Morgunblaðið - 10.12.1957, Side 14
11
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 10. des. 1957
SÚPUTENINGAR
Ljúffengir og kraftmikl-
ir, bragðbæta súpur, sós-
ur og gefa matnum hið
rétta bragð.
Fást í 6 stykkja pökk-
um, 25 í dós eða 50
í smekklegu glasi.
Holland
Heildsölubirgðir
(Lcfíjert ^JJria tjdnióon
PÁLL 5. PÁL5SON
hœstaréttarlögmaður.
Bankastræti 7. — Sími 24-200.
Þungavinnuvélar
Sími 34-3-33
Segulbandstæki
ui söiu. Upplýsingar í síma
1-59-18 milli kl. 8 og 9 í
kvöld. —
7 ækifærisverð
Af sérstökum ástæðum er til
sölu nýr ottomann, þrí-
skiptur, með plusáklæði, á
aðeins 1000,00 kr., í Bólstur
gerðinni, Brautarholti 22.
ÍSSKÁPilR
til sölu, 5 kúb.fet, sem nýr.
Upplýsingar í síma 15402
frá 5—7 í dag.
Allir þurfa að lesa
SAGA AKRANESS
Hún er ekki aðeins héraðssaga, því svo víða er við komið og
rnarga manna getið. Um bókina segir dr. Guðni Jónsson m. a
svo í ritdómi um bókina: „Bókin virðist traust og vel unnin, og
það vekur eftirtekt, hve víða er leitað heimilda bæði í söfnum
og annars staðar.-
Höfundurinn er maður ritfær vel og segir ljóst og skipulega
frá. Sem dæmi má nefna kaflann, sem nefnist Tvær örlaga-
nætur. — Gaman er t. d. að lesa kaflann um baróninn á Hvítár-
völlum, sem dreymir um það að stofna til stórútgerðar á Akra-
nesi. Þá munu og margir hafa gaman af leyniskjalinu frá stríðs-
árunum fyrri...“.
Allir þurfa að .eignast SÖGU AKRANESS.
Á sama foriagi hafa og komið út Minningar
Friðriks Bjarnasonar tónskálds í Hafnarfirði
Báðar bækurnar eru tilvalin jólagjöf og gott
lestrarefni, fróðlegt og skemmtilegt.
Akranesútgáfan
Kærkomin
gjöf handa
piltum og
stúlkum
gagnleg í skóla
við nám og
í starfi
DÖNSK-
ÍSLENZK
0RDABGK
stærsta íslenzk
orðabók af.
erlendu máli,
1066 bk, — yfir
50 þús. upp-
sláttarorð.
Ólafur Hróbiarlsson
Minningarorð
í DAG er jarðsunginn frá Nes-
kirkju í Reykjavík, Ólafur Hró-
bjartsson frá Tómasarhaga 19
Ólafur Hróbjartsson var fædd-
ur 19. júlí 1870, að Húsum í Holt-
um. Foreldrar hans voru Hró-
bjartur Ólafsson, ættaður úr
Austur-Landeyjum og kona hans,
Ingibjörg Magnúsdót'tir frá
Snjallsteinshöfða í Landssveit.
Ólafur Hróbjartsson var næst-
elztur af ellefu börnum þeirra
hjóna. Hann ólst upp í föðurhús-
um. Hann fór fyrst að heiman
til sjóróðra 15 ára gamall, og réð-
ist í skiprúm í Ytri-Njarðvíkum.
Hann reri þar samfleytt frá
Kyndilmessu til Jónsmessu. Urn
sumarið var hann heima. Tvær
næstu vetrarvertíðir reri hann
suður í Leiru hjá Jóhanni í Kötlu
hól, og hjá Sigmundi formanni í
Efra-Hrúðurnesi. Eftir þessar
þrjár vertíðir reri Ólafur á Baugs
stöðum í Gaulverjabæjarhreppi
hjá Jóni Magnússyni formanni
frá Meðalholti í Flóa. í þessu
skiprúmi var hann sex vertíðir
en alltaf eftir lokadag fór hann
suður á Suðurnes, og reri þar á
vorvertíðum til Jónsmessu, en þá
sótti faðir hans hann. Öll sumur
var hann við slátt heima og
vann hjá foreldrum sínum fram
að vetrarvertiðum, og sést það
bezt af þessu, hvílík feikileg
vinna og erfiði var lagt á ungl-
inga á þessum timum.
Eftir jarðskjálftana miklu
hættu foreldrar Ólafs að búa, og
fór hanrt þá út í Árnessýslu í
vinnumennsku til Sigfúsar Thor-
arensen í Hróarsholti og var hjá
honum í tvö ár, og síðari veturinn
á skútu fyrir hann.
Eftir dvölina í Hróarsholti,
flutti Ólafur til Reykjavíkur og
fór að eiga með sig sjálfur og
sneri sér algjörlega að sjómennsk
DÖnsk
borðstofuhúsgogn
lil sölu og sýnis. Hagkvæmir
greiðsluskilmálar, Grettis-
gata 76, I. hæð.
Stúlka eba kona
óskast til léttra heimilis-
starfa. Skemmtilegt her-
bergi. Fornhagi 26. — Sími
12881. —
KEFLAVÍK
Duglega stúlku vantar
strax í vaktavinnu. Upp-
lýsingar í síma 6243, Kefla-
víkurflugvelli.
Tilkynning
frá Sokkaviðgerð
Unnar Haraldsdótlur
Tekið á móti sokkum til við-
gerðar til 16. des. Viðgerðir
sokkar óskast sóttir í síð-
asta ’.agi 19. des. — Afgr.:
Sápuhúsið, Austurstrælí 1.
Unnur Haraldsdóttir
unni og hætti allri sveitavinnu.
Hann var til sjós samfleytt ellefu
næstu árin á skútum, og næstu
tíu árin þar á eftir á togurum,
en eftir það hætti hann sjó-
mennsku.
Ólafur Hróbjartsson kvæntist
17. nóvember 1904, eftirlifandi
konu sinni, Karitas Bjarnadóttur,
óðalsbónda á Skarðshömrum í
Norðurárdal. Karitas reyndist
honum hin ágætasta kona, og
voru þau 53 ár í farsælu hjóna-
bandi, og bjuggu allan sinn bú-
skap hér í Reykjavík.
Ólafur átti fyrst lögheimili í
Reykjavík aldamótaveturinn með
föður sínum og systkinum. Fjögur
systkini hans lifa hann.
Þau hjónin eignuðust 5 börn,
en misstu tvær dætur. Á lífi eru
Ingibjörg, Ingvar og Bjarni og
fósturdóttir Sigríður, öll búsett
hér í bæ.
Ólafur Hróbjartsson var alla
ævi mesta hraustmenni. Ósér-
hlífni og vinnuþrek hans var frá-
bært, svo hann var í sannleika
mesti víkingur til allra verka á
sjó og landi. Hann var til sjós
meðal annars með þjóðkunnum
dugnaðar- og merkisskipstjórum,
Páli Hafliðasyni, Magnúsi Magn-
ússyni í Alliance og Guðmundi
Guðnasyni o. fl. og minntist hann
þeirra og allra samherja sinna á
sjónum með vinarhug og virð-
ingu. Mörg síðustu ár ævinnar
vann hann hjá Reykjavíkurbæ,
hjá Rafveitunni og víðar, og sam-
fleytt vann hann útivinnu og
erfiðisvinnu, þar til hann var 82
ára gamall.
Höfuðeinkenni Ólafs var það,
hve hjartahreinn hann var og
vandaður maður í orði og verki.
í harðri lífsbaráttu, varð hann
aldrei beiskur né beygður, held-
ur alla tíð glaður og hressandi
í viðmóti og þakklátur Guði og
mönnum. Margar dygðir mátti
af honum læra, sem komu fram
í hugsun hans og dagfari. Vand-
virkni hans og trúmennsku var
viðbrugðið, og eins og að líkum
lætur, hafði hann afburða vinnu-
þekkingu á öllum verkum, og
bæði á sjó og landi. Hann byrjaði
lífsstarf sitt ungur, með því að
verða stoð og stytta foreldra
sinna í mörg ár, og það einkenni
mótaðist hjá honum á kulborða
lífsins, að hugsa fyrst og síðast
um það, að skipa vel sitt rúm,
uppfylla skyldurnar og verða
sjálfstæður í lífsbaráttunni með
heimili sitt. Á áttatíu og sjö ára
sjóferð mátti segja um hann, að
hvort sem blítt eða strítt honuni
barst til handa, þá var hugsunar-
hátturinn hreinn og bjartur og
guðstraustið var kraftur hans og
kjölfesta alla tíð.
Hann var fyrirmynd meðal
hinnar eldri kynslóðar, harð-
meitlaður í hörðum skóla lífsins
af vinnudygðum, guðstrausti og
trúmennsku í lífi sínu og starfi.
Blessuð sé minning hans.
Jón Thorarensen.
N E S T I (Drive in) Fossvogi.
Til solu ódýrf
kjólföt með smokingjakka,
á meðalmann. Blá dragt,
frekar stór. Telpukápur á
10—12 ára. Barnapels á
4ra—6 ára. Dömuskór nr.
36 og 37. Engihlíð 14. —
Sími 18009.
i
i
Sinfóníuhljómsveit Islands
Tónleikar
í Þjóðleikhúsinu n.k. í kvöld 10. þ.m. kl. 8,30
Stjórnandi:
WILHELM SCHLEUNING
Einleikari:
JÓN NORDAL
Aðgöngumiðar seldir í Þjóðleikhúsinu.