Morgunblaðið - 22.12.1957, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.12.1957, Blaðsíða 2
2 MORCUNBLAÐ1Ð Sunnudagur 22. des. 1957 Undanfarið hefur verið mikili ferðamannastraumur milli Evrópu og Ameríku. Ljósmyndari Mbl. tók þessa mynd fyrir nokkra er farþegar úr millilandaflugvél Loftlciða, Eddu, gengu úr veit- ingaskála félagsins til flugvélarinnar sem þá var að leggja af stað yfir Atlantshafið til Evrópu- landa. Byggingin á vinstri hönd á myndinni er flugturninn á Reykjavíkurflugvelli. Bæjarsljórn Siglufjarðar sendir þm. sínum áskorun Lýsir stuðningi við nýtt frumvarp á Alþingi. SIGLUFIRÐI, 21. des. — Á fundi bæjarstjórnarinnar hér á Sigiu- firði í gær, kom til umræðu frum varp það sem komið er fram á Alþingi og fjallar um aukna tekjustofna til handa bæjar og sveitarfélögum. Við umræður þessar bar Baldur Eiríksson bæj- arstjórnarforseti fram svohljóð- andi tillögu, en hún var sam- þykkt með samhljóðaatkvæð- um allra bæjarfulltrúanna: óskiptur í hlut ríkissjóðs. „Jafnframt því sem bæjarstjór- ann minnir á fyrri samþykktir sínar um aukna tekjustofna fyrir bæjarfélagið samanber fundar- samþykkt bæjarstjórnarinnar frá því í apríl byrjun síðastl., skorar bæjarstjórnin á alþingismennina Áka Jakobsson og Gunnar Jó- hannsson að styðja og vinna að samþykkt framkomins frumvarps Koiæmúnistor vilfa að Reykjavíkurbær gerisi heildsali! Sjálfstæðismenn telja að bærinn hafi Öðrum verkefnum að sinna Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI á fimmtudagskvöldið kom til um- ræðu tillaga, sem Guðmundur Vigfússon (K) hafði borið fram og frestað hafði verið um að Innkaupastofnun bæjarins kaupi inn beint erlendis frá allt bygg- ingarefni, sem bærinn þarf á að halda og .lafnframt fyrir þá ein- stakíinga og samtök í bænum, sem þess óska og skuli slíkt byggingarefni jafnan selt á kostn aðarverði. Máli þessu hafði verið vísað til umsagnar forstjóra Inn- kaupastofnunarinnar. Borgarstjóri tók til máls og vitnaði til umsagnar forstjórans, en þar tekur hann fram, að mjög mikið fé þyrfti í stofnkostnað til þess að reka slík viðskipti og mundi vart nægja minna en 10— 12 milljónir króna, sem "festa þyrfti í byggingarvörum, svo nauðsynlegar birgðir væru jafn- an fyrir hendi, ef fullnægja ætti tillögunni. Þyrfti því mikið bákn og starfsmannahald í þessu sam- bandi. Einnig tók forstjórinn fram, að lág álagning væri nú á grófu byggingarefni og yrði vinna og rýrnun, vextir og ann- ar rekstrarkostnaður hjá þeim, sem nú væru að stofnsetja slíka verzlun svo mikill, að slíkt fyr- irtæki gæti ekki borið sig með þeirri álagningu, sem nú er og yrði því ekki samkeppnisfært og engum til hagsbóta. I bréfi forstjórans var ennfremur tek- ið fram að Innkaupastofnunin út- vegaði nú fyrirtækjum bæjarins ýmiss konar vörur til bygginga, sem auðveldari væri að fást við en hið venjulega grófa bygging- arefni, sem svo er kallað, eða sement, timbur og járn. Björgvin Fredriksen (S) tók fram að þegar talað væri um kostnaðarverð, væri ekki þar með sagt að það væri lægsta fáanlegt verð og minnti hann á að ýms ríkisfyrirtæki væru allt- af rekin með tapi og nefndi í því sambandi Landssmiðjuna, sem fengi mikil framlög frá ríkis- sjóði og væri undanþegin útsvari. Væri það þekkt staðreynd að bæjarrekstur og ríkisrekstur væri sízt af öllu ódýrari en einka- rekstur. Það væri vafasamur greiði við bæjarfélagið að stofn- setja margs koanr rekstur, sem væri útsvarsfrjáls og "kk- ert að borga heldur í -i- ur gjöld, en svo ættu einstakl- ingarnir að halda uppi samkeppni við slíkar stofnanir. Goiðmundur Vigfússon tók fram að slík Innkaupastofnun með byggingarvörur ætti að geta selt ódýrara vegna þess að hún yrði skatt- og útsvarsfrjáls. Björgvin Fredriksen tók aftur til máls og sagði, að ef slík stofn- un ætti að vera útsvarsfrjáls, þá væri það hið sama og að bærinn væri að gefa með rekstrinum. Reykjavíkurbær hefði öðrum verkefnum að sinna en að leggja hér fé í heildverzlun. Magnús Ástmarsson tók fram, að rétt væri, að rækileg athugun færi fram á því, hvort heppilegt væri að bærinn kaupi alltaf bygg ingarefni, sem hann sjálfur þarf og hefði bæjarráð og borgar- stjóri þá athugun með höndum. Fór svo að tillaga G.V. var felld með 8 atkvæðum gegn 5, en til- laga Magnúsar Ástmarssonar um athugun málsins var samþykkt með samhljóða atkvæðum. 25 œfa fyrir heimsmeist• arakeppni í hand- knattleik Handknattleikssambandið hefur nú valið 25 handknattleiksmenn til sérstakra æfinga íyrir heims- meistarakeppnina, en hún fer fram í Berlín um mánaðamótin febr.-marz n.k. Skaut handknatt leikssambandið á hraðmóti á dög- unum til að sjá mennina leika áður en valið var framkvæmt. Að því búnu voru eftirtaldir leik- menn valdir. Frá ÍR: Gunnlaugur Hjálmars- son, Hermann Samúelsson. Frá Val: Valur Benediktsson, Geir Hjartarson. Frá Fram: Guðjón Jónsson, Karl Benediktsson, Gunnar Gunn arsson. Frá Á: Kristinn Karlsson. Frá F.H. Kristófer Magnússon, Sverrir Jónsson, Einar Sigurðs- son, Hörður Jónsson, Birgir Björnsson, Bergþór Jónsson, Ól- afur Thorlacius, Pétur Antonsson, Ragnar Jónsson. Frá KR: Guðjón Ólafsson, Þór- ir Þorsteinsson, Hörður Feiixsson, Karl Jóhannsson, Reynir Ólafs- son, Bergur Adolphsson, Stefán Stephensen, Pétur Stefánsson. Æfingar munu um það bil að hefjast. Hafa Brefar sigraB" vetnið ? // Ef svo er mundi jbað hafa i för með sér nýja iðnbyltingu London, 20. des. HÉR ER mikið talað um það, að næsta stórfrétt á sviði vís- inda og tækni muni koma frá Bretlandi. Ástæðan er sú, að háværar raddir eru uppi um það, að vísindamönnum í Har- well hafi tekizt að beizla vetn- isorkuna, og muni verða skýrt frá því opinberlega, áður en langt um líður. Sum stór- blaðanna segja, að leyndar- málinu verði ljóstað upp strax eftir áramótin. — Fréttamenn segja, að ummæli Butlers innanríkisráðherra í neðri deildinni fyrir skömmu bendi ótvírætt til þess, að Bretar hafi „sigrað“ vetnið. Þeir halda því einnig fram, að ef svo er, þá verði sputnikarn- ir rússnesku hreinn barna- skapur í samanburði við hina nýju frétt. Daily Mail segir í gær, að þessi áfangi Breta muni hafa í för með sér nýja iðnbylt- ingu. Hægt verði eftir 15 til 20 ár að nota þungt vetni sem orkugjafa, en það er bæði fyrir hendi í loftinu og haf- inu. Ýmissa manna er hafa sýnt mjög góða frammistöðu er saknað í þessum hóp. Má þar til nefna Heinz Steinmann, Þorgeir Þor- geirsson og Halldór Lárusson svo einhverjir'séu nefndir. Nöfn ann- arra koma hins vegar á óvart eins og t.d. Kristins Karlssonar, Stefáns Stephensen og Péturs Stefánssonar. En þetta hefur kannski ekki áhrif á það 10 manna lið sem mætir fyrir Is- land í heimsmeistarakeppninni og við skulum vona að allt tak- ist sem bezt. Verkamannablaðið kom úi í gær VERKAMANNABLAÐIÐ sem gefið er út af verkamönnum í Dagsbrún kom út í gær. í blað- inu eru greinar um ýmiss hags- munamál verkamanna og félags- mál í Dagsbrún. Má m.a. nefna grein er nefnist „Hvert stefna kommúnistar — og með hvaða ráðum“? Grein um aukameðlima kerfi Dagsbrúnarstjórnarinnar. Þá er grein um einingu kommún- ista í framkvæmd og „Hvers vegna var ekki sagt upp samn- ingum?“. Einnig er skrifað um endurskoðun vísitölugrundvallar- ins og margt fleira. Ritstjórar að blaðinu eru: Þor- steinn Pétursson og Guðmundur Nikulásson og afgreiðsla blaðs- ins er í Þingholtstræti 1, sími 23527. Blaðið er mjög athyglis- vert og ættu sem flestir Dags- brúnarfélagar að kynna sér efni þess. Söngur og hljóðfæra leikur á Auslurvelli KLUKKAN þrjú í dag leikur Lúðrasveit Reykjavíkur jólalög við norska jólatréð á Austurvelli. Dómkirkjukórinn syngur þar einnig nokkra sálmá undir stjórn dr. Páls ísólfssonar. um aukna tekjustofna til handa bæjar- og sveitarfélögum! Geta má þess að frumvarp þetta gerir ráð fyrir að í hlut bæjar- og sveitarfélaga skuli falla 25% af söluskatti þeim sem nú íellur áskiftur í hlut ríkissjóðs. — Btefán. Vélstjóri bjargar sér á sundi Akransei, 19. desember. — ÞAÐ bar við aðfaranótt þriðju- dags, er vélbáturinn Sigurvon var að leggja síldarnet um klukk an hálfeitt um nóttina, að einn skipverjanna tók út af bátnum. Vindur var norðvestan-stæður, hvass og gekk á með éljum og haugasjór. Netin runnu ört út. Vildi þá óhappið til, Rögnvaldur Þorsteinsson II. vélstjóri, flæktist í stertaböndunum, þannig að þau slógust um mitti hans. Var ekki að sökum að spyrja, Rögnvaldur missti fótanna og kipptist yfir borðstokkinn og út í sjó með netj unum. Er í sjóinn kom tókst Rögnvaldi fljótt að losa sig og greip sundtökin. Hafði hann lært sund í Lauginni í Varmahlíð, er hann var í barnaskóla á Sauð- árkróki. Hann var kominn um 20 m frá er skipstjórinn á bátnum fékk snúið honum í áttina til hans. Rögnvaldur synti þá á móti bátn- um og handskifti sig upp netin. Ekki er að sjá að Rögnvaldi hafi orðið meint af volkinu. — Oddur. Yfirkjörstjórn á Akureyri KOSIÐ hefur verið í yfirkjör- stjórn á Akureyri fyrir bæjar- stjórnarkosningar í janúar. Kosn- ingin fór fram á bæjarstjórnar- fundi fyrir nokkru. Fram komu 2 listar. Annar var borinn fram af kommúnistum, en hinn af öðr- um flokkum sameignlega. Hlaut sá síðarnefndi alla fulltrúana kjörna þá Tómas Björnsson, Brynjólf Sveinsson og Sígurð Helgason. Varamenn eru þessir: Jónas H. Traustason, Björn Bessa son og Hörður Adólfsson. Helgafellsbók BOMBAY, 20. des. — Heilbrigðis- stjórnin hér í borg hefur látið fara fram læknisskoðun á 42.500 skólabörnum og vekur það mikla athygli, að 35 þús. þeirra hafa verið úrskurðuð veik. 28% þeirra eru vannærð, 24% hafa tannsjúkdóma ýmiss konar, 15% hálssjúkdóma, 5.7% voru með húðsjúkdóma, og mörg þjáðust af öðrum sjúkdómum. KOMIÐ er út nýtt skáldverk „Andlit í spegli dropans" eftir Thor Vilhjálmsson. Þetta er þriðja bók höfundarins. Áður hafa komið út „Maðurinn er allt- af einn“ og „Dagar mannsins". Þetta nýja skáldverk Thors er rúmar 200 blaðsíður, og er í sex aðalköflum, en einn þeirra, er hann kallar „Hin“ er í 25 minni köflum. Bókin er mjög fallega útgefin, prentuð í Víkingsprenti og mun höfundurinn sjálfur hafa gert káputeikninguna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.