
kynnast skal lífi íslenzkrar al-
þýðu á síðari hluta 19. aldar. —
Hún er nú komin út á vegum
Bókfells í veglegri útgáfu, skreytt
allmörgum myndum, sem mér
virðist að hafi sumar verið tekn-
ar traustataki úr „Föðurtúnum"
mínum, og eru þær að vísu ekki
verri fyrir það. Sigurður kenndi
sig við Balaskarð í Húnavatns-
sýslu, þar sem hann ólst upp og
átti lengi heima, en var Skag-
firðingur að ætt og uppruna.
Móðir hans ól hann upp í því
bjargfasta trúaröryggi á föður-
lega forsjón Guðs, sem gerði
mörgum íslenzkum manni og
konu fært að standast ótrúlegar
þolraunir, án þess að flýja af
v ” ynfv
ERTCHMORm TZEMŒi
m
m
Höfundur hinna vinsælu bóka
„Tíðindalaust á vesturvíg-
stöðvunum“, „Sigurboginn“
og „Vinirnir“ hefir á ný skrif
að mikla skáldsögu.
Remarque er ekki lengur eins beizkur og fyrr. Hann lætur
frásagnargleðina ráða, minnist kátbroslegra atburða fyrri
daga, leiðir vini sína fram, bregður upp skyndimyndum og
lætur fyndnina óspart fjúka.
FALLANDI GENGI er stórkostleg skáldsaga — fyndin og
fögur — gegnsýrð því lífsviðhorfi, sem bjargar manninum
þótt heimurinn hrynji, — ástarsaga um manneskjurnar, sem
lifa, þótt markið falli.
„Þetta er skemmtilegasta og bezta bókin mín", segir
höfundurinn um bókina.
BOKAUTGAFAN
^RÖÐUjj |
hólmi lífsins út í kviksyndi upp
gjafar og sturlunar. Faðir hans,
sem var harðduglegur hörku
karl, innrætti honum þá lífsspeki,
að með dugnaði og kjarki mætti
sigra alla erfiðleika, enda mól
hann ekki undir þennan son sinn
í upvextinum. Sigurður var frek-
ar lágvaxinn og tók seint út vöxt
og hefur það ásamt skagfirzku
upplagi hans og því uppeldi, sem
hann hlaut, gert sitt til að gera
hann nokkuð sjálfhælinn og er
honum það sjálfum ljóst, en hann
gefur Guði dýrðina með þessum
orðum: „Þetta þykir ef til vill
sjálfshól, en eg vil ekki draga
af skaparanum það, sem hann
hefur gefið mér.“
Sigurður var lítt gefinn fyrir
kyrrsetur og virðist alltaf hafa
verið reiðubiúnn til að leggja út
ný ævintýri, dvaldizt sjaldan
lengi á sama stað eða við sama
starf og lenti í mörgum svaðil-
förum, allt frá því er hann týnd-
ist uppi í fjöllum sjö ára gamall
og lá þar úti á annan sólarhring
í vondu veðri illa búinn. Átján
ára brauzt hann undan harð-
stjórn föður síns og strauk frá
honum á næturþeli, fór suður til
sjóróðra og var síðan öðru hverju
sjómaður í fjölda ára, bæði á
opnum skipum og þilskipum, en
stundum formaður. Hann lenti
oft í sjávarháska og bjargaði
hvað eftir annað sér og öðrum
með snarræði sínu og óbilandi
kjarki. Oft var hann í sendiferð-
um á landi og mátti hvað eftir
annað litlu muna að hann yrði
úti eða færist í straumvötnum.
A öllu þessu flakki kynntist hann
fjölda manna í öllum landsfjórð-
ungum og segir af þeim ýmsar
sögur. Frásögn hans er oftast
mjög ýtarleg og lýsir því lífinu,
eins og því yar lifað við sjó og
í sveit á ýmsum stöðum landsins,
svo að vart munu aðrir gera
það betur. Eftir harðindin 1887
tók hann sig upp eins og fleiri
og hélt til Vesturheims. Lýsing
hans á lífi vesturfaranna á leið-
inni og viðtökum þeirra vestra
er einnig mjög merkileg heim-
ild. Hann dó á Gimli í hárri elli
1933.
Fyrri útgáfa af ævisögu Sig-
urðar kom út í tveimur bindum
1913—14, en þriðja bindið 20 ár-
um seinna. Því er sleppt í þessarj
útgáfu, enda á það minna erindi
til Islendinga og var skrifað eft-
ir að hann var orðinn aldurhnig-
inn.
Full þörf hefði verið í svo
vandaðri útgáfu sem þessari að
hafa neðanmálsgreinar með
skýringum- um ýmsa þá menn,
sem nefndir eru í sögunni, og
geta helztu afkomenda þeirra,
því nú orðið kannast varla aðrir
við þá en þeir, sem fróðir eru
um sögu og ættir viðkomandi hér
aða. Á þetta einkum við um þá
mörgu Húnvetninga og Skag-
firðinga, sem fyrir koma, en
fjöldi manna er út af þeim kom-
inn. Eins hefði verið æskilegt
að hafa nafnaskrá aftan við bók
ina. Þrátt fyrir þessa ágalla er
þessi nýja útgáfa af sögu hins
ótrauða ævintýramanns mikili
fengur fyrir þá, sem unna ís-
lenzkum fræðum. Hún er sann-
kölluð hetjusaga, þótt þar sé
aðeins fjallað um hetjuafrek
hversdagsleikans, eins og hann
leit út á íslandi á öldinni sem
leið.
Á MORGUN, 30. nóvember, efn-
ir Árnesingafélagið í Reykjavík
til fullveldisfagnaðar í Tjarnar-
kaffi, svo sem venja hefur verið
hjá félaginu undanfarin ár.
Aðalræðuna flytur Þorlákur
Jónsson og minnist hann full-
veldisins. Þá verður einsöngur,
Guðmundur Guðjónsson, söngv-
ari, syngur nokkur lög; undirleik
ari er Kristín Ólafsdóttir. Að lok-
um verður dansað.
Sparið byggingarkostnaðinn
Smíðum eldhúsinnréttingar, skápa, hurðir o. fl.
fyrir mjög sanngjarnt verð.
ATH. Leiðbeiningar um hagrætt fyrirkomulag
í eldhúsinu, ásamt teikningu ókeypis fyrir
viðskiptavini.
Trésmiðjan Barónsstig 18
Sími: 14468.
íbúð til sölu
6 herbergi og eldhús, ásamt sér þvottahúsi og sér inn-
gangi og innbyggðum bílskúr í kjallara, til sölu.
íbúðin selst í fokheldu ástandi.
Ibúðin er við Austurbrún.
Nánari upplýsingar gefur Haukur Pétursson, múrara-
meistari kl. 8—10 á kvöldin, alia vii'ka daga.
Sími 24570.
Vonduð donsk
borðstofuhúsgögn
fyrir 10 manns
Til sýnis og sölu á Hraunteig 28 (efri hæð)
milli kl. 7—9 í kvöld.
Féflag VOLVO-
hifreiðaeigenda
Framhalds-stofnfundur verður haldinn í kvöld
föstudaginn 29. nóv. kl. 8,30, í Gagnfræðaskóla Aust-
urbæjar, Skólavörðuholti (inngangur aðaldyr).
Öllum Volvo-bifreiðaeigendum boðið á fundinn.
Undirbúingsnefndin.
Les/ð
CHINA
Reconstructs
Mánaðarrit
á ensku
Flytur
greinax um:
Kínverska list að fornu og
nýju, vísindi, samgöngur,
heilbrigðismál, leiklist, tón-
list, kvikmyndir, íþróttir,
frímerki, matargerð o. m.
fleira.
Ritið er mikið myndskreytt
og vandað að frágangi.
3 fylgirit árlega, t. d. fylg-
ir kínversk matreiðslubók
með 50 uppskriftum, des-
emberheftinu.
1 kaupbæti fá nýir áskrif-
endur:
tvær litprentaðar
myndir (fornlist).
Verð árgangsins, 12 hefti,
40 blaðsíður, er kr. 20,00
(2 árg. kr. 35,00), burðar-
gjaldsfrítt sent áskrifend-
um mánaðarlega heim, beint
frá Kína. —
Tiliboð þetta gildir tH 28.
febrúar 1958, en eftir þann
tíma hækkar verð ritsins.
Pantið
því
strax
í dag
PÖNTUNARSEÐILL:
ffi
U
K>
x «
> «
(ð -r
>> m
QJ
C'J
tn
co
'+H
13 ~
X! ’S
C/3 ^
"O o
& >
§ *o
« tj
M :Ö
J O
W ro
J2
'ð
73
5o
c3
c
•a
£
•H
B
QJ
tn