Morgunblaðið - 22.12.1957, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.12.1957, Blaðsíða 11
Sunnudagur 22. des. 1957 MORGUNBLAÐ1Ð 15 — Reykjavlkurbréf Framh. af bls. 13 eða synja tillögum ríkisstjórn- arinnar sjálfrar. Sá siður hefur aldrei komizt á hérlendis. En það á jafnt við á íslandi sem annars staðar, að ríkisstjórnin verður að semja frumvarpið, bæði eðli málsins samkvæmt og af því, að enginn annar, hvorki Alþingi í heild né einstakir hlutar þess, hafa þá þekkingu, sem ríkisstjórnin hefur eða á að hafa vegna yfirráða sinna í öllu ríkiskerfinu. Aldrei má gleyma því, að það er eðli og tilgangur ríkisstjórnarinnar að stjórna. Alþingi getur aldrei komið í stjórnarstað, þess hlut- verk er fremur að setja almennar reglur og taka ákvarðanir í þeim einstökum efnum, sem undir úr- slitaákvörðun þess heyra svo sem frv. stjórnarinnar um fjárlög. Hingað til hefur engum komið sú fjarstæða til hugar,* að AI- þingi gæti eða ætti sjálft að semja fjárlagafrumvarp, hvað þá að einstökum þingmönnum eða stjórnarandstöðunni bæri skylda til slíks. Samning fjárlágafrum- varps og síðan framkvæmd fjár- laganna er einmitt eitt aðalstarf ríkisstjórnarinnar i heild og alveg sérstaklega fjármálaráðherrans. þess ber sannarlega að óska, að allir lýðræðisunnendur sjái, að ef lengur verður haldið áfram á þessai’i braut, er voðinn vís. Ekki má logfesta óréttlæti Enn eitt atriði, sem stundum sýnist hafa gleymzt á seinni ár- um, er, að ef ríkisstjórn og Al- þingi eiga að halda virðingu sinni hjá borgurunum, þá verður löggjöf að vera með þeim hætti, að hún gangi jafnt yfir alla. — Aldrei má í nafni réttlætisins setja löggjöf, sem efni sínu sam- kvæmt bersýnilega skapar tvenns konar rétt í landinu. Eitt dæmi slíks ófarnaðar eru hin nýju ákvæði um breytingu á kosningalögum til Alþingis. Þar er látið í veðri vaka, að mikið liggi við til að tryggja, að enginn komist að þvi, hvort kjós- andi hafi greitt atkvæði. Sagt er, að slíkt sé algert einkamál hans, ekki síður heldur en hitt, hvernig hann greiðir atkvæði. Þetta lætur vel í eyrum. Forsend- an er þó ærið hæpin. Víðs vegar er það alls ekki talið til einka- mála, hvort kjósandi greiðir at- kvæði. Sums staðar er það bein lagaskylda, að hann neyti at- kvæðisréttar, talið að réttur og skylda eigi að fylgjast að. Látum vera að þetta sé talið algert einkamál. Er þá högum svo háttað hér á landi, að það sé í raun og veru einkamál í flestum kjördæmum landsins? Ekki þarf að eyða orðum að því, að utan hinna fjölmennari bæja og kaup- staða, þá dylst engum, allra sízt frambjóðendum og áhugamönn- um um stjórnmál, hvort kjósend- ur koma á kjörstað eða ekki. Til þess þarf enga sérstaka eftir- grennslan á sjálfum kjörstaðnum. Bannið við eftirgrennslan skapar því tvenns konar rétt, annan I þéttbýlinu en £ strjálbýlinu. í strjálbýlinu vita menn þetta án eftirgrennslana en í fjölbýlinu ekki. Hér er því verið að gera upp á milli, undir því yfirskyni að verið sé að vernda borgarana, þar sem tilgangurinn er þvert á móti sá, að torvelda starf stærsta flokksins í stærsta kjördæminu. Þvílíkar aðfarir kunna sjaldnast góðri lukku að stýra fyrir þá, er þær hafa í frammi og allt bendir til þess að svo muni einnig reyn- ast hér. Reykvíkingar munu kunna að svara fyrir sig á hinn ' eina veg, sem verðugur er. ið beztu vimim yðar Málverkabækur ÁSGHÍMS JÓNS STEFÍJJSSONAH MeSferð fjár- lagafrumvarps á Alþingi En þótt ríkisstjórnin eigi að semja fjárlagafrumvarpið, þá verður að ætla Alþingi nægan tíma til meðferðar þess. Skilyrði fyrir því, að þingið geti af viti tekið ákvarðanir um einstakar fjárveitingar og um fjármála- stefnuna i heild, er, að það hafi nægan tíma til að átta sig á mál- inu. í stjórnarskránni er boðað, að fjárl.frv. skuli leggja fyrir Al- þingi þegar, er það er saman komið, og hefur verið siður að leggja það fram sem fyrsta mál. Þá er og í stjórnarskránni bannað að slíta Alþingi fyrr en fjárlagafrumvarp hefur verið afgreitt. Til skamms tíma var það á allra vitund, að af- greiðsla fjárlaga væri aðalstarf Alþingis. Það sat þá yfirleitt skamma stund eftir að fjárlaga- afgreiðslu var lokið. Nú er orðinn á þessu allur ann- ar háttur. Þinghald teygist von úr viti, þótt fjárlagaafgreiðslu sé lokið. Verra er þó hitt, að raun- veruleg meðferð fjárlaganna er að mestu tekin af þinginu. Að þessu sinni mátti segja, að ein- ungis væri í upphafi lagður fyrir Alþingi efniviður í fjárlagafrum- varp. Undan var látið fallast að gera slíkar heildartillögur um afgreiðsluna sem áður fyrri hefðu verið taldar frumskilyrði þess. að málið væri talið frambærilegt. Á nær tveggja mánaða starfs- tíma Alþingis var því lengst af haldið við hitt og þetta dútl, fjárveitinganefnd ekki síður en öðrum. Það var fyrst sunnudaginn 8. des., að fjárveitinganefnd fékk skilaboð um það frá ríkisstjórn- inni, að fjárlög skyldu afgreidd fyrir jól. Þá fylgdi engin heild- argreinargerð um hvernig af- greiðslunni skyldi háttað, heldur einungis fyrirsögn til flokks- manna um meðferð nokkurs hluta þeirra. Fyrst á elleftu stundu, að kvöldi hins 17. des. var fjárveitinganefnd í heild skýrt frá því hvaða tillögur rík- isstjórnin hefði að gera um heild- arafgreiðsluna. Jafnframt var þess krafizt, að þriðja lokaum- ræða hæfist hinn 19. des. og kom skjótt í Ijós, að henni átti að ljúka í einni lotu, þótt atkvæða- greiðsla drægist til næsta dags. Alveg án tillits til efnismeðferð ar tillagnanna, og hún hefur aldrei verið hæpnari en nú, þá er aðferðin, sem beitt er, stór- hættuleg og verður vonandi ekki talin fordæmi héðan í frá heldur víti, sem beri að varast. Því að Ljóðobdb Hjartar Gíslasonar ÞÓTT langt sé um liðið síðan mér barst í hendur ljóðabók góðkunn- ingja míns, Hjartar Gíslasonar, „Vökurím“, vil ég nú láta verða af því að segja frá henni. Hjörtur Gíslason varð fimmtugur fyrir fáum vikum, en þetta mun vera fyrsta ljóðabók hans. Alla sína ævi hefur hann þrælað fyrir brauði sínu og tíminn til skáid skapar og Ijóða gerðar verið næsta lítill. — Það mun því ó- líku saman að jafna, ef mæla á Hjört við kaffihúsaskáld höfuðborgar- innar, sem fæstir munu nokkru sinni hafa dýft hendi í kalt vatn, enda er andríki þeirra eft- ir því. Mörgum hafa verið kunnir hæfileikar Hjartar til vísnakveð- skapar, en fátt höfðu menn heyrt langra kvæða eftir hann. Ekki hefur hann að heldur setzt á bekk með stórskáldum með þessu fyrsta kveri sínu, þótt langt taki hann fram mörgum leirbullurum samtímans. Öll er bókin þrungin hugljúfri sannleiksást og smekkvísri feg- urð hversdagsleikans. í heild má segja um bókina, að í henni séu mörg falleg, lítil kvæði. Sem dæmi vil ég taka „Sorg“: Það veldur mér ævilangt sárustu sorgum að svíkja þann vininn, er heitast ég unni, og flýja í angist frá brennandi borgum, er byggðum við saman á óskanna grunni. þín tryggð verður goldin af hjarta míns sjóði. Og skemmtilegt er k^æðið „Ég sjálfur----?“ í heimsins háværa glaumi hamingju veitir mér að látast voldugur vera, — en vita ekki, hvað ég er. Er huga minn svefninn sefar, sál mín á vængjum fer, virðist mér sem ég vaki og viti þá, hvað ég er. Og þegar ég hætti að hugsa og himinninn opnast mér, vakna ég til að vera — vera það, sem ég er. Þakka ég svo Hirti Gíslasyni fyrir skemmtilegt Ijóðakver og er ég mjög ósammála alls ómerkum dómi Helga Sæmundssonar, for- manns Menntamálaráðs, um téða bók. vig. Til sölu með tækifærisverði Norge isskápur amerísk liáfjallasól, ljóst skrifborð hentugt fyrir skólapilt, eldavél og baðker, á Snorrabraut 85, hægri dyr sími 15845. — Þróttur og þrek til starfa og leiks í SÓL GRJÓNUM Hjörtur Ég þekkti ekki harminn, sem vonbrigðin valda, þó vissi ég tárin í augunum þinum, en út af þeim vegi, sem hugðist ég halda, hraktist ég brott frá örlögum mínum. Hvort munu ekki óskirnar öðlast sinn frama, ást okkar sigrast á heitrofsins böndum, ef þrár okkar beggja berast með sama blænum að kærleikans eilífu ströndum. Þar megnar ei sorgin þá dásemd að dylja, að draumarnir vaka í ókveðnu ljóði. Þar tefur ei rúm eða tími minn vilja. Ungir og aldnir lá krafta og þol með neyzlu heilsusamlegra og nærandi SÓLGRJÓNA.hafragrjó- na sem eru glóðuð og smásöxuð. Borðið þau á hverjum morgni og þér fáiðeggjahvituefni.kalk.fosfór og járn, auk B-fjörefna, allt nauð- synleg efni likamanum, þýðingar- mikil fyrir heil- suna og fyrlr ,------------------- . starfsþrekið og starfsgleðina. SOL Framleidd al »OTA« :UitiiiusiuiusúlÍI& KJABVALS Fegurrí bækur hafa ekki verib gefnar út á íslandi Laugavegi 100 Lœknir til sjós Símon Sparrou réðst læknir á LÓTUS til að komast hjá hjónabandi í landi, og þegar hörm- ungar sjóveikinnar voru afstaðnar, tók hann að sinna sjúklingum sínum ... Bátsmaðurinn þurfti að láta draga tönn úr sér, en áhöld til verksins voru af harla skornum skammti, og læknir- inn hafði naumast hálfa krafta á við andstæðing sinn ... — Þér meidduð yður vonandi ekkert, læknir?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.