Morgunblaðið - 10.12.1957, Qupperneq 12
12
MORGUWBI AÐIÐ
Þriðjudagur 10. des. 1957
* - ^
Sannleikurinn um Ef tir GEORGES SIMENON
Þýðing: Jón H. Aðalsteinsson ^ 'éíé 1 t)onge
18«
Fólk slúðrar svo margt um Bébé.
1 gær til dæmis komu Lourtie-kon
urnar hingað eins og af tilviljun.
Þú þekkir Laurence Lourtie, konu
bruggarans, er það ekki?
Mjög lítið. Að vísu þekkti hann
aila bæjarbúa, en sumir voru hon-
um ekki meira en svipir. — Þrek-
vaxin kona með ávala höku.
— Við hittumst oft í mjólkur-
búöinni. Hún lét sem hún vildi
tala við mig um góðgerðarstarf-
semina. Eins og af tilviljun hafði
hún ungfrú Villard, systurdóttur
Boniface, með sér í bifreiðinni.
Ég tók á móti þeim hér í garðin-
um og neyddist auðvitað tii að
bjóða þeim te, þótt ég ætti ekkert
með því.
„Þegar minnzt er á vemlings
Bébé. . . “
— Og hvað þær dæstu — og
komu með getgátur. Ég held, að
Boniface hafi sent systurdóttur
sina hingað til að vita, hvað við
álitum. Skipulagt samsæri og ekk
ert annað.
„Þið vitið nú hvernig fólk talar
— til eru þeir, sem segja að hún
hafi vanið sig á eiturlyf í Tyrk-
landi og að hún og vinkona henn-
ar. . .“
— Hún áttj við Mimi Lambert.
Greturðu ímyndað þérl Bébé hefði
átt að nota eiturlyf, þegar hún
var sextán ára, því hún var ekki
eldri, þegar við komum aftur til
Frakklands!
— Svo er sagt að þú hafir kom-
izt að þessu og tekið fyrir ósóm-
ann. Hvað sögðu þær nú fleira?
Já, nú man ég. Dominique lyfsali,
þú veizt, sem gefur út vikuritið,
segir hverjum sem hafa vill, að
hann ætli að skrifa hneykslis-
grein, þar sem hver 'ái sinn skerf.
Heyrðirðu, hvað ég sagði?
Nei, Francois lilustaði ekki leng
ur. Hann var þungt hugsandi.
Áðan hafði hann fundið ögn af
þeim friði og þeirri ró, sem hann
naut í sjúkrahúsinu; honum varð
hugsað til hvíta rúmsins, systur
Adonie með hendurnar á magan-
um, klukknahljómsins frá hvítri
kapellunni og karlanna, sem ráf-
uðu um skuggsralan garðinn í
bláröndóttum fötum. Þó hann
væri nýkominn þaðan, var hann
strax farið að langa þangað aft-
ur. —
— Börnin eru ekki komin heim
enn, sagði hann og leit til limi-
girðingarinnar.
— Klukkan er nú heldur ekki
svo margt?
Klukkan var tólf. Ef Bébé hefði
verið heima, hefðu börnin þegar
setið til borðs. En Jeanne hafði
þann leiða vana að láta allt reka
á reiðanum.
— Hvert ert þú að fara,
Francois?
— Ég ætla að ganga upp.
Hann var kominn á fremsta
hlunn með að segja:
„Ég fer upp til Bébé“.
Það var það, sem hann vildi.
Hann þráði að endurnýja sam-
bandið við hana eftir öðrum leið-
um en slúðursins. Þegar hann kom
inn í borðstofuna, þar sem ríkti
stöðugt hálfrökkur, og loftið ang-
aði af gólfgljáa og ávöxtum, fann
hann strax áhrifin frá nærveru
Bébé og tilfinningu hennar fyrir
reglu og samræmi.
Bébé hafði breytt öllu húsinu og
endurskapað það. Björt og ný-
tízkuleg herbergin, gluggatjöld úr
silki, sem hleyptu ekki inn nema
sterkustu geislum sólarinnar.
Allt, sem hún handlék, fékk á
sig frísklegan og léttan blæ, sem
virtist stafa frá henni sjálfri.
Frá því að hún gerði upp gamla
heimilið og þangað til Mimi Lam-
bert-byltingin varð, liðu að
minnsta kosti þrjú ár. Hann
minntist ekki margs frá þeim ár-
um.
Sjálfur var hann fullur af
starfsorku og miklum áformum.
Á þessum árum jók hann fyrir-
tæki sín all-verulega. Hann ferð-
aðist mikið, annað hvort einn eða
með Felix. Fjármálin voru oft erf
ið um þær mundir. Hann gekk
beint til verks án þess að hika,
sannfærður um að honum heppn-
aðist allt, og honum varð líka að
því.
Hefði Bébé ekki átt að vera
hamingjusöm? Þegar hann kom
heim, var annaðhvort móðir henn-
ar eða systir hjá henni. Hann
heilsaði henni með kossi. Allt var
eins og það átti að vera. Hafði
hún ekki sjálf sagt, að hún vildi
vera félagi hans? Hann hafði lít-
inn tíma að helga henni, og þegar
hún var leið, hélt hann að það
stafaði af heilsufari hennar.
„Mig langar til að spyrja þig
eins, Francois".
Þau höfðu nýlega keypt La
Chataigneraie og voru að koma
sér fyrir þar.
„Hefðir þú nokkuð á móti þvi,
BOKÐIÐ hinn bragðgáðo
B9RGARFJARÐAR 0S1
Heildsölubirgðir:
Eggerf Kristjánsson & Co. hf.
Ævisap Helen Kelier
FÆST Á ÞESSUM STÖÐUM
Bókaverzlun Ísaíoldar,
Bókaverzlun Lárusar Blöndal
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar,
Verzluninni Víði, Laugavegi 166
Ingólfsstræti 16, (syðri dyr),
Siikibúðinni, Laufásvegi 1.
Ágóði af sölu bókarinnar rennur til Blindravinafélags
íslands. — Gefið góða bók í jólagjöf og styrkið með því
gott málefni. — Söluverð er aðeins kr. 55.00.
Blindravinafélag fslands.
ÖGIM
©9
AIMTOIM
(Snjallir krakkar)
E R
BÓK BARNANNA
„Feita Berta slær þjófinn".
MARKUS Eftir Ed Dodd
—Þú gætir unnið þetta I 2) — Þú átt að fara til Alaska . 3) — Til Alaska? Það þætti
verk. I og sækja þangað steingeitur afjmérgaman.
— Hvað er það, Oddur. »sérstakri tegund. ' —- Það er aðeins eitt, áður verð-
urðu að tala við frú Önnu, gamla
konu, sem ætlar að kosta ferð-
ina.
að við eignuðumst barn á næst-
unni
Hann hafði aðeins hleypt við
brúnum. Hann átti ekki von á
þessu, og allra sízt, að það væri
rætt af jafnmiklu tilfinningaleysi
og viðskiptamál.
„Langar þig til að eignast
barn?“
„Ég held það væri gaman".
„J/., úr því svo er. .. .“
Við nánari umhugsun varð
hann ánægður. Bébé mundi fá
eitthvað að sýsla við. Hún mundi
ekki vera eins einmana, þegar
hann var að heiman dögum sam-
an.
Hann sá hana fyrir sér, þar
sem hún sagði smiðunum fyrir frá
morgni til kvölds, end-' þótt hún
ætti von á barni og væri fölari en
nokkurn tíma áður. Hann gaf
henni blóm og smáhluti eins og
vera bar. Um haustið voru þrjú
herbergi til reiðu og hún vildi
endilega dveljast á La Chataig-
neraie yfir veturinn.
— Maturinn er til.
Hann hrökk við. Martha opnaði
dyrnar ig sá hann sitjandi á rúmi
konu sinnar.
— Er Jacques kominn heim?
— Þau eru öll sezt' til borðs.
Hann fór niður. Sonur hans
stóð ekki upp, en horfði á hann
með sýnilegri forvitni, rétti fram
kinnina og kyssti föður sinn laust
á eyrnasnepilinn. Bróðurbörn
hans sátu þar einnig.
— Heilsið frænda ykkar.
— Komdu sæll, frændi!
Hann varð að snúa sér undan
til að dylja þá ringulreið sem
komst á hugsanir hans. Síðan sett
ist hann beint á móti syni sínum.
Honum leið einkennil-ega. Þegar
hann beygði sig niður að Jacques,
fannst honum rétt í svip, að hann
sæi andlitið á Bébé, fölar kinnar
hennar, gegnsæja húð og áhuga-
lausa framkomu — eins og hún
lifði eigin lífi í öðrum heimi.
Hvers vegna hafði hann alltaf
sagt „sonur þinn“, þegar þau töl-
uðu um drenginn á liðnum árum?
Ilann gat að minnsta kosti ekki
neitað faðerninu því drengurinn
hafði langa og þunna nefið úr
Dongættinni, sem spillti öllu sam-
ræmi í andlitinu.
SHUtvarpiö
Þriðjudagur 10. desentber:
Fastir liðir eins og venjulega.
18,30 Útvarpssaga barnanna- —
„Ævintýri úr Eyjum“ eftir
Nonna; XIV. (Óskar Halldórsson
kennari). 18,55 Framburðar-
kennsla í dönsku. 19,05 Þingfrétt-
ir. — Tónleikar. 20,30 Daglegt
mál (Árni Böðvarsson kand.
mag.). 20,35 Frá tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar Islands í Þjóð-
leikhúsinu; fyrri hluti. Stjórnandi
Wilhelm Sehleuning. Einleikari á
píanó: Jón Noi'dal. 21,30 Upplest
ur: „Sól á náttmálum", kafli úr
skáldsögu eftir Guðmund G. Haga
lín (Höfundur les). 22,10 „Þriðju-
dagsþátturinn". — Jónas Jónas-
son og Haukur Morthens hafa á
hendi umsjón. 23,10 Dagskrárlok.
Miðvikutlagur 11. desember:
Fastir liðir eins og venjulega,
12,50—14,00 Við vinnuna: — Tón-
leikar af plötum. 18,30 Tal og tón
ar: Þáttur fyrir unga hlustendur
(Ingólfur Guðbrandsson náms-
stjóri). 18,55 Framburðarkennsda
í ensku. 19,05 Þingfréttir. — Tón
leikar. — 19,35 Auglýsingar. 20,00
Fréttir. 20,30 Lestur fornrita:
Gautreks saga; III. ( Ei-nar Ól.
Sveinsson prófessor). 20,55 Tón-
leikar: Tvö tónverk eftir Ravel
(plötur): 21,30 „Leitin að Skráp-
skinnu", getrauna- og leikþáttur;
II. hluti. 22,00 Fi-éttir og veður-
fregnir. 22,10 Iþróttir (Sigurður
Sigurðsson). 22,30 íslenzku dæg-
urlögin: Desemberþáttur S.K.T.
— Hljómsveit Óskars Cortes
leikur. Söngfólk með hljómsveit-
inni: Didda Jóns og Haukur
Morthens. Auk þeirra syngja
Hanna Bjarnadóttir og Frosti
Bjarnason tvísöngva við undir-
leik Magnúsar Péturssonar. Kynn
ir: Þórir Sigurbjörnsson. 23,10
Dagskrárlok.