Morgunblaðið - 29.11.1957, Page 10
10
MORGVISBL AÐ1Ð
Föstudagur 29. nóv. 1957
Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfus Jónsson.
Aðaxritstjorar: Valtyr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Öla, simi 33045
Auglýsmgar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðaistræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 30.00 á mánuði innaniands.
í lausasölu kr. 1.50 emtakið.
ÁHRIF VERÐBÓLGUNNAR
Á SJÁVARÚTVEGINN
14 eiginmenn — og einn, sem vanfar
— Adenauer á ekki sjo dagana sœla
UM síðustu áramót voru
gerðar bráðabirgðaráð-
stafanir til þess að
tryggja rekstur sjávarútvegsins
á þessu ári. Um 300 millj. kr.
voru teknar af þjóðinni í nýjum
tollum og sköttum til þess að
standa undir stuðningnum við
útgerðina.
Engum datt í hug, allra sízt
vinstri stjórninni, sem lofað
hafði að leysa allan vanda efna-
hagslífsins „að nýjum leiðum“,
að hér væri um nokkur varan-
leg úrræði að ræða. Hins vegar
var þó gert ráð fyrir því, af
hálfu stjórnarflokkanna, að
„verðstöðvunarstefna" stjórnar-
innar ásamt „millifærslunni".
sem fólst í hinum nýju álögum,
ætti að tryggja rekstur útgerð-
arinnar a. m. k. tvö ■*».
Nú er tæplega eitt ár liðið síð-
an ríkisstjórnin lagði fram til-
lögur sínar til stuðnings útgerð-
inni. Nokkur reynsla er því
komin á framkvæmd þeirra. Og
hvað segir sú reynsla?
Mikið hefur vantað á það, að
staðið hafi verið við það sam-
komulag, sem gert var við út-
gerðina um síðustu áramót. Fjöl-
margar af nauðsynjum hennar
hafa t. d. verið tollaðar um 7—
38%. Hefur þetta haft í för með
sér verulega hækkun útgerðar
kostnaðar. Ennfremur heíur
staðið mjög á greiðslum úr Út-
flutningssjóði, þannig að sjóður-
inn hefur verið undanfarið og er
enn í tugmilljóna króna skuldum
við útgerðina. Hafði því þó sér
staklega verið lofað af hólfu
sjávarútvegsmálaráðherra að
ekki skyldi standa á greiðslum.
Vaxandi verðból^a
Þá hefur vöxtur verðbólgunn-
ar ekki hvað sízt aukið erfið
leika útvegsins. Kaupgjald hefur
hækkað og þar með margir af
kostnaðarliðum útgerðarinnar, t.
d. viðhald og endurnýjun véla
og skipa. Ennfremur hafa erfið-
leikarnir á að fá menn á skipin
aukizt að miklum mun. Voru a
síðustu vertíð um 1400 Færey-
ingar á íslenzka fiskiskipaflotan-
um eða allt að 40% þeirra
manna, sem sjóinn sækja. Fyrir
þetta erlenda vinnuafl varð
þjóðin að borga rúmar 15 millj.
kr. í erlendum gjaldeyri.
Á þessu ári voru rúmlega 400
fleiri útlendingar á flotanum en
árið 1956. Sækir þannig stöðugt
á ógæfuhliðina fyrir útgerðinni.
Færri og færri íslendingar fást
til þess að stunda sjó.
Þetta gerist á sama tíma og
sjávarútvegsmálaráðherra seg
ist hafa tryggt fiskimönnum
14—15% kauphækkun. Árang
urinn er: aldrei meiri erfið-
leikar á að manna skipin ís-
lenzkum sjómönnum.
Stóraukinn rekstrarhalli
„Millifærslan" um siðustu ára-
mót átti, eins og áður er sagt, að
tryggja rekstur útgerðarinnar
næstu tvö ár, enda þótt engar
nýjar leiðir eða „varanleg úr-
ræði“ fyndust þegar vinstri
stjórnin átti að leggja fram til-
lögur sínar um lausn efnahags-
vandamálanna. En nú er svo
komið, samkvæmt útreikningum
verðlagsráðs og afurðasölunefnd-
ar L.Í.Ú., að stórkostlegur rekstr-
arhalli til viðbótar hefur enn
orðið á bátum og togurum. Miðað
við meðalvélbát er gert ráð fyrir
140 þús. kr. halla á næsta ári, ef
reiknað er með sömu greiðslum
úr Útflutningssjóði og óbreyttu
fiskverði. Á hvern togara er hins
vegar gert ráð fyrir rúmlega 1,1
millj. kr. tapi á næsta ári, að
óbreyttum aðstæðum og styrkj-
um.
Þannig hefur hin vaxandi
verðbólga leikið aðalútflutn-
ingsframleiðslu þjóðarinnar á
þessu eina ári. Vitanlega á
minnkandi afli einnig nokk-
urn þátt í þessu. En hinn
aukni útgerðarkostnaður er
þó aðalorsökin.
Vinstri stjórnin hefur því enn
einu sinni orðið uppvís að brigð-
mælgi. „Verðstöðvunarstefna“
hennar átti að tryggja stöðvun
verðbólgunnar og hækkun fram-
leiðslukostnaðar. Staðreyndirnar
um hinn aukna rekstrarhalla
framleiðslunnar tala sínu máli
um árangurinn.
„Ekki framtíðarlausn“
„Tíminn“ viðurkennir það líka
hreinlega í gær, að milljónaálög-
ur vinstri stjórnarinnar um síð-
ustu áramót hafi ekki falið í sér
neina frambúðarlausn á efnahags
vandamálunum. Kemst blaðið þk
þannig að orði í forystugrein
sinni:
„En varla getur nokkrum '
manni blandast hugur um, að
slíkt uppgjör um hver áramót að
kalla er ekki framtíðarlausn
þessa máls. Eðlilegur rekstur út-
gerðar hér á landi, á grund-
velli erlends markaðsverðs ann
ars vegar, en grunni vöruvönd-
unar, hagsýni, dugnaðar og harð-
fengi íslenzkra sjómanna hins
vegar, er það, sem koma skal.
Ekkert annað leysir dæmið til
frambúðar“.
Engin tæpitunga um
gengislækkun
Þetta voru ummæli málgagns
Framsóknarflokksins í gær. Þar
er ekki talað neinni tæpitungu:
Gengisbreyting er það eina, sem
„leysir dæmið til frambúðar“,
segir „Tíminn“.
Athugum þetta nánar. Sjálf-
stæðismenn og Framsóknar-
menn leystu vandamál sjávarút-
vegsins og íslenzks efnahagslífs
árið 1950 með nýrri gengisskrán
ingu. í ííokkur ár tókst að halda
jafnvægi í íslenzku efnahagslífi.
Þá tókst kommúnistum að koma
á trylltu kapphlaupi milli kaup-
gjalds og verðlags og hleypa
verðbólguskriðu af stað.
Þá sögðu Framsóknarmenn að
ekki væri hægt að leysa vanda
efnahagslífsins með Sjálfstæðis-
mönnum. Það væri aðeins hægt
að gera með kommúnistum!
Nú segir málgagn Fram-
sóknarflokksins að ekki sé
hægt að leysa vandamálin
nema með gengisbreytingu.
En kommúnistar hæla sér sí-
fellt af því að hafa hindrað
Framsókn og krata í að fram-
kvæma gengisbreytingu!
Hvernig ætlar hin ráðsetta
Framsóknarmaddama þá að
„leysa dæmið til frambúðar?"
ÞESSA dagana ræða dagblöðin
beggja vegna Atlantshafsins
ekki um aðrar konur meira en
Barböru Hutton, Evelyn Keyes
og Evu Bartok. Og allar þessar
umræður snúast um hjúskapar-
mál kvennanna þriggja, sem eru
í rauninni í frásögu færandi.
★
Sjö eiginmenn
Ríkasta kona heims hefur hún
verið nefnd, Woolworth erfinginn
Barbara Hutton, sem unir nú illa
hag sínum í sjötta hjónabandinu.
Hún er gift þýzkum baron og
fyrrum tennismeistara, von
Cramm. Barbara er í þann veg-
inn að fá skilnað frá honum og
ganga í það heilaga í sjöunda
sinn. Tilvonandi eiginmaður er,
Bandarikjamaðurinn Philip van
Rensselaer, 15 árum yngri en hún,
aðeins þrítugur — en hann hefur
látið svo ummælt við blaðamenn,
að Barbara sé falleg, gáfuð og
aðlaðandi. Sjálfsagt þykir að
ætla, að sjönuda hjónabandið
Barbara Hutton
hennar Barböru verði því ham-
ingjuríkt.
★
Átta eiginkonur
Evelyn Keyes er kvikmyndadís,
sem fyrir skemmstu gekk í hjóna
band með bandaríska jazzleikar-
anum Artie Shaw. Þau voru ekki
fyrr gift en Evelyn fékk eigin-
manninn til þess að kaupa höll
eina á Costa Brava á Spáni, sem
vakti mikla athygli. Og þetta
gerði Artie Shaw fyrir áttundu
Lvelyn Kc., es
eignkonu sína, sem ekki er nema
fjórgift. Meðal fyrri eiginkvenna
jazzleikarans eru leikkonurnar
Ava Gardner og Lana Turner svo
og rithöfundurinn Kathleen
Windsor. Evelyn Keyes og Artie
Shaw hafa því samtals verið gift
tólf sinnum — og bæði segja þau,
að þetta sé síðasta hjónabandið
— vegna þess að þau hafa megn
ustu ótrú á tölunni 13.
★
Vantar eiginmann
Og þá kemur röðin að kvik-
myndadísinni Evu Bartok. Hún
Eva Bartok
hefur einnig verið gift fjórum
sinnum, en það vekur nú alheims
athygli, að þessa stundina er hún
ekki gift neinum. Og ekki
nóg með það. Hún hefur
alið dóttur utan hjónabands
og vill ógjarnan láta faðerni
hennar uppi. Sagt er að hún
geri það einungis til þess að
láta bera á sér og öðlast meiri
frægð en hún hafði áður notið,
og svo mikið er víst, að fræg er
hún orðin að endemum. Blaða-
menn spurðu hana á dögunum
hvort hún héldi faðerni barnsins
leyndu að fyrrgreindri ástæðu,
en hún brást bálreið við — og
varð enn frægari fyrir bragðið.
Og það þykir fátítt meðal kvik-
myndadísa, að þær finni sér ekki
eiginmann.
★
Adenauer fékk það,
sem hann vildi.
Adenauer kanslari hefur jafnan
brugðið jafnaðarmönnum um lít-
ið baráttuþrek og sagt þá lé-
lega stjórnarandstöðu. Við síð-
ustu kosningar sagðist hann vilja
fá sterka og harðvítuga stjórn-
arandstöðu, það væri ekkert gam
an að eiga við þessi dauðyfli. En
nú hefur Adenauer loksins feng-
ið það, sem hann hefur óskað eft-
ir — og er ekkert öfundsverður af
Hann hefur fengið sterka stjórn-
arandstöðu þar sem er öll kven-
þjóðin í V-Þýzkalandi.
★
Á Fiskiþingi:
Landhelgin, gæzlan
og fleiri mál rædd
Fiskiþing hélt áfram störfum
sl. mivikud. og voru til umræðu
þessi mál:
Landhelgismál. Framsögu hafði
Arngrímur Fr. Bjarnason. Gerði
hann grein fyrir hvernig málið
stæði nú og samþykktum fjórð-
ungssambanda og fiskideilda. —
Aðrir ræðumenn: Hólmsteinn
Helgason, Helgi Benónýsson,
Niels Ingvarsson, Magnús Magn-
ússon.
Landhelgisgæzlan. Framsögu-
hafði Einar Guðfinnsson. Taldi
hann landhelgisgæzluna ófull-
nægjandi eins og hún er nú.
Komu fram kröfur frá fjórðungs-
þingi Vestfirðinga og sambandi
fiskideilda á Snæfellsnesi um
aukna landhelgisgæzlu.
Gleymdi kvenfólkinu
Fyrir kosningarnar er Aden-
auer sagður hafa lofað þvi statt
og stöðugt, að hann mundi taka
kvenfólk í stjórn sína, ef hann
ynni sigur. Og svo vann hann sig-
ur — og myndaði nýja stjóm —
en gleymdi kvenfólklnu og loforð
unum. Hann hafði haldið margar
ræður í útvarp og á mannamót-
um. Víða talaði hann á fundum
kvennasamtaka margs konar —
og sagt er, að kvenfólkið hafi ver
ið ákaflega hrifið af honum, sér-
staklega vegna umhyggju hans
fyrir kvenþjóðinni
★
Ekki auðkeyptur friður.
En nú kom annað hljóð í
strokkinn. I 17 manna stjórn
hans situr enginn kvenmaður —■
og kvenþjóðin hefur risið upp.
Þegar hafa 19 fjölmenn kvenna-
samtök samþykkt vítur á lof-
orðasvikin — og sent sérlega
sendimenn með þær á fund kansl
arans í Bonn. Á þinginu í Bonn
sitja 48 konur af 494 þing-
mönnum og til þess að
bæta fyrir brot sit bauð Aden-
auer einni þingkonunni úr sín-
um flokk háa stöðu í „heimilis-
málaráðuneytinu“. En það var
tmesti misskilningur hjá Adenau-
er að halda, að hann gæti keypt
sér frið, því að þessi flokkssystir
hans var þegar komin á band kyn
systra sinna og þverkallaðist við
að taka við embættmu. Enn hafa
engar breytingar verið gerðar á
ráðuneyti Adenauers, það situr
hið fastasta og hefur „streka“
st j órnarandstöðu.
Vitamál. Framsögumaður var
Árni Vilhjálmsson. Margar óskir
höfðu borizt um umbætur á
mörgum vitum og nokkrar um
nýja vita. Aðrir ræðumenn voru:
Ágúst Pálsson, Arngr. Fr. Bjarna
son, Hólmsteinn Helgason, Helgi
Benónýsson, Níels Ingvarsson. —
Vísað til allsherjarnefndar.
Hafnarmál. Framsögumaður
var Þorvarður Björnsson og var
málinu vísað til allsherjarnefnd
ar.
Stofnlán sjávarútvegsins. Fram
sögumaður var Margeir Jónsson.
Var erindinu vísað til sjávarút-
vegsnefndar.
HlivUúrygg'ingasjóður, fram-
sögumaður Magnús Gamalíels-
son. Aðrir ræðumenn: Ingvar Vil
hjálmsson, Helgi Benónýsson,
Margeir Jónsson, Magnús Magn-
ússon. Vísað til sjávarútvegs-
nefndar.
Fiskirannsóknir, síldar og fiski
leit, framsögumaður Sveinbjörn
Einarsson. Var málinu frestað.