Morgunblaðið - 14.12.1957, Page 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 14. des. 195H
^.JsvenhjóÉin ocj heirnifiÉ
Kökuuppskriftir
UM ÞESSAR mundir er mesti
annatími húsmæðranna um gjörv
allan heim og reyndar allra yfir-
leitt. Það eru nefnilega svo ó-
trúlega margir sem miða allt sitt
við þessa miklu hátíð, sem senn
rennur upp. Það er bæði „flikkað
upp á“ mannfólkið og híbýlin og
er það vel.
Eitt af því, sem mikilvægt er
að sé í fyrsta flokks standi um
jólin er einmitt „matseðillinn" og
þá ekki sízt kökukassarnir. Þeir
eiga helzt að vera svo yfirfullir
að ekki sé hægt að loka þeim.
Eins og við vitum (og höfum
oftlega tekið fram) baka flestar
húsmæðurnar sínar eigin „jóla-
kökur“ og vilja helzt ekki reyna
við aðrar uppskriftir. Það ætti
því eiginlega að vera hreinasti
óþarfi að koma með nýjar smá-
kökuuppskriftir fyrir jólin. En
ég ætla nú að gera það samt.
Og svo ræður auðvitað hver og
einn hvað hann gerir við þær,
bakar eftir þeim núna, seinna
eða jafnvel aldrei!
Brún kökuhjörtu
1 Vz dl. sýróp
2Vz dl. sykur
150 gr. smjörlíki
lVz dl. rjómi (má gjarnan
vera súr)
2 tsk. nellikkur,
1 matsk. kanell
2 tsk. engifer
um % kg. hveiti
2 tsk. matarsódi.
75 gr. afhýddar möndlur.
Sýrópið, sykurinn og smjör-
líkið er hrært saman. Blandið
natróinu saman við dál. af hveit-
inu. Þeytið rjómann og blandið
honum saman við sykur-hrær-
una til skiptis með hveitinu.
Hnoðið deigið síðan upp með
hveiti þar til það verður fast í
sér. Fletjið lítið eitt af deginu
út og bakið tilraunaköku við
mjög lágan hita. Ef hún rennur
út verður að hnoða meira hveiti
upp í deigið. Það er flatt út og
stungnar út hjartalagaðar kökur,
hálf mandla er látin á mitt hjart-
að (kökurnar eru penslaðar með
rjóma). Þær eru síðan bakaðar
við mjög lágan hita.
Sc
OI©l| Laugveg 33
AMERlSKIB
nælonballkjólar
á telpur. Stærðir 1 árs til 10 ára
Skrifstofustúlka
óskast nú þegar til símavörzlu.
Vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf,
leggist inn á afgr. Mbl. fyrir þriðjudagskvöld
merkt: H—7898.
Skrif stofustúlku
viljum vér ráða frá næstu áramótum
til aðstoðar í bókhaldi og við vélritun.
Garðar Gíslason HF.
Hverfisgötu 4.
Stort fyrirtæki
óskar eftir stúlku,
sem er vön almennum skrifstofustörfum
og enskri vélritun.
Upplýsingar um fyrri störf og menntun óskast lagðar
inn á afgreiðslu blaðsins, merkt: „FRAMTÍÐ —3554“.
Jólakjólar
Telpunælonkjólar, pliseraðir á 2—-8 ára
í íjölbreyttu úrvali.
Dömubúðin Laufið
Aðalstræti.
Möndluspesíur
125 gr. smjör
125 gr. afhýddar möndlur,
gróft hakkaðar
125 gr. sykur
125 gr. hveiti
1 eggjarauða
Þetta er allt hnoðað saman
með eggjarauðunni og síðan bú-
ið til þykk „pylsa“,- Hún er látin
standa dálitla stund á köldum
stað. Þá eru skornar niður sneið-
ar sem eru látnar á plötuna.
Hver kaka er flött betur út með
lófanum. Þær eru bakaðar við
frekar góðan en jafnan hita þar
til þær eru orðnar ljósbrúnar.
Góðir v a n i 11 u k r a n s a r
Ekki má vanta vanillukrans-
ana á jólaborðið og hér er góð
uppskrift:
250 gr. hveiti
vanillukorn úr einni stöng
150 gr. smjörlíki
150 gr. sykur
1 egg
50 gr. afhýddar fínhakk-
aðar möndlur
hjartarsalt af hnífsoddi.
Hveitið er sigtað ásamt hjartar-
saltinu og vanillukornunum
blandað saman við. Smjörið er
mulið saman við. Sykrinum bætt
út í og deigið hnoðað saman með
egginu. Það er hnoðað vel sam-
an og látið standa á köldum stað
þar til það er orðið nægilega kalt
til þess að hægt sé að láta það
í hakkavélina. Kökurnar eru
látnar á vel smurða plötu og
bakaðar við jafnan lágan hita
í nokkrar mínútur.
Lítil jólabrauð
(lítið sætt)
60 gr. sykur
145 gr. smjörlíki
1 eggjarauða
235 gr. hveiti
hakkaðar möndlur og
grófur sykur.
Smjörið og sykurinn er hrært
saman og eggjarauðan látin út í
og því næst sigtaða hveitið. Deig
ið er þá hnoðað vel saman og lát-
ið kólna. Síðan eru búnar til af-
langar flatar, „rifflaðar" kökur í
hakkavélinni. Kökurnar eru
penslaðar með eggjahvítunni og
dýft ofan í möndlurnar og grófa
sykurinn. Bakast við lágan hita
í nokkrar mínútur.
Þessi tvö síðu.stu dejg geta
vel beðið einn sólarhring á
köldum stað þar til bakað er úr
þeim.
MÖRDEIGSSMÁKÖKUR
Til eru margar smákökur sem
búnar eru til úr svokölluðu mör-
deigi, sem aðaluppistöðudeigi, en
síðan er mismunandi efnum bætt
út í deigið til þess að búa til
hinar ýmsu kökur.
Uppistöðudeig
500 gr. hveiti
500 gr. smjör eða smjörl.
1 dl. sykur
Stökkir hálfmánar
Hálfmánar hafa á mörgum
heimilum skipað heiðurssess k
jólakökufatinu. Hérna konaa
mördeigshálfmánar sem eru
stökkir:
Va hluti af mördeiginu
Vz egg
% dl. hveiti
Vi dl. sykur
4 rifnar, bitrar möndlur
% dl. hindberjasulta.
Allt nema sultan er hnoðað
saman. Deigið er látið kólna
nokkuð og það síðan flatt út
þannig að það sé um 3 mm á
þykkt. Þá eru stungnar út kringl
óttar kökur, sultunni smurt á
helminginn og kakan lögð sam-
an eins og hálfmáni. Þær eru
bakaðar við lágan hita þar til
þær eru Ijósbrúnar.
Kókoslengjur
V3 hluti mördeig
Vz egg
% dl. hveiti
% dl. sykur
egg, gróft kókosmjöl.
Deigið er hnoðað vel, úr öllu
nema kókosmjölinu og síðast-
nefnda egginu, látið kólna og síð-
an búnar til fingurþykkar „pyls-
ur“ um 6 cfn langar. Kökurnar
eru penslaðar með eggi og þeim
velt upp úr kókosmjölinu. Bak-
aðar við góðan hita þar til þær
eru búnar að fá lit og eru orðn-
ar þurrar.
FRANSKAR VÖFFLUR
Hinar sönnu frönsku vöfflur
eru hreinasta sælgæti. Vöfflurn-
ar eru einnig mjög hentugar að
eiga „í bakhöndinni" þegar gestir
rekast inn á hvaða tima sem er,
því þær geymast vel í tilluktum
kassa.
Parísar-vöfflur
125 gr. hveiti
125 gr. smjörlíki
3 matsk. rjómi
Smjörkrem: 70 gr. smjör,
2 matsk. kókó, 4 matsk. sigt
aður flórsykur, 1 eggja-
rauða og 2 matsk. líkjör
eða sherry.
Smjörlíkið er mulið saman við
hveitið og deigið hnoðað með
rjómanum. Deigið er síðan flatt
út. ekki allt og þunnt, og er
það skorið út í aflangar kokur
með beittum hníf Kökurnat eru
látnar á vel smurða plötu, mega
gjarnan vera þétt á plötunni, því
þæi renna ekki út. Ofan á þær
er þrýst með fíngerðari endan-
um á kjöthamrinum sem dýft
hefur verið í hveiti og síðan
stráð 1 tsk, af sykri ofan á hverja
köku. Þær eru síðan bakaðar við
góðan hita í um það bil 10 mín.
Þær eiga að vera gulbrúnar.
Bezt er að láta þær kólna ofur-
lítið á plötunni áður en þær eru
teknar af og síðan kólna alveg
á kökurist.
Rétt áður en kökurnar eiga að
berast fram eru þær lagðar sam-
an tvær og tvær með smjörkrem-
inu í milli.
KREM Á TERTUR
Og það er ekki eins og það sé
nægilegt að eiga marga kassa
fulla af smákökum heldur verða
emnig að vera til nokkrar tert-
ur. Hentugast er auðvitað að
baka nokkra botna sem síðan er
hægt að leggja saman með ein-
hverju lostæti þegar gesti ber
að garði. Er hægr að velja um
jr
Islenzk tónverk
prentuð, fást næstu daga
hjá Tónskáldafélaginu, Freyjugötu 3.
Opið til klukkan 10 í kvöld.
Bifivélavirki
óskar eftir atvinnu
(utan Reykjavíkur). Leggið nöfn yðar á afgr. Mbl.
og yður verða sendar upplýsingar.
Merkið bréfin: „Vanur —1153“.
Hentugur klæðnaður fyrir
2—3 ára telpur sem drengi.
ótaL margt og skuium við nú
kynnast nokkrum hugmvndum
sem hin þekkta danska mat-
reiðslukona, Kirsten Hiittemeier
hefur gefið lesendum sínum.
Hún segir: Til hvers er að
baka góða tertubotna ef á þá
ei svo látið eitthvað sem ekki
svarar til gæða botnanna? Við
verðum að athuga að krem, sem
á að fara á köku má aldrei vera
of þunn’. Ef svo er verður kak-
an óhjákvæmilega rytjuleg í út-
iiti og bragðast þá e. t. v. ekki
eins vel
V anillukrem
2 eggjarauður, 3 matsk.
sykur, vanillukorn eða
vanillusykur,- 3 kúffullar
tsk. hveiti, 2Vz dl. mjólk
eða rjómi.
Eggjarauðurnar eru þeyttar
með sykrinum í þykkbotnuðum
potti, hveitið er þeytt saman við
ásamt kaldri mjólkinni eða rjóm-
anum. Nú skal hræra val í pott-
mum og láta kremið sjóða vel
nokkrar mínútur, þá er pottur-
inn tekinn af og kremið kælt,
en hræra verður af og til i því
á meðan það er að kólna.
Kaffikrem
2 eggjarauður, 3 matsk.
sykur, 3 kúfaðar tsk.
hveiti, 1 dl. rjómi, IVz dl.
sterkt kaffi.
Kremið er þeytt og soðið á
sama hátt og vanillukremið.
Sænskt sítrónukrem
1 eggjarauða, 2 matsk.
sykur, 2 tsk. kartöflumjöl,
2 dl. rjómi, safi og rit'inn
börkur af lVz sítrónu, 1
stifþeytt eggjahvita.
Eggjarauðan er þeytt með sykr-
inum, og kartöflumjölinu bland-
að saman við ásamt köldum rjóm
anum — suðan látin koma upp
og hrært stöðugt i pottmum á
meðan. Þegar kremið er orðið
þykkt er potturinn tekinn af eld-
inum, sítrónusafinn og rifm börk
urinn látinn út í og þegar krem-
ið er orðið kalt er stífþeytt
eggjahvítan hrærð saman við.
„Fromage" á tertu
3 egg, 5 matsk. sykur, 4
blöð af matarlími, safi úr
2 sítrónum, dál. rifinn
sítrónubörkur, 1 lítil tsk.
engifer.
Eggjarauðurnar eru þeyttar
með sykrinum, sítrónubörkurinn
og safinn látinn út í ásamt engi-
ferinu, og síðan er matarlímið
hrært saman við, það má gjarn-
an vera volgt. Þá eru stífþeyttar
hvíturnar hrærðar saman við.
Þegar búðingurinn byrjar að
stífna er hann tilbúinn til þess
að fara á tertuna.
------★------
Og nú er um að gera að byrja
nógu snemma á bakstrinum til
þess að þurfa ekki að standa
kófsveittur við bakstur á Þorláks
messu. Vonandi gengur allt vel,
það má heizt ekkert brenna. en
þó segja sumir að baksturmn sé
misheppnaður ef ekKerí brenn-
ur. En góða skemmtun við jóla-
baksturinn.
— A. Bj.