Morgunblaðið - 19.03.1958, Qupperneq 2
s
MORGUNBL.4ÐIÐ
Miðvik'udagur 19. marz 1958
Póskaeggin komn á morgon
UNDANFARIN ár hafa páska-
eggiu komið á búðir alllöngu fyr
ir páskahátíðina. En nú er ekki
farið að bera á þeim í verzlun-
tun. Þetta stafar af því að kaup-
menn og framleiðendur hafa
komið sér saman um að láta
páskaeggin ekki koma fram í
búðirnar fyrr en 20. þ.m. þ.e.a.s.
á morgun.
Samband smásöluverzlana hér
1 bænum og nokkrir af fyrir-
svarsmönnum súkkulaðiverk-
smiðjanna skýrðu blöðunum frá
þessu í gær og var það formaður
smásöluverzlanasambandsins,
Sigurður Magnússon. kaupm., er
orð hafði fyrir þessum aðilum.
Dýraverndarinn fordæmir
harðlega hrossaúfíluininginn
í SÍÐASTA hefti Dýraverndar-
ans tekur ritstjórinn, Guðmund-
ur Gíslason Hagalín, til meðferð-
ar hrossaútflutninginn nú í vet-
ur, sem mjög hefur verið á dag-
skrá. Er ritstjórinn óvægur í
máli sínu og nefnir hann grein-
ina: „Ef stjórnarvöld virða lög að
vettugi hvað þá um aðra?“
Hann segir frá því í greininni
að í vetur hafi lög þau er um
hrossaútflutning hjjóða verið þrí-
brotin, fyrst í október, þá í næsta
mánuði á eftir og svo í desember
og hafi Dýraverndunarfélagið
kært þetta til sakadómaraembætt
isins, á þeim forsendum að
hrossaútflutningur sé með lögum
bannaður frá 15. okt. til 1. marz.
1 greininni gerir ritstjórinn
einnig að umtalsefni upplýsingar
er Dýraverndunarfélagið hafi
fengið frá Hamborg varðandi
hrossaflutningana. Verðið á ís-
lenzku hestunum í Hamborg er
að sögn Hamborgar-manna frá
1400 upp í 40.000 krónur. — Þá
eru rakin blaðaskrif erlendis um
hrossaútflutninginn. En á meðal
þeirra er það mál létu til sín taka
var svissneskur blaðamaður, sem
í bréfi hingað bauðst til að kaupa
1000 íslenzka hesta og væri hér
um að ræða dýravernd af sinni
hálfu, en ekki hagnaðarvon hans.
1 niðurlagi greinarinnar segir
ritstjórinn m. a. á þessa leið í
þessari hörðu ádeilugrein sinni:
„Væri undarlegt, þó að ærið
margir hugsuðu sem svo: Úr því
að þessi lög hafa verið brotin á
æðstu stöðum, má þá ekki búast
við, að hvers konar löghelgaður
réttur dýranna verði fyrir borð
borinn. hvenær sem stundarhag
Draugslestin næsia
leikrii Hvergerðinga
HVERAGERÐI, 18. marz. —
Annað kvöld hefur Leikfélag
Hvaragarðis frumsýningu á
brezka sjónleiknum „Drauga-
lestin“, eftir Arnold Ridtley. Hef
ux Klemenz Jónsson leikari sett
leikinn á svið.
Aðalhlutverkin fara þau með
Magnea Jóhannsdóttir og Gestur
Eyjólfsson. Magnús Pálsson
gerði teikningar að leiktjöldun-
um, en síðan málaði Höskuldur
Björnsson þau.
Leikfélag Hveragerðis hefur
verið mjög mikilvirkt leikfélag
og hefur tekið til flutnings ýmis
veigamikil leikrit, er hlotið hafa
góða dóma og verið sýnd við
prýðis aðsókn.
„Draugalestin" var sýnd í
Reykjavík af Leikfélagi Reykja-
víkur fyrir allmörgum árum og
er þeim er það sáu enn í fersku
minni hinn rammi draugagang-
ur. Leikfélag Hveragerðis sýnir
leikrit þetta viðar hér eystra og
verður t.d. sýning á Selfossi á
sunnudaginn og austur á Hellu
verður leikritið sýnt laugardag-
inn 29. þ.m.
ur eða duttlungar einhverra
ásækinna borgara krefjast þess?
Og hvað svo um önnur lög?
Þarna er gengið á rétt og öryggi
málleysingjanna, sem okkur er
trúað fyrir. Þar mun garðurinn
virðast lágur — minnsta kosti
fljótt á litið. En mundu ekki vera
einhverjir, sem gjarnan vildu fá
ráðuneytisleyfi til þess að
stökkva yfir hann, þar sem hann
mundi talinn hærri — enn sem
komið er? Hvað um skjólgarð
heimilanna? Mundu ekki þeir
vera til í okkar viðsj.álu veröld
— minnsta kosti úti í löndum —
sem hafa talið æskilegt að geta
stokkið yfir hann með stjórnar-
plagg í höndunum?"
Algeri siríð á
Kúba frú 1. aprll
HAVANA, 18. marz — Upp-
reisnarforinginn Fidel Castro,
sem stjórnar 1000 manna upp-
reisnarher í frumskógum Suð-
ur-Kúba, lýsti því yfir í dag,
að frá og með 1. apríl myndi
hann hefja algert stríð við
stjórn Batista. Frá þeim tíma
verður skotið á hvert farar-
tæki, sem ferðast um vegi
Oriente-héraðs og þá mun
hver embættismaður sem starf
ar fyrir Batista eiga von á
dauða sínum sem svikari. Um
líkt leyti mun Castro fyrir-
skipa allsherjarverkfall á
eynni. —Reuter.
Frumvorpi til umierðarlaga oll-
mikið breytt í neðri deild
Keisaradrottningu vottnð samúð
KOLN, 18. marz. — Soraya Persa
drottning, sem nú hlýtur að
skilja við mann sinn. Pahlevi
Persakeisara vegna þess að hún
er óbyrja, nýtur mikillar samúð-
ar meðal Þjóðverja. Hún dvelst
nú í Vestur-Þýzkalandi, þar sem
faðir hennar er sendiherra. Sjálf
er hún fædd í Berlín og hefur
dvalizt langdvölum í Þýzkalandi.
í dag brosti Soraya í fyrsta
skipti um langan tíma, þegar
þýzk kona, sem sjálf er óbyra
færði henni blómvönd og sýndi
henni þannig samúð sína. Hin
þýzka kona heitir frú Klein og
býr í Saarbriicken. Hún er 35
ára og í 10 ára hjónabandi hefur
hún ekki eignazt barn, þótt það
sé henni æðsti draumur.
Þegar hún frétti af því að
Soraya væri að skilja við mann
sinn keisarann, lagði frú Klein
af stað frá Saar og ferðaðist 300
Góðar gæftir
en lítill afli
HORNAFIRÐl, 18. marz — Góð-
ar gæftir hafa verið hér undan-
farinn hálfan mánuð. Allir heima
bátarnir róa með net. Hefur afl-
inn aftur á móti verið mjög litill,
einkanlega síðustu viku. Alls er
afli trillubátanna á þessum tíma
500 tonn af slægðum fiski með
haus í 62 sjóferðum. Er Gissur
hvíti með mestan afla 104 tonn.
Það sem nú er liðið af vertíð
hefur m.b. Helgi mestan afla 332
tonn. Margir handfæra-bátanna
hafa aflað vel að undanförnu.
Með mestan afla fyrrihluta marz
eru Jón Ben. með 50 tonn og Haf-
björg 47 tonn, en þessir bátar
eru báðir frá Neskaupstað.
Fiskframleiðslan hjá kaup-
félaginu hér frá áramótum er
sem hér segir: Frysting nemur
1436 tonnum, búið er að salta
560 tonn og í herzlu 246 tonn
i — Gunnar.
km leið til Kölnar. Hún hitti
drottninguna er hún var að koma
út af hárgreiðslustofu í borginni,
gekk á móti henni og afhenti
henni fagran blómvöhd. Að svo
búnu setti mikinn grát að frú
Klein. Soraya drottning komst
einnig mjög við af þessum at-
burði, en hún brosti, — brosti í
gegnum tárin.
í dag var tilkynnt að enn hefði
verið frestað fullnaðarskilnaði
keisarans og Sorayju. Sá frestur
verður þó aðeins í nokkra daga.
Atkvæðagreiðsla eftir 2. umr.
um frumvarp til umferðarlaga
fór fram í neðri deild Alþingis í
gær.
Samþykktar tillögur:
Margar breytingatillögur höfðu
komið fram. Nokkrar voru tekn-
ar aftur, en atkvæði voru greidd
um 14 þeirra. Níu voru sam-
þykktar (atkvæðatalan í svig-
um):
Frá Skúla Guðmundssyni um
að þess skuli ekki krafizt, að á
útblásturspípum bifreiða séu
tæki er draga úr reyk (20:0).
Frá allsherjarnefnd um að
tollstjórum skuli óheimilt að toll
afgreiða skráningarskylt, vél-
knúið ökutæki, nema bifreiða-
eftirlit ríkisins hafi gefið yfir-
lýsingar um, að sú gerð öku-
tækja fullnægi ákvæðum ís-
lenzkra laga (20:0).
Frá Gísla Guðmundssyni og
Gunnari Jóhannssyni um breyt-
ingar á atriðum í 25. gr. frumv.:
„Ef vínandamagn í blóði manns
er 0,50%<? til 1.20%C, eða hann er
undir áhrifum áfengis, þótt vín-
andamagn í blóði hans sé minna
telst hann ekki geta stjórnað
ökutæki örugglega“ (13:7). —
Og frá sömu mönnum: „Ef vín-
andamagn í blóði ökumanns nem
Pilfurinn kom fram
í FYRRAKVÖLD var lýst eftir
18 ára pilti úr Reykjavík, sem
farið hafði að heiman frá sér
illa búinn þá um daginn. Á hann
vanda til að fá flogaveikisköst
og var óttazt um hann, er hann
kom ekki heim undir kvöldið.
Síðast sást hann fyrir ofan Bald-
urshaga síðdegis í fyrradag.
Skátar, lögregluþjónar og menn
úr Slysavarnafélaginu leituðu
piltsins í fyrrinótt. Kl. 7,15 í
gærmorgun var hringt á lögreglu-
stöðina og tilkynnt, að heima-
fólk í Fellsmúla hefði fundið
piltinn. Fellsmúli er í Mosfells-
sveit á leiðinni upp að Hafra-
vatni. Hafði pilturinn búið um
sig í hlöðu hjá bænum og sofið
þar í fyrrinótt.
Nýtt hraðfrystihús tekið
til starfa í Tálksiafirði
PATREKSFIRÐI, 17. marz —
S. 1. laugardag tók til starfa í
Tálknafirði nýtt fullkomið frysti-
hús, eign Hraðfrystihússins h. f.
Hraðfrystihús félagsins brann 15.
marz, fyrir ári síðan og var haf-
izt handa um bygingu hins nýja
hraðfrystihúss 15. maí s. L á
rústum gamla hússins. Hefur
byggingin því aðeins tekið 10
mánuði.
Þriggja hæða bygging
Grunnflötur hússins er 700
fermetrar og rúmtak 8050 ten-
ingsmetrar. Húsið er byggt úr
steinsteypu og er aðalbyggingin
tvær hæðir en framhluti hennar
þrjár hæðir. Á fyrstu hæð er fisk-
mótttaka, vélasalur og geymslu-
klefar, sem einnig eru byggðir
upp á aðra hæð og taka 700 tonn
af fiskflökum. Þá er einnig á
fyrstu hæð aðstaða handa þrem-
ur bátum til lóðabeitingar, og
sérstakur frystiklefi til þess að
geyma í beitta línu.
Stór ísgeymsla
Á annari hæð er flökunarsalur,
pökkunarsalur, frysting og
geymsluklefar, sem byggðir eru
á báðum hæðum. Auk þess er á
þessari hæð ísgeymir fyrir um
30 tonn af ís. Verkstjóraherbergi,
skrifstofa, umbúðageymsla og
rúmgóð veiðarfærageymsla.
Á þriðju hæð er kaffistofa fyr-
ir starfsfólk, þrjú snyrtiherbergi,
ísgerð og verbúðir fyrir þrjár
skipshafnir og sérstakt ráðskonu-
herbergi. í húsinu eru þrjár
frystivélar, tvær Sabro-vélar 110
þús. og 70 þús. calloríum og ein
stólvél 75 þús. ealloríum. Frysti-
tæki verða alls 10. Vélar allar
eru rafdrifnar. Til bráðabirgða,
hefur verið sett í husið 50 kw.
dieselrafstöð, drifin af 100 hest-
afla mótor, og fær húsið nú raf-
magn frá þessari samstæðu, auk
þess að nokkru frá rafstöð byggð-
arlagsins.
Ekki full afköst enn
Full afköst á vinnslu í húsinu
verða ekki fyrr en Mjólkár-
virkjunin tekur til starfa, en ráð-
gert er að frystihúsið fái þaðan
rafmagn til starfrækslu sinnar.
Til að byrja með er aðeins' starf-
rækt fjögur frystitæki í því.
Gert er ráð fyrir að með fullum
afköstum verði hægt að vinna
þar úr 50 smálestum af fiski á
sólarhring. Tilfærsla öll á fiski
og öðru í húsinu fer fram á raf-
knúnum færiböndum og er þá út
búnaður allur hinn fullkomnastL
ur 1.20%« eða meira, telst hann
óhæfur til að stjórna vélknúnu
ökutæki“. (18:0). Bæði þessi at-
riði fela í sér lækkun á því vín-
andamagni, sem um er að ræða.
Áður var í fyrra tilvikinu miðað
við 0,60%«—1,30%«, en í síðara til-
vikinu við 1,30%«.
Þá voru orðin „eða hann er
undir áhrifum áfengis, þótt vín-
andamagn í blóði hans sé minna“
ekki í frumvarpinu.
Frá Skúla Guðmundssyni um,
að við 25. gr. bætist: „Hverfi
ökumaður af vettvangi, eftir að
hann hefur átt hlut að umferð-
arslysi, og náist skömmu síðar
með áfengisáhrifum, skal talið,
að hann hafi verið undir áhrif-
um áfengis við aksturinn“. (19:0)
Frá Pétri Péturssyni, Gísla
Guðmundssyni og Ásgeiri Sig-
urðssyni um 28. gr.: „Til aksturs
dráttarvéla, þegar þær eru not-
aðar við jarðyrkju- eða hey-
skaparstörf utan alfaravegar,
þarf hæfnisskírteini". (16:5).
Frá Gísla Guðmundssyni og
Gunnari Jóhannssyni um að gefa
skuli merki, er ætlunin er að aka
fram úr öðru ökutæki (14:4).
Áður sagði, að það skyldi gert,
„ef ástæða er til“. — Frá sömu
mönnum um, að sá, sem á undan
er skuli draga úr hraða, þegar
fram úr er ekið (15:4). Áður
stóð: „ef nauðsynlegt er“.
Frá Skúla Guðmundssyni: Vá-
tryggingarfélagi, sem greitt hef-
ur bætur, skal skylt að endur-
krefja þann, sem valdið hefur
tjóninu, um 500 kr., ef bótaupp-
hæðin er 500—1000 kr., en um
1000 kr. af hverri einstakri bóta-
greiðslu, sem er meiri en þeirri
fjárhæð nemur. Auk þess á vá-
tryggingarfélag endurkröfurétt,
ef slys er valdið af ásetningi eða
stórkostlegu gáleysi, en lækka
má kröfuna með hliðsjón af sök
og efnahag tjónvalds, fjárhæð
tjóns og öðrum atvikum. Endur-
kröfurétti skal fylgja lögveð.
(11:8). — Nýmæli í þessari breyt-
ingartill. er fólgið í ákvæðinu um
skyldu til að gera endurkröfu.
Samþykkt var önnur breytinga-
till. er fól í sér samræmingu
annars ákvæðis í frv. við þetta.
__ Frá allsherjarnefnd um út-
gáfu prentaðs leiðarvísis, er skýri
helztu umferðarreglur í texta og
myndum af vegamerkjum og
handmerkjum bílstjóra í umferð.
Felldar tillögur
Felld var tillaga frá Skúla Guð
mundssyni um annað orðalag á
ákvæðinu um ölvun við akstur:
„Enginn má aka eða reyna að aka
vélknúnu ökutæki, ef hann er
undir áhrifum áfengis" í frumv.
stendur . ef hann vegna áfeng
isneyzlu verður eigi talinn geta
stjórnað þvi örugglega" (12:7)
Tillaga frá Gunnari Jóhannssyni
um að hafa aldurlágmark þeirra,
sem stjórna mega dráttarvélum,
14 ár var einnig felld (21:2). Þá
var felld tillaga frá Gunnlaugi
Þórðarsyni um að eigi skyldi ekið
hægar en 25 km á klst. að nauð-
synjalausu í þéttbýli (12:8). Einn
ig var felld tillaga frá Gísla Guð-
mundssyni og Gunnari Jóhanns-
syni um, að hámarkshraði í þétt-
býlj skyldi vera 35 km á klst.
(14:8). Nú er í frumv. miðað við
45 km á klst. Loks var felld til-
laga frá Skúla Guðmundssyni um
að herða ákvæðin um sviptingu
ökuleyfis (12:8).
FRA ALÞINGI
FUNDUR verður í sameinuðu
Alþingi kl. 1,30 í dag. Rædd verð-
ur fyrirspurn Ingólfs Jónssonar
um olíuverð. Fjáraukalög fyrir
1955 eru einnig á dagskrá svo og
þessar þingsályktunartillögur:
Rit Jóns Sigurðssonar. Áætlun
um brúar- og vegagerð. Hafnar-
gerðir og endurskoðun hafnar-
i laga.