Morgunblaðið - 17.12.1957, Blaðsíða 12
12
MOEC T! V n r. 4 f)J B
Þriðjudagur 17. desember 195T
— Bókmenntir
Frh. af bls. 11
er skeleggasta tilraun í þá átt,
sem mér er kunnugt um. Höfund-
urinn hefur gengið vel og sam-
vizkusamlega að verki og lagt
geysimikla vinnu í rannsókn
sína. Það er satt, að margar af
umsögnum þeim, er oss hafa
geymzt um Snorra Sturluson,
eru ónotalegar og meinlegar, og
hafa því ýmsir grunað frænda
hans um græsku, að bæði hafi
hann lagt margt út á verri veg
en skyldi og iátið ósagt ýmis-
legt það, er verið hefði Reyk-
holtsbónda til hróss. Þennan
grun gerir Gunnar Benediktsson
að vissu með bók sinni um
Snorra. Hann rannsakar gaum-
gæfilega niðurstöður þeirra
menntamanna ýmissa, er áður
hafa ritað um Snorra, en síðan
rekur hann æviferil hans og
dvelur einkum við uppeldið í
Odda og tildrög þess. Þykja mér
sálfræðilegar athuganir höf. í
því sambandi, bæði skarplegar
og snjallar. Rannsóknarferðir
hans um völundarhús Sturlungu,
og athuganir margra heimilda
vekja einnig aðdáun, — mína að
minnsta kosti, þótt vera megi að
langskólagengnir fræðimenn hafi
eitthvað við þær að athuga. Eink-
ar góður þykir mér kaflinn:
.Hvað segir Snorri sjálfur í rit-
um sínum“. Víst er um það, að
þetta er vel skrifuð bók, er vek-
ur til umhugsunar. Smámuni,
sem mér féllu fyrir brjóst, nenni
ég ekki að tína upp. Gaman væri
ef bókin vekti deilur, en grunur
minn er sá, að þeir, sem helzt
eiga hlut að máli, láti hana af-
skiptalausa.
iMfltaa
í«§é§
WS&mSM
mm
mmÉmm
‘&íífiÍý;Í
SklHl
mrnWMÉ
Drogið ekki
oð kaupa jólaíötin meðan
úr nógu er að velja
Úrvalib er hjá okkur
' Y ^■IKi
v IHH
wm
rnm.
Það er aðeins eitt,
sem gefur hressandi
vellíðan eftir rakst-
urinn ..... það er
Blátt Gillette
Látið nýtt blátt
Gillette blað
í viðeigandi
Gillette rakvél
og ánægjan er yðar
10 blöð kr.: 17.00.
ÖSI börn eiga skilið ab vera hamingjusöm
Látið barni yðar líða vel með því að nota daglega Johnson’s
barnavörur — þær eru sérstaklega búnar til íyrir viðkvæma húð
barnsins. Þegar þér baðið barnið eða
skiptið um bleyju þá notið Johnson’s
barnapúður, það þerrar raka húðina og
forðar afrifu og óþægindum.
Börnin gráta sjaldnar ef
Johnson’s barnavörur
eru notaðar.
(jufvmvn
Einkaumboð:
Friðrik Bertelsen & Co. hf.
Mýrargötu 2 ,sími 16620