Morgunblaðið - 08.03.1958, Page 16
V EÐRID
StiIIt og bjart veður
.tniMfiMft
Skóggræðsla
Sjá bls. 11.
57, tbl. — Laugardagur 8. marz 1958.
Hann haíði látið sér detta í
hug að svipfa unnustuna lífi
Rannsókn morbmálsins ab mesfu lokib
SAKADÓMARI og þeir rann-
sóknarlögreglumenn, sem með
honum unnu að rannsókn hins
hryllilega morðs í Eskihlið
12B, hér í bæ um síðustu helgi,
hafa nú lokið rannsókninni að
mestu. Hefur verið unnið sleitu-
laust með festu að því að upp-
lýsa aðdraganda þess að Guðjón
Magnússon Guðlaugsson sjómað-
ur, varð banamaður unnustu
sinnar. Blöðin spurðust í gær fyr-
ir um lokaþátt rannsóknar máls-
ins og iét þá sakadómari þeim í
té yfirlit um aðalatriði þess sem
fram hefur komið frá því fyrstu
yfirheyrslum yfir Guðjóni lauk,
en rannsókn málsins hefur einnig
farið fram í Grindavík og Kefla-
vík. .
Skýrsla sakadómara
Framburður kærða, Guðjóns
Magnússonar Guðlaugssonar, hef-
ur mjög skýrzt frá því í fyrstu
yfirheyrslum, en síðustu skýrslu
sína um atburðarásina gaf hann
á miðvikudaginn. Eftir því sem
honum þá sagðist frá hafði ó-
stjórnleg afbrýðisemi hans fyrir
nokkru leitt hann svo langt, að
Gísli Guðmunds-
son bókbindari
látinn
GÍSLI Guðmundsson, bókbind-
ari, einn hinna kunnari gömlu
Reykvíkinga er látinn, tæplega
84 ára að aldri. Lézt hann um
klukkan 4.30 í fyrrinótt í Hvíta-
bandinu. Þangað hafði hann ver
ið fluttur á mánudaginn, en það
var þvagteppa i.em dró hann til
dauða.
Allir fulltíða menn hér í
R.eykjavík vissu nokkur deili á
Gísla, og einna kunnastur var
hann fyrir söng sinn. Allt fram
undir áttræðisaldur söng hann í"
kór Dómkirkjunnar við messu-
gjörðir og jarðarfarir.
Hann átti einnig að baki lang
an starfsferil í iðn sinni. Hann
var 26 ára gamail er hann hóf
að vinna við bókband hjá
Birni Jónssyni, ísafoldar rit-
stjóra og í ísafoldarprentsmiðju
slarfaði hann alla tíð, allt fram
tii síðasta hausts, því að Gísli
var heilsuhraustur maður allt
fram á hin síðustu ár. Síðari árin
vann hann aðeins hálfan daginn.
Fyrir um það bil ári síðan gekk
Gisli heitinn undir uppskurð
vegna sjúkdóms síns.
GuSjón Magnússon Guðlaugsson
hann lét sér til hugar koma að
fyrirfara sér eða jafnvel svipta
unnustu sína lífi. Vegna þessara
hugsana keypti hann hnífinn í
verzlun einni hér í bænum um
viku fyrir hinn voðalega atburð
og fór með hann heim í íbúðina
í Eskihlíð 12B.
Meðan þau dvöldu í íbúðinni á
laugardagskvöldið neyttu þau
dálítils áfengis, en að því dró
að þeim varð sundurorða og í
einhvers konar geðofsakasti greip
Bolvíkingar flögg-
uðu fyrir rafmaaninu
BOLUNGARVÍK, föstudag — f
gærkvöldi var straumi hleypt á
veitukerfi Bolungarvíkur frá
hinu nýja raforkuveri við Fossá
í Syðridal. Eru vélar allar í bezta
Iagi en smátruflanir Mrðu fyrst
í morgun vegna tenginga í spenni
stöðvum.
Rafmagninu fagnað
Almennur fögnuður ríkir hér
vegna þess að hið nýja raforku-
ver hefur nú verið tekið í notkun.
Voru víða dregin flögg við hún
í kauptúninu í dag til þess að
fagna rafmagninu frá Fossá.
Glaðasólskin hefur verið hér í
dag með þriggja til fjögra stiga
frosti. —Fréttaritari.
Fæðingarheimili
Reykjavíkurhæfar
LAGAFRUMVARP það, sem
Gunnar Thoroddsen flutti um, að
Reykjavikurbæ skyldi heimilt að
taka húsin nr. 37 við Eiríksgötu
og 16 við Þorfinnsgötu til afnota
fyrir fæðingarheimili, var sam-
þykkt sem lög frá Alþingi í gær.
Varðarkaffi í Valhöll
í dag kl. 3-5 s.d.
Guðjón þá til hnífsins, sem þarna
var tiltækur, og stakk sjálfan
sig með honum í brjóstið hægra
megin og hlaut af því nokkurt
sár. Honum mislíkuðu viðbrögð
unnustu sinnar við þessu tiltæki
hans og án þess að hún hefði sýnt
honum nokkra líkamlega áleitni
trylltist hann nú og réð henni
bana með hnífnum.
Að þessu afstöðnu fór hann á
brott og náði sér í bíl, sem hann
fór í til Keflavíkur og síðan
heim til sín til Grindavíkur.
Væntanlega verður kærði bráð-
lega fluttur í sjúkrahúsið á
Kleppi til rannsóknar á andlegri
heilbrigði hans.
Akranesbátar
byrja með net
aítur
AKRANESI, 8. marz: Flotinn
hér er nú almennt að hefja netja
veiðar. í gær hafði vélskipið Sig
rún, sem er með net, 27 tonna
afla eftir róðurinn, og Sveinn
Guðmundsson var með 15 tonn.
Línubátar voru með miklu minni
afla allt niður í þrjú tonn. Þorsk
urinn sem nú er farinn að veið-
ast er vel vænn, lifraður vel
og hrognin orðin stór. — Oddur.
Sjúkraliðsmenn bera brezka sjóliðann að
Reykjavíkurflugvelli um hádegisbilið í gær.
þyrilvængjunni á
(Ljósm. Mbl.)
I GÆRMORGUN varð slys um
borð í brezka eftirlitsskipinu
H.M.S Russell, er það lagðist að
•Faxagarði hér í Reykjavíkurhöfn
um kl. 10. Einn sjóliðanna, 16
ára piltur, skaddaðist svo á hægri
hendi, að taka varð af fjóra fing-
ur.
Eftirlitsskipið, sem er hér við
land til aðstoðar við brezka tog-
ara, var að koma inn til að taka
vatn og vistir. Skipið var að
leggja að Faxagarði er slysið vildi
til. Skipverjinn, sem slasaðist,
var að koma fyrir svonefndum
„stuðpúða", en hann er notaður
til að taka af högg er skip leggja
að bryggju. Þegar skipið seig að
Haldið verður áfram
ösk)uhlið
A FUNDI bæjarstjórnar Reykja-
víkur í gær var rætt um tillögu
frá Þórði Björnssyni um að efnt
skyldi til samkeppni um tillögur
um skipulagningu og fegrun
Öskjuhlíðar.
Borgarstjóri sagði, að tillaga
þessi hefði verið lögð fram í
nóvember s. 1., en síðan verið til
athugunar hjá samvinnunefnd
um skipulagsmál og skipulags-
stjóra. Nefndin sendi álit sitt
með bréfi dags. 18. febrúar s. 1.
og kváðust sérfræðingar þeir,
sem hana skipa, ekki geta mælt
með því, að tillagan væri sam-
þykkt, þar sem enn hefðu ekki
verið teknar ákvarðanir um
skipulag við Reykjanesbraut.
Borgarstjóri tók fram, að al-
ger einhugur væri að sjálfsögðu
um að vinna ætti að því að fegra
öskjuhlíð eins og gert hefur ver-
ið á undanförnum árum. Hefur
verið unnið að því undir stjórn
garðyrkjuráðunauts bæjarins og
varið til þess talsverðu fé.
Fyrir nokkrum árum sömdu
þeir Valtýr Stefánsson ritstjóri
og Einar Sæmundsen skógarvörð-
ur ýtarlegar tillögur um upp-
græðslu hiíðarinnar. Voru þær
samþykktar í aðalatriðum í bæj-
arstjórn.
Allmikil orðskipti urðu um
þetta mál og var m. a. minnt á
tillögur um veitingaskála ofan á
hitaveitugeymunum. — Þórður
Björnsson undi því illa, að tillaga
hans fékk ekki stuðning. Fram
kom í umræðunum, að tillögur
hafa komið fram um að breyta
Hafnarfjarðarveginum og rætt
hefur verið um veg norðan og
vestan við Öskjuhlíð og inn með
Fossvogi. Loks er framtíð Reykja
vikurflugvallar enn ekki ókveð-
in. Allt eru þetta atriði, sem
hljóta að hafa mikil óhrif á
skipulag á Öskjuhlíð. Einnig var
á það be”‘ mkeppnin
myndi verða mjög kostnaðar-
söm.
I umræðunum réðst Þórður
Björnsson harkalega á skipulags-
skrifstofu Reykjavíkur, en borg-
arstjóri benti á, að á síðustu 4
árum voru skipulagðir nær 330
hektarar í borginni. — í síðustu
ræðu sinni sagði Þórður loks, að
fyrir sér væri það í rauninni
ekkert aðalatriði, að efnt væri
til samkeppni. Aðalatriðið væri,
að „vissir áhrifamenn" vildu fá
lóðir fyr.ir hús í Öskjuhlíð og það
mætti ekki verða. — Borgarstjóri
kvað þessa hugaróra vart svara-
verða. Sér vitanlega hefði eng-
um dottið í hug að reisa íbúðar-
hús í öskjuhlíð nema flugráði,
sem sótt hefur um að mega
byggja þar embættisbústað. íbúð-
arbyggingar kæmi ekki til mála
að leyfa á þessurn stað.
Að lokum var samþykkt með
10 atkv. gegn 4 að vísa tillögu
Þórðar Björnssonar frá.
bryggjunni og púðinn varð milli
skips og bryggju, vildi slysið til.
Bandið, sem í hann er fest, skarst
þá svo djúpt inn í greip hægri
handar, að minnstu munaði að
hún skærist í sundur. Sjóliðinn
var í skyndi fluttur í sjúkrahús,
en hægri hendinni var ekki hægt
að bjarga. Maðurinn var síðah
fluttur með þyrilvængju frá varn
arliðinu til Keflavíkurflugvallar,
en þaðan var hann fluttur til
Lundúna í gærdag í herflugvél.
Aðalfimdur
Verzlunar-
sparisjóðsins í dag
í DAG verður aðalfundur Verzl-
unarsparisjóðsins haldinn í Þjóð-
leikhúskjallaranum og hefst harin
kl. 2 e. h.
Þar mun formaður stjórnar
sparisjóðsins flytja skýrslu um
starfsemi hans ó árinu sem leið
og lagðir verða fram endurskoð-
aðir reikningar sparisjóðsins.
Starfsemi Verzlunarsparisjóðs-
ins er þegar orðin mjög umfangs-
mikil og hefur hann átt vaxandi
vinsældum og trausti áð fagna.
í stjórn sparisjóðsins eiga nú
sæti: Þorvaldur Guðmundsson,
forstjóri, formaður, Egill Gutt-
ormsson, stórkaupmaður og Pet-
ur Sæmundsen, viðskiptafræð-
ingur.
Hletavelta Hvatar
HVÖT, Sjálfstæðiskvennafélagið,
heldur hlutaveltu í Listamanna-
skálanum á morgun, sunnu-
dag. Félagskonur og velunnarar
félagsins eru beðnir að gefa góða
muni á hlutaveltuna. Munirnir
verða sóttir heim ef þess er ósk-
að. —
Lítill bátur ferst við Land-
- Mannbjörg
VESTMANNAEYJAR, 7. marz.
— Snemma í morgun strandaði
vélbáturinn Unnur héðan frá
Vestmannaeyjum, á Landeyjar-
sandi. Mannbjörg varð, enda var
hæg norðanátt og brimlaust við
ströndina.
Unnur var á leið í róður, en
báturinn fiskar með handfæri.
— Var hann á ferð og sigldi
beint upp í sandinn. Um tildrög-
in að öðru leyti vissu menn ekki
hér í kvöld, því skipbrotsmenn
eru ekki komnir heim, en að
sjálfsögðu mun sjóréttur fjalla
um málið. Eftir því sem formað-
ur Bátaábyrgðarfélagsins, Ár-
sæll Sveinsson sagði mér í kvöld,
þá voru strax gerðar ráðstafanir
til að ná bátnum á flot aftur, en
það hafði ekki tekizt í kvöld. —
Taldi Ársæll litlar líkur til þess
að bátnum yrði bjargað, þar sem
hann myndi brotinn. Skipsmenn
munu allir hafa komizt hjálp-
arlaust í land. Skipstjóri á bátn-
um og jafnframt eigandi er Jón
Markússon. Báturinn er 13 tonn
og á honum voru 4 menn.
— Bj. Guðm.