Morgunblaðið - 16.01.1958, Page 19
Fimmtudagur 16. janúar 1958
MORCVNTÍL4Ð1Ð
19
hér í Reykjavík undir forystu
Sjálfstæðismanna. Vinstri flokk-
arnir leggja hins vegar áherzlu
á, að ríki og bær byggi íbúðir
og leigi þær. Þeir vilja með
öðrum orðum, að einstaklingarn-
ir séu leiguliðar hins opinbera,
háðir valdhöfunum.
Sjálfstæðismenn vilja bygging
arfrelsi og bera virðingu fyrir
eignaréttinum og ráðstöfunarrétti
einstaklinga á eigin eignum.
Vinstri flokkarnir vilja innleiða
á ný og herða byggingarhöft, og
þeir eru andvígir eignarrétti og
óskertum ráðstöfunarrétti. —
Sjálfstæðismenn vilja leysa úr
húsnæðisskortinum með því að
byggja meira og auka framboð
á húsnæði. Vinstri flokkarnir
eiga aðeins úrræði eins og
skömmtun, höft og hömlur og
allsherjar ríkisíhlutun með þeirri
frelsisskerðingu, sem henni fylg-
ir.
Þetta er það, sem bíður okkar
í húsnæðismálunum eftir kosn-
ingarnar. Við skulum minnast
þess, að vígi einstaklingsfrelsis-
ins, Reykjavík, væri fallið, ef
Sjálfstæðismenn misstu meiri-
hluta í bæjarstjórn. Þá væru nú-
verandi stjórnarherrum lítil tak-
mörk sett og úrræði þeirra eftir
kosningarnar yrðu harðræði. Það
eru 10 dagar til kosninga. Enginn
má liggja á liði sínu, atkvæði
okkar hinn 26. janúar er í raun
og veru tvígilt. Við skulum kjósa
góða bæjarstjórn og fella slæma
ríkisstjórn.
Togarinn Gerpir
með bilaða vél
í hafi
ENN hefur orðið vélbilun 1 tog-
aranum Gerpi frá Norðfirði, og
liggur hann nú ósjálfbjarga djúpt
út af Norðfirði, og bíður þess að
verða dreginn til hafnar á Norð-
firði.
Vélbilunin mun hafa orðið
snemma í gærmorgun. Mun tog-
arinn þá hafa verið að veiðum
staddur 60—70 mílur út ai Norð-
firði. Orðið hafði bilun á legu
jnilli gírs og „kúblingar“. Mun
vélstjórinn eindregið hafa ráð-
lagt að reynt yrði að komast til
hafnar þrátt fyrir hina biluðu
legu við gírinn.
ísafjarðartogarinn fsborg mun
fara togaranum Gerpi til hjálpar.
Munu Almennar tryggingar h.f.,
sem tryggir Gerpi, hafa gert
samninga við ísfirðing h.f. eig-
endur togarans ísborgar um björg
unina. Er ísborg nú sennilega á
leið til togarans. Hún er annars
á leið til Færeyja að sækja þang-
að sjómer.n.
Mun ísborg draga Gerpi til
Neskaupstaðar, síðan halda för-
inni áfram til Færeyja, en koma
svo við í Neskaupstað í bakaleið-
inni og taka þá Gerpi í drátt alla
leið til Reykjavíkur.
Gerpir er nú fyrir skömmu
kominn til landsins aftur eftir
um það bil mánaðar-viðgerð á
vél í Þýzkalandi. Þetta er í þriðja
skiptið sem alvarleg vélbilun
hefur orðið í togaranum.
Þess skal að lokum getið, að
veður mun vera gott á þeim slóð
um, sem Gerpir er.
Leiðrétting i sam-
bandi við fjár-
málaráðuneytið
í FRAMHALDI af grein um stöðu
veitingar í fjármálaráðuneytinu
og fleira í því sambandi, sem
birtist í Morgunblaðinu í gær,
skal þess getið, að Einar Ágústs-
son, formaður Framsóknarfélags
Reykjavíkur og frambjóðandi
flokksins við bæjarstjórnarkosn-
ihgarnar, er nú horfinn úr fjár-
málaráðuneytinu yfir í Sam-
bandshúsið og orðinn starfsmað-
ur S.Í.S. í hans stað hefur svo
verið ráðinn í fjármálaráðuneyt-
ið, Björn nokkur Hermannsson,
sem var fyrrum erindreki Fram-
sóknarflokksins á Norðurlandi.
Þessi skekkja stafar af því, að
í greininni var farið eftir því sem
stendur í símaskránni varðandi
ráðuneytið, en þessi breyting hef
ur ekki komizt inn i skrána.
Breytir það hins vegar engu um
þann „lit“, sem er á mannaráðn-
ingum í ráðuneytinu. Er ráðu-
neytið beðið að afsaka, að ekki
skyldi vera getið um Björn Her-
mannsson og tilflutning Einars.
í sjávarháska
LONDON, 15. jan. — 15.000 smál.
norskt olíuflutningaskip, brota-
aði í morgun í tvennt í ofviðri á
Miðjarðarhafi, skammt austur af
Gibraltar. Hollenzkt skip bjarg-
aði 28 manns af aftari hluta
skipsins, en þegar síðast fréttist
höfðust 10 manns við á fremri
hluta þess. Dráttarbátar og björg
unarskip lögðu í dag upp frá
Mallorca til aðstoðar. Skipið var
á leið til Barcelona.
ER síðast fréttist hafði tekizt að
bjarga sjö mönnum af framhluta
skipsins. Voru það skipverjar á
ítölsku kaupfari, sem unnu þetta
frækilega björgunarafrek, en
veðurofsi er nú mikill á þessum
slóðum og sjór mjög ókyrr. —
Þriggja af áhöfn norska skipsins
er saknað. Er það skipstjórinn og
tvær þjónustustúlkur. Eru lík-
indi talin til þess að þau hafi
drukknað.
Pólitískt uppeldi
í hernum
LONDON 15. jan. — Tilkynnt
hefur verið, að þær breytingar
hafi nú verið gerðar á skipan
Rauða hersins, að yfirstjórn mál-
efna liðsforingja hersins hefur
verið færð úr hermálaráðuneyt-
inu — til aðalstöðva kommún-
istaflokksins. Er þar með útkljáð
deila sú, er var með Zhukov
og leiðtogum flokksins í hernum,
en Zhukov var sakaður um að
hafa dregið taum atvinnuher-
manna en ekki sinnt flokksfull-
trúunum næglega vel. Er jafn-
framt ákveðið, að liðsforingjar
sæki mánaðarlega 60 kennslu-
stundir í stjórnfræði og stjórn-
málum.
WASHINGTON, 15. janúar. —
Tilkynnt var í Washington í dag,
að Bandaríkjamenn gætu innan
tíðar sent út í geiminn gervi-
hnött, sem munii ætlað að gera
ýmsar athuganir á tunglinu.
— Bulganin
Frh. af bls. 1.
sannfæring vor, herra forsætis-
ráðherra, að hið ríkjandi ástand
í alþjóðamálum er hvorki í sam-
ræmi við hagsmuni íslands né
annarra Norðurlanda“. 1 því sam-
bandi er bent á það í bréfinu,
að Norðmenn og Danir vilji ekki
leyfa staðsetningu kjarnorku-
vopna eða eldflaugastöðva í
löndum sínum. Mundu friðai-
horfurnar vænkast, ef hægt yrði
að mynda í norðanverðri Evrópu
svæði, sem hefði engin kjarn-
orkuvopn að geyma.
„Yér höfum einnig athugað þá
yfirlýsingu, sem þér hafið ný-
lega gert, þess efnis, að stefna
íslenzku rikisstjórnarinnar sé
„andstæð því að leyfa nokkra
hersetu á íslandi á friðartímum"
Það leikur tæplega nokkur vafi
á því, að framkvæmd slíkrar
stjórnarstefnu er í samræmi við
áhugamál hinna frelsisunnandi
Islendinga, kjark þeirra og dugn-
að, sem vakið hefur djúpa virð-
ingu Sovétríkjanna.
Að þessu athuguðu teldi ég það
enga hreinskilni, herra forsætis-
ráðherra, að benda yður ekki á
þá sta^reynd, að á landsvæði svo
friðelskandi lands, sem ísland er,
lands sem hefur engan her, er
staðsett mikil erlend herstöð. Sá
möguleiki að staðsetja kjarn-
orkuvopn í þessari herstöð er
e. tv v. alls ekki útilokaður, en
sú staðreynd setur íslenzku þjóð-
ina í hættu, sem engan veginr.
er smávægileg. Enda þótt ís-
lenzka ríkisstjórnin hafi ekki
gefið neina skýra yfirlýsingu í
þessu efni, þá er þess að gæta
að yfirlýsingar hafa heldur ekki
verið gefnar um það, að ísland
muni hafna staðsetningu erlendra
kjarnvopna og eldflauga“, segir
Bulganin. Kveðst hann hafa
nefnt þetta vegna samþykktar-
innar, sem gerð var á Parísar-
fundinum um að NATO-löndir
komi upp birgðum kjarnorku-
vopna og setji upp eldflauga-
stöðvar. Slíkt mundi leiða hættu
yfir viðkomandi ríki, segir Bulg-
anin, því að hættan á gagnárás
væri alltaf fyrir hendi, „ef að
svo færi, að herstjórn NATO-
ríkjanna gripi til kjarnvopna
gagnvart Sovétríkjunum eða öðr-
um friðelskandi ríkjum“.
Þá segir Bulganin, að miki1
hætta sé því samfara að komið
verði upp birgðum kjarnorku-
vopna í NATO-ríkjum — og að
þar séu staðsettar flugvélar, sem j
hafa kjarnorkusprengjur innan-
borðs. „Það er vandalítið að i
gera sér grein fyrir, hversu mik-
il hætta er bökuð íbúum slíkra
landa þar sem loftið er þrungið
véladyn amerískra flugvéla nótt
sem nýtan dag — véla, sem bera
gereyðandi vopn. Það getur raun-
ar farið svo, að flugmaður felli
kjarnorku- eða vetnissprengju á
landsvæði einhvers lands af a-
stæðum, sem ekki er að kenna
illum ásetningi, heldur orsakast
af misskilningi á fyrirskipunum
eða truflun á geðsmunum." —
Slíkt flug með kjarnorku- og
vetnissprengjur yfir Evrópu tel-
ur Bulganin vera þátt í aðgerð-
um, sem beint sé gegn Sovét-
ríkjunum — „og öðrum friðelsk-
andi þjóðum“.
Þá brýtur Bulganin upp á aðal-
tilgangi bréfsins — og leggur
til að fundur ríkisleiðtoga verði
boðaður innan tveggja til þriggja
mánaða. Aðalumræðuefni slíks
fundar telur Bulganin að verði
bann við tilraunum með kjarn-
orku- og vetnisvopn, griðasátl-
mála NATO og Varsjárbanda-
lagsins, svo og afvopnunarmálin.
Umræður allar skuli miða að
því að lægja öldurnar í alþjóða-
málum, enda þótt ekki sé hægt
að vænta þess að fullt samkomu-
lag náist. Segir Bulganin, að
Sovétríkin hafi afrekað drjúgt i
friðarmálunum og í því sambandi
telur hann upp „fáeinar ráðstaf-
anir, sem Sovétríkin hafa gert
nýlega". Meðal þeirra „ráðstaf-
ana“ er vopnahlé í Kóreu og
Viet-Nam, afnám hernaðarað-
gerða í Egyptalandi og komið í
veg fyrir hernaðaraðgerðir gegn
Sýrlandi. Bætir Bulganin því og
við, að Sovétríkin minnki nú her-
afla sinn, tími sé til kominn fyrir
NATO-ríkin að sýna slíkan frið- ]
arvilja í verki. Friðarbarátta
Sovétríkjanna er á Vesturlönd-
um kölluð áróður, segir Bulg-
anin. „Sá áróður, sem vér raun-
ar höfum uppi, er áróður fyrir
hugsjón friðarins og friðsamlegri
sambúð, áróður gegn lausn á-
greiningsmála með valdbeit-
ingu“.
Hvað viðvíkur fundi æðstu
manna, segir Bulganin, að engin
vissa sé fyrir því, að jákvæður
árangur nseðist á utanríkisráð-
herrafundi, en sem kunnugt er
hafa Vesturveldin sum gert það
að skilyrði fyrir ríkisleiðtoga-
fundi, að utanríkisráðherrar
fjalli um málin fyrst. Telur
Bulganin því lítið gagn í fundl
„lægra settra manna“. Kveðst
Bulganin vona, að forsætisráð-
herra og ríkisstjórn íslands séu
honum sammála um það, að
virkra aðgerða sé þörf til að
bæta ástandið í alþjóðamálum
Segir, að Sovétstjórnin sé reiðu-
búin að styðja allar tillögur, sem
miða að því að lægja spennuna
sem nú ríkir í alþjóðamálum,
jafnframt því, sem ríkisstjórn ís-
lands er hvött til þess að styðja
það, að fundur ríkisleiðtoga verð’
kvaddur saman. Að lokum lætur
Bulganin þess getið, að Sovét-
stjórnin muni hugleiða athuga-
semdir og tillögur þær vandlega
sem ríkisstjórn íslands telþ.
ástæðu til að leggja fyrir hann.
Eisenhower heilsugóður
WASHINGTON 15. jan. — Á
blaðamannafundi Eisenhowers í
dag skýrði forsetinn svo frá. að
hann hefði ekki haft í hyggju að
láta af embætti í nóvember s.l„
er hann varð veikur vegna æða-
stíflu í höfði. Ef ráðunautar hans,
læknar og fleiri, ráðlegðu hon-
um hins vegar að láta af em-
bætti sakir heilsubrests, mundi
hann gera svo. En ekki kvaðst
Eisenhower kenna neins lasleika
nú. Hann væri stálhraustur og
líðanin hin bezteu
Hann var spurður að því hvort
satt væri, að Dulles hefði beðizt
lausnar, en hann forsetinn, neitað
honum um lausn frá embætti.
Kvað Eisenhower Dulles vera
einn mesta hæfileika- og starfs-
mann, er hann hefði kynnzt. Fáir,
eða enginn annar, stæði jafnvel
í stöðu sinni í þjónustu við Banda
ríkin og einmitt Dulles, og sagðist
Eisenhower sízt mundu vilja
missa Dulles úr stjórn sinni.
Hotel Kongen af Danmark — Köbenhavn
HOLMENS KANAL 15 C. 174
1 miðborginni — rétt við höfnina.
Herbergi með morgunkaffi frá dönskum kr. 12.00.
Eiginkona mín
ANNA PÉTURSDÓTTIR HJAUTESTED
lézt 6. þ.m., og hefur útför hennar farið fram.
Björn Vigfússon.
Útför mannsins míns og föður okkar
ÁGÚSTS STEINGRÍMSSONAR
byggingafræðings
fer fram frá Fríkirkjunni föstudaginn 17. þ. m kl. 1,30 e.h.
Blóm afþökkuð.
Athöfninni verður útvarpað.
Friðrikka Benónýsdóttir
og synir.
Jarðarför eiginkonu minnar og móður okkar
INGIBJARGAR ÓLAFSDÖTTUR
fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 17. þ.m. kl. 1.30.
Markús Bjarnason, Guðrún Markúsdóttir,
Ólafur Markússon, Elísabet Markúsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
VILHJÁLMS SVEINSSONAR
prentara.
Sérstakar þakkir færum við prentsmiðjustjóra og starfs
fólki Ríkisprentsmiðjunnar Gutenberg og stjórn prentara-
félagsins.
Dagmar Gunnarsdóttir,
Ásgeir Ólafsson,
Gunnar Isleifsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför móður okkar
GUÐBJARGAR JÖNSDÓTTUR
frá Stykkishólmi
Börn hinnar látnu.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför systur okkar
GUNNHILDAR MÖLLER
Ingólfsstræti 10.
F.h. fjarstaddrar dóttur hennar.
Þóra Möller, Ásgeira Möller, Magnús MöIIer,
Margrét Theódórsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir vinarhug og samúð við andlát og
útför
SIGURRÓSAR BENJAMÍNSDÓTTUR
Skúlagötu 66
Börn, tengdadætur og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við ándlát og
jarðarför móður minnar
HELGU GÍSLADÓTTUR
Fyrir hönd vandamanna.
Helgi G. Eyjólfsson.
Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug við and-
lát og jarðarför
JÓNFRlÐAR G. HELG AÐÓTTUR
Aðstandendur.