Morgunblaðið - 28.01.1958, Qupperneq 1
Bæjarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, aðalfulltrúar og varafulltrúar. Myndin er tekin í Sjálfstæðishúsinu síðdegis í gær. í fremri röð eru aðal-
fulltrúarnir (talið frá vinstri): Magnús Jóhannesson, Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Guðmundur H. Guðmundsson, Auður Auðuns, Gunnar
Thoroddsen, Gróa Pétursdóttir, Geir Hallgrímsson, Einar Thoroddsen, Björgvin Frederiksen, Gísli Halldórsson. Aftari röð (varafulltrúarn-
ir): Ingvar Vilhjálmsson, Úlfar Þórðarson, Þorbjörn Jóhannesson. Höskuldur Ólafsson, Kristján J. Gunnarsson, Friðleifur I. Friðriksson, Þór
Sandholt, Páll S. Pálsson, Guðjón Sigurðsson. Á myndina vamar Gunnar Helgason. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.).
Þjóðin svarar vinstri stjórninni:
Stórsigur Sjálfstæðis-
manna í kosningunum
Unnu tvö sæti í Reykjavík og meirihluta í
Vestmannaeyjum, Keflavík, Sauðár-
króki og Sfykkishólmi
HEILBKIGÐ DÓMGBEIND almennings sigraði í hæjar-
og sveitarstjórnarkosningunum á sunnuciaginn. Niðurstaðan
varð stórfelldur sigur Sjálfstæðismanna víðs vegar um
land, en rnikill ósigur vinstri-stjórnarflokkanna. Má segja
að Sjálfstæðisflokkurinn hafi í þessum kosningum unnið
cinn mesta kosningasigur, sem unninn ltefur verið hér á
landi, í senn í Reykjavík og um allt land. Þessi kosninga-
úrslit voru bæði traustsyfirlýsing við forystu Sjálfstæðis-
manna í einstökum bæjar- og sveitarfélögum og vantraust á
stefnu vinstri stjórnarinnar í landsmálum. I Reykjavík unnu
Sjálfstæðismenn stórkostlegan sigur. Vann flokkurinn þar
tvö sæti í bæjarstjórn og hlaut 10 bæjarfulltrúa kjörna og
57,7% kjósenda. Þá unnu Sjálfstæðismenn meirihluta í bæj-
arstjórn þriggja kaupstaða: Vestmannaeyja, Keflavíkur og
Sauðárkróks. Ennfremur hlaut flokkurinn meirihluta í bæj-
arstjórn Ólafsfjarðar, sem hann hafði áður haft.
Meðal kauptúna, sem hann
vann mikinn sigur í má nefna
Stykkishólm, þar sem hann
hlaut hreinan meirihluta. I
hinum 14 kaupstöðum, sem
kosið var í hlutu Sjálfstæðis-
menn 28,130 atkvæði og 51,2%
atkvæða í stað 45% atkvæða
árið 1954 er bæjarstjórnar-
kosningar fóru síðast fram.
Er hér um að ræða stórkost-
lega fylgisaukningu Sjálf-
stæðismanna.
I kaupstöðunum og kaup-
túnum þeim, sem kosið var í,
hlutu Sjálfstæðismenn sam-
tals 30788 atkvæði, en allir
andstæðingar þeirra og óháðir
listar samtals 30349 atkvæði.
Hafa Sjálfstæðismenn þannig
hlotið hreinan meirihluta at-
kvæða í kaupstöðum og kaup-
túnum landsins. Er hér um að
ræða einstæðan kosningasig-
ur.
Sjálfstæðismönnum er ljóst
að mikill fjöldi fólks úr öðr-
um flokkum og ópólitískra
manna hefir snúizt á sveif
með þeim í þessum kosning-
um. Fyrir Þessa liðveizlu
þakka þeir af heilum hug um
leið og þeir heita því að vinna
af alefli að framkvæmd hags-
munamála almennings.
Sigur Sjálfstæðismanna
í Reykjavík
í Eeykjavik urðu úrslit bæjar-
stjórnarkosninganna sem hér
segir:
A-listi Alþýðuflokkur 2860 at-
kvæði (8,2%). Bæjar-
stjórnarkosningar 1954
4274 (13,5%). Alþingis-
kosningar 1956 (18,8%)
uúræðslubandalag).
B-listi Framsóknarflokkur 3277
autvæði (9,5%). Bæjar-
stjórnarkosn. 1954 2321
tY,4%). Alþingiskosning-
ar 1956 sjá Hræðslu-
^ciidalag.
D-listi Sjálfstæðisflokkur 20027
atKvæði (57,7%). Bæjar-
stjórnarkosn. 1954 15642
Frumhald á bls. 2.