Morgunblaðið - 16.01.1958, Side 16
16
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 16. janúar 1958
Eflir
/1/ l/l / II / / EOGAll MITTEL HOLZEIi
iT/eöctl reihctncLi 12
Þýðii.g: t
Sverrir Haraldsson £ m .— ö n tt cl Ct
þyrftu bara dálítið stranga og
ákveðna meðferð, til þess að fá
fullan bata. Mikill meiri hluti
þeirra þjáðist einungis af ímynd-
un. Er því kannske þannig farið
með þig?“
„Nei“.
Séra Harmston virtist þungt
hugsandi. Hann strauk vangann,
sem var sléttur og, að því er virt-
ist, nýrakaður. Eitthvert sápugt
hreinlæti virtist einkenna hann
allan.
„Jæja, segðu mér nú. Hvernig
hafa taugarnar áhrif á þig? —
Finnst þér þú vera æstur og óró-
legur út af einhverju, sem þú get-
ur ekki skilgreint? Skortir þig
traust og tiltrú á sjálfum þér, eða
er það kannske einhvers konar
dapurleiki og þunglyndi, sem þú
getur ekki yfirstigið?"
„Allt þetta — og meira".
„Meira?"
„Það er fylgzt með mér — setið
um mig“.
„Fylgzt með þér? Setið um þig?
Elver gerir það?“
>,Augu“.
„Hvaða augu? Áttu við það, að
þú þjáist af ofsjónum?"
Gregory sá sjálfan sig, að því
kominn að skorpna. Að baki hon-
um rúnaði spegillinn og innihélt
frosið land. Og þegar hann færi
að skorpna, myndi hold hans gefa
frá sér hljóð, eftir því sem það
herptist meira og meira saman.
Það myndi herpast saman og
kveinka sér og líkhjúpur myndi
vefjast utan um það. Nú þegar lá
líkhjúpurinn ílaunsátri, stífur af
kulda, í hinum nístandi norður-
heimskauts-spegli.
Berton birtist í dyrunum, sem
faðir hans hafði skilið eftir gal-
opnar, þegar hann kom inn í her-
bergið. —■. „Hve stór er veröldin
— oh, þú ert þá hérna inni hjá
honum, pabbi. Ég vissi það ekki“.
Gregory brosti. Drengurinn
hafði bjargað honum. Hann sam-
einaðist aftur sjálfum sér, vék
aftur í likama sinn.
„Berton, drengur minn. Við
Gregory þurfum að tala svolítið
saman. Leyfðu okkur að vera ein-
um stundarkorn".
„Mig langaði bara til að gefa
honum einkennisorðið og heyra
hann svara", sagði Berton. —
„Gregory, hve stór er veröldin?"
„Hve breiður er runninn?"
sagði Gregory brosandi.
Berton baðaði út báðum höndum
og hló út að eyrum. — „Vinur“,
hrópaði hann. — „Áfram, vinur".
Og hvarf út um dyrnar. Fótatak
hans fjarlægðist, eins og léttar
járnkúlur, sem hoppuðu eftir ber-
um gólffjölum gangsins. Gregory
heyrði að hann kallaði á systur
sína: — „Ollie, Ollie".
„Oh, þessi börn — þessi börn“,
sagði séra Harmston og dæsti, en
var þó brosandi. — „En hvað ég
vildi nú segja. — Þú þjáist sem
sagt af ofsjónum, drengur rninn?"
„Frá yðar sjónarmiði, já. Frá
minu sjónarmiði, nei“.
„Hm. Auðvitað, býst ég við Hm.
Og hvaða ráðstafanir hefurðu svo
gert viðvíkjandi þessu? Tekurðu
inn læknislyf, eða reynii-ðu bara
að vinna bug á því með viljakraft
inum?“
„Hvort tveggja".
Fótatak heyrðist upp á loftið og
mannamál. Húsið virtist skyndi-
lega vakna af djúpum næturdvala
og fyllast lifi og hreyfingu, Töfra
sverð frá sólinni klauf hljóðlega
loftið, fyrir framan bláröndótt-
ar náttjakkaermar Gregorys og
smaug í gegnum flugnanetið, yfir
á hinn herbergisvegginn. Úti á
fljótinu fór bátur fram hjá og
það var kvenmaður undir árum.
„Læknirinn er í Ida Sabina, um
tveimur klst. ofar hjá fljótinu“.
„Mælið þið vegalengdirnar í
klukkustundum hérna?"
Séra Harmston hló. — „Venju-
legast gerum við það. Finnst þér
það kannske dálitið skrítið, eh?
Já, við tölum venjulega um tím-
ann sem það tekur að komast frá
einum staðnum til annars. Hér eru
Diesel
Framkvæmura víðgerðir á olíuverkum með fullkomn-
ustu tækjum og af æfðum fagmönnum.
Góð varahlutaþjónusta.
BOSCH umboðið á íslandi
BRÆÐURNIR ORMSSON H.F.
VESTURGÖTU 3
SlMI: 11467 (3 línur).
allar ferðir farnar á bátum. Við
höfum enga vegi og enga stíga,
sem liggja samhliða fljótinu, a. m.
k. ekki svo að nokkru nemi“.
„Mjög fróðlegt að heyra".
„En svo að ég víki nú aftur að
þvi, sem ég var að segja. Ef þú
þarft einhvern tíma að fá lyfseðl-
ana þína endurritaða, þá skaltu
bara afhenda mér þá og svo fæ
ég Buckmaster til að fara með þá
til Ida Sabina. Hann getur skropp
ið þangað í bátnum 'sinum. Hann
annast allan kolaflutning, já, og
timburflutning líka. Hann hefur
bækistöðvar hérna tíu mínútum
ofar við fljótið".
„Þakka þér fyrir. En ég held
að ég hafi nægar birgðir af með-
ulum, svona ryrst um sinn. Átta
flöskur og slatta í þeirri níundu".
„Átta flöskur". Augu séra
Harmston hvörfluðu yfir að
þvottaborðinu og virtust staðnæm
ast á mæliglasinu, sem stóð nálægt
stóru glerkönnunni. — „Ég sé
mæliglasið þitt — en færðu það
lyfseðilslaust?"
„Meðalið mitt? Nei“.
„Einhvers konar brómin-
blanda? Hvar geymirðu það?“
„Þai-na í stóru töskunni".
„Hvers vegna tekurðu flöskurn-
ar ekki upp úr henni? Ertu ekki
hræddur um að innihaldið kunni
að Ieka úr þeim og eyðileggja allt
sem í töskunni er?“
„Nei, það eru góðir og öruggir
tappar í öllum flöskunum. Nema
þeirri sem ég er að tæma núna.
Og ég gæti þess alltaf vel, að
ganga vel frá tappanum, í hvert
skipti sem ég opna einhverja flösk
una“.
„Hm“. Séra Ilarmston strauk
sér aftur urn vangann. — „Ég
ætlaði að koma með þá tillögu, að
þú létir mig sjá um lækninguna
á þér, að öllu leyti — ef aðeins er
un. taugabilun að ræða. Ef þú vilt
hlíta mínum ákvörðunum og að-
gerðum, þá er ég nokkurn veginn
viss um það, að ég muni geta ;om
ið þér í samt lag aftur. Hér lifum
við að meiru eða minna leyti
spartnesku lífi og ég held að eng-
inn taugasjúklingur myndi þola
að lifa spartnesku lífi og halda
áfram að vera taugaveiklaður".
„Já“. —
„Áttu við að þú sért þessu sam
þykkur? Viltu að ég geri tilraun
til að lækna þig?“
„Já“.
„Þú mátt auðvitað hakla áfram
að nota meðulin þín“.
„Já, ég mun gera það“.
„Hm. Klæddu þig nú og komdu
svo niður að borða morgunverðinn.
Klukkan er orðin sjö, svo að þú
verður að hafa hraðann á. — Já,
vel á minnzt. — Þakka þér fyrir
ávísunina, sem þú sendir í bréfinu
til Joan, drengur minn. Hún var
meira en nægileg".
„Viljið þér svo muna að biðja
mig um aðra, að þremur mánuðum
liðnum. Ég er svo gleyminn".
„Já, hafðu engar áhyggjur út
af því, drengúr minn. Hefði vilj-
að geta gefið þér fæðið og húsnæð
ið, en efnahagurinn er af skorn-
um skammti. Eins og þú hefur ef-
laust veitt athygli, þá er húsið
ekki svo mikið sem rnálað".
„Já, ég tók eftir því“.
Séra Harmston leit alvarlega á
Gregory: — „EkH svo að skilja,
að það sé okkur til mikils hugar-
angurs, þótt húsið sé ekki málað",
sagði hann stillilega. -—- „Það eru
gæði viðarins, sem skipta okkur
mestu máli, en ekki útlit þess“.
„Ég skil“.
„Ég efast nú satt að segja um
það“.
Gregory skalf.
„Hættu þessum skjálfta".
Skjálftinn hætti.
„Hm“, sagði séra Harmston.
Hann reis brosandi á fætur og
klappaði Gregory á öxlina. —
„Jæja, flýttu þér nú að klæða þig
og komdu svo niður. Ég á mjög
illt með að þola menn, sem koma
of seint að matborðinu".
Þegar séra Harmston var far-
inn, lolcaði Gregory dyrunum og
fór að klæða sig. Hann fór í hvít-
ar stuttbuxur og hermannaskyrtu,
hvita sokka og tennisskó (þannig
hafði liann ávallt klæðzt, er hann
dvaldi í Barbados). Svo opnaði
hann stóru töskuna, tók upp með-
alaflöskuna og hellti mæliglasið
næstum barmafullt.
Hann lét glasið á þvottaborðið
og ýtti flöskunni til hliðar, er
hann hafði fullvissað sig um, að
tappinn væri fastur. Hann lokaði
töskunni og stóð teinréttur, en
leit í kringum sig með leikaraleg-
um tilburðum, eftirvæntingarfull-
ur á svip og jafnvel örlitið kvíða-
fullur.
Hann þreif glasið og drakk inni
hald þess í einum teyg og brosti.
Litur færðist aftur um kinnar
hans. Hann fann til vellíðunar, en
aðeins líkamlegrar. Hugur hans
og sál þjáðust enn. Árvekni og
athygli umhverfisins dofnaði, —
en hvarf samt ekki. Hann vissi
að í næstu klukkustund myndi
hann reyna þá fróun, sem ylli því
að hann yrði eins og fólk er flest
bæði í augum annarra og sinum,
Hræðslan myndi ekki verða eins
áköf, löngunin til þess að fara út
úr sjálfum sér og rifa sig lausan,
ekki jafnsterk. ...
Spegillinn og rúmið, rennandi
saman við hið ofna mistur nets-
ins .... Stappið, trampið á því —•
blautu, rauðu, sogandi manns-
hjarta, yfirfullu af blóði! Særið
það. Kremjið það í flakandi hold-
tætlur! Hann greip með þumal-
fingri og visifingri um kverkar sér
og kæfði niðri ópið, sem vildi brjót
ast út.
Kastið leið hjá, eins og það hafði
komið — skyndilega og leiftur-
snöggt — eins og alltaf.
Hann þvoði mæliglasið vandlega
og setti það hjá vatnskönnunni á
þvottaborðið. Svo þvoði hann sér
í framan og burstaði hárið og
meðan hann var að athuga kjálk-
ana á sér, í speglinum á snyrti-
borðinu og telja sjálfum sér trú
um, að hann þyrfti ekki að raka
sig í þetta skiptið, tók hann aftir
einhverju Ijósrauð-röndóttu, sem
einna helzt líktist kvenmannsflík,
er lá í böggli undir rúminu hans.
Hann horfði á þetta stundarkorn,
undrandi og forvitinn, en ákvað
svo að rannsaka það ekki nánar.
Því næst gekk hann út úr herberg
inu.
Inni í dagstofunni rakst hann á
Oliviu, sem var einmitt að koma
út úr aftjaldaða stofuhorninu,
þa- sem þeir Berton og Gravey
höfðu sofið um nóttina. Hún kom
fast að honum og hvíslaði:
„Mér þykir svo vænt um, að þú
skyldir muna eftir einkennisorð-
inu okkar. Berton þótti líka vænt
um það“.
„Og mér þykir vænt um, að ég
skyldi muna eftir því“, sagði hann
alvarlegur í bragði.
„Þú hefur verið að drekka viski.
Ég finn það á lyktinni".
„Johnnie Walker", samsinnti
hann og kinkaði kolli. — „Það
er meðalið mitt“.
Ilún greip í hönd hans: — „Nú
skulum við koma inn í borðstof-
una“, sagði hún. — „Morgunverð-
urinn bíður á borðinu".
ÚTSAL
Kaupið ódýrar vörur á útsölunni hjá okkur
Aðeins tveir útsöludagar eftir
Ohftnpus
Laugaveg 26
MARKÚS
Eftir Ed Dodd
1) Enn klifra þeir upp í hálf-
tíma. Nú er Markús kominn í
300 metra f jarlægð. I að miða byssunni kemur fjór- | 3)—Fjallahafurinn verður
2) En rétt þegar Markús setlarl fsettur veiðari í ljós hinum meginl við úlfinn og hleypur á brott.
var
aiíltvarpiö
Fimmludugur ló. janúar:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50 „Á frívaktinni", sjómanna-
þáttur (Guðrún Erlendsdóttir). —
18,30 Fornsögulestur fyrir börn
(Helgi Hjörvar). 18,50 Framburð
arkennsla I frönsku. 19,05 Har-
monikulög (plötur). 20,30 „Víxlar
með afföllum", framhaldsleikrit
fyrir útvarp eftir Agnar Þórðar-
son; 1. þáttur. — Leikstjóri: Bene
! dikt Ái-nason. Leikendur: Herdís
Þorvaldsdóttir, Búrik Haraldsson,
Árni Tryggvason og Flosi Ólafs-
son. 21,15 Tónleikar (plötur). —-
21,45 Islenzkt mál (Ásgeir Blönd-
j al Magnússon kand. mag.). 22,10
j Erindi með tónleikum: Baldur
Andrésson kand. theol. talar öðru
sinni um Johann Sebastian Bach.
23,00 Dagskrárlok.
Fösludagur 17. janúar:
Fastir liðir eins og venjulega.
13,15 Lesin dagskrá næstu viku.
18.30 Börnin fara í heimsókn til
merkra manna (Leiðsögumaður:
Guðmundur M. Þorláksson kenn-
ari). 18,55 Framburðarkennsla í
esperanto. 19,05 Létt lög (plötur).
20.30 Daglegt mál (Árni Böðvars-
son kand. mag.). 20,35 Erindi: —
Merkilegt þjóðfélag (Vigfús Guð-
mundsson gestgjafi). 20,55 íslenzk
tónlistarkynning: Verk eftir
Fjölni Stefánsson. — Flytjendur:
Guðrún Á. Símonar, Þuríður Páls
dóttir, Guðmundur Jónsson, Ernst
Normann, Egill Jónsson, Hans
Ploder, Ingvar Jónasson og Gísli
Magnússon. Fritz Weisshappel
býr tónlistarkynninguna til flutn-
ings. 21,30 Útvarpssagan: Kaflar
úr „Sögunni um San Michele", eft
ir Axel Munthe (Karl ísfeld rit-
höfundur). 22,10 Erindi: Saga
frímerkisins (Sigurður Þorsteins-
son bankamaður). 22,35 Frægar
hljómsveitir (plötur). 23,15 (plöt-
ur). —