Morgunblaðið - 14.12.1957, Síða 3

Morgunblaðið - 14.12.1957, Síða 3
Laugardagur 14. des. 1957 MORCVKBI AÐIÐ 3 hvert á að stefna, eða hvort bæði hún og fjármálaráðherra eru líkt og staddir í niðaþoltu og vita ekki hvað snýr fram og hvað aftur. Blekkingar Eysteins Bjarni Benediktsson hélt áfram ræðu sinni: — Svo kemur Eysteinn hér fram fyrir okkur og sýnir sann- sögli sína. Segir að það sé engin ný bóla, að sprett sé úr spori við afgreiðslu fjárlaga fyrir jól. Hann tekur sem dæmi um það, að nefnd arálit fjárveitinganefndar hafi komið fram 12. des. árið 1955. En ég spyr: — Voru fjárlög þá af- greidd fyrir jól? — Nei, — þau voru ekki afgreidd fyrr en um mánaðamótin janúar-febrúar. Þarf fjármálaráðherra ekki að láta sem minni hans sé svo bilað, að hann viti þetta ekki. Eitt og sama mál Bjarni Benediktsson minntist nánar á svar Eysteins Jónssonar við fyrirspurn Magnúsar Jóns- sonar, en svarið var algerlega út í hött. Minnti Bjarni á það, að þegar Sjálfstæðisflokkurinn hefði verið í stjórn með Framsókn, hefði Eysteinn sem fjármálaráð- herra lagt sérstaka áherzlu á að afgreiða fjárlög fyrir áramót án tillits til afgreiðslu efnahagsmál- anna. — En við Sjálfstæðismenn, sagði Bjarni neituðum því, Við töldum að þetta væri eitt og sama málið, enda teljum við rangt og jafnvel útilokað að afgreiða fjárlög en láta með- ferð efnahagsmálanna bíða. Það kynni nú að vera, að Ey- steinn hefði fengið sínu fram- gengt í þessu. Hann undi því á sinum tíma illa , að Sjálfstæðis- menn, sem störfuðu með honum höfðu sjálfstæða skoðun og létu hann ekki komast upp með ein- sýni og hlutdrægni. Ef hann hef- ur nú fengið því framgengt að af- greiða fjárlög án tillits til lausnar efnahagsmálanna, þá sannast það hér enn, að hann á nú við þá að skipta sem lúta lægra en Sjálf- stæðismenn. Því næst vék Bjarni Benedikts- son að ummælum Eysteins um framlög til opinberra fram- kvæmda: Gangið hægt um framkvæmdanna dyr — Eysteinn Jónsson fjármála- ráðherra þarf ekki að halda, að almenningur sé svo skyni skropp inn, að hann muni ekki eftir ræðu hans við fyrstu umræðu fjárlaga, þar sem hann sagði efnislega að | nú verði að ganga hægt um fram- kvæmdanna dyr og við verðum að draga úr opinberum fram- kvæmdum. Þá gerðist Eysteinn Jónsson talsmaður samdráttar í opinber- um framkvæmdum og prédikaði það mikið. Félagsmálaráðherra Hannibal Valdimarsson, sagði þá, að ekkert væri að marka Eystein. Hann væri bara svo mikill bú- maður að hann þyrfti að berja sér. Allt væri óbreytt og ekkert yrði dregið úr framlögum til op- inberra framkvæmda. Það hefur nú komið í ljós, að Hannibal hefur reynzt forspárri, og hefði þó víst fáum komið til hugar áður, að hann yrði snjallari fjármálaspekingur en sjálfur fjar málaráðherrann Spurði Bjarni nú, hvort sá út- reikningur tæki máske nógu marga mánuði til þess að hægt væri að fresta þeim fram yfir bæjarstjórnarkosningar. „Stefna“ ríkisstjórnarinnar Bjarni Benediktsson lýsti því yfir, að það væri á móti reglum þingskapa, að ýmis veigamikil einstök atriði vantaði enn í fjár- lagafrumvarpið við 2. umræðu fjárlaga. Sagði hann, að það væri skyldustarf fjármálaráðherrans að þegar við 1. umræðu lægi fyrir þinginu heildarmynd fjárlaga- frumvarps, sem sýndi fjármála- stefnuna. — En þetta plagg eins og það liggur fyrir er einungis efniviður í fjárlagafrumvarp. Það er aðeins rytjur til tillagna um fjáriaga- frumvarp. Það vantar í það nær 100 millj. kr. tekjúr til þess að það fái staðizt og svo kemur fjár- málaráðherra fram fyrir þingið og ber þá speki á borð, að til þess að jafna — „þarf annaðhvort að afla nýrra tekna eða taka útgjaldaliði af frumvarpinu"! Þannig er þá „stefna" ríkis- stjórnarinnar, og má segja að von er að Framsóknarflokkurinn sé hreykinn af Eysteini Jónss.vni sem hátindi fjármálaspekinnar. Bjarni Benediktsson lét í ljós undrun yfir því, að Eysteinn Jóns son skyldi leyfa sér að koma þannig fram fyrir þingið. Það átti að vera aðalstarf hans í sum- ar, að undirbúa fjárlagafrumvarp ið, svo að þing gæti tekið það til athugunar, þegar það kæmi saman með haustinu. En 13. des- ember, aðeins örfáum dögum áð- ur en á að afgreiða frumvarp- ið sem fjárlög þá er þetta öll vizkan, að annaðhvort þurfi að afla nýrra tekna eða taka út- gjaldaliði af frumvarpinu. Svo segir fjármálaráðherra: — Hvers vegna koma Sjálfstæðis menn ekki með sínar tillögur? Ég spyr þá á móti: — Af hverju þiggur fjármálaráðherra laun úr ríkissjóði? Það er einmitt til þess að gera þessar tillögur. Og til þess hefur hann allt ríkiskerfið, af því að enginn einn þingmaður getur aflað þeirra upplýsinga eða undir búið fjárlagafrumvarp. Er nú nokkur von til að ís- lenzka ríkinu geti vegnað vel und ir forustu manns sem ber fram slíka rökfærslu? í ræningjahöndum Að lokum sagði Bjarni Bene- diktsson: — Mig tekur það sárt að sjá, hvernig er komið fyrir þessum manni. Það er allt á sömu bókina Hann getur ekki komið í hóf uppi á Akranesi án þess að verða sér til hneisu, þar sem hann fer að segja bæjarbúum til um það hverjum þeir eigi að fela stjórn bæjarmálefna sinna. Svo þegar hann er staddur í þingsalnum í gær gerist það, að hann fer að hrópa hótauir xil þingmanns um að það borgi sig ekki fyrir hann að halda fram sjólfstæðri skoðun. Loks stígur hann í ræðustólinn í dag og segir slík ósannindi sem menn hafa hér heyrt. Hvaða breyting hefur komið yfir manninn? — Hún er sú, að hann er lentur í ræningjahöndum og neyðist til að flytja mál, sem hann hefur sjálfur ótrú á. stjórnin væri öll sammála um þær. Einnig drap hann á önnur atriði, svo sem að æskilegt væri að efla námsbókasjóð, veita fé til að láta mála myndir varðandi sögu þjóðarinnar og að gera be> ur við starfsmenn sendiráða ís- lands erlendis og erindreka ann- arra ríkja hér á landi. Fjármálaráðherra túlkar eigin orð Eysteinn Jónsson tók til máls næst á eftir Bjarna Benedikts- syni. Kvaðst hann ekki ætla að þreyta miklar kappræður í þess urn umræðum, en teldi þó rétt að svara ýmsum atriðum í ræðu Bjarna. Andmælti hann því síð- an, að réttur skilningur hefði ver ið lagður í ummæli sín á Akra- nesi og orð þau, er hann mælti við Ingólf Jónsson í umræðum í neðri deild í fyrradag. Þá lagði ráðherrann mikla áherzlu á það að Sjálfstæðismönnum væri skyit að gera tillögur um afgreiðslu höfuðmála, þ. á. m. fjármála og þeir gætu fengið sömu upplýsing- ar og aðrir þingmenn í því sam bandi. Ábyrgðarleysi Framsóknarflokksins Jóhann Hafstein benti Eysteini á, að því hefði verið lýst yfir, er þing kom saman, að stjórnin ætlaði að ráðgast við stuðnings flokka sína um tillögur. Ennþá hefðu þessir aðilar engar tillögur getað gert og væri það þó hlut- verk þeirra, en ekki Sjálfstæðis manna, eins og nú hagar til. Jóhann rakti síðan loforð og gerðir núverandi ríkisstjórnar á sviði efnahagsmála, minntist á kaupbindinguna, samkomulagið við Alþýðubandalagið, „jólagjöf- ina“ í fyrra, banlsastjórafjölgun- ina o. fl. Þá vék hann að meðferð fjár- laganna og sagði m. a., að ? fyrra hefði fjárveitinganefnd, áður en hún skilaði tillögum sínum fyrir 2. umræðu, haldið 61 fund (nú 41), fengið 572 skrifleg erindi (nú 350), og rætt við 67 utanþings- menn (nú 46). Kvað hann þetta sýna eins og fleira að nú hefði verið slælega unnið. Framsóknarflokkurinn er nú hræddur, sagði Jóhann, eins og jafnan áður, við að gera tillögur í mikilvægum málum og taka á sig ábyrgð. Við munum þann sið hans að skjótast úr ríkisstjórn fyrir kosn- ingar, kenna samstarfsflokkunum um allar misfellur, en þakka sér framkvæmdirnar. Jóhann rakti nokkuð orð Ey- steins Jónssonar á Akranesi og í neðri deild í gær. Kvað hann fjármálaráðherrann verða að skilja það, að hér hefðu gerzt einstakir atburðir. Ef hann væn orðinn svo hrokafullur af langri setu í ráðherrastóli, að honum væri það óskiljanlegt, yrði hann að tak sér hvíld. Framkoma hans minnti á hina „nýju stétt“ á fs- landi, unga kaupfélagsstjóra fulia af gorgeir og rembingi. Loks vék Jóhann nokkuð að fjárveitingum til íþróttasvæðisins í Laugardal og til húsnæðismála og ræddi um ábyrgðir ríkissjóðs. Hvað tekur útreikningurinn langan tíma? Bjarni Benediktsson minntist á það með nokkrum orðum, að að- alráðunautur ríkisstjórnannnar í efnahagsmálum, að nafni Harald- ur Jóhannsson, sem rætt hefði það m. a. í greinum í Þjóðviljan- um, að misráðið væri að ráðast í miklar framkvæmdir í sveitum, Einstakar frakvæmdir Er hér var komið ræðu Bjarna Benediktssonar var gert hlé á þingfundi, enda klukkan þá 4. Kl. 5 hófst fundur að nýju. — Bjarni ræddi þá um ýmsa ein- staka liði, er hann taldi nauðsyn- legt að gera betur við á fjárlög- um en gert er ráð fyrir. Nefndi hann í því sambandi nauðsyi; og býsnaðist yfir rafmagni til | þess að byggja lögreglustöðvar sveitabýla, hefði í þeim sömu 0g endurbæta fangelsi, auka ný- hefði i greinum sagt að nauðsyn væri að gera margháttaðar ráðstafanir í efnahagsmálunum, þeirra á með- al gengislækkun. — En það tæki bara marga mánuði að reikna út, byggingar skóla, veita fé til Laugardalsleikvangsins, mæta framlögum Reykjavíkur vegna útrýmingar heilsuspillandi hús- næðis, setja heildarlöggjöf um hvernig gengislækkunin ætti að , stjórnarráðið og banna umfram- vera. I greiðslur úr ríkissjóði nema ríki: Samanburður á frumvarpi til fjárlaga 1956 og 1958 Þá tók til máls Jón Pálmason Hann kvaðst hafa setið á 31 þingi en ekki minnast þess, að áður hefðu verið önnur eins vinnu- brögð og nú í sambandi við af- greiðsluna á aðalmáli þingsins, fjárlagafrumvarpinu. Hann gerði síðan ýtarlegan samanburð á síðasta fjárlaga frumvarpinu, sem fyrrverandi ríkisstjcrn lagði fram (fyrir árið 1956) og því frumvarpi, er nú liggur fyrir (fyrir 1958). Heildarniðurstaðan hefur hækk að úr 579 í 851 millj. kr., og er þá ekki tekið tillit til þess, að nú hefur fjárveitinganefnd gert til- lögur um rúmlega 12 millj. k: hækkun — og 20 millj. kr. vant- ar vegna niðurgreiðslna. Auk þess þarf, sagði Jón Pálmason. að taka tillit til útflutningssjóði til að fá hugmynd um fjármai hins opinbera. Hann fær á þesso ári 432 millj. kr., samsvarandi sjóður fékk 1956 152 millj. kr. Alls er hér um að ræða hækkun úr 731 í 1283 millj. kr. Enn er þess að minnast, að ýmsar ríkis- stofnanir afla sjálfar þeirra tekna, er þær þarfnast. Velta 7 þeirra helztu hefur á sama tima vaið úr 93,9 í 139,1 millj. kr. Hækkunin á veltu ríkisins hefur því orðið 597 millj. kr. síð- an fyrrverandi stjórn lagði síð- asta fjárlagafrumvarp sitt fram — og vantar þó í þá tölu þær 32 millj. kr. sem fyrr greinir. í þessu sambandi verður hlutur Eysteins Jónssonar verstur. Jón Pálmason ræddi síðan nokkuð um fjárveitingar til at- vinnubóta og minnti á, að hér á landi er ekki atvinnuleysi heldur skortur á vinnuafli. Þá ræddi hann um fjárveiting- ar til ýmissa framkvæmda í A - Húnavatnssýslu, þ. á. m. til vega- gerðar og hafnargerðar á Skaga- strönd. í lok ræðu sinnar ræddi hann um heildarsvip fjárlaganna og sagði: Núverandi ríkisstjórn hegðar sér eins og maður, sem sér gjald- þrot sitt fyrir og lætur sér í léttu rúmi liggja, hvort það verður mikið eða lítið. Hún kallar nú á tillögur frá Sjálfstæðismönnum, þar sem hún er ráðalaus sjálf Núverandi ástand hefði aldrei skapazt, af Sjálfstæðismenr, hefðu verið í stjórn og þeirra til- lögur eiga ekki að koma fram fyrr en stjórnin hefur snautað frá völdum. Jón Pálmason lauk ræðu sinni kl. rúmlega 7 og var þá gert fundarhlé til kl. 9. Er fundi var fram haldið tók fyrstur til máls Ingólfur Jónsson. Fjármálaráðherra ætti'að fara frá Hann ræddi fyrst um framlög til verklegra framkvæmda og í því sambandi ræddi hann um rekstur Skipaútgerðar ríkisins, en tap á honum er áætlað nær 20 millj. kr. næsta ár. Taldi Ingólfur að þetta fyrirtæki hefði ekki fylgzt með tímanum og héldi m. a. uppi ferðum með 2 stórum farþegaskipum, sem ekki hentuðu lengur eins og samgöng- um er nú háttað hér á landi. Þá ræddi Ingólfur um hina hiiklu hækkun fjárlaga í stjórnartíð núverandi ríkis- stjórnar. Kvað hann gjald- getu alls almennings ofboðið. Bíkisstjórnin hefur ekki treyst sér til að benda á nein úr- ræði, þó að fjárlagafrv. sé komið til 2. umræðu. Fjár- málaráðherrann ætti að fara frá því að hér þarf nýja menn og ný úrræði. Þá minntist Ingólfur á’ þann hátt, sem fjármálaráðherra hef- ur tekið upp, að halda mikilvæg- liðum opinberra fjármála utan fjárlaganna. Kvað hann Sjálfstæðismenn á sínum tíma hafa viljað hafa framleiðslusjóð á fjárlögum, en ekki hafa fengið því framgengt vegna Eysteins Jónssonar. Þá rakti Ingólfur 'loforð ríkis- stjórnarinnar í upphafi ferils hennar og rifjaði upp þær efnd- ir, sem orðið hafa. Fjallaði hann ýtarlega um vöxt dýrtíðarinnar, hin tíðu verkföll, varnarmálin og lánamálin. Minnti hann m. a. á lánatilboðin frá Þýzkalandi, sem fyrrverandi stjórn fékk og lántökur núverandi ríkisstjórn- ar, sem sumar hafa verið tengd- ar varnarmálunum. STAKSTEIIV/VR Kosningahömlurnar í Dagsbrún Alþýðublaðið var í gærmorgun að hvetja verkamenn til að afla sér félagsréttinda í Dagsbrún, eins og það er kallað. í áskorun Alþýðublaðsins stendur að vitað sé að mörg hundruð verkamenn séu ekki fullgildir meðlimir Dags brúnar, heldur aðeins aukameð- limir en greiði þó gjald til fé- lagsins, eins og þeir væru full- gildir meðlimir. Þessir aukameð- Iimir hafa ekki atkvæðisrétt um málefni Dagsbrúnar. Þetta er rétt, enda er vitað að kommúnistar hafa reynt að halda mörgum félögum, sem þeir hafa ekki talið sér trygga, á slíkri aukaskrá og haft þá réttindalausa í félaginu, svo lengi sem þeim hefur verið unnt. Þetta er ein af þeim kosningahömlum, sem kommúnistar hafa beitt í Dags- brún. Tilganfnirinn er augljós. 1 blöðum stjórnarliða er það bergmálað sem kom fram af þeirra hálfu á Alþingi, að kosn- ingafundir standi í sumum lönd- um skemur fram á kvöldið en hér hafi verið. Þess er hins vegar látið ógetið, að kjörfundir hefj- ast í þessum löndum miklu fyrr en hér. Þegar fram kom tillaga af hálfu Sjálfstæðismanna um það, að skilyrðislaust mætti opna kjör- staði kl. 9 að morgni, þá var sú uppástunga felld af stjórnarlið- um. Hins vegar var það lagt á vald yfirkjörstjórnar, hvort svo mætti verða. Fellt var að veita yfirkjörstjórn heimild til að láta kjörfundi standa til miðnættis. Þetta sýnir betur en nokkuð annað að tilgangurinn með þess- um ákvæðum er fyrst og fremst að leggja hömlur á og torvelda að fólk geti neytt kosningaréttar síns en ekki hitt að „friða kjör- dagiim“, eins og það er orðað. Afstaða Framsóknar- hroddanna Stjórnarflokkarnir skipuðu ný- lega nefnd til þess að ræða sín á milli um verkalýðsmál, og þær kosningar, sem nú fara í hönd innan verkalýðsfélaganna. Komm únistar heimtuðu að allir stjórn- arflokkarnir hefðu „samstarf“ eins og þeir kölluðu það, um þessar kosningar. Framsóknar- flokkurinn studdi þessa kröfu komúnista af alefli. Nú áttu kommúnistar að fá að vera „í friði“ í öllum þeim félögum, sem þeir höfðu náð tangarhaldi á og undir þá kröfu tóku Framsókn- armenn í þessari nefnd fullum hálsi. Alþýðuflokkurinn neitaði þessu hins vegai og lét þar með undan þunga þeirrar óánægju, Loks ræddi Ingólfur Jónsson 1 sem er nu orðin mögnuð í mörg- nokkuð um ýmsar framkvæmdir. j um Télögum, þar sem kommún- sem fyrrverandi ríkisstjórn beitti sér fyrir, m. a. hafnarfram- istar hafa ráðið. Það hefur orðið ofan á, að kvæmdir og sementsverksmiðju- andstæðingar kommúnista taki byggingu á Akranesi. Kvaðst hiilulum saman SeSn kommúnist- hann m. a. hafa haft forgöngu I um- Broddarnir í Framsókn vilja um það í fyrrverandi stjórn, að stympast á móti þessu, en það er hætt var við að taka 6% lán til i ^u11 ástæða til að ætla, að ó- hafnargerðarinnar, sem Eysteinn Jónsson og bæjarstjórinn á Akranesi vildu taka, en í þess stað tókst að fá lán með 6% vöxt- um. Einnig rakti Ingólfur þátt Ólafs Thors í byggingu sements- verksmiðjunnar. Næsti ræðumaður var Eysteinn Jónsson, síðan talaði Pétur Otte- sen, og þá Sigurður Bjarnason Stóð ræða hans enn, þegar Mbl breyttir Framsóknarmenn, sem ! eru launþegar eða verkamenn, i gangi í fylkingu andstæðinga j kommúnista og kjósi með þeim. j Óbreyttir Framsóknarmenn, sem I ekki telja sig skylda til að lúta boði og banni Framsóknarbrodd- anna hér í Reykjavík, munu hafa þessa samþykkt flokksins um fékk fréttir úr þinginu kl. 11,301 skilyrðislausan stuðning við í gærkvöldi. tkommúnista að engu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.