Morgunblaðið - 03.01.1958, Síða 3

Morgunblaðið - 03.01.1958, Síða 3
Fösfu’dagur 3. jan. 1958. MORGUNBLÁÐIÐ 3 Yfirlýsing forsœtisráðherra á gamlárskvöld: Cengislœkkun óumtlýj- anleg á nœstunni ir fyrr en nokkru eftir áramót“, sagði Hermann Jónasson. „Um þær er því ekkert hægt að segja enn sem komið er, og þá heldur ekki um væntanlegar tillögur ríkisstjórnarinnar í þessum mál- um“, bætti hann við. Hin fræga Rannsókn efnahagsmálanna og takmörkun verkfallsréttar HERMANN JÓNASSON forsætisráðherra flutti samkvæmt venju ræðu í útvarp á gamlárskvöid. Ræddi hann í upphafi nauðsyn þess að tryggja þjóðinni fjármagn til hagnýtingar auðlinda landsins. Um landhelgismálin og nauðsynlegar ráðstafanir til verndunar fiskimiðunum kvaðst hann ekki mundu ræða. En um þær yrði tekin ákvörðun „innan stundar“. Of hátt gengi Þá komst forsætisráðherra m.a. þannig að orði að „gengi íslenzkr ar krónu væri skróð miklu hærra en það er í raun og veru“. Kvað hann hið sanna vera „að á krón- unni eru nú og hafa verið árum saman mörg gengi, allt eftir því, hvað fyrir hana er keypt“. Komst ráðherrann síðan að orði á þessa leið: „Gallar þessa hagkerfis eru hins vegar æði margir, einkum ef það stendur til lengdar, enda telja fjármálasérfræðing ar, að það fái ekki staðizt til frambúðar“. Af þessum ummælum for- sætisráðherrans virðist auð- sætt að ríkisstjórn hans telji gengislækkun óumflýjanlega á næstunni. „tjttektin“ í burðarliðnum Undir lok ræðu sinnar skýrði forsætisráðherra frá því að „rannsókn efnahagsmálanna væri nú framkvæmd af nokkrum þekktum hagfræðingum, ásamt 5 mannanefnd, sem er skipuð ein- um fulltrúa frá bændasamtökun- um, einum frá Alþýðusambandi íslands og einum fulltrúa frá hverjum stjórnarflokki. — Niðurstöður af þessum athugunum á framleiðslu- og efnahagskerfinu liggja ekki fyr- |„úttekt“ efnahagslífsins, sem vinstri stjórnin lofaði að fram skyldi fara „fyrir opnum tjöld- um“ virðist þá loksins vera að komast í burðarliðinn. En hún á þó ekki að fæðast fyrr en eftir kosningar. Má það heita einstök tilviljun!! Þörf nýrrar vinnulöggjafar Forsætisráðherra lauk ræðu sinni með því að ræða nauðsyn nýrrar vinnulöggjafar. Kvað hann það reynslu manna á Norð urlöndum að sú skoðun væri úr- elt „að svo til engar hömlur mætti leggja á verkalýðsfélög, stór eða smá í því að gera verk- föll með sem stytztum fyrirvara' Kvennaskólanum gefin Guðbrands- biblía VIÐ jólaguðsþjónustu, sem hald in var í Kvennaskólanum, er jólaleyfi hófst þar hinn 20. des. sl. afhenti séra Óskar J. Þorláksson dómkirkjuprestur, skólastjóran- um eintak af hinni nýju ljós- prentuðu Guðbrandsbiblíu í skrautbandi. Er biblían gjöf til Kvennaskólans frá kennurum hans. Séra Óskar minntist við þetta tækifæri á það, hvaða gildi guðs- orðabókaútgáfu Guðbrands bisk. ups hefði haft fyrir kristnihald íslendinga. Ragnheiður Jónsdóttir skóla- stjóri, þakkaði kennurunum fyr- ir gjöfina um leið og hún ræddi þýðingu bókaútgáfu Guðbrandar biskups fyrir varðveizlu ís- lenzkrar tungu. Úthlutun ur RithÖfundasjóði útvaxpsins: Jónas Árnason og Loitur Guðmundsson fó ferðastyrki Á gamlársdag kl. 2, fór í annað sinn fram úthlutun úr Rithöf- undasjóði ríkisútvarpsins við há- tíðlega athöfn í einum af sölum Þjóðminjasafnsins. Dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður, for- maður sjóðstjórnar, tók fyrstur til máls og tilkynnti, að rithöf- undunum Jónasi Árnasyni og Lofti Guðmundssyni hefðu verið veittar 8500 kr. hvorum til rit- starfa og utanfara. Voru þeir báð- ir viðstaddir, og greiddi þjóð- minjavörður féð þegar af hendi. Þá tók til máls Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri, en síðan hafði sjóðsstjórnin boð inni fyrir gestina. Dýrfinna Oddfreðsdóttir, sú sem fyrir skemmstu bar tveim ur forsetum veitingar í Keflavík, Bœiarstjórnarfundur í gœr stó8 í hálftíma Ekkert bólaði á málefnum minnihlutans BÆJARSTJORNARFUNDUR, sem haldinn var í gær, stóð að- eins í um það bil hálfa klukku- stund. Á dagskrá var m. a. að taka til 2. umr. tillögu Sjálfstæð- ismanna um stækkun hafnarinn- ar, en umræðunni var frestað til næsta fundar, vegna þess hve um sögn samvinnunefndar um skipu lagsmál barst seint. Að öðru leyti gerðist alls ekk- ert á fundinum annað en það, að samþykkt var tillaga frá Petrínu Jakobsson um að rætt væri, að bæjarstjórn fengi að kjósa einn mann í stjórn barnavinafélagsins Sumargjafar og einn varamann. Mörgum kom á óvart hve fund ur þessi var stuttur, þegar athug- að er, að hér er um að ræða næst síðasta fund bæjarstjórnarinnar fyrir kosningar. Hefði mátt ætla, að bæjarstjórnarminnihlut- inn hefði nú látið sitthvað í sér heyra um bæjarmálin og notað tækifærið til gagnrýni. En því var ekki að heilsa. Hvorki var um að ræða beinar tillögur frá bæjar stjórnarmeirihlutanum né heldur eitt orð af gagnrýni. Það kom svo eins og rúsína í pylsuendanum, þegar Þórður Björnsson kom allt í einu inn í bæjarstjórnarsalinn, rétt í sama mund og verið var að slíta fundi. Gátu bæjarstjórnarmenn þá ekki stillt sig um að hlæja, en eins og kunnugt er, hefir Þórður oft tafið fundi með miklum mála- lengingum. Þótti það koma vel á vondan, þegar Þórður arkaði þarna inn í salinn að fundi lokn- um, með ræðurnar ' r' ' H 'ösk- unni. U fankjÖrsfaðakosning FRÁ OG MEÐ 6. janúar geta þeir, sem verða fjarverandi á kjördegi, kosið hjá sýslumönnum, bæjarfógetum og hrepp- stjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta. Erlendis er hægt að kjósa hjá íslenzkum sendiráðum og ræðismönnum, sem tala íslenzku. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Vonarstræti 4, veitir allar upplýsingar og aðstoð í sambandi við utankjör- staðaatkvæðagreiðslu. Skrifstofan verður opin í dag frá kl. 9—12 og frá kl. 2—4. Símar 17100 og 24753. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru beðnir að hafa samband við skrifstofuna og gefa upplýsingar um þá, sem verða fjarverandi á kjördegi. reiddi fram freyðivín í gull- skreyttum krystalsglösum svo og kransakökur á silfurbakka, en digrir vindlar voru á smáborð- um. Var þarna góður fagnaður og allur prúðmannlegri en var á tímum Egils. Minnti ekki annað á þá tíð, en það, sem geymt var bak við gler í salnum: sverð ryð- brunnin, mannabein, sörvistölur, döggskór og „sylgja með torlesnu letri“. Á Rithöfundasjóður ríkisútvarps- ins var stofnaður með framlögum frá útvarpinu. Er þar þyngzt á metunum fé, er koma skal sem greiðsla fyrir flutningsrétt vegna útvarpsefnis, sem flutt var, áður en samningar voru gerðir milli ríkisútvarpsins og rithöf- unda. Voru slíkir samningar ekki gerðir, fyrr en fsland gerðist að- ili að Bernarsáttmálanum fyrir áratug síðan. Sjóðurinn er nú tæp lega fjórðungur milljónar. Til- gangur hans er að veita styrki til ritstarfa og ferðalaga. Er ætlazt til, að þeir, sem strykjanna njóta, láti útvarpinu í té nýtt efni á næstu misserum eftir heimkomu sína. Á gamlársdag 1956 var fyrst veitt fé úr sjóðnum og fengu þá ljóðskáldin Guðmundur Frímann og Snorri Hjartarson styrki. Stjórn rithöfundasjóðsins er skipuð dr. Kristjáni Eldjárn(skip uðum af menntamálaráðherra), Vilhj. Þ. Gíslasyni og Andrési Björnssyni (frá ríkisútvarpinu’ og dr. Jakobi Benediktssyni og Helga Sæmundssyni (frá rithöf- undum). ¥■ Jónas Árnason rithöfundur er 34 að aldri. Hann varð stúdent í Reykjavík 1942, stundaði síðan háskólanám ''? þar og í Amer- íku um 3 ára skeið, en gerð- ist þá blaða- maðurí Reykja vík. Vann hann fyrst hjá Fálk- anum og Frjálsri verzl- un, en hjá Þjóðviljanum 1946—52. Sneri Jónas sér þá að sjó- sókn, en varð kennari í Neskaup- stað 1954 og í Hafnarfirði 1957. Þættir Jónasar um börn og sjó- menn eru aðaluppistaðan í bók- um hans: Fólki (1954), Sjó og mönnum (1956) og Veturnótta- kyrrum (1957). Á sl. ári gaf hann og út þuluhefti: Fuglinn sigur- sæla. Jónas hefur tekið mikinn þátt i stjórnmálum og m. a.boðið sig fram til þings fyrir þá flokka, STAKSTEIMAR Loftur sem Einar Olgeirsson hefir stað- ið að. Hann sat á Alþingi sem landskjörinn þingmaður 1949— 1953, og er nú fyrsti varamaður uppbótarþingmanns Alþýðu- bandalagsins. ★ Loftur Guðmundsson rithöf undur er 51 árs að aldri. Hann lauk prófi frá Kennaraskólanum 1931, en stund aði síðan nám í Svíþjóð og tók þar íþrótta kennarapróf og próf í tungu málum og bók- menntum. Hann varð kennari á Stokkseyri 1932—3 og í Vestmannaeyj- um 1933—’45. Það ár gerðist hann skólastjóri á Jaðri, er Reykjavíkurbær kom upp þar skóla fyrir börn, sem af ýmsum ástæðum sækja ekki al- menna barnaskóla.Árið 1947 varð Loftur blaðamaður við Alþýðu- blaðið, og hefir hann verið það síðan. Meðal ritverka hans eru leikritin Brimhljóð (leikið í Reykjavík 1937), Eftir jarðarför- ina og Ég er Tech, sem leikin hafa verið í útvarp. Þá hefur hann samið fjölmarga gaman- þætti, m. a. fyrir útvarp undir dulnefninu Jón snari. Um langt skeið skrifaði Loftur skopdálka í Alþýðublaðið og nefndi þá Brotna penna. Þar lét skáldið Leifur Leirs mjög að sér kveða, og árið 1951 komu ljóð hans út í bók, sem nefnist Óöldin okkar. Þá hefir hann samið bækur fyrir börn og unglinga, m. a.: Þeir fundu lönd og leiðir (1947), Síð- asta bæinn í dalnum (1950) og Steinaldarmenn í Garpagerði (1955). Nýlega kom svo út bókin Jónsmessunæturmartröð á Fjall- inu helga, satría, sem — eins og í einu Reykjavíkurblaðanna sagði — „verður hér ekki kölluð spé- spegill líðandi stundar á íslandi, þó að kannske hafi margur rit- dómarinn logið meira“. Maður ilasast í viður eign við naut BOLUNGARVÍK, 2. jan. — Það slys varð hér í gær eftir hádegið, að bóndinn í Meiri-Hlíð, Pétur Jónsson, rifbrotnaði og marðist mikið í viðureign við naut. Bóndinn var að halda kú. Réðst nautið þá á hann, hóf hann á loft og slengdi honum utan í dyra- umbúnað. Hélt nautið Pétri þar klemmdum alllanga stund. Þegar nautið linaði takið á bóndanum, tókst honum að ná í nasahring þess og binda það. Pétur bóndi liggur rúmfastur síðan en líður eftir vonum. — Fréttaritai i. Braumur sem ekki hef ir rætzt Alþýðublaðinu finnst ekk! I*|- urt um að litast á jarðkringlunnl nú, og segir hinn 31. des.: „Sumum finnst jafnvel fram- tíðarbúseta mannkynsins á jörð- inni tvísýn. Hnötturinn er í hættu af þegnum sínum“ Þótt blaðinu þyki illa horfa, þá er það ekki vegna þess, að úrræð- in til umbóta skorti: „En er ekki meginorsök vand- ans sú, að samfélagshugsjón mannanna hefur enn ekki sigr- að? Væri nokkur hætta á ferðum, ef draumur lýðræðisjafnaðar- manna um frið, frelsi og framfar- ir — jafnréttið og bræðralagið — væri orðinn að veruleika? Aldrei hefur framtíðarvon heims og manna verið nátengdari nauðsyn þess, að jafnaðarstefnan megi sín nógu mikils til að leysa hnútana og greiða úr flækjunum. Hún er raunar í dag voldugri og áhrifa- meiri en nokkru sinni fyrr“. Hér skýtur raunar nokkuð skökku við um orsaka-samheng- ið. Að þessu sinni skal einungis að því vikið, að draumar geta ekki komið í stað athafna og stað reynda. Emil í diraumheimum Engan veginn skal þó lítið gert úr gildi drauma um fegurri fram tíð. „Lýræðisjafnaðarmenn“ eru og ekki hinir einu, sem láta sig dreyma um „frið, frelsi og fram- farir“. En fagrir draumar mega aldrei verða til þess, að menn kjósi fremur svefn en vöku og flýi úr veruleikanum inn í draumheima. Emil Jónsson for- maður Alþýðuflokksins hefur þó látið þetta henda sig nú um þessi áramétt. í áramótapistli sínum kemst hann m.a. svo að orði: „Eitt fyrsta verkefni ríkis- stjórnarinnar var að freista að stöðva dýrtíðar- og kauplags- skrúfuna. Hefur þetta tekizt bet- ur en bjartsýnustu menn gátu gert sér í hugarlund-----Vísi- tala framfærslukostnaðar hefur á þessu tímabili aðeins hækkað um örfá stig og miklu minna en áður, þannig að segja má, að hér hafi allvel til tekizt. Að vísu hef- ur þetta kostað nokkuð aukna niðurgreiðslu, sérstaklega land- búnaðarvara, en þó ekki meiri en búast mátti við. —“ Veruleikinn rýfur drauma Emils Að vísu veit enginn við hverju Emil taldi sig ,„mega búast“ af þessari stjórn. En staðreyndirnar um samanburð á vexti verðbólgu nú og fyrr eru töluvert aðrar en Emil vill vera láta. í ræðu, sem Bjarni Benediktsson hélt í Óðni 10. nóv. sl. rakti hann þetta: „Vísitala hefur hækkað um 5 stig frá áramótum. Þá var látið í veðri vaka, að von væri á 1—2 stiga hækkun. — Berum þessa hækkun á nokkr- um mánuðum saman við það sem gerðist á næstu 214 árum áður en áhrif verkfallsins mikla 1955 sögðu til sín. Vísitalan í des. 1952 var 162 stig. Vísitalan í marz 1955 var 161 stig. Á tímabili hafði hún farið ofan í 157 stig.Lækkuninni var að vísu að nokkru náð með niðurgreiðsl- um og skulum við líta nánar á þær. í fjárlögum fyrir 1952 voru þær 25 millj. kr. í fjárlögum fyrir 1955 voru þær orðnar rúmar 49 millj. kr. Hækunin er 24 millj. króna og svarar til 4 stiga hækk- unar á vísitölu. í fjárlögum fyrir 1956 voru nið urgreiðslur komnar í 57 millj. kr. Skv. frv. og grg. fjárlagafrv. fyr- ir 1958 eiga þær nú á rúmu ári að hækka í 125 millj. kr. eða um 66 millj. kr., sem samsvarar 11 nýj- um vísitölustigum".

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.