Morgunblaðið - 09.02.1958, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 09.02.1958, Qupperneq 22
22 MORGVTS BLAÐIÐ Sunnudagur 9. febrúar 1958 742 sóttu Armanns ætingar s.l. ar Jens Guðbjörnsson kosinn formaður í 31. sinn AÐALFUNDUR glímufélagsins Armanns var naldinn 4. des. sl. í Félagsheimili V.R. Fundarstjóri var kjörinn Gunn laugur J. Briem og fundarritan Hallgrímur Sveinsson. Stjórnin gaf ýtarlega skýrstu um hið fjölþætta starf sem félag- ið hefur með höndum. A síðast- liðnu starfsári æfðu 742 menn íþróttir á vegum félagsins í 10 iþróttagreinum, sem eru: Fitn- leikar (8 flokkar), íslenzk glíma. frjálsar íþróttir, þjóðdansar og vikivakar, handknattleikur, körfuknattleikur, skíðaíþrótt, róð ur, frjáls glíma, sund og sund- knattleikur. Þrjár fjölmennustu íþróttagreinarnar sem iðkaðar voru eru: Fimleikar, 268 manns; sund, 170 manns og handknatt- leikur, 125 manns. íþróttakenn- arais og þjálfarar sem störfuðu hjá félaginu á árinu voru 13. Glímufélagið Armann hefur ætíð lagt ríka áherzlu á að íþrótt- ir næðu til fjöldans og með til- liti fil þess, haft æfingar sem fólk á öllum aldri gæti notið, bæði konur og karlar. Ármenningar tóku þátt í nær öllum íþróttakeppnum sem fram fóru á árinu í þeim íþróttagrem- um sem félagið leggur stund á, auk þess hafði félagið sýning .r á ýmsum stöðum víðs vegar um landið við hinar beztu undirtekt- ir. — Ármenningar settu alls 22 Is- landsmet á árinu, þar af 18 í sundi; setti Agústa Þórsteinsdótt- ir 12, Pétur Kristjánsson 2, Þor- geir Ólafsson 2 og sundsveitir fé- lagsins 2. Fjögur met voru sett í frjálsum íþróttum, öll af hin- um ágæta spretthlaupara félags- ins, Hilmari Þorbjörnssyni, í 100 m hlaupi á 10,3 sek., 200 m hlaupi á 21,3 sek. og 300 metra hlaupi á 34,3 sek. Met Hilmars Jens Guðbjörnsson í 100 metra hlaupinu er jafn- framt Norðurlandamet. í sex af þeim íþróttagreinum sem félagið leggur stund á, hef- ur það fengið bæði Reykjavíkur- og íslandsmeistara jafnt í em- staklingskeppni sem í flokka- íþróttum. Frjálsíþróttamenn félagsins og sundmenn kepptu einnig e r- lendis á árinu með hinum ágæt- asta árangri. Félagið hélt á síðastliðnu sumri námskeið í ýmsum íþrótta greinum fyrir unglinga á íþrótta svæði sínu við Nóatún. Fimleikamenn þess gerðu æf- ingasvæði og gryfju, svo hægt sé að æfa fimleika, áhaldaleikfimi (svifrá, tvíslá o. fl.) utanhúss allt sumarið. Er þessi aðstað sú fyrsta þess kyns hérlendis. Að lokinni skýrslunni vo-'U endurskoðaðir reikningar félags- ins lagðir fram og samþykktir einróma. Fjárhagur félagsins er þröngur um þessar mundir. Formaður þakkaði síðan öil um kennurum og þjálfurum íe- lagsins giftudrjúgt og árangurs- ríkt starf. Þá var og stjórn félagsins þakkað dugmikið og ágætt starf. Sérstaklega var Jens Guðbjörns- syni þakkað framúrskarandi fórn fúst starf í þau 30 ár, sem haim hefur verið formaður félagsins. og í tilefni af því afhentu þeir Hilmar Þorbjörnsson og Jóhann Jóhannesson, Jens stóra og fork- unnarfagra blómakörfu frá frjais íþróttamönnum félagsins. Þá fór fram stjórnarkosning Formaður félagsins var kosinn Jens Guðbjirnsson einróma í 31. skipti. Aðrir í stjórn: Pétur Kristjánsson varaformaður, Elin- borg Snorradóttir ritari, Sigurð- ur Jóhannsson gjaldkeri, Þórunn Erlendsdóttir féhirðir, Þórir Þor_ steinsson bréfritari og Vigfús Guðbrandsson áhaldavörður. — í varastjórn voru kjörnir: Asgeir Guðmundsson, Haukur Bjarna- son og Sigurður G. Norðdahl. Endursk*ðendur Stefán G. Björnsson og Guðmundur Sigur- jónssom. Formen* hinna ýmsu deilda fé lagsins eru: Fimleikadeildar: Vig fús Guðbrandsson. Glímudeildar: Hörður Gunnarsson, Frjáls- íþróttadeildar: Jóhann Jóhannes- son, Sunddeildar: Guðbrandur Guðjónsson, Körfuknattleiks- deildar: Davíð Helgason, Hand- knattleiksdeildar: Stefán Gunn- arsson, Skíðadeildar: Þorsteinn Bjarnason, Róðrardeildar: Snorri Ólafsson og Fangbragðadeildar: Sigurður Jóhannsson. Stórsvigmót Armanns í Jósefsdal haldið í dag SXÓRSVIGMÓT Ármanns fer fram í Jósefsdal í dag, sunnudag, og hefst kl. 2 e. h. Keppt verður í einum flokki karla og einum flokki kvenna. Hefur hvert félag rétt til að senda 10 þátttakendur í hvorn floklc. Keppnin hefst á toppi Bláfjalla og síðan liggur KAUPIÐ HAPPDRÆTTISSKULDABREF F.l. I QC CD < LD LD QC O Q_ Q_ < Q o_ < 134 KHÓNUR ' SKULDABRÉF Happdrœttislán flugfélags íslands h.f. 1957 10.000.040.00 krónur, aak 5% vaxta og vaxtavaxta fri 30. deaember 1957 ti) 30. desember 1963, eða aamtaU kr. 13.40*.000.00. Flugfélag lalanda hJ. i Reykjavík lýair hér með yfir þvi, aS félagið akuldar handhafa þessa bréfs kr. 134.00 > Eitr hundrað þrjáfíu og f\órat krónur Innifaldir i apphæðmnl eru 5% vextlr oj vaxtsvextir frá 30. desember 1957 til 30 desember 1%3. Gjalddagi skuldabréfs þesaa cr 30. desember 1963. Verði skuldabréfinu ekki framvisað innan 10 ára frá gjalddaga. er það ógilt. Falli happdraettisvinningur á skuldabréf þetta, ska) hans vitjað innan fjögurra ira frá útdrœtti, ella fellur réttur til vinnings niður. Um lán þetta gilda ákvæði aðalskuldabréfs dags. 18. desember 1957. /piféú/a- Reykjavfk, 18. desember 1957. FLUGFÉLAG ISLANDS H-F. 7\ > ~o Ö > ~o ~o O Ph T T T T T T T T T T T T T T T T T T T T T T T T T 4» f f f f f f f % ^^l^X^X^X^t^t^t^t^tH^t^t^t^t^t^t<<^t^t^t^t^t^t^t^><^ T f f *> T f f brautin niður Suðurgil niður i Jósefsdal og verður ca. 1500— 1600 m löng. Meðal keppenda eru margir landsþekktir skíðamenn. í karla- flokki eru m. a. Svanberg Þórðar son, sigurvegarinn frá Stefáns- mótinu.Stefán Kristjánsson ís- landsmeistari í þessari grein og sigurvegari í síðasta stórsvigmóti Ármanns, Valdimar Örnólfsson, sem sl. vetur stóð sig mjög vel erlendis einkum í þessari grein, Ásgeir Eyjólfsson, Ólafur Nilsson, Guðni Sigfússon og Magnús Guð- mundsson. í kvennaflokki mun keppnin vera á milli Arnheiðar Árnadóttur og Karólínu Guð- mundsdóttur. Síðastliðið sumar unnu Ár- menningar að því, að gera veg upp að Jósefsdal og má aka bílum upp að skarði. Þá hefur brekkan í Ólafsskarði verið upplýst og gátu því þeir, sem dvelja í Jósefs dal um helgina, æft sig þar í upp- lýstri brekku á laugardags- kvöld. Þér eflið með því íslenzkar flugsamgongur um leið og þér myndið sparifé og skapið yður möguleika til að hreppa giœsiiega vinninga í happdrœttisláni félagsins ÓMETAMLEG FLIJGÞJÓNUSTA „Flugfélag íslands hefur ætíð litið á það sem hlutverk sitt að ná til sem flestra landsmanna með flugsamgöngum.....Hvergi í heiminum er flogið hlutfallslega eins mikið og hér á landi, og sézt á því hver er þörfin fyrir þessa starfsemi.Flugið er orðið þáttur í lífi þjóðarinnar, sem aldrei verð- ur afmáður og mun halda áfram að þróast“. MORGUNBLAÐIÐ — 7/2 1958. LD Ln 7\ O > Cö PO m< I /CS£A A/0JI — Utan úr heimi Framh. af bls. 12 skerunni tvö sl. ár, en segja má, að ekki hafi verið á bætandi. Efnahagsástandið í landinu er nú bágborið. Mikill skortur er á öllum varningi og lánstraustið er nú nær þorrið. Menderes bygg- ir nú allt á Bandaríkjunum og voninni um að fjárfestingin í iðn aðinum fari brátt að bera meiri ávöxt. Menderes veit, að Banda- ríkin sleppa ógjarnan hendinni af Tyrklandi — því að í dag, á meðan Bandaríkjamenn hafa ekki yfir að ráða langdrægari flug- skeytum en raun ber vitni — er Tyrkland einn hinna fjögurra stað á jörðu, sem taldir eru lýð- ræðisþjóðum ómissandi frá hern- aðarlegu sjónarmiði. (Hinir eru Bretlandi, Formosa og Okinawa). Þess vegna eru vonir Menderes um að Tyrkjum takist að yfir- stíga efnahagserfiðleikana alls ekki veikar. Bandaríkjamenn munu koma til hjálpar ef í nauð- ir rekur. (Þýtt og stytt úr Time). Mófmæla trúarofsóknum kommúnisfa OSLÓ, 7. febr. (NTB) — Biskup- ar Finnlands og Svíþjóðar hafa ásamt biskupunum í Osló og Kaup mannahöfn sent ungversku stjórn inni orðsendingu, þar sem mót- mælt er framkomu kommúnista- stjórnarinnar við lútherska presta og biskupa í Ungverja- landi, svo og aðra ungverska lút- herstrúarmenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.