Morgunblaðið - 08.02.1958, Síða 14
14
MORGVl\ BLAÐIÐ
Laugardagur 8. febrúar 1958
— Svar Hermanns
Frh af bls 1
Jiessi fjalla um svipuð málefni,
finnst mér hlýða að svara þeim
báðum í senn.
■ Eg vil fyrst byrja á því að
þakka yður fyrir viðurkenning-
arorð yðar um friðarvilja fslend-
inga. Ég dreg ekki í efa friðar-
vilja neinnar þjóðar, en ég efast
um, að friðarviljinn eigi nokk-
urs staðar dýpri rætur en meðal
islenzku þjóðarinnar. Því veldur
meðal annars, að íslendingar hafa
aldrei átt í vopnuðum ófriði við
neina þjóð og hafa ekki svo að
öldum skiptir haft vopn um hönd
til að útkljá deilumál innbyrðis.
íslendingar kunna því að meta,
hve mikilsvert það er, að deilur
~éu leystar án vopnaburðar.
Þessi friðarvilji íslendinga
.mm glöggt í ljós, þegar ísland
endurheimti sjálfstæði sitt 1918.
Þá var lýst yfir því, að ísland
myndi ekki hafa lier og myndi
veroa ævarandi hlutlaust. Það
var þá einlæg von íslendinga, að
land þeirra myndi haldast áfram
utan hernaðarátaka stærri þjóða,
eins og verið hafði öldum saman,
og hlutleysi myndi því nægja
landinu til öryggis. Síðari heim-
styrjöldin leiddi hins vegar áþreif
anlega í ljós, að ný tækni hafði
gert ísland hernaðarlega þýðing-
armikið á stríðstímum. ísland
var því hernumið strax á fyrsta
stríðsárinu, og var með því sýnt,
að hlutleysið veitti ekki íslend-
ingum lengur öryggi frekar en
svo mörgum öðrum. íslendingar
iærðu af þessari reynslu, að þeir
yrðu í framtíðinni að reyna að
tryggja öryggi sitt með öðrum
hætti. 1 samræmi við það var
gerður varnarsamningur við
Bandarikin 1941. Árið 1946 gerð-
' ist ísland svo aðili að Samein-
uðu þjóðunum í trausti þess, að
þannig yrði öryggi þess bezt
tryggt. Því miður hafa Samein-
uðu þjóðirnar enn ekki náð þeim
viðgangi, að þátttaka í þeim
veiti smáríki nægilegt öryggi.
Með tilliti til þess gerðist ísland
aðili að Atlantshafsbandalag'nu
1949, eftir að hafa kynnt sér
vandlega, að þar var um hrein
varnarsamtök að ræða, en lega
landsins og margvíslegur skyld-
leiki við hinar bandalagsþjóðirn-
ar gerði þátttöku íslands eðlilega
í þessum samtökum. Tveimur
árum siðar gerði ísland svo í
samræmi við sáttmála Atlants-
hafsbandalagsins varnarsamning
við Bandaríkin vegna mjög ugg-
vænlegs útlits, sem þá var í al-
þjóðamálum.
í sambandi við allar þær ákvarð
anir íslendinga, sem greindar
eru hér að framan, hefur ein-
lægur friðarvilji og frelsisvilji
þeirra komið glöggt í ljós. Þair
hafa jafnan tekið fram, að þair
vildu ekki hafa eigin her, ekki
taka þátt í hernaðaraðgerðum
gegn öðrum þjóðum, ekki segja
öðrum þjóðum stríð á hendur, og
ef þeir leyfðu erlendum her dvöl
í landinu, væri það eingöngu gert
í varnarskyni. Þessi afstaða
þeirra var t. d. greinilega mörk-
uð við inngöngu íslands í Atlants
hafsbandalagið. Jafneindregið
hafa og íslendingar markað þá
afstöðu sína, að þeir muni ekki
leyfa erlendum her landvist á
friðartímum. Þetta var markað
glögglega í varnarsamningnum
við Bandaríkin 1941, þar sem tek
ið var fram, að hinn erlendi her
skyldi hverfa strax af landi burt
í stríðslokin. Þetta var áréttað
við inngöngu íslands i Samein-
uðu þjóðirnar o genn vandlegar
við inngöngu íslands í Atlants-
hafsbandalagið. Þetta var enn á
ný áréttað 1951, þegar síðari
varnarsamningurinn við Banda-
ríkin var gerður. í samræmi við
þetta óskaði líka Aiþingi 28.
marz 1956 eftir endurskoðun
samningsins með brottflutning
hersins fyrir augum, þar sem
friðarhorfur höfðu þá farið batn-
andi um skeið. Vegna óvæntra
og hörmulegra atburða, sem gerð-
ust haustið 1956, óx uggur og
óvissa í alþjóðamálum svo að
nýju, að sjaldan hafa horfur ver-
ið uggvænlegri, og voru því til-
mælin um endurskoðun samn-
ingsins afturkölluð. Ósk þessi
hefur ekki verið endurnýjuð
vegna hins „alvarlega ástands,
sem nú ríkir, og vaxandi ófriðar-
hættu“, eins og þér lýsið ástandi
alþjóðamála í upphafi bréfs yðar
12. desember. En engir myndu
fagna meira en íslendingar batn-
andi friðarhorfum, sem gerðu
erlenda hersetu óþarfa í landi
þeirra.
í bréfi yðar frá 8. janúar 1958
ræðið þér nokkuð um herstöð
Bandaríkjanna á íslandi og seg-
ið í því sambandi, að íslenzka
ríkisstjórnin hafi ekki gefið
neina skýra yfirlýsingu um það,
hvort staðsetning kjarnvopna
eða eldflauga yrði leyfð á fs-
landi. í tilefni af þessu þykir
mér rétt að vekja athygli yðar
á yfirlýsingu, sem íslenzka ríkis-
stjórnin birti 7. maí 1951, þegar
varnarsamningurinn við Banda-
ríkin var gerður, en þar segir
orðrétt:
„Óþarft er að taka það fram,
svo sjálfsagt sem það er, að ráð-
stafanir þessar (þ. e'. ráðstafanir
þær, sem rætt er um í samningn-
um) eru eingöngu varnarráðstaf-
anir. Aðilar samningsins eru sam-
sála um, að ætlunin er ekki að
koma hér upp mannvirkjum til
árásar á aðra, heldur eingöngu
til varnar“.
Sú afstaða íslands, sem hér
kemur fram, er að sjálfsögðu ó-
breytt enn. Þessi afstaða leiðir
eðlilega til þess, að hér verða
ekki leyfðar stöðvar fyrir önnur
vopn en þau, sem íslendingar
telja nauðsynleg landi sínu til
varnar. Um kjarnorku- eða eld-
flaugastöðvar á íslandi hefur
aldrei verið rætt og engin ósk
komið fram um slíkt.
Þér minnist á það í bréfi yðar
12. desember, að hugsanlegt sé að
veita íslandi öryggi í formi
„tryggðs hlutleysis“ og .muni
stjórn yðar fús til að styðja til-
lögur, sem kynnu að koma fram
um það. Jafnframt og ég þakka
stjórn. yðar þann hug til íslands,
sem hér kemur fram, vil ég vekja
athygli yðar á því, að samkvæmt
því, sem er rakið hér á undan,
hafa íslendingar komizt að þeirri
niðurstöðu, að öryggi íslands
verði að óbreyttum aðstæðum
bezt tryggt með þátttöku í At-
lantshafsbandalaginu, enda séu
þau samtök helzta trygging þess,
að friður haldist, meðan ekki
næst samkomulag um bætta sam-
búð stjórþjóð og verulega afvopn
un.
í framhaldi af þessu finnst mér
ekki úr vegi að minna á nokkur
ummæli yðar í bréfinu frá 12.
desember. Þér segið í upphafi
bréfsins:
„Færi svo, að styrjöld brytist
út til bölvunar öllu mannkyni, þá
er það víst, að ekkert ríki, smátt
eða stórt, getur talið sig öruggt“.
Þér segið ennfremur nokkru
síðar í bréfinu:
„Það væri þó háskaleg blekk-
ing að ímynda sér, að nú á tím-
um yrði hægt að takmarka styrj-
öld við tiltekið svæði. Hafi báðar
heimsstyrjaldirnar hafizt með
staðbundnum hernaðargerðum,
þá er enn síður ástæða til að
ætla, að með þróun hertækninn-
ar verði hægt að koma í veg fyr-
ir, að hernaðarsvæðin breiðist
út“.
Þessi ummæli yðar, herra for-
sætisráðherra, sem eru vafalaust
hárrétt, benda vissulega til þess,
að á stríðstímum yrði hlutleysi
lítil vernd íyrir land, sem hefur
jcfnmikla hernaðarlega þýðinga
og ísland. Lega íslands er slík,
að íslendmgurn er það rneira hags
munamái en nokkuð annað, að
ekki komi lil sryrjalda •. Að ó-
breyttum aðstæðum eiga þeir þ ví
samstöðu með þeim samtökum,
sem frá sjónarmiði þeirra eru nú
helzta trygging þess, að friður
haldist.
Af sömu ástæðum er það jafn-
mikið hagsmunamál íslendinga,
að sambúð stórveldanna batni og
friðurinn í heiminum komist á
traustari grundvöll, því að vopn-
aður friður verður aldrei tryggur
og óhcpp og ill atvik geta leitt tii
þeirrar tortímingar, sem allir
vilja þó forðast. Þess vegna fagna
íslendingar sérhverju frumkvæði
sem beinist að því að finna betri
skipan á sambúðarháttum stór-
veldanna en þá sem nú er. Afþess
um ástæðum fögnuðu íslendingar
þeirri ákvörðun nýlokins fundar
Atlantshafsbandalagsins, að gerð
ar yrðu nýjar tilraunir til að
bæta sambúðina milli austurs og
vesturs, t.d. með fundi utanríkis
málaráðherra. Af sömu ástæðum
tel ég mér líka fært að lýsa stuðn
ingi við tillögur ríkisstjórnar
Sovétríkjanna um fund æðstu
manna nokkurra ríkja, enda
verði ekki rasað um ráð fram við
undirbúning hans. Mörg rök
hníga að því, að gott gæti leitt
af slíkum fundi, en þó því aðeins
að hann verði svo vel undirbú-
inn, að árangur verði af störfum
hans og hann valdi því ekki von-
brigðum, er gætu orðið til þess
að auka viðsjár á ný. Af þessum
ástæðum virðist heppilegt, enda
virðist ekkert því til fyrirstöðu,
að samræma tillögur Atlants-
hafsbandalagsins og Sovétríkj-
anna, t.d. með því að halda fund
utanríkismálaráðherranna, fyrst
eða undirbúa fundinn eftir diplo-
matiskum leiðum. Það er að sjálf
sögðu samningsatriði, hve fjöl-
menn ráðstefna æðstu manna
eigi að vera.
Ég tel ekki rétt að þessu sinni
að ræða sérstaklega þær tillögur,
sem þér ræðið um í bréfum yðar,
að heppilegt myndi verða að
leggja fyrir slíkan fund. Tillög-
ur þessar snerta flestar meira
önnur ríki en ísland, og er æski-
legt að heyra undirtektir þeirra,
áður en endanleg afstaða er tek-
in til tillagnanna. Sennilega
koma þau með einhverjar gagn-
tillögur. Því virðist eðlilegt, að
reynt verði að samræma nokkuð
sjónarmiðin, áður en fundur
æðstu manna er haldinn, því að
það væri líklegt til að tryggja
betri árangur af störfum hans.
Þótt ég ræði ekki umræddar
tiilögur yðar frekar að svo stöddu
vil ég taka skýrt fram, að það er
skoðun þjóðar minnar, að allar
tillögur, sem geta leitt til betri
sambúðar þjóða og afvopnunar,
beri að athuga vandlega. Eðlilegt
virðist, að slík athugun fari m.a.
fram á vegum Sameinuðu þjóð-
anna, og ber því að vænta, að
stjórn yðar sjái sér fært að taka
sem fyrst aftur þátt í störfum af-
vopnunarnefndar Sameinuðu
þjóðanna.
Mér er það mikil ánægja að
taka undir ummæli yðar um góða
sambúð og samskipti milli ís-
lands og Sovétríkjanna á undan-
förnum árum. Ég get fullvissað
yður um, að íslendingar bera
hlýjan hug til þjóða Sovétríkj-
anna og hafa áhuga á að fylgjast
með framförum á sviði atvinnu-
tækni og menningar í hinum víð-
lendu og fjölmennu ríkjum
þeirra.
Það hefur komið í ljós í seinni
tíð, að miklir möguleikar eru til
hagkvæmra vöruskipta milli ís-
lands og Sovétríkjanna. Mér er
ljúft að minnast þess, að þessi
viðskipti hafa verið oss íslend-
ingum mjög gagnleg. Það hefur
sýnt sig, að vér höfum getað
fengið frá Sovétríkjunum mikið
af vörum, sem eru nauðsynlegar
fyrir þjóðarbúskap íslendmga, og
ég vona, að þær vörur, sem vér
höfum látið Sovétríkjunum í té,
hafi einnig verið þeim gagnlegar.
Vér kunnum vel að meta þann
markað fyrir útflutningsvörurnar
sem opnazt hefur í seinni tíð í
Sovétríkj unum.
Það er von mín, að þessi og
önnur samskipti íslands og Sovét
ríkjanna megi halda áfram og að
oss í friðsömum heimi megi lán-
ast að vinna áfram að því að
treysta gagnkvæma virðingu og
vináttu þjóða okkar.
Yðar einlægur,
Hermann Jónasson.
Biblíudogur íslenzhu kirhjunnur
Á MORUN (9. febr.) er hinn ár-
legi Biblíudagur íslenzku kirkj-
unnar. Hlutverk hans er tvenns
konar, að hvetja menn til þess
að lesa Biblíuna og íhuga boð-
skap hennar og vera fjársöfnun-
ardagur til styrktar útgáfustarf-
semi hins íslenzka Biblíufélags.
Verður tekið á móti gjöfum til
Biblíufélagsins í kirkjum lands-
ins, einnig geta menn gerzt
styrktarfélagar Biblíufélagsins
með því að snúa sér til p st-
anna eða til Bókaverzlunar Snæ-
björns Jónssonar, Hafnarstræti
9, sem annast alla fyrirgreiðsiu
fyrir hið ísl. Biblíufélag.
Félagið hefur starfað allmikið
hin síðustu ár. Árið 1956 kom út
myndskreytt útgáfa af Nýjatesta
mentinu og s, 1. ár var útgáfa
Biblíunnar flutt heim frá Bret-
landi og kom Biblían út á kostn-
að félagsins sl. haust. Til þess að
kosts þessar útgáfur hafa sjóðir
félags'ns náð skamint, og hefur
því oröið að taka allmikið fé að
láni.
Það er stefna allra Biblíufélaga
að selja Biblíur og Nýjatesta-
menti með sem vægustu verði,
en að efla starfsemi félaganna
með frjálsum framlögum ein-
staklinga, sem áhuga hafa fyrir
útbreiðslu Biblíunnar. Þess má
líka geta með sérstöku þakklæti
hve margir, bæði einstaklingar
cg félög hafa stutt Biblíufélagið
með gjöfum. Eru þar stærstar
gjafir Sambands ísl. Samvinnufé-
laga 10 þús. kr. og Kaupfélags
Eyfirðinga 10 þús. kr.
Hið íslenzka Biblíufélag þarf
á næstu árum að vinna að ýmsum
aðkallandi verkefnum, koma
fastara skipulagi á starfsemi fé-
lagsins og undirbúa nýja vand-
aða Biblíuútgáfu á 150 ára af-
mæli félagsins 10. júlí 1965.
Á þessu ári verður sent út rit
til allra félagsmanna um sögu
íslenzku Biblíunnar og í ráði er
að framvegis verði gefin út árbók
um starfsemi félagsins og hag
þess er einnig flytji stuttar hvetj
andi greinar og leiðbeiningar um
lestur Biblíunnar.
Takmark hins íslenzka Biblíu-
félags er að vinna að því að Bibl-
ían verði lesin meðal þjóðarinn-
ar og að orð hennar og lífsspeki
megi bera sem mesta ávezti í
hjörtum landsins barna.
Óskar J. Þorláksson.
Snjófoeltl sömu tegundor og not-
nð eru ú Suðurshuutinu
SNJÓBELTI fyrir dráttarvélar
af sömu gerð og þau, sem
Hillary notaði í ferð sinni til
Suðurheimskautsins, eru nú
komin í notkun á nokkrum stöð-
um hér á landi, og hafa reynzt
vel. Eru belti þessi framleidd af
Eik’s Maskinfabrik í Stafangri
fyrir Ferguson dráttarvélar, en
hér á landi eru yfir 1800 slíkar
vélar. Notaði Hillary þrjár slík-
ar vélar með hinum norsku belt-
um i ferð sinni til pólsins og
rómar mjög, hve vel þær reynd-
ust.
Fyrstu beltin af hinni norsku
Eikmaskin-gerð komu hingað til
lands s. 1. haust og hafa verið
notuð á nokkrum stöðum á land-
inu í harðindunum í vetur með
mjög góðum árangri. Eru belti
þessi af tveim gerðum, svo-
| nefnd „heilbelti", sem ná fram
yfir framhjól dráttarvélarinnar,
og „hálfbelti“, sem ná fram yfir
skriðhjólin eða þensluhjólin, en
þeim er komið fyrir sitt hvorum
megin á vélinni framan við aft-
urhjólin. Beltin eru flutt inn af
I Dráttarvélum h. f.
Wöruhappdrœfti S.Í.B.S.
200.000,00 kr.
48281
50.000.00 kr.
36106
J0.000,00 kr.
2283 13094 21877 23303 26510
30280 59746
5.000,00 kr.
3912 6626 11782 22409 25010
44616 47606 47711 48328 56839
62803
1.000,00 kr.
5513 9486 11931 14427 15594
15737 15799 16429 17714 17809
25781 31572 32853 33043 35669
35808 38414 42164 42948 60635
500,00 kr.
122 1005 1024 1108 1179
1655 1728 1881 2065 2131
2357 2444 2549 2550 2811
3259 3308 3663 3720 3852
4068 4201 4589 5587 5615
6115 6016 6410 6436 7555
7856 7875 8302 8817 9272
9372 10015 10052 10346 11461
11986 12059 12095 12345 12401
12432 12931 13139 13345 13529
13619 14225 14828 15190 15361
15749 15953 16103 16419 16964
17200 17472 17860 17865 18014
18258 18342 18573 18810 19081
19252 19316 19493 19913 19975
20451 20956 21069 21131 21366
22024 22027 22616 23333 23447
23524 23682 23760 24173 24245
24362 24546 24579 24764 24930
26047 26499 26685 27192 27390
28191 28514 28677 28721 28974
29379 30172 30219 30265 30356
30391 30769 31331 31860 32116
32512 32819 32854 33240 33257
33358 33386 34660 34735 35412
36010 36840 36914 36966 37101
37902 38518 39005 39794 39856
40193 40543 40990 41305 41372
42287 42556 42563 42885 42951
42986 43132 43373 44214 4453 5
44535 44963 45709 45449 46462
46561 46565 47151 48033 48246
48344 48521 48634 48810 49385
49892 50364 51967 52061 52062
52345 53023 53807 55067 55237
55467 55553 55590 56190 56510
57047 57361 57762 58975 59082
59307 59570 59632 59854 59906
59988 60524 60943 61114 61124
61303 61466 61752 61884 61939
62038 62181 62238 62618 63175
63220 63370 63501 63534 64005
(Birt án ábyrgðar)