Morgunblaðið - 08.03.1958, Side 12
12
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 8. marz 1958
nu ci i reihan di
Eftir
EDGAR Mi'i'TEL HOLZER
I*ý5ii*g:
Sverrir Haraldsson
L
55
n
^ ^ ci
hvað? Þetta er einn af gömlu kjól
unum hennar mömmu, sýnist
mér“.
Mabel þagði sem fyrr.
Olivia kom inn og útskýrði fyr-
ir þeim alla málavexti. „Sjá“,
þrumaði Olivia. — „Hún þjáist
vegna þess, að hún braut lögmál
vort“.
Gregory, sem kom inn nógu
snemma til að heyra orð hennar,
leit á Mabel og skildi um leið all-
ar aðstæðurnar. Hann setti upp
kurteisislegan afskiptaleysissvip
og virti fyrir sér klukkuturninn.
Eétt á eftir hvíslaði Olivia að
honum: — „Þarna endar hinn eld
heiti ástardraumur. Hún á að
ganga í þessum hræðilega búningi
í tvær vikur“.
Hann svaraði ekki.
„Það er ólykt af honum. Ég
finn hana hingað. Finnur þú hana
ekki líka?“
Að morgunverði loknum, kom
hann örlítið við öxlina á Mabel,
þegar hún var að ganga út úr stof
unni. Hún sneri sér við, kafi-jóð
í fraipan. — „Já, hvað viltu mér?“
,„Má eg tala nokkur orð við þig
niðri hjá lendingunni".
„Við mig? Ég — ég veit það
ekki. Kannske seinna“. Hún flýtti
sér út úr borðstofunni.
Þau frú Harmston og Garvey,
sem ekki voru farin út úr stof-
unni, brostu. Frú Harmston
gekk skrefi nær Gregory og sagði
lágt: — „Þetta er hræðilegt,
drengur minn. En hjá því verður
samt ekki komizt. Við megum til
með að vera ströng og ákveðin í
málum sem þessu".
Giegory kinkaði kolli. „Ég sé
það“, svaraði hann. „Mjög leiðin-
legt. Aumingja bamið“.
„En segðu mér eitt, Joan
frænka. Samþykkir þú raunveru-
lega, allt þetta — þessa lifnaðar-
hætti?“
Úr svip frænku hans mátti lesa
bæði undrun og gremju. — „Já,
það geri ég mjög ákveðið", sagði
hún. „Hvernig datt þér í hug að
efast um það?“
Hann hikaði, en sagði svo: „Ja,
ef* satt skal segja, þá fannst mér
einhvern veginn að þú værir ekki
— ekki alveg eins óvenjuleg og
hinir meðlimir fjölskyldunnar, ef
ég má orða það þannig.
Garvey fékk svo ákafa hláturs-
Kulda og hita einangrun með
Ef þér viljið einangra hús
yðar vel, þá notið WELLIT
plötur. V/ELLIT einangr-
unarplötur eru mikið not-
aðar í Svíþjóð, Noregi, Eng-
landi, Þýzkalandi, Banda-
ríkjunum og víðar. —
WELLIT einangrunarplöt-
ur, 5 cm. þykkar, kosta að-
eins kr. 35.70 fermeter.
Keynslan mælir með
WELLIT.
Czechoslovak
Ceramics, Prag.
Einkaumboð:
Mars Trading Company
Klapp. 20. — Sími 1-7373
hviðu, að hann náði varla andan-
um.
„Hvernig gat þér dottið annað
eins í hug, Gregory? Ekki alveg
eins óvenjuleg!!! En ég hefði þó
haldið, að við værum öll mjög
venjulegar manneskjur".
„Oh, vertu nú ekki svona skiln
ingslaus, mamma", sagði Garvey,
sem hafði jafnað sig að mestu aft
ur, eftir hláturinn. — „Þú veizt
ósköp vel hvað hann á við. Hann
á við það, að þú berir það með
þér, að þú sért ekki ein af okkur
— og það er líka alveg satt. Viður
kenndu það bara og hættu að
malda í móinn. Hlutirnir eru ekki
alltaf það sem þeir sýnast, Gre-
gory — sérstaklega í Berkelhoost.
Mamma er raunverulega alls ekki
neitt háð áhrifum staðarins — og
Mabel ekki heldur — en hún er
alveg jafn sterktrúuð á goðsagnir
okkar og boðorð og við hin“. -
„Það er mjög fallega gert af
þér, að taka það að þér að gefa
honum útskýringar, fyrir mína
hönd, Garvey", sagði móðir hans
þykkjulega og bjóst til að yfir-
gefa þá. En Gregory brosti og
greip í handlegginn á henni: —
„Þetta er ekkert til að reiðast af,
Joan frænka", sagði hann. „Ég
vildi bara láta hina réttu hlið
málsins koma í ljós. En svo að við
víkjum nú aftur að Mabel — held
urðu ekki að þið séuð nokkuð harð
leikin við hana — að þvinga hana
til að ganga í þessum andstyggi-
legu flíkum?"
„Nei, það held ég alls ekki. Hún
hefur gert sig seka um mjög al-
varlegt athæfi og verður að sæta
refsingu".
Hann starði á hana eitt andar-
tak: — „Er þetta raunverulega
skoðun þín?“
„Að sjálfsögðu". Viðmót henn-
ar mildaðist aftur og hún hélt á-
fram: — „Auðvitað tek ég þetta
nærri mér, drengur minn. Mabel
er svo gott og elskulegt barn. Það
særir mig í hjartað, að sjá henni
refsað. En aginn verður að
ríkja".
„Alveg rétt“, sagði Garvey.
„Og Maby veit aða hún á þessa
refsingu fyllilega skilið og þess
vegna skaltu ekki eyða meðaumk-
un þinni á hana, Gregory. Heyrðu
annars, hvaða áhyggjur eru þttta,
sem þú hefur út af henni? Ertu
ástafanginn af henni, eða hvað?“
Gregory lézt ekki heyra spurn-
inguna. — „Ég verð að biðjast
afsökunar", sagði hann við
frænku sína — „ef ég sýnist of
afskiptasamur, en þetta var allt
mér að kenna og þess vegna er ég
að blanda mér í málið“.
„Ég skil vel tilfinningar þín-
ar“, sagði hún brosandi. — „En
ég held að faðir hennar hafi sýnt
henni mjög rnikla mildi. Gerald
er ekki eins strangur eða liarður
og maður gæti haldið. Hann er
góðhjartaður, Gregory, drengur
minn — og hann er enginn ofstæk
ismaður. Ég er viss um að Mabel
sjálf segir þér það“.
„Ef þú verður hér nógu lengi,
muntu komast að einu og öðru
um pabba, sem þig hefði ekki get
að dreymt um. Hann hagar sér al-
veg eins og einhver skrumari, en
það er aðeins upgerð. Inni við
beinið er hann skynsamur og sterk
ur — og viðkvæmur. Hann er eng
inn einvaldur, eins og Hitler ykk-
ar og Mussolini".
„Vandræðin með þig, drengur
minn, held ég að séu aðallega
þau, að þú ert svo nýkominn frá
hinum lítt siðaða umheimi", sagði
frú Harmston brosandi — „að
sann-siðmenntað samfélag, eins
og okkar, ruglar þig“.
„Ég efa það ekki, að þú hafir
Allsherjaratbvæðagreiðsla
um stjórnarkjör í Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
bæjar fer fram í Hafnarstræti 20 á morgun, sunnu-
dag, kl. 14—19 og mánudaginn 10. marz kl. 17—
22 og er þá lokið
Nánar auglýst á vinnustöðum.
, Reykjavík, 7. marz 1958.
Kjörstjórnin.
FÍTAN HVERFUR FLJÓTAR
með íreyðandi V I M
X-V 510-814
Úlafrnir voru nú komnir á slóð j Markúsar, sem var að þrotum j kominn. — Það er eins og lungun I í mér séu að bresta, sagði hann
' við sjálfan sig.
alveg á réttu að standa", tautaði
frændi hennar".
Tíu mínútum siðar sat hann
niðri við lendingarstaðinn, í mildu
sólskini morgunsins, þegar hann
heyrði allt í einu fótatak að baki
sér. Hann leit við og sá hvar Gar-
vey kom gangandi í áttina til
hans Drengurinn settist við hlið
hans og teygði frarn bera fótlegg-
ina.
„Vertu ekki neitt dapur“, sagði
hann alúðlega — „þegar þú ferð
að kynnast okkur á annað borð,
þá muntu ekki finna neitt óvenju-
legt í fari okkar. Hvers vegna
byrjarðu ekki á einhverjum skap
andi störfum?“
„Skapandi störfum?"
„Já, þú skrifar leikrit, er það
ekki? Og þú málar. Taktu þér
eitthvað fyrir hendur, -ef þú villt
ekki verða geggjaður aftur. Iðju-
leysið gerir hvern mann vitlaus-
an og áður en þú veizt sjálfur af,
færðu annað þunglyndiskast eða
hvað það nú aftur var, sem þú
þjáðist af, þegar þú komst hing-
að“.
Gregory brosti. Hann horfði yf-
ir í skóginn, handan árinnar. —
Trén spegluðust svo greinilega í
vatninu, að jafnvel hvert laufblað
sást. Skógurinn var hljóður og
afskiptalaus. Það var alveg sama
hve lengi hann, Gregory, horfði
á hann. Skógurinn myndi aldrei
tala aftur til hans, eða ráðleggja
honum hvernig hann ætti að halda
sér andlega heilum. Gregory
minntist þess, hvernig hann hafði
legið í rúminu um morgunninn og
fylgzt með því, hvernig trén urðu
greinilegri og greinilegri í þok-
unni og vaxandi dagsbirtunni,
hvernig hann hafði óskað þess,
að hann væri sjálfur eitt af þess-
um trjám. >
„Mér líkar vel við þig“, sagði
Garvey, um leið og hann sleit npp
langt strá og saug það hugsandi.
„Þú ert siðprúður rnaður og þú
ert enginn kjáni. Jafnvel þegar
þú varst talinn með lausa skrúfu,
varstu enginn kjáni. Segðu mér
annars eitt. Varstu í raun og veru
vitlaus, eða varstu bara að gera
þér það upp?“
„Yndislegur morgun, finnst
þér það ekki?“
Garvey hló. — „Farinn að læra
sérvizkuhætti okkar, eh? Gott fyr-
ir þig. En í alvöru talað, þá er ég
ennþá í nokkrum vafa um þetta
tilfelli þitt. Skýringin sem þú
gafst, sjálfur, um konuna þína,
sannfærir mig ekki. Mér finnst
hún alltof ótrúleg".
„Hlutiz-nir", sagði Gregory —
„eru ekki alltaf það, sem þeir
virðast vera“.
„Er hún þá sönn? Varstu raun
verulega vitlaus út af konunni
þinni?“
Gregory kinkaði kolli.
Garvey virti hann forvitnislega
fyrir sér. — „Og hvernig líður
þér nú? Alveg með réttu ráði aft-
ur? Heldurðu að þér geti ekki
versnað aftur?“
Gregory yppti öxlum: — „Jú,
ég geri ráð fyrir því. Annars get
ég ekkert um það sagt“.
„Þú hefur verið hjá einum eða
tveimur geðveikislæknum, eh?“
SHtltvarpiö
Laugardagur 8. marz:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50 Óskalög sjúklinga (Bryndís
Sigurjónsdóttir). 14,00 „Laugar-
dagslögin". 16,00 Fréttir og veður
fregnir. —- Raddir frá Norður-
löndum; XII: Danska leikonan
Bodil Ipsen Its „Ilistorien om en
moder“ eftir H. C. Andersen. —
10.30 Endurtekið efni. 17,15 Skák
þáttur (Baldur Möller). Tónleik-
ar. 18,00 Tónistundaþáttur barna
og unglinga (Jón Pálsson). 18,30
Útva rpssaga barnanna: „Hanna
Dóra“ eftir Stefán Jónsson; X
(Höfundur les). 18,55 1 kvöld-
rökkrinu: Tónleikar af plötum.
20.30 Upplestur: Emilía Borg
leikkona les smásögu. 20,50 Tón-
leikar (plötur). 21,20 Leikrit: —
„Pétur og Páll“ eftir Edvard
Brandes. — Leikstjóri og þýðandi
Haraldur Björnsson. 22,10 Passíu-
sálmur (30). 22,20 Danslög (pl.).
24,00 Dagskrárlok.