Morgunblaðið - 03.01.1958, Side 16
VEÐRIÐ
Suðaustan kaldi og lítilsháttar
snjókoma en síðar slydda.
1. tbl. — Föstudagur 3. janúar 1958
DEILX UM SAL 1 TÓNVERKI
Sjá bls. 9.
Eftir að Hermann Jónasson og „vinstri“-stjórn hans hefur svikið öll sín loforð, koma þessir
herrar til Reykvíkinga og bjóðast til þess að „bjarga" bæjarfélagi þeirra. En spor „vinstri“-
stjórnarinnar hræða. Hún lofaði að lækka skatta en efndi það fyrirheit með því að leggja 9400 kr.
í nýjum sköttum og tollum á ári á hverja fimm manna fjölskyldu í landinu. Hún lofaði að reka
herinn úr Iandi en efndi það með því að semja um áframhaldandi dvöl varnarliðsins og lét
borga sér fyrir það dollara.
Þessir menn, sem skapað hafa fullkomið öngþveiti í efnahagsmálum þjóðarinnar bjóða
nú Reykvíkingum að „bjarga“ bæjarfélagi þeirra. Þvi tilboði verður áreiðanlega ekki tekið.
Reykvíkingar sjá hættuna, sem að bæjarfélagi þeirra steðjar. Þeir vilja ekki alræði Hermanns
og Hannibals í bæjarstjórn sinni. Reykvíkingar kjósa samhenta meirihlutastjórn Sjálfstæðis-
manna, sem haft hafa giftudrjúga forystu um uppbyggingu bæjarfélagsins undanfarin ár.
Athugasemd við
áramótaávarp
forsœtisráðherra
í ÁRAMÓTAHUGVEKJU sinni á gamlárskvöld skýrði
forsætisráðherra, Hermann Jónasson, frá því, að ásamt
ýmsum sérfræðingum rikisstjórnarinnar ynni nú sérstök
nefnd að því að finna úrræði í efnahagsmálunum. Komst
forsætisráðherra svo að orði, að „stjórnmálaflokkarnir“
ættu hver einn fulltrúa í nefnd þessari.
Þar eð forsætisráðherra hefir ekki birt neina leiðrétt-
ingu á þessum ummælum símum og ýmsir hafa að vonum
skilið þau svo, að allir flokkar hefðu verið kvaddir til ráða,
skal það tekið fram, að Sjálfstæðisflokknum hefir ekki
verið boðin nein aðild að umræddri nefnd, og á hann
því engan fulltrúa í henni.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Síðan þessi yfirlýsing barst frá Miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins hefur forsætisráðherra lýst því yfir í útvarpinu,
að urn mislestur hafi verið að ræða hjá sér á umræddu
orði. f handriti hans hafi staðið „stjórnarflokkarnir".
14-1500 manns á þremur samkomiim
Sjáifstæðismanna í gær
Milljónatjón, er
verksmiðjan á Kletti brann
EITT mesta fiskiðjuver hér
við Faxaflóa: Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjan á Kletti hér
í Reykjavík, varð fyrir stór-
kostlegu tjóni í gærdag er
eldur varð þar laus. Brann
aðalvélasalur fiskimjölsverk-
smiðjunnar svo hann virð-
ist ónýtur að mestu. I
þcssum hluta verksmiðj-
unnar var m. a. þurrk-
ari, sem mun vera einn
stærsti mjölþurrkarinn, sem
hér er í verksmiðjum, 20
metra langur og um 2,60 í
þvermál. — Ekki var verið að
vinna í verksmiðjunni er eld-
ur kom upp.
Síldar og fiskimjölsverksmiðj-
an á Kletti, sem að vísu er þyrn-
ir í augum margra vegna óþefs
er frá henni leggur, er þó það
fiskiðjuver hér í bænum, sem
segja má að sé undirstaðan að
starfrækslu hraðfrystihúsanna
með allri þeirri atvinnu sem þau
skapa fólki og einnig við fram-
leiðslu skreiðar. Mun verksmiðj-
an á undanförnum árum hafa
tekið á móti 60—70% af öllu þvi
fiskmagni sem landað hefur ver-
ið til vinnslu hér í Reykjavík.
Hefur verksmiðjan veitt fjölda
manna atvinnu og nú um þessar
mundir starfa þar um 25—30
manns. Hefur verksmiojan fært
þjóðinni í gjaldeyri árlega 27—
28 milljónir króna. Forstjóri er
Jónas Jónsson frá Seyðisfirði.
Síðan fyrir hátíðar hefur verk-
smiðjan ekki verið i gangi, og svo
var enn í gærdag er eldur-
inn kom þar upp.
Nokkrir starfsmenn verksmiðj
unnar sátu að bita sínum í kaffi-
stofu starfsfólksins laust fyrir
klukkan 1. Kaffistofan var í skúr
byggingu áfastri við þurrkara-
húsið og hægt að ganga úr henni
eftir gangi inn í þurrkarahúsið.
Mennirnir fundu reykjarlykt
leggja inn til sín, og brugðu þeir
þegar skjótt við, sumir fóru út
á hlað en aðrir fram í ganginn að
þurrkarahúsinu. — Sáu þeir þá
að eldur var farinn að loga í ein-
földu þili milli gangsíns og skúr-
byggingarinnar sem. kaffistofan
er í ásamt lager og fleiru. — Á
örskotsstund flögraði eldurinn
eftir sperrum og langböndum um
allt þurrkarahúsið, og mennirnir
fengu engan tíma til neinna
slökkvistarfa. Fitan á sperrunum
og langbitunum logaði vel. Brátt
varð þurrkarahúsið alelda. Var
eldurinn orðinn mikill þegar bíl-
ar slökkviliðsins komu á vett-
vang.
Áfast við þurrkarahúsið er ann
að hús minna, en þar eru kvarn-
irnar og einnig mjölgeymslan.
Slöklcvistarfið beindist að því að
einangra þetta hús, og tókst það
áður en á því urðu neinar telj-
andi skemmdir. Ekki skemmdust
kvarnirnar eða mjölið. — Þurrk-
arahúsið var mjög einfalt, báru-
járnsklædd trégrind, og ein-
falt timburþak járnklætt. Það
var því ekki mikið sem brunnið
gat.Grindin í annarri hlið hússins
virtist ónýt, einnig gaflinn. Þak-
ið féll inn að miklu leyti. Er
slökkvistarfinu var lokið um það
bil sem myrkur skall á, virtist
manni sem þurrkarahúsið sem
var mjög stórt um sig, myndi
‘ónýtt að mestu. Þar eð aldrei
varð mikill hiti í brunanum og
hann mestur fyrir ofan vélarnar,
eru menn að vona að vélar hafi
ekki orðið fyrir eins miklum
skemmdum og ella. En vélasalur-
inn er illa farinn. Auk þurrkar-
anna, voru þar inni sjóðarar, skil
vindur og gufukatlar. Mun í dag
verða reynt að athuga ástand vél-
anna. Eins munu þegar í dag fara
fram athuganir á því, hve lang-
an tíma muni taka að gera verk-
smiðjuna starfshæfa aftur, með
bráðabirgðaviðgerð, en slíkt
mjög aðkallandi fyrir starfsemi
hraðfrystihúsanna hér í bænum.
Hið beina tjón af bruna þessum
hafa menn giskað á að nema
muni 2—3 milljónum króna. Það
kann að vera meira, ef véla-
kostur verksmiðjunnar hefur
orðið fyrir miklum skemmdum.
Slökkviliðið barðist í 3 klukku
stundir við eldinn í verksmiðj-
unni. Bað forstjórinn Jónas Jóns-
son, sem að öðru leyti varðist
U M 14—1500 sóttu þrjár satn-
komur, sem SjálfstæSisfélögin í
Reykjavík efndu til í gær. Var
hin fyrsta þeirra jólatrésskemmt-
un er Varðarfélagið gekkst fyrir
í Sjálfstæðishúsinu.
í gærkvöldi var svo spilakvöld,
sem öll Sjálfstæðisfélögin í bæn-
er I um stóðu að. Vai það haldið
bæði í Sjálfstæðishúsinu og að
Hótel Borg. Húsfyllir var á öllum
þessum samkomum.
stæðisflokksins við bæjarstjórn-
arkosningarnar.
Framboðslisii Sjálf-
Alþingismennirnir Bjarni Bene
diktsson og Björn Olafsson fluttu
ræður á samkomunum í gær-
kvöldi og var máli þeirra ágæt-
lega tekið. Þeir Guðmundur
Jónsson óperusöngvari og Karl
Guðmundsson leikari skemmtu.
Samkomunni í Sjálfstæðishús-
inu stjórnaði Sveinn Helgason,
allra frétta, Mbl. að færa því j varaformaður Varðar en Sveinn
þakkir fyrir vasklega framgöngu. Björnsson, gjaldkeri Varðar,
Eftir frumrannsókn rannsókn- stýrði sarakomunni að Hótel
arlögreglunnar í gær, þykir
margt styðja þann grun, að kvikn
að hafi í út frá rafmagni, í loft-
inu yfir skúrbyggingunni sem
kaffistofan og lagerinn var í. <
Borg.
Þessar fjölmennu samkomur
fóru í öllu hið bezta fram og
báru vott um mikinn áhuga á
að vinna ötullega að sigri Sjálf-
SJÁLFSTÆÐISMENN í Kópa-
vogi hafa ákveðið framboðslista
sinn til bæjarstjórnarkosninga.
Hann skipa Sveinn S. Einarsson,
verkfræðingur, Baldur Jónsscn,
framkvæmdastjóri, Guðrún
Kristjánsdóttir, frú, Jón Þórar-
insson, tónlistarráðunautur, Einar
Jóhannsson, múrarameistari,
Helgi Tryggvason, kennari, Arn-
dís Björnsdóttir, frú, María Vil-
hjálmsdóttir, frú, Jón Þorsteins-
son, trésmíðameistari, Ármann
Sigurðsson, járnsmiður, Hörður
Þórhallsson, viðskiptafræðingur,
Jóhann Schröder, garðyrkiu-
bóndi, Brynjólfur Dagsson, hér-
aðslæknir, Jón Sigfússon, skatt-
stjóri.
Kletti eftir eldsvoðann.