Morgunblaðið - 07.01.1958, Page 18
18
MORGVNRLAÐIÐ
■Þriðjudagur 7. janúar 1958
Mandknatildksnion! æfa af koppi
fyrir heimsmeistamkeppmna
Þeir greiða sjáliir hiuta aí iarar-
kostnaði svo ai iörinni geti orðið
UNDIRBÚNINGUR fyrir þátttöku ísl. handknattleiksmanna í heirns
meistarakeppninni er nú hafinn af fullum krafti, enda ekki til set-
unnar boðið, því h. 20.—24. febr. fara keppendur utan til Berlínar.
26. febr. eiga íslendingar að mæta Tékkum í Magdeburg. 1. marz
mæta þeir Rúmenum og daginn eftir Ungverjum. Þessi fjögur lönd
eru saman í riðli og komast tvö hin efstu áfram í keppninni um
heimsmeistaratitilinn. —
Rétt fyrir áramótin fóru utan 4 íslenzkir skíðamenn, sem taka
munu þátt í heimsmeistarakeppninni í alpagreinum skíða-
íþrótta. Þeir eru: Eysteinn Þórðarson, Reykjavík, Kristinn
Benediktsson, Isafirði, Úlfar Skæringsson, Reykjavík, og
Magnús Guðmundssoii, Akureyri. Látið var ráða að jöfnu síð-
asta fslandsmót og þeir Eysteinn og Úlfar valdir, og úrtökumót
sem fram fór á Akureyri, og þar voru þeir Kristinn og Magnús
valdir. Myndin er af þátttakendum í úrtökumótinu, talið frá
vinstri: Magnús Guðmundsson, Akureyri, Hjálmar Stefánsson,
Akureyri, Jóhann Vilbergsson, Siglufirði, Kristinn Benedikts-
son, ísafirði, og Hákon Ólafsson, Siglufirði.
Brekkuskriðmótið 1907
- Úrtökumótið 1957
Þá var þrautin að standa brekkuna
Nú að staeda toppmönnnnum á sporði
í DESEMBER efndu forystumenn skíðamála á Akureyri til kaffi-
samsætis að Hótel KEA í tilefni þess að fimmtíu ár voru liðin frá
því að fyrst var opinberlega haldið skíðamót á Akureyri. — Mót
þetta var háð austur í Vaðlaheiði og var þrautin sú að standa nið-
ur brekkurnar og nefndist þetta þá brekkuskrið. Forgöngumaður
um mót þetta var Sigurður Sigurðsson járnsmiður. Keppendur
voru 10 talsins. Þrír keppendanna leystu þessa þraut af hendi, þeir
Brynjólfur Jóhannesson, Sófus Árnason og Júlíus Hafliðason, en
þrautin var sú ein að standa niður brekkurnar og voru þá engar
tímamælingar. — Hlutu þeir þremenningar verðlaun að lokinni
keppni, 5 kr. hver. — Á næstu árum jókst mjög áhuginn á skíða-
íþróttinni og voru haldin skíðamót á Akureyri bæði 1911 og 1914.
Mikill kostnaður
Næstsíðasta kvöld gamla ársins
efndi handknattleikssambandið
til fundar með þeim 26 handknatt
leiksmönnum er til æfinga hafa
verið valdir og landsliðsnefnd
sambandsins og var fréttamönn-
um boðið til fundarins. Þar var
ræddur undirbúningur og fjár-
hagsmál, en hið nýstofnaða hand
knattleikssamband á við mikla
fjárhagslega erfiðleika að etja,
enda kostar þessi för 80—85 þús-
und krónur, þrátt fyrir það að
Þjóðverjar sem standa fyrir
heimsmeistarakeppninni borga
fyrir 19 manna hóp, ferðir og
uppihald eftir að hann er kom-
nn til meginlandsins.CHamborg-
r).
Á fundinum var Árni Árnason
orm. sambandsins frummælandi
og skýrði frá öllu er vitað er
um leik íslendinga úti m. a. þess
er hér fyrst er getið.
Þá vék Árni að kostnaðarhlið-
inni og hvernig sambandið hugs-
aði sér að leysa vandann í þeim
efnum, en eitt ráðið, sem sam-
bandið hefur ákveðið er að hver
maður, sem utan fer greiði 1000
krónur í ferðasjóð. Vakti þetta
atriði hvað mestar umræður.
Sýnist mönnum sitt hvað í
þeim efnum, eins og gengur, en
nú munu flestir eða allir ásáttir
um að förin verði ekki farin án
þessa framlags þeirra er fara.
Hvers virði eru íþróttirnar?
Vist er ákjósanlegt að sérsam-
bönd geti greitt ferðakostnað
keppenda sem koma fram fyrir
landið, en hins er líka að gæta að
þegar það ekki er hægt, þá hlýtur
það að koma til yfirvegunar hjá
hverjum þeirra manna sem notið
hafa unaðssemda íþróttanna og
orðið svo gæfusamir að ná það
Iangt að geta komið fram fyrir
þjóð sína erlendis, hvers virði
slík för er, ekki aðeins fyrir
augnablikið heldur allt lífið. Sem
betur fer er þetta framlag sem
HSÍ verður nú að taka af mönn-
um sínum ekki hærra en það að
flestum eða öllum mun takast að
kljúfa þennan kostnað einir sér
eða með sameiginlegu átaki.
Sennilega eiga flestir þeirra
manna sem nú verða í landsliði
íslands í handknattleik eftir að
fara margar ferðir utan án hlut-
deildar í kostnaði, en aðstæðurn-
ar nú kalla á framlag þeirra
sjálfra.
Það heyrðust raddir um það á
fundinum að íþróttamenn leggja
mikið af mörkum við æfingar
undir slíka för. Þetta er dálítið
hættulegur hugsunarháttur með-
al íþróttamanna. Það er dauða-
dómur yfir íþróttunum ef iðkend
ur fara að meta þær til fjár eða
miða þær við tímann sem „í þær
er eytt“ eða hvað „upp úr íþrótt-
unum má hafa“. Hætti menn að
finna að launin fyrir það „erfiði“
er fólgið í ánægjunni af því að
leggja sig fram, vera í góðum
hópi félaga og vina, hvort sem
eru samherjar eða mótherjar, —
hætti menn að finna launin af
löngu erfiði við æfingar koma
margföld í ánægju af skemmti-
legri keppni, í glímu um sigur
í góðum leik, þá eru menn á
rangri hiilu og vissara að nema
staðar og athuga sinn gang.
*
Og einmitt þetta atriði á fundi
handknattleiksmanna gefur til-
efni til þess síðar að ræða hér
ÞRIÐJA umferð ensku-bikara-
keppninnar fór fram á laugardag,
en þá komu fyrstu og annar deild
a rliðin inn í keppnina. Þrátt fyr
ir vont veður, frost og snjókomu
norðanlands, sliddu sunnanlands,
voru áhorfendur alls 900-þúsund
á þrjátíu og einum leik. Einum
leik, milli York City og Birming-
ham City, varð að fresta vegna
íslags á vellinum.
Knattspyrnuheimurinn varð
furðu lostinn, þegar fréttist, að
liðið Northampton Town, sem er
neðarlega í þriðjudeild, hefði
slegið frægasta lið Englands,
Arsenal, út úr keppninni. Leikur
inn fór fram í Northampton og
þyrptust 21 þús. manns að sjá leik
inn. Sem vonlegt var, voru heima
menn ekki of bjartsýnir á úr-
slitinn, enda hæstánægðir í háif-
leik er leikar stóðu 1:1. í síðari
hálfleik sýndu leikmenn þorps-
ins, Arsenal, hvar Davíð keypti
ölið og sigruðu örugglega 3:1.
Fimm fyrstu deildar lið í viðbót
voru slegin út: Luton, Blackpool,
Leicester C., Leeds U., Manch. C.
Luton Town, sem er númer
sex í fyrstu deild, tapaði fyrir
þriðju deildar liðinu Stockport
Country. Blackpool tapaði fyrir
Lundúnaliðinu West Ham Uni-
ted, sem er ofarlega í annari
deild. Hinn frægi útherji Eng-
lands, Stanley Mathews, sem nú
er ú fertugasta og þriðja aldurs-
ári lék með Blackpool, en fékk
lítið að gert enda vantaði í liðið
þrjá landsliðsmenn, sem voru
meiddir.Leicester City tapaði 4:0
gegn Ludúnaliðinu Tottenha'm
Hotspur sem einnig er í fyrstu
deild. Leeds United tapaði fyrir
Cardriff City 2:1, en Cardriff féll
í aðra deild síðastliðið ár.
Þetta er þriðja árið í röð, sem
þessi félög mætast í þriðju um-
ferð bikarins. Cardiff City hefur
sigrað öll árin, og alltaf með
markatölunni 2:1.
Manchester City, sem vann
bikarinn fyrir tveim árum tapaði
illilega fyrir West Bromwich Al-
bion. Svo gífurlegir voru yfir-’
burðir WBA að markatalan 5:1
gefur ekki rétta hugmynd um
leikinn. WBA er númer 2 í ,,líg-
unni“ og telja margir liðið lík-
um íþróttirnar og hvert gildi þær
hafa, ekki sízt fyrir þá sem iðka
þær með keppni fyrir augum.
Hallsteinn þjálfar
Handknattleiksmennirnir eiga
erfitt verkefni framundan. Þjálf-
ari þeirra hefur verið valinn Hall
steinn Hinriksson, og mun hann
áreiðanlega leggja sig fram um
að búa piltana sem bezt undir
glímuna. Hann er einn úr hópi
hinna eldri í íþróttahreyfing-
unni, sem ekki hafa laðazt að
þeim til að sigra án ,,erfiðis“ eða
til að hafa „eitthvað upp úr íþrótt
unum“, heldur til að finna hin
ánægjulegu laun fólgin í samveru
við góða drengi og í verðskuld-
uðum sigrum. Er því ekki ástæða
til að ætla annað en undirbún-
ingur allur takist vel og sterk-
um mótherjum Austursins verði
mætt af hörku en þó með fullum
dreng-skap.
legt til sigurs í bikarkeppninni.
Preston North End tapaði fyrir
Bolton Wanderes 3:0.Manchester
United var hætt komið á móti
liðinu Workington, sem er í
þriðju deild. Vegna mistaka mark
varðarins, sem Man. United
keypti fyrir skömmu á 23-þús-
und pund, hafði Workington 1:0
yfir í hálfleik. En í síðari hálf-
leik skoraði vinstri innherjinn
Viollet þrisvar sinnum og tryggði
Man. Utd. sigurinn. Wolverhamp
ton Wanderes, en þeir hafa for-
ystu í fyrstu deild léku á móti
Lincoln City og unnu 1:0.
Lincoln City var hér á ferð fyr
ir nokkrum árum, og eru nú neð-
arlega í annari deild. Var almennt
búizt við stórum sigri Úlfanna,
en vörn City lét sig hvergi og lék
örugglega út allan leikinn. Það
var ekki fyrr en seinl í seinni
hálfleik sem Úlfarnir skoruðu
markið í gegnum vinstri útherj-
an Mullen.
Aston Villa, núverandi Bikara
meistarar, rétt náðu jafntefli 1:1
á móti Stoke City, sem eru ofar-
lega í annari deild. Vinstri út-
herjinn McParland skoraði mark
Aston Villa, en hann skoraði bæði
mörk félags síns gegn Manchest-
er United í úrslitaleiknum í vor.
Allir jafnteflisleikirnir sex,
ásamt leiknum, sem frestað var,
verða leiknir í vikunni.
Fjórða umferð fer svo fram
laugardaginn 25. janúar.
Úrslit í leikum er 1. og 2.
deildar-lið áttu hlut að.
Preston NE 0 — Bolton Wand 3
W. B. A. 5 — Manchester City 1
Stockport 3 — Luton 1
Sunderland 2 — Everton 2
Workington 1 Manchester U 3
Burnley 4 — Swansea 2
Hereford U 0 — Sheff W. 3
Leeds U 1 — Cardiff 2
Lincoln C 0 — Wolverhamton 1
Northampton 3 — Arsenal 1
Nott. F 2 — Gillingham 0
Plymouth 1 — Newcastle U 6
Stoke C. 1 —- Aston Villa 1
Tottenham 4 Leicester C 0
West Ham 5 — Blackpool 1
Portsmouth 5 — Aldershot 1
Doncaster R 0 — Chezlsea 2
Liverpool 1 — Southend U 1
Frh. á bis. 19.
Heiðraðir
Einn af sigurvegurum móts
þessa Brynjólfur Jóhanness., var
boðinn til þessa hófs og var sér-
staklega heiðraður. Vildi svo
skemmtilega til að hann átti af-
mæli þennan dag, varð 64 ára að
aldri, Brynjólfur er faðir Magn-
úsar, sem í mörg ár var íslands-
meistari í svigi. Sófus Árnason
Allir svig-
mennirnir verða
kvikmyndaðir
BADGUDSTEIN, 3. jan. — Und-
irbúningur undir heimsmeistara-
keppnina í alpagremum skiða-
íþróttarinnar er nú vel á veg
kominn.
Sú nýjung er vekja mun mesta
alhygli er að 8 kvikmyndatöku-
vélum verður komið fyrir rétt
við svigbrautina. Þær taka kvik-
mynd af keppendum frá því er
þeir leggja af stað og þar til þeir
koma í mark. Kvikmyndirnar er
hægt að framkalla þegar í stað.
Er þetta gert til þess að dóm-
nefnd geti athugað ferð skíða-
mannsins aftur ef umdeildur
dómur verður felldur við eitt-
hvert hliðið. —NTB.
varð síðar einn af forystumönn-
um skíðamálanna á Siglufirði, m.
a. formaður Skíðaborgar. Júlíus
Hafliðason, sem nú dvelst í
sjúkrahúsi í Reykjavík er frændi
Magnúsar Guðmundssonar, sem
varð íslandsmeistari í svigi 1953.
Meðal annarra þekktra borgara
þessa bæjar, sem þátt tóku í
þessu móti voru Sigurður Fló-
ventsson lyfjafræðingur og Björn
Grímsson nú kaupmaður á Húsa-
vík.
Kaffisamsæti þetta var hið á-
nægjulegasta og voru margar
ræður fluttar, rætt um gömul og
(ný skíðamót.
Úrtökumót fyrir heims-
meistaramót
Þennan sama dag lauk úrtöku-
móti íyrir heimsmeistaramótið í
skíðakeppni, sem fram á að fara
í janúar n.k. í Austurríki, en til
þess móts hafði S.K.Í. stofnað.
Mót þetta átti að fara fram í
Reykjavík, en var ekki hægt að
halda þar sökum snjóleysis. Því
miður gátu Reykvíkingar ekki
tekið þátt í þessu móti, en kepp-
endur voru auk Akureyringa frá
ísafirði og Siglufirði.
Úrslit urðu þessi:
1. Kristinn Benediktss., ísafirði,
2. Magnús Guðmundss. Akureyri,
3. Jóhann Vilbergsson, Sigluf.,
4. Hjálmar Stefánsson, Akureyri,
5. Hákon Ólafsson, Siglufirði.
A. St.
Enska knattspyrnan:
Arsenal iéll út fyrir 3. deildor-
liði \ 3. umferð