Morgunblaðið - 09.02.1958, Blaðsíða 23
Sunnudagur 9. febrúar 1958
MORGVNBLAÐ1Ð
23
Helga Hansdóftir
minning
Myndin er tekin af knattspyrnuliðinu Manchester United, þeg-
ar lagt var upp frá Bretlandi í keppnisförina til Júgóslavíu.
I fremstu röð til hægri er framkvæmdastjórinn Busby, sem
lifði af flugslysið í Munchen. Við hlið hans stendur Itoger
Byrne — og í sömu röð, lengst t. d. er Tommy Taylor, —
Þeir fórust báðir.
— Hreinsun
Framh. af bls. 1
• Þelr töluðu um lýðræði,
en hugsuðu ekki um nauðsyn
þess að tryggja ríkið gegn mold-
vörpustarfsemi óvinanna.
• -• Þeir voru skammsýnir í
mati sínu á hugsjónalegum og
efnahagslegum undirróðri óvin-
arins.
• -• Þeir vanmátu áhrif
borgaralegs hugsunarháttar, sem
hefur þrengt sér inn í flokkinn.
• -• Þeir vildu ekki viður-
kenna hætturnar sem eru sam-
fara þeim hillisýnum, að samein-
ing Þýzkalands sé æskileg, hvað
sem hún kostar.
• -• Wollweber var sakaður
um vanrækslu í störfum sínum
sem yfirmaður öryggislögreglrann
ar, þar sem hann hefði látið und-
ir höfuð leggjast að berjast gegn
annarlegum skoðunum og áhrif
um.
„Hann reyndi að vinna flokks-
félaga á band sundrungarhópsins,
sem Schirdewan stóð fyrir“, seg-
ir í skýrslunni. „Óvinurinn fékk
upplýsingar um innanflokksmál,
sem hann notaði síðar gegn
flokknum".
Karl Schirdewan
Schirdewan, sem er 51 árs
gamall, gekk í kommúnistaflokk-
inn 18 ára og gegndi ýmsum em-
bættum innan flokksins fram að
síðari heimsstyrjöld, en þá fór
hann úr landi. Hann kom til
Berlínar aftur árið 1945 og var
kosinn í miðstjórn austur-þýzka
kommúnistaflokksins. Honum var
falin skipulagning flokksins og
kosinn í æðsta ráðið 1953
Ernst Wollweber
Wollweber, sem er sérfræðing-
ur í skemmdarverkum á skipum
og hafnarmannvirkjwm, njósnum,
mannránum og vopnasmygli, lét
af störfum sem öryggismálaráðh.
í október sl., og var sagt að hann
hefði beðið um lausn frá embætti
vegna vanheilsu. Eftir síðari
heimsstyrjöld skipulagði hann
skemmdarverkasveitir og njósna-
hringi og var settur yfir austur-
þýzku öryggislögregluna árið
1953.
Vestur-þýzk blöð skýrðu frá
því á sínum tíma, að það hefði
verið njósnahringur Wollweber,
sem flutti brezku sendiráðsmenn
ina Guy Burgess og Donald Mac-
Lean austur fyrir járntjald.
Fred Ölssner
Ölssner, sem er 55 ára gamall,
gekk í æskulýðsfylkingu þýzka
kommúnistaflokksins 17 ára. —
Hann fór til Moskvu árið 1936 og
kom aftur til Berlínar með
Rauða hernum 1945. Fyrir þrem-
ur árum var Ölssner skipaður
aðstoðarforsætisráðherra og
hafði þá yfirumsjón með nevzlu-
vörum og framleiðslu.
Nýir menn
1 embætti þessarra þriggja
manna hafa verið skipaðir: Al-
fred Neumann, fastafulltrúi í
æðsta ráðinu; Paul Fröhlich, með
limur miðstjórnarinnar og Her-
hard Griineberg, aukameðlimur
miðst j órnarinnar.
Ný leið til að
lakmarka
barneignir
PEIPING, 8. febr. — í Kína, þar
sem sjötti hluti mannkynsins
býr, hafa menn uppgötvað nýja
leið til að takmarka barneignir,
en það er eitt helzta vandamál
Asíuþjóða.
Prófessor Ma Yin Chu, helzti
forustumaðurinn á þessu sviði,
skýrði kínverska alþýðuþinginu
frá því að ungir verkamenn væru
svo áhugasamir um byggingu
vatnsveitukerfa og vatnsbóla, að
þeir gæfu sér ekki tíma til að
ganga í hjónaband. Áætlanir
stjórnarinnar eru þannig „ákveð
in tegund af takmörkun á barn-
eignum“, sagði prófessorinn.
Önnur leið að sama marki, er
gefizt hefur mjög vel, sagði pró-
fessorinn, er sú, að neita her-
mönnum um heimfararleyfi, ef
þeir eiga mörg börn. Nefndi próf
essorinn ýmis dæmi máli sínu til
sönnunar!
Guð komi sjálfur nú með náð,
Nú sjái Guð mitt efni og ráð,
nú er mér, Jesú, þörf á þér,
þér hef ég treyst í heimi hér.
(H. P.)
1. JANÚAR sl. andaðist að heim-
ili sínu, Oddhól á Rangárvöllum,
Helga Hansdóttir á 92. aldursári.
Helga var fædd að Kirkjulandi
í Austur-Landeyjum 3. marz
1866.
Af foreldrum sínum hafði
Helga lítið að ségja. Tveggja
vikna var hún flutt til hjónanna
Ástu og Jóns, er þá bjuggu í Ey
í Vestur-Landeyjum. Dvaldi hún
hjá þeim hjónum, meðan þau
lifðu, én bæði voru þau dáin, er
Helga var 14 ára.
Tóku þá við búi þar Kristín
dóttir þeirra hjóna, og maður
hennar, Guðmundur Eiríksson.
Hjá þeim var Helga, og síðan hjá
Kristínu, er maður hennar var
dáinn, samfeílt í 27 ár.
Árið 1907 tóku við jörðinni Sig
urður Snjólfsson og Þórhildur
Einarsdóttir frá Stóru-Mörk. Réð
ist Helga til þeirra, og var hún
hjá þeim allan þeirra búskap, eða
til vorsins 1926. Var Sigurður þá
dáinn, og ekkjan brá búi.
Var Helga þessi ár, og æ síðan
sem einn meðlimur þessarar fjöl-
skyldu. Lengi munu börn þriggja
ættliða minnast umhyggju henn-
ar og ástúðar.
Hafði nú Helga verið í 60 ár
hjá þrem búendum á sömu jörð-
inni. Enn var Helga um sinn í Ey,
en vorið 1931 flutti hún til Mörtu,
dóttur þeirra Þórhildar og Sig-
urðar, _og manns hennar Frí-
manns ísleifssonar. Hjá þeim var
hún til dauðadags, fyrst að Tuma
stöðum í Fljótshlíð, en síðan að
Oddhól á Rangárvöllum.
Hér hafa æviatriði verið rakin
í fáum dráttum. Vitt var ekki
farið, en því betur að því hugað,
sem til heilla og hagsbóta mátti
verða þeim húsbændum, er hún
vann hjá. Helga var alin upp og
lifði sín þroskaár á þeim tímum,
er öll alþýða hér á landi lifði við
mjög þröngan kost. Urðu allir
hart að sér að leggja, til þess að
hafa til brýnustu nauðþurfta. Tók
Helga þátt í þeirri baráttu með
húsbændum sínum með slíkri at-
orku og trúmennsku, að lengra
verður vart komizt. Vel hafði hún
til þess unnið, er hún hlaut verð-
laun frá Búnaðarfélagi íslands
fyrir langa og dygga þjónustu á
sama stað.
Oft vann Helga þau verk, sem
venjulega voru karmönnum ætl-
uð. Mun hún lítt hafa hugsað um
erfiðið, en meira um nauðsyn
verksins og hag húsbændanna.
Þrekið var líka mikið, og heilsan
lengi góð. Eigi var heldur hugsað
um launin fyrir erfiði daganna,
og því, sem áskotnaðist, jafnan
varið til þess að gleðja aðra.
Sjálf átti hún líka til hinztu
stundar nóg rúm í hug og hjarta
fyrir þakklæti til allra, sem gerðu
henni gott.
Ekki er það óeðlilegt, að langri
ævi fylgi margs konar mótlæti.
og ekki fór Helga varhluta af því,
en sorgum og mótlæti mun hún
jafnan hafa tekið með hetjulund.
Hún átti glaða og þróttmikla
lund, sem ekki lét bugast, þótt
á móti blési. Góð stoð var hún
og þeim, sem áttu um sárt að
binda.
Helga giftist ekki né átti börn,
en eigi er það ofsagt, að hún hafi
verið önnur móðir allra barna,
sem með henni dvöldu. Mun það
allstór hópur, yngri og eldri, sem
slíkan hug bera til hennar.
Margur ylgeislinn mun hafa
streymt milli hennar og litlu
barnanna í Oddhól, sem hún
dvaldi nú síðast með.
Jafnan var svo, nú síðustu
mánuðina, að það var sem blrti
yfir svip hennar, þegar litla nafn
an, tveggja ára, kom til hennar,
meðal annars í þeim erindum að
fá hana til að sitja við rúmið sitt
meðan hún sofnaði. Það var
hryggð í huga litlu barnanna,
þegar þau undruðust það, hvað
hún stóra Helga svaf lengi.
Helga Hansdóttir varð aldrei
rík af neinu því, er í krónum
verður talið, en á ævi sinni allri
og að leiðarlokum, átti hún í
hugum samferðarmanna virð-
ingu, ást og þökk.
Sannarlega finnst mér Helga
verð þessara orða meistarans
mikla frá Nazaret: „Gætt, þú góði
og trúi þjónn. Yfir litlu varstu
trúr, yfir mikið mun ég setja þig.
Gakk inn til fagnaðar herra
þíns“.
Utför Helgu fór fram frá heim-
ili hennar 11. jan. Hún var jarð-
sett að Breiðabólstað í Fljótshlíð,
að viðstöddu fjölmenni. Þar var
kirkjan hennar mestan hluta æv-
innar. Þaðan hljómaði nú sálm-
urinn, sem hún hafði óskað eftir,
að súnginn væri við jarðarför
sína. „Guð komi sjálfur nú með
náð“.
H. S.
Ráðskonusfaða
óskasf
Kona, um fertugt, vill sjá
um gott, fámennt heimili.
Aðeins fyrsta flokks íbúð
kemur til greina. Tilb., með
greinilegum upplýsingum,
sé skilað til Mbl., 'yrir 16.
febr., merkt: „Maí 1958 —
8616“. Tilboð endui'send.
Hreppsnefnd Ólafsvíkurhrepps vill ráða sér
Sveifarstjóra
Þeir sem kynnu að hafa hug á að sækja um stöðuna sendi
umsóknir sínar ásamt upplýsingum um aldur, menntun,
fyrri störf og kaupkröfu til oddvita Ólafsvíkurhrepps fyr-
ir 1. marz 1958.
Oddiviti Ólafsvíkurhrepps.
Hilmar Carðars
hc.'uðsdónislögmaður.
Málflutnmgsskrifstofa.
Gamla-Bíó. Lngólfsstræti.
Tregar samgöngur
við Búðardal
BÚÐARDAL, 8. febr. — Tíð hef-
ur verið umhleypingasöm í Dala-
sýslu undanfarið. Mikil frost
hafa verið öðru hverju en ekki
mikill snjór. Hagar eru sæmilegir
víðast hvar fyrir sauðfé og er bví
beitt eftir því sem tíð leyfir
Samgöngur eru frekar erfiðar.
Ekkert skip frá Skipaútgerð rík-
isins hefur komið hér síðan fyrir
jól, en bátur frá Reykjavík, sem
Kaupfélagið fékk til að flytja
vörur, kom hér i byrjun janúar.
— 1 Síðan hefur ekkert skip komxð.
Engar flugáætlunarferðir eru
hingað. Landleiðin hefur teppzt
öðru hverju og verið mokuð
þrisvar sinnum síðan um ára-
mót. — Elís.
Ég þakka innilega öllum þeim, sem glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum og skeytum á 80 ára afmæli mínu
4. febrúar.
Guð blessi ykkur öll.
Kristján Jóhannesson,
Njálsgötu 27 B.
Maðurinn minn og faðir okkar
JÓN JÓNSSON
Efralandi, Grindavík,
andaðist þann 4. þessa mánaðar.
María Jónsdóttir og börn.
EINAR ÞORKELSSON
andaðist 7. febrúar að heimili sínu, Hróðnýjarstöðum,
Dölum.
Börn og tengdabörn.
Útför móður minnar, tengdamóður og ömmu
margrétar eiríksdóttur
frá Akurhúsum, Garði,
fer fram frá Fríkirkjunni þriðjudaginn 11. þ. m. kl. 2.
Athöfninni verður útvarpað.
Hrefna Matthíasdóttir,
Pétur Jónsson og börn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu, við and-
lát og jarðarför systur okkar og mágkonu,
ÁSTRÍÐAR SÍMONARDÓTTUR
hj úkrunarkonu
Þuríður Símonardóttir, Steingrímur Einarsson,
Kristiun Símonarson, Hailfríður Jónsdóttir,
Jón Símonarson, Hannesína Sigurðardóttir.