Morgunblaðið - 10.12.1957, Page 2
2
MORCVN BJ 4 Ð !Ð
triðjudagur 10. des. 1957
Fundur í Camla Bíói gegn hervernd
Framsókn og AlþýBufSokknum líkt við
hrafnsunga með karamellu í goggnum
Forsætisráðherra getur „því miður"
ekki talað v/ð hernámsand-
stæðinga vegna hæsi
Lagafrum v. um fæðingar-
heimili í Reykjavík
GUNNAR THORODDSEN, borgarstjóri, hcfur flutt lagafrumvarp
um að bæjarstjórn Reykjavíkur skuli heimilt aS taka íbúðarhús.
næði, sem er í eigu bæjarins, til afnota fyrir fæðingarheimili. —
Fins og áður hefur verið frá skýrt hér í blaðinu, hefur bæjar-
stjórnin samþykkt að setja á stofn slíkt heimili í húsunum Eiríks-
götu 37 og Þorfinnsgötu 1G, en þar býr nú fólk, sem bærinn hefur
séð fyrir húsnæði. Er því skv. gildandi lögum ekki heimilt að taka
úúsin til þeirra nota, sem bæjarstjórn hefur ákveðið, en með laga-
irnmvarpinu er lagt til, að sú heimild verði veitt.
A SUNNUDAGINN var efnt til
fundar i Gamla Bíói í Kcykjavík
til að krefjast brottfarar varnar-
liðsins af Islandi. Tii fundarins
boðuðu ' Rithöfundafélag íslands,
en að því standa rithöfundar úr
röðum kommúnista, svo og Félag
islenzkra myndlistarmanna. Ræður
fluttu Gils Guðmundsson forstjóri,
Guðmundur Böðvarsson skáid,
Svavar Guðnason listmálari og Jón
as Árnason ritliöfundur. Auk þess
las Yilborg Dagbjarlsdóttir, kenn-
ari, upp kvæði. í fundarlok var
samþykkt ályktun og siðan gengið
með hana undir kröfuspjöldum
heim til Hermanns Jónassonar, for
sætisráðiierra, í Tjarnargötu 42.
1 ræðu sinni sagði Gils Guð-
mundsson, að núverandi stjórnar-
flokkar hefðu fengið meirihluta
sinn af því, að þeir hefðu lýst því
yfir fyrir kosningar, að þeir ætl-
uðu að senda herinn úr landi. —
Minnti hann síðan á, að það
stefnuskráratriði hefði verið svik-
ið og taldi, að sinnuleysis gætti
nú um þessi mál meðal almenn-
ings. Hefðu því verið stofnuð sam
tök manna úr hópi rithöfunda,
listamanna, „háskólastúdenta og
annarra menntamanna" til að ýta
við stjórnvöldum og þjóðinni allri.
Þessi samtök höfðu gefið út hlað
fyrir fundinn og safnað undir-
skriftum að ávarpi, sem þar er
prentað, og að þvi er áheyrendum
skildist, höfðu þau undirbúið fund
inn sjálfan.
Á eftir Gils komu fram þau Guð
mundur og Vilborg. Var fundur-
inn með daufara móti allt þar til
stúlkan, sem er ritstjóri barna-
dálka Þjóðviljans, hafði lokið
lestri sínum. Tók þá til máls Svav
ar Guðnason og flutti ræðu, sem
vakti mikla kátínu, enda skringi-
lega samin og flutt. Taldi málar-
inn, að Islendingar hugsuðu um
lítið annað en luxus og nefndi ým
is dæmi þess, svo sem ofurást
þeirra á bílum og heimilisvélum.
Nefndi hann ýmsar heimilisvélar
sem dæmi: m. a. hrærivélar og
brauðristar — sem Ijósbrúnt
brauðið hoppar úr — langt upp í
loftið! Komst Svavar að þeirri
niðurstöðu, að vegna þessa hugs-
■unarháttar yrðu menn að hafa
peninga — og hcrinn yrði því ekki
látinn fara, a. m. k. ekki fyrst um
sinn. —
Jónas Árnason talaði síðastur
manna á fundinum, þar sem einn
af þeim, er ræðu áttu að flytja,
hafði forfallazt. Jónas ræddi nokk
uð um meðferð vamarmálanna að
nndanfömu.
Líkti hann Framsóknar- og
Alþýðuflokkunum við hrafns-
unga einn, sem ólst upp fyrir
SkemmtSflindu r
i Alliance
Francaise
FÉLAGIÐ Alliance Francaise
efnir til skemmtifundar í kvöld
í Tjarnarkaffi. Þar mun Gunnar
R. Hansen leikstjóri lesa upp
tvær stuttar sögur eftir Alphonse
Ðaudet, L’arlésienne og Les
vieux. Alphonse Daudet var einn
vinsælasti rithöfundur Frakka á
19. öld og mjög fjölhæfur. Samdi
hann bæði skáldsögur, leikrit,
smásögur og endurminningar.
Hann var upp runninn í Suður-
Frakklandi og bera sögur hans
blæ af lífi fólks í þeim héruð-
um. Þá mun Gísli Magnússon
píanóleikari leika nokkur lög. Að
lokum er dansað.
Alliance Francaise heldur á
hverjum vetri slík skemmtikvöld.
austun. Krummanuin þótti golt
að fá sælgæti og gcrðu strákar
sér stundum leik að því að gefa
honuin karainellur. Greip hann
þær mcð áfergju, en þær bráðn
uðu í gogginum á fuglstetrinu
og límdu hann saman, svo að
krummi gat ekki beilt honum
til neins, ekki einu sinni til
þess að láta frá sér lieyra! Jón-
as er fyrrverandi þingmaður
kommúnista og gerði sér sér-
stakt far um að útskýra, að
krumma-samlíkingin ætti ekki
við þann flokk. Væri ástæðan
sú, að hann hefði nýlega sent
bréf til hinna stjórnarflokk-
anna um, að nú vildi hann Iáta
hcrinn fara.
Ýmsum ræðumönnum varð nokk
uð tíðrætt um langdræg flugskeyti,
en að öðru leyti varð þess ekki
vart, að þeir væru sér meðvitandi
um að nokkuð væri að gerast í
heiminum. Virtust ræðumenn all-
HAFNARFIRÐI — Klukkan rúm
lega eitt í gær kom upp eldur
í þakpappaverksmiðjunni í Silfur
túni, sem er einnar hæðar hús og
um 200 fermetrar að stærð. Urðu
eldsupptökin með þeim hætti, að
stór ofn, sem bræðir hráefnið
sprakk og læsti eldurinn sig þá
í þakið. Var töluverður eldur í
húsinu á tímabili og ákafiega
mikill reykur. Komu slökkvilið-
in úr Hafnarfirði og Reykjavík
bæði á vettvang og tók um hálfan
annan tíma að ráða niðuriögum
eldsins. Mjög háði það slökkvi-
starfinu, að ekkert vatn er á
staðnum og varð þvi að sækja
það til Hafnarfjarðar þegar það
þraut í tönkum bílanna.
Urðu þarna talsverðar skemmdir
sérstaklega á þaki hússins, svo og
á hráefni. Hafði verksmiðjan ný-
lega fengið mikið hráefni og eyði
lagðist mikið af því, ýmist af
vatni eða eldi. Einnig skemmdust
í brunanum um 260 rúllur af
pappa, en hver rúlla er um 200
Búizt við
hörðum emræðum
um Græiiland
í KVÖLD gengst Stúdentafélag
Reykjavíkur fyrir almennum fé-
lagsfundi í Sjálfstæðishúsinu, þar
sem rætt verður um réttarstöðu
Grænlands. Þessi fundur stendur
þó ekki í neinu sambandi við
stofnun Grænlandsfélagsins, því
hann hafði verið ákveðinn all-
löngu áður en kunnugt varð um
þann félagsskap. Eigi að síðui er
dr. Jón Dúason, sem mjög hefur
komið við sögu í Grænlandsfé-
laginu, frummælandi á þessum
Stúdentafélagsfundi.
Mjög er Grænland á dagskrá
um þessar mundir hér hjá okkur.
Nú berast þær fregnir, að Viggo
Starcke, ráðherra í dönsku stjórn
inni skemmti sér yfir tíðindunum
frá íslandi.
Að lokinni framsöguræðu Jóns
Dúasonar verða frjálsar umræð-
ur. Er búizt við að fundur þessi
verði f jölmennur, og að umræður
verði harðar, því vitað er að
skoðanir manna eru mjög skiptar
í máli þessu.
ir vera þeirrar skoðunar, að ís-
lendingar þyrftu ekkert að óttast
frá öðrum þjóðum, — bara_ef hér
væri enginn her.
Það vakti sérstaka athygli á
fundinum í fyrradag, að þar var
all-margt af ungum framsóknar-
mönnum. Einnig var þar valdahóp
urinn' úr kommúnistaflokknum, þ.
á. m. Lúðvík Jósefsson, sjávarút-
vegsmálaráðherra.
Er fundinum var lokið, söfnuð-
ust nokkrir fundarmenn saman
framan við Gamla Bíó og gengu
síðan gegnum Miðbæinn heim til
forsætisráðherra, sem fyrr segir.
Ekki fara þó sögur af því, að Lúð
vík Jósefsson hafi verið í þeim
hópi. Létu ýmsir ófriðlega á leið-
inni og er komið var á áfangastað
var öllum bjöllum hússins hringt
í öryggisskyni, en þar eru fleiri
íbúðir en sú, sem Hermann býr í.
Hann kom að lokum í gættina,
tók við blaði með ályktuninni á,
braut það saman og hrópaði til
hópsins: „Ég get því miður ekki
talað við ykkur núna, því að ég
er svo hás“. Var þar með lokið
þessari herferð og fór hver til síns
heima.
kg. Hafa eigendur því orðið fyrir
miklu tjóni, en þeir eru bræðurn
ir Jón og Ragnar Bárðarsynir,
ættaðir að vestan.
Eins og fyrr segir, er mjög baga
legt, að ekki skuli vera nægilegt
vatn í Silfurtúni þegar eldsvoða
ber að höndum. Þar er nú risin
töluverð byggð og því nauðsyn-
legt að hafa þar nægilegt vatn,
ef eldur kemur upp. Væri t. d.
hægt að bæta úr þessu með því
að koma þar fyrir stórum geym-
um, sem ávallt væru fullir af
vatni. — G. E.
Nýja skógerðin efsl
á Iðju-mófinu
ÞRIÐJA umferð var tefld á laug-
ardag, á Iðju-mótinu og urðu úr-
slit þau, að Nýja skóverksmiðjan
fékk 4% vinning; Kassagerðin
154; Harpa hlaut 3; Pípuverk-
smiðjan 1 og tvær skákir fóru í
bið. — Ölgerðin fékk 3% gegn
254 hjá Andrési.
Fjórða umferð var tefld á
sunnudag. Nýja skóverksmiðjan
vann Ofnasmiðjuna með 4:1 (ein
skák bið), Harpa vann Andrés
með 4:1 (ein biðskák), Kassagerð
in vann Pípuverksmiðjuna með
5:1. —
Að loknum fjórum umferðum
er Nýja skóverksmiðjan efst með
1654 vinning og eina biðskák, —
Harpa með 1354v. og fjórar bið-
skákir, Kassagerðin með 954 v. og
tvær biðskákir. Pípuverksmiðjan
með 754 v. og 3 biðskákir, Ölgerð
in með 7% v., Andrés með 6 v. og
tvær biðskákir og Ofnasmiðjan
með 454 v. og tvær biðskákir.
Nýja skóverksmiðjan, Harpa og
Pípuverksmiðjan hafa teflt einni
umferð meira en hinir. Biðskákir
verða tefldar í skrifstofu Iðju,
Þórsgötu 1, kl. 8,15 á fimmtudag.
LONDON — Brezka flugfélagið
BOAC hefur ákveðið að hefja á
miðvikudaginn fastar áætlunar-
flugferðir milli Lundúna og New
York með Bristol Britannia-flug-
vélum. Það eru fyrstu farþega-
þoturnar sem notaðar eru í reglu-
bundnum flugferðum yfir Atlants
haf.
I greinargerð sinni fyrir frv.
segir Gunnar Thoroddsen:
Fyrir áratug reistu ríkið og
Reykjavíkurbær fæðingardeild
Landsspítalans. Sú stofnun bætti
úr brýnni þörf, en er nú orðin
of lítil.
Ýmsar leiðir til lausnar þess-
um vanda hafa verið athugaðar.
Fyrst og fremst hefur komið
til greina stækkun fæðingardeild
arinnar. Stækkun samkvæmt
uppdráttum, er fyrir liggja frá
húsameistara ríkisins, mundi
kosta 10—12 milljónir króna, en
sjúkrarúmum mundi aðeins
fjölga um 21. Þessi leið er því
RABAT, 9. des. — AUt Ifni
svæ'ðið er nú á valdi Mára að
undanteknum bænum Sidi Ifni
og fáeinum virkjum. Frá þessu
skýrði þjóðernissinnablaðið A1
Alam í Marokko í dag. Þar er
einnig tilkynnt, að síðan bardag-
ar blossuðu upp á Ifni-svæðinu
1. desember hafi 190 Spánverjar
fallið þar, fjöldi hafi særzt og
19 hafi verið teknir höndum,
AI Alam skýrir einnig frá því
að spænsk herskip, sem eru á
siglingu undan ströndinni hafi
skotið á þorp í Marokkó.
Móhamed V Márakonungur
ákurnesingar iagna
hafnarfram-
kvæmdum
Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ
efndi bæjarstjórn Akraness til
mannfagnaðar í tilefni af því að
hafnarframkvæmdum þar er að
Ijúka. Var um leið kveðjusamsæti
fyrir hina þýzku verktaka.
Hálfdán Sveinsson, forseti bæj-
arstjóri, var veizlustjóri. Ræður
fluttu Daníel Ágústínusson, bæjar
stjóri, Eysteinn Jónsson, ráðherra,
Emil Jónsson, bankastjóri, Finn-
ur Árnason, verkstjóri, Hallfreð-
ur Guðmundsson, hafnsögumaður,
Þórhallur Sæmundsson, bæjarfó-
geti, Jón Sigmundsson, framkv.stj.
Werner Volland, yfirverkfræðing-
ur, Hirschfeld sendiherra Þjóð-
vei-ja hér, Gísli Sigui-björnsson,
forstjóri og einnig flutti Ragnar
Jóhannesson, skólastjóri, drápu.
1 hófinu var lesið skeyti frá
Pétri Ottesen, alþm., sem ekki gat
mætt vegna veikinda, og var hann
hylltur með lófataki.
Stúdenfum hjargað
úr djúpum hellum
LONDON 9. des. — í dag var 6
stúdentum bjargað úr hellum ná-
lægt Kettlewell í York-héraði.
Unglingarnir voru komnir niður
í 130 metra dýpi, þegar mikil úr-
hellisrigning skall á. Orsakaði
hún jarðhrun inni í opi hellanna
svo að þeir lokuðust. Þar að auki
seig mikið vatn inn í þá svo að
hætta var talin á því að ungl-
ingarnir kynnu að drukkna. Fjöl-
mennt björgunarlið kom á vett-
vanginn. Fyrst var mokað frá
hellismunnanum, siðan héldu
froskmenn inn í göngin og tókst
að bjarga öllum stúdentunum
kostnaðarsöm og tæki alllangan
tima.
Önnur leið hefur einnig verið
athuguð. Hún er sú, að Reykja-
víkurbær setji á stofn, að fengn-
um nauðsynlegum leyfum fæð-
ingarheimili í húseignum bæjar-
sjóðs, Eiríksgötu 37 og Þorfinns-
götu 16. Kostnaður við stofnun
og rekstur þess heimilis yrði
greiddur úr bæjarsjóði.
Vegna gildandi laga um afnot
íbúðarhúsnæðis í kaupstöðum er
eigi heimilt að taka áðurgreind
íbúðarhús til þessara nota nema
með lagabreytingu, .og er það
efni þessa frv. að veita slika
heimild.
skoraði á almenning að taka
fréttunum frá Ifni með ró. Kon-
ungurinn segir, að það verkefni,
sem ætíð liggi honum mest á
hjarta sé að sameina allt Marokkó
og þar undir Sahara-eyðimörk-
ina. Yfirlýsingu þessa samdi
konungurinn í Bandarikjunum,
en þar er hann nú á ferðalagi.
Konungurinn bætir því við að
Marokkó krefjist aðeins réttar
síns. Hann segir, að þó Spánverj-
ar skjóti á borgir í Marokkó muni
Márar ekki gjalda líku líkt. Kór-
aninn fyrirskipi rétttrúuðum að
gæta réttlætis.
Jólofnndur
Hvatnr
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉ-
LAGIÐ Hvöt hélt jólafund sinn
í Sjálfstæðishúsinu í gærkvöldL
María Maack, formaður félags-
ins, var fundarstjóri. Ávarp flutti
frú Ragnhildur Helgadóttir, al-
þingismaður, og séra Þorsteinn
Jóhannesson, fyrrverandi prófast
ur í Vatnsfirði, flutti jólahugleið-
ingu.
Frú Ragnhildur ræddi um
bréfaskipti stjórnarflokkanna um
varnarmálin og stefnuleysi það,
sem komið hefur í ljós í því sam-
bandi. Einnig sagði hún frá hinu
nýja frumvarpi um breytingar á
kosningalögunum, sem ríkis-
stjórnin hefur lagt fram. Skoraði
hún á Hvatarkonur að vinna ötul
lega í þeirri kosningabaráttu, sem
nú fer í hönd.
Séra Þorsteinn sagði fróðlega
og skemmtilega frá jólahaldi á
bernskuárum sínum. Að hugleið-
ingu hans lokinni voru sungnir
jólasálmar og drukkið kaffi. —
Fundurinn var fjölsóttur og
ánægjulegur.
Spútnik 1. rekst á loft-
hjúpinn í janúar
MOSKVA, 9. des. — Rússneska
gervitunglið Spútnik I., hefur nú
farið 1000 sinnum í kringum
jörðina. Rússneska fréttastofan
Tass tilkynnir, að gervitunglið
muni koma inn í andrúmsloft
jarðar í janúar n. k. og þá brenna
upp. Tunglið hefur nú farið vega-
lengd sem nemur 43 milljón km.
Hver hringferð hefur nú stytzt
um 254 mínútu. Mesta fjarlægð
tunglsins frá jörðu var í byrjun
900 km en er nú um 600 km.
Eldur í þakpappaverk
smiðjunni í Silfurtúni
Nær allt Infi-svseBið
er á valdi Mára