Morgunblaðið - 08.03.1958, Qupperneq 13
Laugardacur 8 mar? 1958
MORCXimtl. AÐIÐ
13
Um óþurrkalánin
eftir Sigmimd Sigurðsson oddvita
Syðra-Langholti
ÉG lít svo á að ekki sé um annað
að ræða, en að gefa eftir hin
svonefndu óþurrkalán, eins og nú
er málum komið, að ýmsu leyti:
Þessi lán voru á sínum tíma veitt,
til þess að deyfa sárasta broddinn
á því ógnartjóni’ og sálarraun,
sem mesta óáran í tíðarfari þess-
arar aldar, leiddi yfir íslenzkt
bændafólk á Norðausturlandi og
Suðvesturlandi fyrir nokkrum
árum. Og þeim mun seint úr
minni líða, sem fyrir urðu.
Síðari hluta sumars 1955, þegar
sýnt þótti að til vandræða horfði
á Suður- og Suðvesturlandi
vegna óþurrkanna, valdi þáver-
andi ríkisstjórn Pál Zóphóníasson
og Árna Eylands til að kynna
sér ástandið og gera tillögur um
aðstoð til bænda á þessu svæði.
Páll Zóphóníasson var þá þegar
sem búnaðarmálastjóri búinn að
ferðast um allt óþurrkasvæðið,
ræða þar við hvern einasta odd-
vita og fjölda annarra bænda.
Hann var því manna kunnugastur
ástandinu. Enda mun hann hafa
ráðið miklu um það hvernig ián-
unum var síðar skipt milli hinna
ýmsu sveitafélaga. Plreppsnefnd-
ir skiptu svo fénu milli sinna
sveitunga, og reyndu að styðjast
við sömu reglu og þeir Árni og
Páll studdust við. Það fengu allir
aðstoð sem hennar óskuðu á til-
skiidum tíma og ekki veit ég
annað en þetta gengi árekstra-
laust.
Það var mikið rætt um það
haustið 1955 í hvaða formi aðstoð
þessi skyldi veitt. Sumir vildu
niðurgreiðslu á fóðurvörum, aðr
ir fóðurbætisstyrk á hvern grip,
sem á vetur væri settur á ó-
þurrkasvæðinu. Þó varð það end
anlega ákveðið að aðstoðin yrði
veitt í sama lanaformi og lánin
til Austurlandsins. sem veitt voru
vegna harðindanna nokkrum ár-
um áður. Þetta er mjög athyglis-
vert, og eins það, að á þessum
tíma, hefðu fáir haft neitt við
það að athuga, þó niðurgreiðslu-
eða styrkjaleiðin hefði verið far-
in. Enda var þá mjólkur- og kjöt-
skortur á landi hér, og öllum Ijós
ara en nú, hver þjóðarvoði væri
fyrir dyrum, ef landbúnaðurinn
lamaðist.
Haustið 1956 þótti sýnt, að
bændur á Austurlandi gætu ekki
staðið á skilum með lán sín, og
mörgum orðið ljóst að óheppilegt
hefði verið að velja lánaleiðina
Alþingi tók þá þessi mál til með-
ferðar, en það óhapp skeði að
sunnlenzku lánin voru slitin úr
tengslum frá þeim austfirzku og
afhent Bjargráðasjóði til inn-
heimtu, en þau austfirzku gefin
eftir að miklu leyti, eins og sjálf-
sagt var. En þó lenti einhver
hluti þeirra hjá Bjargráðasjóði.
Iiefi ég nú allgóðar heimildir
fyrir því, að almennar kröfur
austfirzkra bænda um verulegar
eftirgjafir á þeim hluta, liggi nú
hjá stjórn Bjargráðasjóðs, og
verða eflaust teknar þar til
greina.
Að þessu athuguðu ætti engan
að undra, þó illa horfi með inn-
heimtu lánanna á Suður- og Suð-
vesturlandinu. í sambandi við
getu bænda til að greiða þessi
lán, vil ég benda á, að allur
fjöldi þeirra bætir árlega ískyggi
lega við sinn þunga skuldabagga,
eins og skýrslur um þau efni
sanna. Það er því staðreynd, að
fjöldi bænda á engan pening né
aðstöðu til lántöku, til þess að
geta staðið í skilum með þessi
lán. Þau hljóta því að lenda í
vanskiium. Hins vegar viður-
kenni 'ég að til kunni að vera
menn sem geta greitt sína skuld.
En ég veit að hreppsnefndir
neita að draga menn þannig í
dilka. Því þar kemur margt til
greina. Þetta yrðu í flestum til-
fellum menn sem neitað hafa sér
og sínum um meiri þægindi en
aðrir, eða lagt harðara að sér
og sinni fjölskyldu en gerist, 'eða
eiga eftir að leggja í lífsnauðsyn-
legar fjárfestingar. Slíkum mönn
um hefir hingað til ekki verið
gieymt af hreppsnefndum og
skattayfirvöldum í okkar þjóð-
félagi, og það er víst alveg ástæðu
laust að óttast að þeir fái ekki
að leggja fram sinn skerf, til
samhjálpar þjóðfélagsins í fram-
tíðinni.
Alþingi mun nú ætla að endur-
skoða afstöðu sína til óþurtka-
lánanna og hefir I þeim tilgangi
sent Búnaðarþingi til umsagnar,
þingsályktunartillögu _ Ingólfs
Jónssonar og Sigurðar Ó. Ólafs-
sonar, sem fjallar um eftirgjöf
þessara lána, er afhent voru
Bjargráðasjóði.
Munu bændur því bráðlega
frétta um afgreiðslu þessa máls
frá Búnaðarþingi og óskandi er
að Alþingi taki þetta leiðinda
mál, bráðlega til svo rækilegrar
afgreiðslu, að um það þurfi ekki
frekar að ræða.
Sveinbjörn Hannesson
lom. verkstjórsféiacsiins
VERKSTJÓKAFÉLAG Reykja-
víkur hélt aðalfund sinn sunnu-
daginn annan marz sl., var sá
fundur fjölmennari en nokkur
annar sem félagið hefur haldið.
Á árinu 1957 höfðu 17 verk-
stjórar gengið í félagið, en tveir
félagsmenn höfðu látizt á árinu.
Félagatala er nú 262.
Fjárhagur félagsins er mjög
góður, og eru þó árgjöld félags-
manna fremur lág. Á sl. ári
festi félagið kaup á húseign í
Skipholti 3 í Reykjavík, sem
það hyggst voh bráðar gera að
heimili fyrir starfsemi sína.
í stjórn félagsins fyrir yfir-
standandi félagsár voru kosnir,
Sveinbjörn Hannesson formað-
ur, og með honum þeir Adolf
Petersen, Guðlaugur Stefánsson,
Guðjón V. Þorsteinsson og
Matthías Matthíasson.
Nýr bátur til
Súgandafjarðar
SÚGANDAFIRÐI, 6. marz. —
Nýr bátur, Freyja ÍS-364, kom
hingað til Suðureyrar í gær-
kvöidi. Báturinn er eign Fisk-
iðjunnar Freyju hf. á Suðureyri.
Báturinn er 64 lestir'að stærð.
Hann er búinn öllum nýjustu
siglingatækjum svo sem 32ja
mílna radar og asdictækjum. —
Mjög fullkominn rafmagns- og
sjálfstýrisútbúnaður er í bátnum
og hefur slíkt ekki sézt hér fyrr.
Frágangur er allur hinn vand-
aðasti.
Ganghraði bátsins í reynslu-
ferð reyndist vera 11 sjómílur á
klst. Báturinn er smíðaður í Dan
mörku og reyndist sjóhæfni hans
með ágætum á heimleiðinni. —
Bátnum sigldi heim til íslands
Guðni Jóhannsson, skipstjóri.
— Fréttaritari.
Afgreiðslustúíka
ó s K A s T
Búsfababúbin
Hólmgarði 34 — Sími 34804 og 10610.
Aðalfundur
Fyrirhugað etr að stofna byggingasamvinnufélag vegna byggingar á 12
hæða húsi í Laugarásnum.
íbúðirnar eru ætlaðar fyrir einstaklinga, eð a fámennar fjölskyldur og verða sarnkv. með-
fylgjandi uppdrætti. — Áætlaö er að hefja framkvæmdir í apríl og gera húsið fokhelt á
þessu ári. — Ætlunin er, að félagsmenn leggi fram aukavmnu, eins og þeirra ástæður leyfa.
ÍIB ium uwfc.
1, i /. \
Nánari upplýsingar í síma
34472, frá hádegi og í síma
19164, eftir hádegi á sunnu
dag.
Félags íslenzkra liljómlistarmanna
verður haldinn í Breiðfirðingabúð, uppi, laugardag
15. marz nk. og hefst kl. 1,30 e. h. stundvíslega.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
SvefnRierbergishúsgögn
fyrirliggjandi — Nýjar gerðir.
Húsgagnav. Birki
Laugavegi 7 — Sími 17558
Skrifstofustúlka
Stórt verzlunarfyrirtæki óskar að ráða vana skrif-
stofustúlku nú þegar.
Aherzia lögð á góða vélritnnarkunnáttu.
Tilboð er greini aldur, menntun, kaupkröfu og fyrri
störf, sendist afgr. Mbl. fyrir 15. þ. m. merkt:
„Vélritun —7952“.
TiSboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðar og einn tengivagn, er verða
til sýnis að Skúlatúni 4, mánudaginn 10. þ. mán.
kl. 1—3.
Tilboöin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5- sama
dag.
Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer í tilboði.
Sölunefnd varnariiðseigna.
Sfarfsstúlka óskast
Dugleg stúlka óskast í eldhús Kleppsspítalans strax
eða 15. marz nk. — Upplýsingar hjá ráðskonunni
í síma 34499, kl. 2—3 og eftir kl. 8.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
Teeak-oEáa
Höfum nú fyrirliggjandi teak-olíu. — Eldri pant-
anir óskast endurnýjaöar, þar sem birgðir eru
takmarkaðar.
Hilmar Sigurbsson
Hverfisgötu 50 — sími 33106.
í Norðnrmýri til sölu
4 herbergi og eldhús á 2. hæð, auk 2ja herbergja
íbúðar í kjallara, að liálfu. Ennfremur 1 herbergi
í kjallara og geymsluris. — Bilskúrsréttindi.
Fallegur trjágarður.
Söluverð 460 þúsund kr. — Útborgun 300 þús.
Ingi Ingimundarson hdl.
Vonarstræti 4,
Sími 24753 — heima 24995.