Morgunblaðið - 26.03.1958, Page 3

Morgunblaðið - 26.03.1958, Page 3
Miðvik'udagur 26. marz 1958 MORCT’lvnT 4ÐIÐ 3 Alþingi eift hefur fjárveitingavaldið 1. umr. um frumv. Jóns Pálmasonar lokið Á FUNDI neðri deildar Alþing- is í fyrradag fór fram síðasíi hluii 1. umr. um frumv. Jóns Pálmasonar um eftirlit til varn- ar gegn ofeyðslu hjá ríkinu og stofnunum þess. Frá umræðunni hefur áður verið sagt í blaðinu 19. og 21. marz. Jón Pálmason tók fyrstur til móls og sagði m. a.: Það hefur komið í Ijós við umræðuna um frumvarp þettai að það fer mjög í taugarnar á Framsóknarmönn- um. Hefur það bæði sýnt sig hjó fjármálaráðherra og í ræðu Skúla Guðmundssonar. Skúli hélt því m. a. enn fram, að með þessu væri ríkisstjórn og yfirskoðunar- mönnum veitt fjárveitingavald. Enginn hefur fjárveitingavald nema Alþingi og þetta frumv. breytir þar engu, — ætlunin er aðeins að setja vegg gegn því, að ráðherrar og forstjórar geti leikið sama leik m’eð umfram- greiðslur og þeir hafa gert að undanförnu. í fjáraukalagafrumvarpinu 1955 greinir. Ég hef í umræðu um það bent á, að í frumv. vantar þessa upphæð. Er þar um að ræða atriði varðandi 3. gr. A (fram- kvæmdir Landssímans) og 20. gr. Annars er nokkuð á reiki um það, hvað tekið er í frumv. til fjáraukalaga, og er þess skemmst að minnast, að fyrir 2—3 árum var frumvarpið hækkað á þing- inu um 40 millj. kr. Það virðisf vera vandalítið að taka atriði úr ríkisreikningnum og setja þau í fjáraukalögin, en þó er það svo, að fyrir nokkrum dögum þurfti fjárhagsnefnd efri deildar að leiðrétta 12 tölur i reikningnum fyrir 1955. Prósentureikningur sá, sem fjármálaráðherra gaf upplýsing- ar um fyrr við umræðuna, er marklítill þegar af þeim sökum, að þar er aðeins um rekstrar- reikning að ræða. Reiknað er með mismun tekna og gjalda ríkis- stofnanna á 3. gr., auk þess sem 20 gr. (um eignahreyfingar) kem- ur alls ekki fram. Yfirskoðunarmenn þurfa að vera sammála Ef frumvarpið verður þykkt, er líklegt, að a. m tveir yfirskoðunarmenn verði úr öðrum flokkum en fjármálaráð- herra, og til þess er ætlazt, að allir yfirskoðunarmennirnir þurfi að vera sammála um nauðsyn umframgreiðslna, til að þær geti farið fram. Það er einnig til þess ætlazt, að hver einstakur yfir- skoðunarmaður geti frestað máli og látið það bíða úrlausnar Al- þingis. Myndi það vart verða löng bið, því að þing situr nú yfirleitt 7—8 mánuði á ári hverju. Einnig er til þess ætlazt, að yfir- skoðunarmennirnir samþykki skiptingu ýmissa fjárveitinga og fjölgun starfsliðs. Er þetta sagt til skýringar á atríðum, er Skúli Guðmundsson taldi óljós í frum- varpi rnínu. Fjáraukalögin Þá vék Skúli Guðmundsson að því í ræðu sinni, að ég segi í greinargerð, að greiðslurnar 1955 hafi verið 22 millj. kr. meiri en Athugasemdir yfirskoðunar- manna Skúli Guðmundsson ræddi hér um daginn um athugasemdir okk sam-1 af yfirskoðunarmanna. Það er k. rétt, að við höfum gefizt upp við að gera athugasemdir við ýmsar umframgreiðslur, sem til- heyra liðinni tíð og enga þýð- ingu hefur að gera athugasemdir við. Ég nefni sem dæmi um- framgreiðslur vegna dýrtíðar- ráðstafana. Eg hefði t. d. aldrei samþykkt að láta á áttundu milljón til að greiða niður smjör- líki og eyðileggja með því smjör- markaðinn. En athugasemdir eft- ir á hafa hér ekki þýðingu. Oft hefur verið farið mjög um- fram nauðsyn fram úr fjárlögum og athugasemdir verið gerðar þegar málin koma til okkar yfir- skoðunarmanna. Árið 1955 fór t. d. ríkisútvarpið nær 3 millj. og Skipaútgerðin á 4 millj. fram úr fjárlögum. Þess gætir mjög í svörum, sem berast frá rikissto^punum vegna athugasemda okkar, að tekjur þeirra hafi orðið hærri en áætlað var í fjárlögunum. En ég álít, að forstjórar stofnananna hafi alls engan rétt til að greiða meira en fjárlögin segja þrátt fyrir þetta eða lána j» allar áttir eins og fyrir hefur komið. Hér hefur mjög breytzt til hins verra frá því, er fyrrum var, og ber nauðsyn til, að þingið grípi í taumana. Ég hef lagt til, að yfirskoðunarmönnum verði feng- ið yfirlitsvald, en eins og ég hef áður sagt, er ekki aðalatriðið, hverjir það hafa, — og hafði ég reyndar sjálfur gert ráð fyrir því í upphafi, að það yrðu aðrir menn. —oOo—• Nokkrar frekari umræður urðu um málið í fyrradag, og tóku þá til máls Skúli GuSmundsson og Magnús Jónsson. — Atkvæða- greiðsla fór fram í gær,* og fór frumv. til fjárhagsnefndar og 2. umr. ST/VKSTEIMAR Afvopnunarmálln BONN, 25. marz — Lokið er fundi varnarmálaráðherra Vest- ur-Þýzkalands og Bretlands, þeirra Strauss og Sandys. I sam- eiginlegn yfirlýsingu, sem þeir gáfu út að fundinum loknum, segir m. a., að afvopnunarmálin beri að taka til meðferðar innan Atlantshafsbandalagsins, banda- lagsríkin eigi að koma þar fram sem ein heild. Auk þess er lögð mikil áhei’zla á það í yfirlýsing- unni að tví- og þríveldasamning- . arnir um vopnaframleiðslu í V- bagsrnálin. Ályktun hans var þá Evrópu eigi að ná til allra landa V-Evrópu. Er þess æskt, að mál- ið verði tekið til umræðu á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafs- bandalagsríkjanna, sem verður haldinn í næsta mánuði. „Gengislækkun — inn- brotsþjófnaður í stærsta stíl“ Undir þessari fyrirsögn birtl Þjóðviljinn í gær grein, þar sem m. a. segir: „Gengislækkunin, sem vissir aðilar berjast nú fyrir af slikri heift sem einu „lausn“ efnahags- málanna, hefur meðal annars álíka „kosti“ fyrir vissa aðila eins og vel heppnað innbrot fyrir ameríska bankaræningja.“ í þessu sama blaði Þjóðviljans er mikil grein eftir Harald Jó- hannsson, hagfræðing. Haraldur er kunnur af fyrri skrifum sín- um í Þjóðviljanum. Um mánaða- mótin okt,—nóv. skrifaði hann t. d. nokkrar greinar um efna- FRÁ ALÞINGI FUNDUR verður í Sameinuðu Alþingi kl. 1,30 í dag. Þar kem- ur til umræðu fyrirspurn Sigurð- ar Bjarnasonar um félagsheimili, svo og þessar þingsályktunartil- lögur: Hafnargerðir og endur- skoðun hafnarlaga. Vegakerfið. Lífeyrisgreiðslur. Skipakaup frá Noregi. Kvöldvaka Ferða- félagsins Utsýn FERÐAFÉLAGIÐ Útsýn heldur kvöldvöku í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld, fimmtudag, og hefst hún kl. 9 e. h. Þar mun J. A. F. Romero, sendikennari við Háskóla íslands, flytja erindi, er hann nefnir Svipmyndir frá Spáni. Erindið er samið með til- liti til ferðamanna og fjallar einkum um siði og venjur á Spáni, hugmyndir útlendinga um landið og viðbrögð þeirra, þegar þeir kynnast landi og þjóð af eigin sjón og reynd. Sendikenn- arinn mælir á íslenzku, enda tal- ar hann málið ágæta vel. Á kvöldvökunni verður ýmis- legt til skemmtunar, m. a. verða sýndar litskuggamyndir frá ferð- um Útsýnar um ýmis lönd Evrópu, einnig myndagetraun. — Skýrt verður frá áætlunum um starfsemi félagsins á komandi sumri og að lokum dansað til kl. 1 eftir miðnætti. Félagsskírteini og gestakort fást við innganginn. Skrifstofa félagsins í Nýja Bíói er opin kl. 5—7 síðdegis hvern virkan dag. Sveitarfélög kaupi sam- eiginlega og starfrœki stórvirkar vinnuvélar FULLTRÚARÁÐSFUNDI Samb. fyrir fasta starfsmenn kaupstað- ísl. sveitarfélaga lauk sl. mánu- dag. Fundinn sátu.auk stjórnar sambandsins, 19 fulltrúar af 20, sem þar gátu átt sæti. Auk reikninga sambandsins fyr ir'sl. ár og fárhagsáætlunar fyrir yfirstandandi ár svo og nokkurra annarra mála sem sérstaklega varða sambandið sjálft, svo sem útgáfa nýrrar handbókar fyrir sveitarstjórnir, og útgáfa tíma- ritsins Sveitarstjórnarmál, voru helztu málin, sem fundurinn fjailaði um þau er hér greinir. 1. Varanleg gatnagerð í kaup- stöðum og kauptúnum. Um það mál var gerð eftirfarandi álykt- un: I. í framhaldi fyrri samþ. full- trúaráðsins og með sérstakri hlið sjón af erindi því, er flutt hefur verið á fundi þessum um vara-n- lega gatnagerð í kaupstöðum og kauptúnum, samþykkir fundur fulltrúaráðsins eftirfarandi 1. Fulltrúaráðið telur mjög æskilegt og aðkallandi að til stað ar séu fyrirtæki er annazt geti skiplagninu og tæknilegar leið- beiningar og jafnframt tekið að sér að nokkru eða öllu leyti að framkvæma raunverulega gatna gerð og ef til vill fleiri slík verk fyrir sveitarfélög, enda hafi slíkt fyrirtæki yfir að ráða hagkvæm um vélakosti til malbikunar o. fl. er geri unnt að framkvæma slík verk á sem hagfelldastan hátt. 2. Fundurinn telur mjög til at- hugunar þar sem vel hagar til að nokkur sveitarfélög myndi sam- tök um sameiginleg kaup og rekstur stórvirkra vinnu a til verklegra framkvæmda. s“l-*a- gerð o. fl. og skipuleggi santeig- inlega sent hagfelldasta notkun slíkra tækja eða geri sameigin- lega samninga við slík fyrirtæki, ef til eru 3. Fundurinn felur stjórninni að hafa nú þegar samband við sveitarfélög um mál þessi, kynna sér aðstöðu þeirra og afstöðu til santvinnu í þessum efnurn, vilja þeirra og áætlanir um fram- kvæmdir á þessu sviði næsta ár. 4. Fulltrúaráðið beinir því til stjórnar sambandsins að útvega sem ýtarlegastar upplýsingar um það á hvern átt er hægt að gera viðunanlegar vegabætur á ódýr- an hátt. Frumvarp að launareglugerð anna. Tillögur um breytingu á launa kjörum oddvita. Laun sveitarstjóra. Um þessi mál voru gerðar eft- irfarandi samþykktir: II. Launasamþykkt fyrir fasta starfsmenn kaupstaða. Fulltrúaráðsfundurinn fagnar því, að drög að samræmdri launa samþykkt fyrir fasta starfsmenn kaupstaðanna, sem gerð hefur verið í samráði við fulltrúa frá B.S.R.B., liggja nú fyrir. Telur fundurinn rétt, að þessi drög að launasamþykkt verði send bæjarstjórnuum til hlið- sjónar við ákvörðun launakjara bæjarstarfsmanna. Launakjör oddvita. Fulltrúaráðsfundurinn bendir á hið mikla ósamræmi, sem er á launakjörum oddvita og telur að stefna beri að þvi, að oddvitar fái minnst 4% innheimtulauna af útsvörum og öðrum sambærileg- um tekjum sveitarfélaganna. Launakjör sveitarstjóra. Fulltrúaráðsfundurinn telur æskilegt, að myndaðar verði regl ur um starfskjör og laun sveit- arstjóra til leiðbeiningar fyrir hreppsnefndir. Beinir fundurinn því til stjórn arinnar, að hún láti afla upplýs- inga um ráðningarkjör núver- andi sveitarstjóra og geri tillög- ur til samræmmgar á kjörum þeirra. Breytingar á lögum um Bjarg ráðasjóð íslands. Fyrir fundinum lá ýtarlegt frumvarp um breytingu á lögum Bjargráðasjóðs íslands. Frurn- varpið var samþykkt með nokkr um smávægilegum breytingum og stjórn sambandsins falið að vinna að framgangi málsins við ríkisstjórn og Alþingi. Breytingarnar samkv. frum- varpinu miða að því að auka tekjur sjóðsins og gera hann að lánastofnun fyrir sveitarfélög landsins. Frumvarp til laga um bókhald sveitarfélaga og endurskoðun reikninga þeirra var varðveitt með eftirfarandi ályktun. III. Fulltrúaráðið lýsir stuðn- ingi sínum við þá meginstefnu, sem felst í frv. þessu, og feiur stjórn sambandsins, að beita sér fyrir því við ríkisstjórnina, að það verði lögfest. Fulltrúaráðið leggur áherziu á nauðsyn þess, að löggjöf um sveit arstjórnarmálefni verði endur- skoðuð hið fyrsta í samræmi við fengna reynslu, enda sc haft sam ráð við Samband ísl. sveitarfé- laga um það efni. Lagt var fyrir fur.dir.n til um- sagnar frumvarp tii laga um breytingu á lögum un- sveitar- stjórnarkosningar, sem nú liggur fyrir Alþingi, flutt af Friðjóni Skarphéðinssyni, þm. Akureyrar. Fundurinn samþykkti þessu máli eftirfarandi ályktun: IV. Fundurinn er því fylgandi að almennar kosningar til sveit- ar- og bæjarstjórna fari fram samtímis um land allt fjórða hvert ár. Fundurinn er því og samþykk- ur að kjörskrá til sveitarstjórn- arkosninga skuli samdar samtím- is um land allt og stefnt að því, að kjósandi hvorki falli af skrá við alm. kosningar, né sé sam- tímis á kjörskrá í fleiri sveitar- félögum, sem hann flytur til. Miðað við alm. kjördag í maí- júní þykir fulltrúaráðsfundinum því sanngjarnt að kosningarrétt- ur sé bundinn við búsetu 1. des. árið áður (þjóðskrárdag), enda þótt kjörskrá verði ekki formlega samin eða framlögð fyrr en í marz árið sem kjósa skal. Fyrir fundinum lá einnig til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á útsvarslögum og var samþykkt að vísa því máli til stjórnar sambandsins til umsagn ar og ennfremur þingsályktunar tillögur um aðsetur ríkisstofnana og embættismanna. Mælti fund- urinn með því að tillagan yrði samþykkt með smávægilegri breytingu. Fjárhagsnefndin bar fram eft- irfarandi tillögu sem samþykkt var með öllum atkvæðum. V. Fulltrúaráðsfundur Sam- bands ísl. sveitarfélaga 1958 skor ar á ríkisstjórn og Alþingi, að hækka árlegt framlag til Sam- bandsins í kr. 75.000.00. I fundarlok ávarpaði formaður sambandsins, Jónas Guðmunds- son fundarmenn, þakkaði þeim komuna, vel unnin störf á þess- um fundi og öðrum fundum full- trúaráðsins, en þetta var síðasti reglulegur fundur fulltrúaráðs sambandsins, þar sem landsþing þess verður háð næsta ar og nýtt fulltrúaráð þá kosið. Að loknum fundi kl. 5 síðdegis á mánudag, bauð félagsmálaráð- herra fulltrúum til kaffidrykkju í ráðherrabústaðnum. su, að verögildi íslenzku krón- unnar væri ofskráð og gengis- lækkun því nauðsynleg einkum vegna sjávarútvegsins. Þá gerði Þóðviljinn enga athugascmd við' þennan boðskap, enda er Harald- ur hinn hagfræðilegi ráðunautur, sem kommúnistar hafa nefnt til leitarinnar að „varanlegu úrræð- unum“. „Tíminn þvað*rar“ En þessa dagana hamast Þjóð- viljinn út af gengislækkunar- áformum Framsóknar og segir: „Tíminn þvaðrar í síðasta sunnudagsblaði um verðbólgu- dans og vonda menn, „kommún- ista“, er séu að eyðileggja þjóð- félagið með kauphækkunum“. „Hægri menn Framsóknar hafa löngum sýnt algert skilningsleysi á þessum grundvallaratriðum þjóðarbúskapsins. Á kreppuár- unum voru þeir á móti innflutn- ingi fiskiskipa. Á nýsköpunar- árunum börðust þeir á móti tog- arakaupunum og töldu nýsköp- unartogarana „gums“, er þeir voru komnir. Og skilningurinn virðist af skornum skammti enn, þrátt fyrir þau ákvæði stjórnar- samningsins að kaupa 15 togara, er erfiðlega gengur að fá að framkvæma. Tíminn virðist enn ekki skilja að höfuðatriðið fyrir þjóðfélag vort, ef það vill vera í framför og bæta lífskjör þjóð- arinnar og draga úr fátæktinni, er að auka framboðið á erlendum gjaldeyri, með því að efla sjávar- útveginn, en ofhlaða ekki þjóöar búið með óhagrænum ráðstöfun- um“. Þjóðviljinn gleymir því, að fjármálaspekingur kommúnista Haraldur Jóhannsson hélt því fram í haust, að gengislækkun væri skilyrði fyrir eðlilegum vexti sjávarútvegsins. Óheilindi kommúnista geta því engum leynzt. Ekki hægt að gera helming þjóðarinnar áhrifalausan Tíminn lætur ekki heldur sitt eftir liggja. Hann er auðsjáan- lega hræddur um að hafa móög- að kommúnista með sunnudags- skrifunum og reynir nú að bliðka þá með þvi að draga þeirra taum í verkalýðsmálunum. Timinn segir í gær um „Mbl“: „Það hefir komið Trjóuhesti atvinnurekenda inn fyrir múra í Sumum verkalýðsfélöguln“. Hér er tekið undir þá fásinnu, að sjálfstæðir verltamenn hljóti að vera erindrekar atvinnurek- enda í verkalýðssamtökunum. Fé lögin sjálf liafa svarað þeim rógi svo, a'ð óþarfi er um hann að ræða. En er von að vel fari hjá ríkisstjórn, sem lieldur að hægt sé að gera áhrifalausan þann flokk sem h. u. b. helmingur þjóðarinnar fylgir?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.