Morgunblaðið - 17.12.1957, Side 1
20 siður
SOVETSTJÖRIMIIM villAbyrgj-
AST ORYGGI ISLAIMDS
Ákvörðun Alþingis 28. marz 1956 mætti
skilningi í Sovétríkjunum66
Bréf Bulganins fil Her<
manns Jónassonar
UM HELGINA afhenti Pa-
vel K. Ermoshin, sendiherra
Sovétríkjanna í Reykjavík, dr.
Gylfa Þ. Gíslasyni er gegnir störf
um utanríkisráðherra, bréf frá
N. Bulganin, forsætisráð-
'herra Sovétríkjanna, stílað til
Hermanns Jónassonar forsætis-
ráðherra. Fer efni bréfsins hér á
eftir, en Mbl. lætur síðarihluta
bréfsins, sem fjallar um ísland,
koma á undan:
Með því að ríkisstjórn
Sovétríkjanna er það mjög í
mun að efla friðinn í Norður-
Evrópu, myndi hún vera reiðu
búin til þess að styðja tillög-
ur, er fram kynnu að vera
bornar í því skyni að ábyrgj-
ast öryggi Islands, til dæmis
í formi tryggðs hlutleysis
þess, þar sem einkum væri
gert ráð fyrir því, að á land-
inu yrðu engar erlendar her-
stöðvar, heldur ekki flugbæki-
stöðvar.
Að því er beinlínis varðar
samskipti Sovétríkjanna og ís-
lands, er mér ánægja að því,
herra forsætisráðherra, að taka
það fram, að aldrei hefur borið
neinn skugga á sambúð landa
Framh. á bls. 18
Eysfeiitn fæsl ekki fil að svara í hverra
umboði íslenzku ráðherrarnir tali á
Parísarfundinum
Neitar að lofa nokkru samráði við Alþingi
eða ríkisstjórn um svar við bréti Bulganins
ER FUNDIR HÓFUST í gær í neðri deild Alþingis kvaddi Bjarni
Benediktsson sér hljóðs utan dagskrár og spurðist fyrir um bréf
það, sem borizt hefur frá Bulganin, forsætisráðherra Rússlands, til
fosætisráðherra íslands. Bjarni beindi nokkrum fyrirspoirnum til
Eysteins Jónssonar varðandi þetta mál, — spurði m.a., hvort sam-
ráð yrði- haft við Alþingi um svar við bréfinu, og þá þingið í
heild, þingflokkana, utanríkismálanefnd eða ráðgjafarnefndina um
utanríkismál. Við því fékkst ekkert svar. Hinu var heldur engu
svarað, hvort ríkisstjórnin í heild myndi fjalla um svarbréfið.
Minnti Bjarni Benediktsson í því sambandi á, að stjórnin er al-
gerlega ósammála um stefnuna í utanríkismálum og spurði: í hvers
umboði tala þeir Hermann Jónasson og Guðmundur í. Guðmundsson
í París? Þeirri spurningu var svarað með þögninni einni.
Bulganin
Hvernig verður unnið að svari?
Bjarni Benediktsson sagði m.a.:
í hádegisútvarpinu í dag var frá
því skýrt, að Búlganin, forsætis-
ráðherra Rússlands, hefði sent
forsætisráðherra íslands bréf,
sem afhent hefði verið nú um
helgina. Er það ekki vonum fyrr,
Stalín ætlaði að
ísland í Sovét
Borgarastyrjöldin i Grikklandi
og Kóreustríðið forleikur að
innlimun margra ríkja
Atlantshafsbandalagið og einorð stefna
Bandaríkjanna bjargaði mörgum frjalsum
þjóðum undan hrammi Stalíns
inn
lima
SÆNSKA stórblaðið Syd-
svenska Dagbladet hefur
skýrt frá því, að Stalín hafi
ætlað að innlima Island í
leppríkjakerfi sitt, ásamt öðr-
um Norðurlöndum, þó að
Noregi undanskildum. Frétt-
ina hefur blaðið úr Neue
Zúrcher Zeitung, sem er
þekkt um allan heim fyrir
nákvæmni og áreiðanleika í
fréttaflutningi. Frétt sænska
blaðsins er svohljóðandi:
Rússneski einvaldurinn Stalín
var ákveðinn í því að hefja stríð
gegn Svíþjóð, ef nauðsyn krefði
og áætlanir hans sögðu svo fyrir
en þær miðuðu að því að inn-
lima allmörg ríki í Sovét.
Frá þessu er skýrt í grein, sem
birzt hefur í Neue Ziiricher
Zeitung. Greinarhöfundur er
Jurg Meister, sem nú er búsettur
í Frakklandi. Hann er Svisslend-
ingur og hefur einkum látið flota-
mál til sín taka, hefur m. a.
séð um útgáfu flotahandbóka á-
samt öðrum. Tilgangurinn með
grein hans er sá, að vekja at-
hygli á stefnu Rússa í flotamál-
um á undanförnum árum.
Án þess að fara nánar út
í þá sálma skýrir hann svo
frá, að Stalín hafi 1950 haft
á prjónunum áætlanir um að
innlima í Sovétríkin, svo að
lítið bæri á, eftirtalin ríki:
Kóreu, Finnland, Svíþjóð,
Danmörku, ísland, Tyrkland,
Grikkland og e.t.v. einnig
Persíu og Afganistan.
Forleikur
Höfundur bendir á, að Kóreu-
stríðið og borgarastyrjöldin í
Grikklandi hafi verið forleikur
að þessari áætlun einvaldsins.
NATO — bezta vörnin
Þá segir greinarhöfundur, að
Stalín hafi skort herskip, þegai
hann gerði áætlun sína og gat
hann því ekki látið til skarar
skríða gegn öllum þessum lönd-
um á tilteknum tíma. Þegar herir
hans voru orðnir nógu öflugir,
hafði ástandið í heiminum
breytzt mjög hinum frjálsu þjóð-
um í vil: Bandaríkjamenn brugðu
skjótlega við í Grikklandi og
Kóreu, en fyrst og fremst var
það Atlantshafsbandalagið, sem
bjargaði hinum frjálsu þjóðum.
því að fyrir nokkrum dögum var
tilkynnt, að Bulganin hefði sent
bréf til allra ríkja í Sameinuðu
þjóðunum um það efni, sem sagt
er að bréf það, er hingað barst
fjalli um.
Það er eðlilegt, að þingmenn
hafi hug á að kynnast efni bréfs
þess, sem komið er hingað til
lands. Ég vil því spyrja þann eina
ráðherra, sem nú er í þingsalnum,
Eystein Jónsson fjármálaráð-
herra, að því f.h. ríkisstjórnar-
innar, — hvort bréfið verði birt
þingmönnum — hvort það verði
lagt fyrir utanríkismálanefnd til
athugunar eða þá sérstöku ráð-
gjafarnefnd um utanríkismál
sem lögboðið er að kjósa, en ekki
hefur ennþá verið kosin — hvort
stjórnin hafi hugsað sér að hafa
með öðrum hætti samráð við þing
menn varðandi bréfið, t.d. á opn-
um eða Iokuðum þingfundi, —
eða hvort hún hugsi sér alls ekki
að láta það koma til þingsins
kasta.
Lögboðin kosning vanrækt
í þessu sambandi hlýt ég að
finna að því og harma það að
formaður utanríkismálanefndar,
Steingrímur Steinþórsson, hefur
enn ekki látið kjósa ráðgjafar-
nefnd þá, sem ég minntist á. Hún
var aldrei kosin á síðasta þingi.
Utanríkismálanefnd hefur haldið
einn fund í haust, fyrir um mán-
uði síðan. Sjálfstæðismenn
hreyfðu því þá, hvort ekki ætti
að kjósa ráðgjafarnefndina, en for
maður kvaðst ekki vera reiðubú
inn til að láta kosninguna fara
fram. Ég vil nú spyrja forseta
þessarar deildar, hvaða úrræði
þingmenn hafi, ef nefndir skjóta
sér undan því að gegna skyldu
sinni skv. þingsköpum. Á að bera
fram um það áskorun, að farið
verði að lögum eða á e.t.v. aS
setja ný lög um að framfylgja
þeim lögum, sem fyrir eru? Spyr
sá, sem ekki veit. Hér hafa komið
nýir siðir með nýjum herrum.
Misjafnar starfsaðferðir
Fyrst hér hefur orðið tilefni
til að minnast á utanríkismál, vil
ég vekja athygli á því, hve ólíkar
aðferðir hafa verið viðhafðar hér
á landi og í öðrum löndum við
undirúning Parísarfundarins. t
Bandaríkjunum kvaddi stjórnin
t.d. aðaltalsmann stjónarand-
stöðunnar, Stevenson, á sinn fund
til að hafa við hann samráð um
tillögur og afstöðu Bandaríkj-
anna á fundinum. Stjórnin bauð
honum einnig að fara til Parísar
og taka þátt í fundinum. Hann
þekktist ekki það boð, en gerði
sínar athugasemdir við tillögur
stjórnarinnar og til þeirra var
síðan tekið tillit.
Hér á landi er hins vegar streitzt
á móti því að framfylgt sé
réttum lögum, sem heimila stjórn
arandstöðunni, ef hún hefur r.ægi
legt þingfylgi til, að fá einn af
þremur mönnum í ráðgjafarnefnd
ina um utanríkismál.
Stjórnin hefur enga
sameiginlega stefnu
Segja má, að ríkisstjórnin hafi
vissa afsökun. Hún hefur sjálf
sem heild enga stefnu í utanríkis
málum. Kom það fram í bréfum
þeim, sem nýlega fóru á milli
stjórnarflokkanna. Stærsti stuðn
ingsflokkur stjórnarinnar, komm
únistar, vildu að fylgt væri eftir
loforðinu um brottrekstur varnar
liðsins og jafnvel, að ísland segði
sig úr Atlantshafsbandalaginu.
Hinir flokkarnir voru andvígir
því að samningar yrðu rofnir
með slíkri úrsögn. Að því er varn
arliðið varðar slær Framsóknar-
flokkurinn hins vegar úr og í og
vill láta skipa sérstaka nefnd til
að finna stefnuna. Alþýðuflokk-
urinn kveðst vera á móti’ brott-
för vaixarliðsins í bili, en rök-
semdir flokksins fyrir því eru
Framh. á bls 2
fylgdi E K K I með blaðinu s.l.
sunnudag. Næsta Lesbók verður
Jóla Lesbókin, sem sennilega
verður borin til kaupenda í þess-
ari viku.