Morgunblaðið - 14.03.1958, Side 10
10
MORCVNBLAÐIÐ
Föstudagur 14. marz 1958
tTtg.: H.í. Arvakur, Reykjavik.
Framkvæmdastjóri: Sigfus Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
« Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Ola, simi 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480
Askriftargjalci kr. 10.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
ÁRÁS FRAMSÖKNAR Á SAM-
GÖNGUBÆTUR / SVEITUM
E'i NGUM, sem eitthvað þekk-
ir til í sveitum landsins
■i dylst, að eitt stærsta
hagsmunamál þeirra og landbún-
aðarins eru greiðar og góðar
samgöngur, vegir til afurða- og
nauðsynjaflutninga til og frá bú-
unum. Einangrunin og samgöngu
leysið er einn versti óvinur
sveitafólksins.
Ætla mætti að á þessu ríkti
jafnari glöggur skilningur hjá
valdhöfunum á hverjum tíma.
Má og fullyrða að svo hafi oftast
verið. Stórfelldar umbætur hafa
verið unnar í vegamálum þjóð-
arinnar undanfarin áratug. Engu
að síður búa margar sveitir við
mjög lélegt vegasamband og
surnar eru sambandslausar með
öllu.
Það er nú auðsætt orðið að nú-
verandi ríkisstjórn hefur sýnt
sveitunum sérstaka óvild og allt
að því beinan fjandskap að því
er snertir vegaframkvæmdir í
landinu. í tvö ár hefur það verið
eina sparnaðarmál Eysteins Jóns-
sonar fjármálaráðherra að skera
stórlega niður fjárveitingar til
nýbygginga þjóðvega. Þannig
lagði hann til í fjárlagafrumvarpi
sínu á sl. hausti, að fjárveiting
til þessara lífsnauðsynlegu fram-
kvæmda yrði lækkað úr tæpum
16 millj. kr., sem hún var á fjár-
lögum ársins 1957, niður í 12
millj. kr.
Það sætir vissulega ekki lítilli
furðu, að flokkur, sem þykist sér-
staklega bera hag sveitanna og
bændastéttarinnar fyrir brjósti,
skuli flytja slíkar tillögur á Al-
þingi.
Fyrir ötula baráttu Sjálf-
stæðismanna fékkst hlutur
sveitanna og vegamálanna í
landinu réttur og árás vinstri
stjórnarinnar undir forystu
Framsóknar hrundið. Fjár-
veitingin til nýbyggingar þjóð-
vega var hækkuð upp í sömu
upphæð og á sl. ári, eða tæpar
16 millj. kr.
Þýðir raunverulega
lækkun vegafjár
En þrátt fyrir það að tilræði
Framsóknar við vegaframkvæmd
irnar misheppnaðist og sama
upphæð væri veitt til nýbygg-
inga á þessu ári og sl. ár, er þó
auðsætt að framlögin til nýrra
þjóðvega hafa verið lækkuð stór-
lega í valdatíð vinstri stjórnar-
innar. Kostnaður við vegagerðir
hefur hækkað verulega sl. tvö ár,
sennilega um allt að 20%. En
fjárveitingarnar til þessara nauð-
synlegu framkvæmda í þágu at-
vinnulífsins hafa staðið í stað.
Verðbólgustefna vinstri stjórn-
arinnar er þannig smám saman
að draga saman verklegar fram-
kvæmdir í þágu bjargræðisveg-
anna. Færri og færri kílómetrar
af nýjum vegum eru lagðir fyrir
það fé, sem Alþingi veitir til
vegabóta í landinu. Hins vegar
er haldið áfram að ausa hátt á
annan milljónatug króna í halla-
rekstur Skipaútgerðar ríkisins.
Stefna Framsóknarmanna í
vegamálunum er þannig farin að
bitna þunglega á sveitunum, sem
vantar vegi og öruggar samgöng-
ur. öll þjóðin þarf á vegum að
halda. Kaupstaðir og kauptún
»jávarsíðunnar þurfa að ná til sín
mjólkinni og öðrum afurðum
bænda. Það er þess vegna sam-
eiginlegt hagsmunamál almenn-
ings til sjávar og sveita að haldið
verði áfram að byggja upp vega-
kerfi landsins. En því miður virð-
ist það vera stefna vinstri stjórn-
arinnar <að draga úr þessum
rauðsynlegu framkvæmdum enda
þótt hún auki eyðslu og fjár-
austur á flestum öðrum sviðum.
Ný embætti eru stofnuð, nýjar
nefndir og ráð sett á laggirnar á
vegum vinstri stjórnarinnar, en
framlögin til vegabóta eru raun-
verulega stórlækkuð.
Tillaga Jóns Pálmasonar
Sjálfstæðismenn meta hvers
konar viðleitni til sparnaðar og
hófsemi í meðferð ríkisfjár. En
þeir telja það fráleitt að draga
úr framlögum til vegagerða á
sama tíma, sem eyðsla er aukin
á öllum öðrum sviðum. — Jón
Pálmason flutti þess vegna til-
lögu um það í samvinnunefnd
samgöngumála á því þingi, sem
nú stendur yfir, að fjárveiting til
byggingar nýrra þjóðvega yrði á
þessu ári 20 millj. kr. í stað 12
millj. kr. eins og fjármálaráð-
herra hafði lagt til í frumvarpi
sínu.
Stjórnarliðið svæfði þessa til-
iögu Jóns Pálmasonar. — Hún
fékkst ekki einu sinni tekin til
atkvæðagreiðslu í nefndinni. Með
samþykkt hennar hefði þó aðeins
verið haldið í horfinu með bygg-.
ingu þjóðvega.
Þannig er skilningur Fram-
sóknarmanna á hagsmunamálum
sveitanna. Þeir reyna fyrst að
skera niður fjárveitingar til vega-
gerða, enda þótt hvergi sé reynt
að spara á öðrum útgjaldaliðum
fjárlaga. Síðan láta þeir svæfa
tillögu Sjálfstæðismanna um leið-
réttingu þessa ranglætis. Loks
drattast þeir, vegna baráttu Sjálf-
stæðismanna, til þess að hækka
vegaframlögin upp í sömu upp-
hæð og á sl. ári. En eins og áður
er sagt þýðir það raunverulega
lækkun þeirra vegna sívaxandi
dýrtíðar.
Minni nýbyggingar
Þjóðin fær þess vegna styttri
nýja vegi á komandi sumri en
undanfarin ár. Vélaskortur sverf-
ur einnig að vegamálastjórninni.
Öll framkvæmd vegabóta í land-
inu verður erfiðari, þrátt fyrir
dugandi verkfræðilega yfirstjórn
þessara þýðingarmiklu mála.
Framsóknarflokkurinn beitir
sér einnig gegn því að nýir vegir
verði teknir í þjóðvegatölu. Hafa
þó þingmenn allra sveitakjör-
dæma landsins flutt tillögur um
nýja þjóðvegi í héruðum sínum.
Sj álfstæðismenn hafa jafnframt
lagt til að framlög til nýbygg-
inga þjóðvega væru aukin til
þess að mæta lengingu þjóðvega-
kerfisins í vegalögum.
En Framsóknarafturhaldið
berst eins og ljón gegn þessu.
Eysteinn sér hvergi möguleika
til sparnaðar nema í sam-
bandi við vegaframkvæmdir.
Ríkisbáknið má halda áfram
að þenjast út. Þar þarf ekkert
að spara.
Þetta er stefna vinstri
stjórnarinnar gagnvart strjál-
býlinu.
UTAN UR HEIMI
Of kostnaðarsamt að vinna kol
í Grænlandi til útflutnings
GRÆNLANDSMÁLARÁÐ-
herrann danski lagði á dögun-
um fyrir þingið skýrslu sína um
landfræðilegar rannsóknir og
námuvinnslu á Grænlandi. Eitt
hið merkasta, sem þar kemur
fram, er að hann telur að þýðing
avlaust sé að hugsa til stórauk-
innar kolavinnslu á Grænlandi
með útflutning fyrir augum.
Geysimikið kolamagn hefur fund
izt í jörðu á Grænlandi og talið
er, að á Nugssuaq-skaganum ein-
um, sem er norðan Diskó-flóans
á vesturströndinni, séu milljónir
lesta í jörðu — og þar væri hægt
að vinna 100.000—200.000 lestir
árlega.
Að undangenginni margra ára
rannsókn hefur niðurstaðan orð-
ið sú, að kolavinnsla á Græn-
landi muni ekki svara kostnaði
nema sem nemur kolanotkuninni
í landinu sjálfu. Aðalástæðan er
sú, að flutningaleiðin er löng og
ótrygg — og rekstur námanna er
tiltölulega dýrari norður á Græn
landi en í Evrópu.
Á síðasta ári voru 18.000 lestir
kola unnar úr jörðu á Qutligssat-
eyju í Disko-flóa og búizt er við
því að framleiðaian aukist á
þessu ári um 6.000 lestir, en það
mun nægja til þess að þessar
námur fullnægi kolaþörfinni á
vesturströndinni.
Þá segir í skýrslunni, að yfir-
stórn landfræðirannsóknanna og
kortlagningarinnar á Græn-
landi hafi farið þess á leit við
stjórnina, að hún keypti tvær
þyrilvængjur til starfsins fyrir
næsta sumar. Talið er að stofn-
kostnaður við þessi kaup yrði
1,2 milljónir danskra króna, en
árlegur reksturskostnaður kr.
177.000.
Þá kemur það og fram, að dr.
Lauge Koch hefur nú lokið við
að gera uppdrátt af miðhluta A-
Grænlands. Hefur Koch lagt
fram í Grænlandsmálaráðuneyi-
inu skýrslu um starfið svo og
framtíðaráætlun. Telur hann að
næst þurfi að hefjast handa við
rannsóknir og uppdráttargerð af
Scorespysundi og landssvæðinu
umhverfis. Engar teljandi rann-
sóknir hafa verið gerðar þar
enn — og telur Koch sig geta
| unnið verkið á 5 árum, frá og
með næsta sumri fram til 1962.
í því sambandi vill hann flytja
aðalbækistöðvar sínar frá Ella
ey inn í botn Scorespysunds-
fjarðar. Biður hann um 40.000
krónur til framkvæmdanna —
og einnig telur hann að verja
eigi auknum fjárhæðum til þessa
starfs. Vill hann fá 750.000 kr. til
umráða til eflingar rannsóknar-
starfinu.
Að lokum er þess getið í skýrsl
unni, að í Skógafirði í Juliane-
haab-héraðinu hafi fundizt uran
iumríkur málmur, 575 grömm af
uranium voru þar í hverri smá-
lest, en sums staðar á þessu
svæði var magnið helmingi
meira, þ. e. eitt kg. í hverrl smá
lest. Auk þess var þrisvar sinn-
Um meira magn af þorium í þess
u.m málmlögum.
Sem kunnugt er hefur urani-
um fundizt á nokkrum stöðum á
Grænlandi, en stjórnin telur enn
ekki hafa verið gengið nægilega
vel úr skugga um magnið á hin-
um ýmsu stöðum svo að enn verð
ur engin ákvörðun tekin um
vinnslu þess. Verður því veitt
tveim milljónum króna til frek-
ari rannsókna og borana á næsta
fjárhagsári — og er þess almennt
vænzt, að ekki líði á löngu þar
til þessar rannsóknir fari að bera
ríkulegan ávöxt.
<
Ymsar nýjungar
-jk „Firestone" hjólbarðaverk-
smiðjurnar bandarísku eru um
þessar mundir að gera tilraunir
með nýja gerð varahjólbarða.
Eru þeir mjög léttir í meðförum
og litlir fyrirferðar, en æði sér-
stæðir. Þeir eru nefnilega úr
stáli, gúmmíhúðaðir. Ekki er ætl-
azt til að skipt sé um hjólbarða,
þegar þessi varabarði er notað-
ur, því að hann fellur utanyfir
þann sem fyrir er. Það er því
mjög fljótlegt að gera við bil-
unina. Hér er að vísu aðeins um
að ræða bráðabirgðaviðgerð, sem
þægilegt er að geta gert við erf-
iðar aðstæður fjarri byggð.
Atlas Martin í Gautaborg hef-
ur fengið leyfi til þess að gera
tilraunir með nýtt rafveiðitæki
nú í vor. Þetta tæki er sérstætt
og nýstárlegt hvað það snert-
ir, að með því er hægt að veiða
fisk af þeim stærðum, sem óskað
er í það og það sinni. Verður
því hægt að þyrma smáfiski og
ungviðið, sem að engu gagni
kemur, en togarar veiða jafnan
mikið af.
★ H. van Gimbron í Zevenaar
í Hollandi hefur hafið framleiðslu
á bleki, sem hægt er að þvo úr
fatnaði með köldu vatni, en er
þó jafngott og varanlegt til
skriftar og annað blek.
‘>=í>í=í»=ös<=í»'=0@
-/r Redal-France í París fram-
leiðir nú lítið móttökutæki, sen»
vel hefur reynzt á fjölmennum
vinnustöðum svo sem stórum
verksmiðjum. Tækið vegur ekki
nema 100 grömm og er 7/8 úr
þumlungi á breidd. Fer því lítiS
fyrir því í vasa og hefur reynzt
verkstjórum í stórum verksmiðj-
um sérlega vel, því að þeir geta
á þann hátt móttekið boð frá
yfirmönnum hvar sem þeir eru
staddir á verksmiðjusvæðinu.
Þegar viðkomandi menn eru
„kallaðir upp“ heyrist örlítið suð
í móttakaranum, nægilega mikið
til þess að vekja athygli hvers
og eins, sem ber hann í vasa
sínum. Gengur móttökutækið fyr-
ir rafhlöðu, sem endist í 400
stundir — og tekur ekki nema
nokkrar sekúndur að skipta um.
ýc Hjartasérfræðingur einn í
New York hefur skýrt svo frá,
að honum hafi tekizt að búa til
eins konar „raf-hjartastilli“, sem
hann hefur notað til þess að róa
og koma reglu á hjartslátt hjart-
veikra manna — sérstaklega við
uppskurði — og eftir þá. Eru
tveir hárfínir vírar, sem eru í
sambandi við sérstaka rafvél,
leiddir til hjartavöðvanna — og
með rafstraumi er hjartsláttur-
inn síðan stilltur.
rr mBwwww ý" ■" VI t ** /•yt^rr”rirrfytvtyrrrr t/y*
Lögreglan í Nordheim-Wcstfalen hefur stofnað sveit lögreglumanna á kappaksturshjólum, sem
auðveldlega komast 170 km á klukkustund. Tilgangurinn er að hafa hendur í hári umferðar-
lögbrjótanna sem aka oft æði hratt. — Liður í æfingum lögreglumannanna í þessari sveit «r
eins konar körfuknattleikur. Á fullri ferð eiga þeir að kasta knetti í körfu. Slíkt krefst mikila
sjónaröryggis og góðrar hraðadómgreindar. — Myndin er frá slíkri æfingu.