Morgunblaðið - 14.03.1958, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.03.1958, Blaðsíða 3
Föstudagur 14. marz 1958 MORCT’NBTAÐIÐ 3 Átti rétt til sérstakra uppbóta fyrir varðstörf Starfsmaður Landssímans í máli við símamáloistjórnina . Þetta eru ekki ungliðar úr auslurríska flotanum, sem gengið hafa á Iand og tekið Xower í London með áhlaupi, heldur meðlimir í hinum fræga drengjakór Vínarborgar, sem var á ferðalagi í Bretlandi fyrir skömmu. — Ha, ha, segir senni- lega einhver, Austurríkismenn eiga engan flota— og ]iað er laukrétt. Óskað eftir upplýsingum um stóreignaskatt EINS og kunnugt er, lauk nýlega niðurjöfnun stóreignaskatts skv. lögum, sem sett voru á sl. sumri. Alls voru 135 millj. kr. lagðar á 609 aðila. Nú hafa ýmis fé- lagasamtök sent opinbera orð- sendingu til stóreignaskattsgreið enda. Segir þar, að skattstofan i Keykjavík og fjármálaráðuneytið Roðasteinninn op; ritfrelsið BLAÐINU hefur borizt bæknng- ur Jóhannes úr Kötlum, „Roða- steinninn og ritfrelsið“, þar sem fjallað er m. a. um hina umdeildu bók Agnars Mykle, „Söngurinn um roðasteininn“, og bannið við pientun hennar hér á landi og í Noregi. Bókin er 98 bls. að stærð og kostar 20 krónur. Kaflar hennar bera þessi heiti: Fáein orð um mannlega náltúru, Skáldverk um ungan mann, Norskt klámhögg, íslenzkt klámhögg, Þér hreinsið bikarinn og diskinn að utan . . ., Lítilla sanda, lítilla sæva . . . Eins og kunnugt er, las höf- undur upp úr þessum bæklingi á fundi Stúdentafélags Reykja- víkur, þar sem fjallað var um prentfrelsið á íslandi, og vakti ýmislegt í þeim lestri athygli, ekki sízt upphafskaflinn. Bæklingurinn er á boðsttólum í flestum bókabúðum. Skákkeppni á Kefla- vfkurflugvelll KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 13. marz. — Hraðkeppni í skák fór fram s.l. þriðjudag milli skák- félags Keflavíkur og starfs- manna ísl. aðalverktaka. Keppt var á 10 borðum. Keppninni lauk með sigri Keflvíkinga, sem hlutu 63 vinninga gegn 37. Þeir Keflvíkingár, sem vinna hjá Aðal verktökum kepptu fyrir þá. Að keppninni lokinni buðu Aðal- verktakar keppendum til kaffi- drykkju. —B.Þ. hafi neitað að sýna skrá um greiðendur skattsins. Því er þess farið á leit, að greiðendurnir gefi trúnaðarmanni samtakanna upp- Iýsingar, og er óskað eftir ná- kvæmu afriti, helzt ljósprentun af tilkynningunni um skattinn. Ætla samtökin að láta gera skýrsl ur um þessi mál og birta opinber lega, hvernig skatturinn skiptist á verzlun, iðnað og aðrar atvinnu greinar. Að orðsendingunni standa sam tök iðnrekenda, stórkaupmanna, húseigenda i Reykjavík, iðnaðar- manna, smásöluverzlana ogvinnu veitenda svo og Verzlunarráðið. Xrúnaðarmaður þeirra er Svavar Pálsson, löggiltur endurskoðandi og er þess óskað, að upplýsing- arnar séu sendar til hans i Xjarn- argötu 4 í Reykjavik eigi síðar en á mánudag í næstu viku. f HÆSTARETTI er genginn dómur í máli, er reis út af launa- kjörum starfsmanns hjá Lands- síma íslands sem vinnur við loranstöðina í Vik í Mýrdal, Jónasar Tr. Gunnarssonar að nafni. Þau urðu úrslit málsins bæði í héraði og fyrir hæstarétti að Jónas vann málið. Þegar kæra Jónasar var lögð fram hljóðaði hún upp á fjárhæð, er nemur tæplega 40,000 kr. og taldi hann að þar væri um að ræða vangold in laun frá 1. an. 1951 til 31. des. 1953. Árið 1951 var .Jónas ráðinn til starfa við loranstöðina á Reynis- fjalli í Mýrdal sem aðstoðar- maður. Starf hans þar var fólgið í ,,tímavörzlu“ og öðrum störfum við stöðina, er honum kynni að verða falin. Jónas hafði áður verið starfsmaður við þessa sömu stöð frá 1. jan. 1947 í þágu flug- ráðs íslands, er þá hafði með höndum rekstur stöðvarinnar, en Landssími íslands tók við rekstrinum um áramótin ,50—,51 og var Jónas því framráðinn til starfa af Landssímanum og fékk ráðningarbréf. í því segir að staða Jónasar í stöðinni svari til XII. launaflokks launþega. 1. febr. 1953 bárust Jónasi starfsmannareglur Landssímans í hendur. Við lestur þeirra hafi komið í ljós að hann og nokkrir samstarfsmenn hans í stöðinni höfðu ekki fengið laun, er þeim bar samkv. 19. gr. starfsmanna- reglanna. Þegar hér var komið máli, snéri Jónas sér til Félags símamanna og það tókst að fá leiðréttingu mála og Jónas og samstarfsmenn hans fengu laun sem þeim bar frá 1. jan. 1954. Úrslit máls þessa urðu þau i undirrétti að Jónasi Tr. Gunnars syni yoru dæmd hin vangoldnu laun, samkv. XII. launaflokki opinberra starfsmanna að við- bættu álagi fyrir eftir-nætur og helgidagavinnu samkvæmt starfs mannareglum Landssímans um „vaktfólk". Þessi dómsorð staðfesti Hæsti- réttur og í dómsforsendum segir m.a. á þessa leið: Dómur: Áfrýjandi (Póst- og símamála- stjórnin) hefur skotið máli þessu til Hæstréttar, með stefnu. Krefst hann sýknu af kröfum málskostnaðar úr í héraði og fyrir STAKSTEIIVAR stefnanda og hendi hans Hæstarétti. Stefndi krefst staðfestingar hins áfrýjaða dóms og málskostn aðar úr hendi áfrýjanda fyrir Hæstarétti. Viðurkennt er, að áfrýjandi skuldi stefnda fjárhæð, ef dóm- krafa stefnda í þessum hluta málsins verður tekin til greina. Telja verður, að með bréfi áfrýjanda frá 8. desember 1950 hafi stefndi verið skipaður í starf samkvæmt þágiidandi lög- um um laun starfsmanna ríkis- ins nr. 60/1945, sbr. 8. tl. 21. gr. þeirra laga, og fór um föst laun fyrir það starf eftir XII flokki laganna. Af því leiðir. að auk nefndra laga giltu um starfs- réttindi stefnda reglur um starfrækslu og starfsmenn Landssímans, sbr. 1. gr. þeirra reglna frá 27. .febrúar 1935, og urðu þau starfskjör, sem þannig voru ákveðin, ekki skert með sérstökum samningi. Stet'ndi átti því rétt til að njóta þeirra kjara um sérstakar uppbætur fyrir varðstörf, sem greind eru í c-lið 19. gr. reglugerðar um sama efni nr. 136/1945, enda hefur hann ekki með tómlæti glatað rétti til að krefja áfrýjanda um slíkar greiðslur, þar sem um starfskjör hans gilda ákvæði opinbers rétt- ar. Samkvæmt þessu ber að stað- festa héraðsdóminn og dæma áfrýjanda til að greiða stefnda málskostnað fyrir Hæstarétti. semjB um gagn- kvæma Ifrkpeks’u við TWA MÖRG flugfélög, sem e u utan vébanda flugféiagasams.-j ,.unn- ar IATA eiga í talsveröum örð- ugleikum sökum þess, að stór flugfélög vilja ekki gera við þau samninga um gagnkvæm við- skipti (Interiine Agreement), en þess konar samkomulag er báð- um aðilum oft til hins mesta hag ræðis, þar sem það tryggir hag- kvæma fyrirgreiðslu og veldur því m. a. að flugfarþegar geta ferðazt með ýmsum flugfélögum víða um heim og notið alls staðar beziu kjara. Undanfarin ár hefur þeim IATA flugfélögum farið fjölg- andi, sem talið, hafa hagkvæmt að gera við Loftleiðir samninga um gagnkvæm viðskipti og með undirritun samninga, sem nýlega voru gerðir um þetta milli Loft- leiða og bandaríska flugfélags- ms TWA eru þessi félög nú orð- in um 20, en TWA er áttunda stóra ameríska flugfélagið, sem samið hefur um þetta við Loft- leiðir. Auk þess eru nú í gildi sams konar samningar milli Loft leiða og þriggja brezkra flugfé- Sjónvarpsleikkona hefir viðdvöl hér laga, franska flugfélagsins AIR FRANCE, AEROFLOT hins rúss neska, auk smærri félaga víða um heim. Vegna þessa geta far- þegar nú keypt í skrifstofum Loftleiða einn farseðil til ferða- laga til hinna fjarlægustu flug- stöðva og fá sama afslátt og ef ferðazt væri með einu félagi. Er þetta einkum hagstætt fyrir þá, sem ferðast vilja innan Banda- ríkjanna, þar sem kaup farseðla hér spara 10—15% söluskatt, sem lagður er á þá farseðla, er keyptir eru í Bandaríkjunum. Þau flugfélög, sem gert hafa fyrrgreinda sanminga við Loft- leiðir munu annast sölu farmiða með flugvélum Loftleiða á flug- leiðunum yfir Norður-Atlants- hafið, og er félaginu því mikill styrkur að þe'ssum nýju tengslum við hin stóru erlendu flugfélög. í GÆR léku Spánn og Frakkland landsleik í knattspyrnu. Jafn- tefli varð, tvö mörk gegn tveim- ur. í hálfleik stóðu leikar 1:0 fyrir ’Spán. Leikurinn fór fram í París. BREZKA sjónvarpsleikkonan ungfrú Anne Valerie kom til Reykjavíkur í fyrrakvöld með flugvél Loftleiða frá London og hélt áfram til New York eftir skamma viðdvöl. Ungfrú Valerie er ein af kunn ustu sjónvarpsleikkonum Bret- lands. Hún semur sjónvarpsþætti, stjórnar þeim og leikur. Hún hefir unnið við auglysingadeild sjónvarpsins frá því er sú deild hóf störf í septembermánuði árið 1955 og annast ungfrú Valerie fasta þætti þess, sem notið hafa mikilla vinsælda. Hún hefir alls stjórnað 208 sjónvarpsþáttum um margvísleg efni og leikið í flestum þeirra. Áður en ungfrú Valerie hóf störf hjá sjónvarpinu fékkst hún við margs konar leikstarfsemi og lék í nokkrum kvikmyndum. Hún hefir verið tízkusýninga- dama hjá Dior í París. Ungfrú Valerie kvaðst gera ráð fyrir að koma fram í sjónvarpi meðan hún dvelst í Bandaríkjunum, en hingað kemur hún aftur 25. þ.m., á leið til London. „Einföld“ skýring Þjóðviljinn gefur í gær skýr- ingu á því, af hverju ekki sé atvinnuleysi á íslandi. Ástæðan til þess, „hvers vegna ekki eru nú þegar þúsundir atvinnuleys- ingja í Reykjavík, er ofur einföld og augljós", segir Þjóðviljinn. Þessi einfalda skýring er þá sú, að við höfum gert svo góða og hagstæða sölusamninga við Sovét rikin og önnur Austur-Evrópu- lönd. Það má með sanni segja, að einfalt sé að koma uieð slíka skýringu, en er hún þá ekki nokk uð einfeldningsleg um leið? Kommúnistar sjá að Framsókn er ekki nóg Þjóðviljinn biðlar nú á hvcrj- um degi ákaft til Alþýöuí'lokks- ins. Kommúnistar hafa nú komizt að þeirri niðurstöðu, að Alþýðu- sambandið muni vera beim glatað vegna samtaka lýðra;ðissinna innan verkalýðsfélaganna, sem tekið hafa höndum saman þar til andstöðu við kommúnista. Komm únistar sjá að stuðningur for- ustuliðs Framsóknarmanna muni ekki duga þeim og er skýrt dæm- ið úr Iðjukosningunni. Hræðslan við að missa Alþýðusambandið hefur heltekið kommúnista nú síðustu vikuna. Reyndar er það svo, að fyrir Iðjukosningarnar taldi Þjóðvilj- inn að ekkert væri upp úr Al- þýðuflokknum leggjandi, hann ætti ekkert fylgi innan verkalýðs félaganna og kommúnistar virt- ust þá leggja miklu meira upp úr því aö hafa samstarf við Fram sókn. Nú er þetta öfugt. Nú telja kommúnistar, að þeir þurfi einmitt að fá stuðning Alþýðu- fiokksins til að lialda tökum sin. um innan verkalýðsfélaganna. Þannig er alltaf sami hringsnún- ingurinn hjá Þjóðviljanum, eftir því hvernig vindurinn blæs í hvert skipti. En það fróðlegasta í þessu öllu er, að kommúnistar virðast hafa gefizt upp á að treysta á stuðning Hérnianm Jónassonar innan ve íý ðshreyi ingarinnar og er raunar ekki að undra það. Ráðstefna og vopnavald Nú berast fréttir um að nýr skriður sé að komast á undir- búningsfund hinna æðstu manna. Eitt sinn sagði spakur ma'ður, að „styrjaldir tækju við þegar stjórn málamennina bæri upp á sker“. Þá var litið á styrjaldir eða vopn aða valdbeitingu sem eðlilegt framhald á átökum stjórnmála- mannanna. Eyðingarvopn nútím- ans hafa breytt þessu viðhorfi þannig að stórþjóðirnar reyna nú að nálgast hver aðra til að komast hjá hinu gamla „framhaldi“ á misheppnaðum stjórnmálavið- ræðum. Þó viðhorfið sé þetta í dag getur þó enginn séð inn i framtíðina. Meðan vopn eru til eru líka til menn, sem vilja beita þeim. Stefna' vestrænu þjóðanna hefur verið sú, að búast til varnar til að vernda friðinn. Ekki hefur þó verið unnt að koma í veg fyrir „smærri“ stríð, eins og í Kóreu eða vopnavald eins og það sem beitt var í Ungverjalandi. Hvort fundur æðstu mannanna fryggir friðinn eða hvort hann misheppnast og leiðir þá af sér að kalda stríöið harðni, eins og sumir spá, sést í fyllingu tímans. Óréttlátur skattur Sjálfstæðismenn hafa lengi gagnrýnt tekjuskattinn, en talað fyrir daufum dyrum. Nú virðist sjónarmið þeirra loks hafa mætt skilningi. Yfirskriftin í Alþýðu- blaðinu í gær út af umræðunum um afnám tekjuskattsins, var þessi: „Tekjuskatturinn er nú fyrst og fremst orðinn óréttlátur skattur á launþega.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.