Morgunblaðið - 03.01.1958, Page 7
Fösfudagur 3. Jan. 1958.
MORCTJNBL AÐIÐ
7
Magnús H.
prentari —
Jónsson
minning
framtíðarvonir við jörð þessa, og
öllum fremur vakti hann áhuga
félagsmanna fyrir möguieikum
þessa staðar, gildi hans og menn-
ingarlegu verðmæti í framtíðinni
SÚ ER OKKUR öllum vissan vís-
ust allra hluta, að eitt sinn skal
hver deyja. Allt um það setur
okkur hljóð, þegar náinn ættingi,
vinur eða félagi fellur fyrir sigð
dauðans af sjónarsviði okkar, um
aldur fram að okkar mati, og
spyrjum ósjálfrátt: Hvers vegna
hann — núna?
Svo fór og mér, er ég hinn 19.
des sl. fregnaði, að Magnús H.
Jónsson, prentari frá Lambhóii,
hefði dáið þann dag eftir aðeins
tæplega sólarhrings legu. Vissu-
lega hefði snögglegt andlát hans
ekki átt að koma mér á óvart,!
því að fyrir fáum vikum sagði
hann mér, er heilsa hans barst
í tal, að þannig myndi hann héð-
an snögglega hverfa, og það fyrr
en varði. En hvenær trúir maður
slíkum staðreyndum fyrr en yfir
dynur? — og ef til vill er sú
sjálfsblekking okkur líka hollust.
Það er stundum gott að vita hæfi
lega lítið.
t
Fyrir nær 50 árum, eða sum-
arið 1908, bar fundum okkar (
Magnúsar fyrst saman, er við j hann i þessu máli flestum félags-
vorum smaladrengir sumarlangt i mönnum framsýnni, sem og mörg
fyrir prentarastéttina í heild. Var
vestur á Mýrum, sinn á hvorum I
bæ, þar sem lítil á, Urriðaá, skildi
tún og lendur bæjanna. Sátum
við báðir yfir kvíaám, og bar
þá fundum okkar daglega saman.
Tókst þá með okkur sá kunnings-
skapur, er æ siðan entist, því
Magnús var trygglyndur og vin-
fastur með afbrigðum.
Fáum árum síðar lágu leiðir
okkar enn saman, er báðir hófu
prentnám á sama missiri og vor-
um báðir teknir sem fullgildir
félagar í Hið íslenzka prentara-
félag þann 10. júlí 1916. Hóf
Magnús prentnám í nóvember
1911 í prentsmiðju Þjóðviljans
hjá þeim mikla þjóðskörungi og
frelsishetju Skúla Thoroddsen, en
lauk náminu í prentsmiðjunni
Gutenberg, þar sem hann síðan
vann til ársins 1944, er hann
réðist til prentsmiðjunnar Odda
og vann þar til dauðadags.
Magnús lét fljótt félagsmál
prentara til sin taka. Hann reynd
ist óvenjufjölhæfur og öruggur
starfskraftur í félagsmálum,
stefnufastur baráttumaður, en þó
lipur og laginn, Víðsýnn og hug
sjónaríkur framfaramaður, en þó
gætinn, setti ávallt hagsmuni
stéttarihnar ofar sínum eigin,
hafði góðar gáfur, hjálpfús, svo
að enginn fór synjandi frá honum
gæti hann úr bætt eða veitt lið—
sinni, og svo starfsfús, að öllum
sínum frístundum fórnaði hann
með gleði ef félagsstarfið krafði.
Það var því næsta eðlilegt að
slíkur maður yrði öðrum fremur
til forustu og annarra starfa í
sínu stéttarfélagi kvaddur. Enda
varð raunin sú.
Á miðju sumri 1919 tók hann
sem vararitari við starfi ritara
Sjúkrasamlags prentara, vegna
utanfarar undirritaðs, sem þá var
ritari þess, en í þá daga var
ritarastarf samlagsins umsvifa-
mesta og tímafrekasta starfið í
félaginu. Þessu starfi gegndi
Magnús til 1922, en 1923 var hann
fyrst kosinn formaður félagsins
og oft síðah. Alls gegndi hann
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir fé-
lagið í 36 ár, þar af formaður
þess í 18 ár, og hefir enginn
annar skipað það sæti svo lengi
í félaginu á 60 ára æviskeiði þess.
Vann hann öll þessi störf, sem
sum voru umsvifamikil og vanda
söm, af óvenjulegri kostgæfni og
samvizkusemi.
Eigi má þess ógetið látið, að á
réttum tíma hafði Magnús for-
göngu um kaup á fasteignum fé-
lagsins á Hverfisgötu 21, þar sem
aðsetur og félagsheimili félagsins
er nú og sama árið á jörðinni
Miðdal í Laugardal, þar sem sum
arheimili allmargra prentara eru
nú þegar og fleiri eru í uppsigl
ingu. Batt hann einkum miklar
um öðrum hagsmuna- og þurftar
málum stéttarinnar, svo sem með
stofnun flestra styrktarsjóða fé-
lagsins er á ýmsan hátt styrkja
nú prentara til menningarlegrar
og efnahagslegrar framsóknar.
En þótt ekki fengi hann ávallt
öllum sínum áhuga- og framfara
málum framgengt innan félags-
ins, var hann sá maður, sem
kunni að bíða lægra hlut, án
þess að láta á bera né nokkurn
gjalda, þótt undan sviði hið innra
með honum á stundum. — Fyrir
honum var félagsheildin allt —
einstaklingshyggja og sérboru-
háttur andstyggð. Betta var hans
aðalsmerki. Hann var stórmenni.
Þann þakklætis- og virðingar-
vott fyrir unnin störf í þágu
prentarastéttarinnar, sýndi H.Í.P.
Magnúsi á 60 ára afmæli félags
ins á sl. vori, að það kaus hann
heiðursfélaga sinn. Og á 60 ára
afmæli hans 1955, sendu prent-
arar (og fleiri starfsmenn) í öll-
um prentsmiðjum landsins hon-
um persónulegar eiginhandar
heillaóskir í sérstakri bók, ásamt
álitlegri peningagjöf, í þakklæt-
isskyni fyrir öll hans störf í
þeirra þágu á þá liðnu æviskeiði
hans.
Magnús tók einnig virkan þátt
í verkalýðshreyfingunni almennt.
Hann sat fyrir hönd H. í. P. flest
þing Alþýðusambandsins, sat í
stjórn þess um skeið, átti sæti
í Iðnráði, fulltrúaráði verka-
lýðsfélaganna og fjölmörgum
öðrum nefndum. Um skeið átti
hann sæti í skólanefnd Reykjvík
m- o. fl. o. fl.
t
Magnús Helgi Jónsson var
fæddur 8. júlí 1895 að Lambhóli
í Skildinganesi og átti þar heima
alla sína ævi. Foreldrar hans
voru hjónin Ragnhrldur Einars-
dóttir frá Heggstöðum í Anda-
kíl og Jón Magnússon frá Skild-
inganesi sá er fyrst byggði Lamb
hól, Magnússonar frá Engey. —
Árið 1922 giftist Magnús eftir-
lifandi konu sinni Sigurlínu
Ebeneserdóttur, héðan úr Reykja
vík, hinni ágætustu konu og hon-
um samhent í öllu hans félags-
starfi. Eignuðust þau fjórar dæt-
ur, sem allar eru á lífi, þrjár
giftar en ein í foreldrahúsum.
Um alllangt skeið hafði Magn-
ús átt við vanheilsu að stríða. og
segja má að hin síðustu missiri
hafi hann engan dag gengið heill
til skógar. En sú var atorka hans.
þrek og starfsvilji, að til vinnu
fór hann svo lengi sem kraftarn-
ir leyfðu — og stundum nokkru
lengur.
I dag er hann til moldar borinn.
Ég þakka honum áratugalanga
vináttu, tryggð og samstarf, leið-
sögu og uppörvun. En ekkju hans
dætrum, tengdasonum og öðrum
aðstandendum votta ég mína inni
legustu samúð vegna fráfalls
þessa trygga förunauts, góða
drengs og sanna manns, sem
engu vildi vamm sitt vita.
Blessuð og friðhelg veri minning
hans.
Guðbjörn Guðmundsson.
Frú Cuðrún Bjarnadóttir
Minningarorb
ANNAN jóladag andaðist Guð-
rún Bjarnadóttir húsfrú á Vallá
í Kjalarneshreppi. Verður hún
jarðsungin í dag frá sóknarkirkju
sinni að Brautarholti. öllum,
sem til þekktu mun hafa brugð-
ið, þegar þeir hlustuðu á and-
látsfregn Guðrúnar í útvarpinu
svo skyndilega og óvænt. Eng-
inn vissi til að neitt væri að,
sízt alvarlegt. Guðrún vann sín
venjulegu heimilisstörf fram á
aðfangadagskvöld jóla. Þá hátt-
aði hún og las lengi í bók. Morg-
uninn eftir, á jóladaginn hafði
hún misst meðvitund, eftir sól-
arhring var hún dáin. Dauðinn
er þögull á stundum, gerir ekki
boð á undan sér og svo var nú.
Okkur, sem þekkt höfum Guð-
rúnu frá fyrstu tíð, að hún kom
þessa sveit, finnst hún fara of
fljótt, og stórt skarð höggvið í
húsmæðrahóp sveitar okkar og
héraðs, sem við minnumst með
söknuði.
Guðrún var fædd að Tjörfa-
stöðum í Landsveit, Rangárvalla-
sýslu, 2. sept. 1897. Ekki get ég
rakið ætt hennar, en faðir henn-
ar Bjarni var af kunnum ættum
á Landinu, en ég hygg að móðir
Guðrúnar, Margrét, hafi einnig
verið kynjuð úr uppsveitum
Rangárvallasýslu.
Guðrún ólst upp með foreldr-
um sínum, líklega lengst á Seli
Sigurður Guðmundsson
Mi nni ngaror <5
ÞEGAR dánarfregn góðs manns
og vinar berst um nágrennið,
einn skammdegismorgun, þá
knýja á minningar um liðna daga
og brostnar vonir um langa fram
tíð, verður tóm í huganum, þar
vegst á, allt það sem gert var
og allt það sssi við ætluðum að
gera — en hönd örlaganna hefur
alltaf rétt fyrir sér — okkur voru
ekki fleiri samverustundir áskap
aðar. Vinur okkar, Sigurður Guð
mundsson í Þórukoti er horfinn
af þessu lífsins plani, eftir 58 ára
starfsrík og gæfusöm ár, og hefur
nú horfið til þeirra heima er
hann sjálfur trúði að tækju
við. —
Sigurður var Suðurnesjamaður,
fæddur í Höfnum syðra og taldi
það stolt sitt og virðingu, þó
hann festi rætur í Njarðvík, á
ættaróðali konu sinnar Guðrúnar
Þorleifsdóttir, þá brustú ekki
böndin við heimahaga, hvorki
hér eða þar. — Ég minnist þess
nú, að er við fórum inn einn af
hinum fögru og þaulræktuðu
Skotlandsfjörðum, sagði Sigurð-
ur að þarna væri búsældarlegt og
gæti hver blettur verið Þórukots-
túnið eða túnin í Merkinesi. -—
Svo var um Sigurð í flestu, hann
var traustur maður og vinfastur
hvort í hlut áttu þúfurnar á Þóru
kotstúni eða vel eður vanmatinn
samferðamaður í lífinu — ef þýð
legt orð, hlýlegt handtak eða
nokkrar ótaldar krónur gátu
bætt einhvers vanda, þá var eng
an betri fyrir að finna en Sigurð
í Þórukoti. Það er lífshamingja
við lokinn dag, að vera saknað af
öllum, jafnvel þeir sem fylltu
aðra stjórnmálaflokka, aðhylltust
aðrar trúmálaskoðanir, eða stóðu
í lægri tröppu mannvirðinga, áttu
aldrei misjöfn né hörkuleg orð
garð Sigurðar í Þórukoti. Þetta
er betri mannlýsing en margir
dálkar í blaði.
Sigurður var athafna- og at-
orkumaður, kljáðist jafnt við sjó
og land, og bar hvarvetna sigur
úr býtum. í sambýli fólksins var
hann gjarnan í forustu og trún-
aðarstöðum, því það þótti vel
valið, hvort heldur var fyrir
sveitarfélagið, kirkjufélagið, eða
önnur félagssamtök, og voru hans
innlegg þar byggð á skilningi og
trúmennsku.
Eftir langa samveru og trausta
vináttu minnist ég þess ekki að
hafa séð Sigurð bregða skapi til
hins verra, þó ég væri erfiður
í samskiptum á stundum. Hiá
honum fór saman í ríkum mæli.
glaðlyndi, góðvild, hjálpsemi, ör-
læti og atorka — hann var maður
sem ljúft er að minnast og vart
unnt að missjá sig í mannlýsingu,
þó um eftirmaeii látins sé að ræða.
Ég ætla ekki að rekja æviferil
Sigurðar, störf hans og stríð, þau
heyra nú fortíðinni til en standa
sem óbrotgjarn steinn í uppbygg-
ingu hinnar framgjörnu framtíð-
ar Suðurnesja.
Hér skal tjáð innileg hluttekn-
ing í söknuði vina og vanda-
manna. — En svo liggur leið okk
ar allra. Við stöndum nú á
ströndinni og sjáum siglingu háa
og glæsta til fyrirheitna landsins,
þar fer vinur okkar Sigurður
bóndi í Þórukoti. — Við biðjum
honum blessunar á verðandi leið-
um og örvæntum ekki, því góðir
menn fara guðs vegi. —
Helgi S.
í sömu sveit, þar bjuggu foreldr-
ar hennar og þar býr nú bróðir
hennar.
Á Landinu, eins og fæðingar-
sveit Guðrúnar er kölluð í dag-
legu máli, er mjög tilkomumikil
fjallasýn, þar er Ilekla allnærri,
hið tigna fjall, en einnig hið
ægilega, með hina mikilfenglegu
auðn í kring um sig. Slíkt útsýni
orkar ekki lítið á barnshugann
enda finnst mér að margra ein-
kenna gætti í skapgerð Guðrún-
ar, sem stafi frá umhverfi henn-
ar í æsku.
Guðrún var hjartahlý, alvöru-
kona, sem hélt sér ekki fram eða
lét bera á sér. En hún átti til
sterkan vilja, ákveðnar skoðanir
og þá seiglu í starfi og raun, sem
ég hygg hún hafi erft frá ætt-
mennum sínum í uppsveitum
Rangárvallasýslu, þeirra, sem
hafa átt afkomu sína undir duttl-
ungum Heklu og afleiðingum
þeirra. Þar hefur sótt á sandfok
og aska, svo nærri hefur legið
að legði í eyði hina fögru byggð.
Guðrún hefur snemma verið
námfús og þráð að afla sér
menntunar: Fór hún þá í Kenn-
araskólann og útskrifaðist úr
honum vorið 1921. Vera Guð'rún-
ar í Kennaraskólanum hafði
varanleg áhrif á hana. Hún var
svo lánsöm að eiga heima á
heimili hinna ágætu skólastjóra-
hjóna, séra Magnúsar og konu
hans. Voru það því ekki einungis
áhrifin frá skólanum og kynning
af skólastjóranum í sambandi við
hann, skólann, er hún naut, held-
ur einnig af heimili þeirra hjóna,
sem var fyrirmynd að myndar-
skap, látleysi og hlýleik til allra
hárra og lágra. Guðrún kunni
vel að notfæra sér þetta. Hún
vann sjálf traust og vináttu
þeirra hjóna, og hún, eins og
flestir eða allir nemendur séra
Magnúsar, dáði hann og tileink-
aði sér ráðleggingar hans í einu
og öðru. Ég er viss um að skóla-
vera Guðrúnar var henni leiðar-
ljós og styrkur í lífsbaráttunni
alla tíð. Þegar Guðrún hafði lok-
ið kennaraprófi, ger,ist hún kenn
ari í nokkur ár á Blikastöðum,
uppi í Leirársveit, en siðast hér
í Kjalarneshreppi.
Vorið 1925 fór hún að Vallá
og sama ár, 22. okt., giftist hún
bóndasyninum þar Magnúsi
Benediktssyni. Hófu ungu hjón-
in búskap á móti foreldrum
Magnúsar og bjuggu þannig í
nokkur ár. Þá tóku þau alla jörð-
ina. Um það leyti dó Benedikt
faðir Magnúsar, en móðir hans,
Gunnhildur, hefur verið hjá
þeim síðan og lifir nú tengda-
dóttur sína, sjálf komin á níræðis
aldur.
Þegar Guðrún hóf búskap á
Vallá, kom brátt í ljós, að hún
var ekki síður hæf þar til starfa
en við nám og kennslustörf, enda
alin upp í sveit. Guðrún var
heimilisrækin, ósérhlífin til allra
verka úti og inni, fylgdist með
öllu, sem heimiiið varðaði, tók
oft við að stjórna ein heimilinu,
þegar maður hennar vann utan
heimilisins, sem hann oft gerði.
Gestrisni mikil var á Valla hjá
þeim hjónum. Var aldrei svo
mikið annríki á heimilinu, að þau
létu ekki sitja fyrir að sinna
gestum. Var það þenn hin mesta
gleði, þegar gesti bar að garði.
Munu margir vinir þeirra hjóna
sakna húsmóðurinnar, sem oft
var fróðlegt og skemmtilegt að
rabba við.
Á Vallá voru unglingar á
sumrum, eins og á öðrum sveita-
bæjum, nokkrir alla sína æsku
og nutu þar göðra viðgjörða og
órofatryggðar húsbændanna.
Þau Guðrún og Magnús eign-
uðust 5 börn. Eitt dó í æsku, 4
lifa, 3 dætur og einn sonur.
Marta, ein dóttirin býr í Stokk-
hólmi í Svíþjóð. Hana heimsótti
Guðrún í fyrrasumar. Hafði hún
aldrei farið til útlanda fyr. Þessi
ferð var henni til mikillar ánægju
og mjög þakklát mun hún nú
vera, dóttirin í fjarlægðinni, að
þessi ferð var framkvæmd, þeg-
ar móðir hennar er nú svo óvænt
og skyndilega horfin.
Guðrún hafði yndi af góðum
bókum, bæði í bundnu og ó-
bundnu máli. Hún las mikið og
átti góðan bókakost. Vissu börn
hennar og aðrir vandamenn að
engin tækifærisgjöf var henni
kærkomnari en góð bók. Eins og
að líkum lætur hafði Guðrún
lítil tækifæri til ritstarfa, þó
mátti vel sjá af því, sem hún
skrifaði, að hún hafði ágætt vald
á máli og var vel ritfær, vísa ég
til umsagnar þeirra, sem gott vit
hafa á því. Guðrún var einnig
hagorð þótt hún léti það lítt uppi.
En þessir hlutir lyftu fólkinu
upp yfir hversdagslífið. Það var
lika hennar síðasta, að hún las í
bók áður en hún lagðist til svefns
á jólanóttina. Þess svefns, sem
hún vaknaði ekki af aftur.
Jónas Magnússon.
Sjálfstæð-
isfólk
í Reykjavík
KJÖRSKRÁ liggur frammi í
skrifstofu Sjálfstæðisflokksins,
Vonarstræti 4. Sjálfstæðisfólk er
hvatt til að atliuga, hvort það
er á kjörskrá, sérstaklega þeir,
sem flutzt hafa til Reykjavíkur
fyrir febrúarlok 1957. Áriðandi
er, að skrifstofan fái upplýsiugar
um alla, sem verða fjarverandi
á kjördegi, 26. janúar n.k.
Símar kosningaskrifstofunnar,
Vonarstræti 4 eru 24753 og 17100.
Opið frá kl. 9—12 og 1—6. Sunnu
Opið frá kl. 9—12 og 1—6.