Morgunblaðið - 26.03.1958, Side 18
18
Miðvik'udagur 26. marz 1958
— Rafmagnið
Framh. af bls. 6
Vegna þess að fólk fer tiltölu-
lega varlega með heimilistæki
sín, hafa slys af þeirra völdum
verið fátíð. Þar af leiðandi er
_)essu máli ekki eins mikill gaum-
r gefinn og skyldi.
Færi að bera á alvarlegum slys-
m, myndum við rumska, en þá
• of seint að vara við voðanum.
í baðherbergjum er algjörlega
jannað að setja tengla. Þykir
það mörgum kynlegt bann, þar
sem tenglar eru leyfðir í þvotta-
húsum og jafnvel úti. Þó er leyfi-
legt að fasttengja þar raftæki, t.
d. þvottavélar. Vegna þrengsla er
oft ekki hægt að fasttengja
þvottavélar í baðherbergjum, og
hefur fólk er notar pau til þvotta,
gripið til þess ráðs að láta setja
lengla framan við dyr þeirra. Af
þessu leiðir oft að snúrur vélanna
merjast í sundur í dyragættinni
)g getur af þessu stafað veruleg
ætta.
Þeir sem einna mest kvarta þó
fir tenglaleysi í baðherbergjum,
aru hinir mörgu notendur raf-
magnsrakvéla, en þeim til hug-
léttis má geta þess að nú mun
vera að koma á markaðinn ný
gerð tengla, sem líkur eru til að
leyfðir verði í baðherbergjum, en
þeir munu eingöngu vera gerðir
fyrir rakvélar.
Eitt er það í íbúðum manna,
em vert er að vekja athygli á,
en það eru langar lampasnúrur,
sem oft liggja um stofur þverar
og endilangar, undir gólfteppum
og víðar. Þegar venjulegar silki-
snúrur fara að eldast, harðnar
gúmmíið, sem er undir silkiávaf-
inu. Þarf þá ekki annað en að
stigið sé á snúruna eða hún
hreyfð á annan hátt, þá molnar
gúmmíið og er þá hætta á að
leiði saman í snúrunni. Við það
getur auðveldlega myndast glóð,
sem kveikir í teppum og hús-
wu
McCall snið
/ ortízkan.
•4- 4- v
Glæsilegi, nýu úrval
kjólaefna
fyrir telpur og fullorðnar.
tirval af
hnöppum
og alls konar smávörur
fyrir heimasaum.
<■ * +
Póstsendum.
Skólavörðustig 12.
MORCtnVfílAÐIÐ
gögnum. — Af þessu hafa orðið
íkveikjur hér í bæ.
Það er full ástæða til að vara
fólk alvarlega við löngum lampa-
snúrum, enda óleyfilegar. Látið
heldur fjölga tenglunum, því
þótt það sé dýrara í svipinn, er
það ekkert á móti því tjóni, sem
íkveikja getur valdið.
Það er í sjálfu sér merkilegt að
tryggingafélögin skuli ekki hafa
látið mál þetta til sín taka, því
af þessum sökum hafa hlotizt all-
veruleg tjón.
Það hefur mörgum orðið hált
á því að gera hreint í kringum
lampa og ljósakrónur. Eins og nú
er gengið frá lömpum, freistast
fólk til þess að gera hrein loft og
veggi án þess að fjarlægja vegg-
og loftljós. Kemur það þá fyrir
að menn reka raka kluta í raf-
leiðslur eða þá eins og oft vill
verða að fólk reynir sjálft að
taka lampana niður, þar eð kostn
aðar- og tafsamt er að kalla til
fagmenn.
Úr þessu mætti auðveldlega
bæta. Það ætti aldrei að ganga
öðruvísi frá loft- eða veggdósum
en svo að í loki dósanna væru
felldir litlir tenglar, sem lampan-
um væri stungið í.
Sá tenglaútbúnaður á dósalok-
um, sem nágrannaþjóðir okkar
hafa, hentar okkur ekki, en vafa-
laust er hægt að fá hentuga
tengla, sem eru nægjanlega fyrir-
ferðalitlir til þessara nota og er
sjálfsagt að stefna að þvi. Þetta
myndi hafa mikil þægindi í för
með sér fyrir allan almenning.
Fólk myndi geta flutt lampa sína
til eftir vild, án þess að kalla á
fagmann, enda þess háttar snatt-
vinna illa séð. Það er í sjáifu sér
óeðlilegt að hvert barn skuli geta
stungið í samband hvaða lampa
eða heimiiistæki sem er, en að
kalla þurfi á rafvirkja ef hreyfa
þarf lampa í lofti eða á vegg.
Það sem hér hefur verið sagt
er ekki til þess að fólk fari að
óttast rafmagn eða rafmagns-
tæki, en full ástæða er til þess að
fólk umgangist rafmagnstæki
með stökustu varúð og geri allar
þær varúðarráðstafanir, sem til-
tækar eru. Það er of seint að
rjúka upp til handa og fóta þegar
skaðinn er skeður og rétt er að
minnast þess, að snerting við raf-
spennu þá, er við höfum til dag-
legra nota, getur hæglega valdið
slæmum brunasárum eða jafnvel
dauða.
Það er von mín að með þessum
línum takist að vekja menn til
umhugsunar um, hvort ekki sé
tímabært að gera frekari varúð-
arráðstafanir til aukins öryggis
á íslenzkum heimilum.
Árni Brynjólfsson.
r
Afengisvarnar-
nefnd kvenna
í Rvík og Hafnar-
firði
ÁFENGISVARNARNEFND
kvenna í Reykjavík og Hafnar-
firði hélt aðalfund sinn 11. marz
s.l. Á vegum nefndarinnar er nú
starfrækt skólaheimili fyrir
stúlkur á skólaaldri í Hlaðgerðar
koti í Mosfellssveit, í hinum
nýju heimkynnum Mæðrastyrks-
nefndar. Skólinn nýtur styrks
frá ríki og bæ. Forstöðukona
heimilisins er frú Jónína Guð-
mundsdóttir. Nefndin hefur
opna skrifstofu i Veltusundi 3
á þriðud. og föstud. frá kl. 3—5,
þar sem veitt er hjálp, þeim sem
þangað leita.
Stjórn Áfengisvarnarnefndar
var öll endurkosin, hana skipa:
Formaður: Guðlaug Narfadótt-
ir, Varaform.: Fríður Guðmunds-
dóttir, Gjaldkeri: Sesselja Kon-
ráðsdóttir, Ritari: Sigríður
Björnsdóttir, Meðstjórnendur:
Aðalbjörg Sigurðardóttir, Þór-
anna Símonardóttir, Jakobína
Matthiesen.
Á fundinum ríkti mikiii áhugi
á bindindisstarfsemi í landinu.
Handknattleiksmót íslands
A LAUGARDAGSKVOLD voru
leiknir þrír leikir í handknatt-
leiksmeistaramótinu. Fyrst léku
F.H. og ÍR í 3. fl. karla B. ÍR-
ingarnir mættu aðeins sex til
leiks, en stóðu sig þó furðuvel
í FH.-ingum framan af. í seinni
hálfleik náðu F.H.-ingar alger-
lega yfirhöndinni í leiknum og
unnu 26:9.
K.R. — Fram 22:20
Þessa leiks var beðið með
nokkurri eftirvæntingu. K.R.-
ingar hafa ekki náð sem beztum
leik nú upp á síðkastið, en Fram
á vaxandi liði á að skipa. Fram-
arar leiddu leikinn til að byrja
með. Þeir léku hratt og ákveðið
og tókst að opna vörn K.R.-inga,
einkum á miðjunni. Er um 8
mín. voru af leik stóð 4:2 þeim í
vil. Þá náðu K.R.-ingar smám
saman meiri tökum á leiknum
og er um 5 mín. voru eftir af
hálfleiknum stóð 12:6 þeim í vil.
í lok hálfleiksins, sem lauk 13:10
En Framarar voru ekki á því að
fyrir K.R. Seinni hálfleikur var
gefa sig, náðu góðum leikkafla
mjög jafn. Tvívegis náðu Fram-
arar að jafna, en á síðustu mín-
útum tryggðu K.R.-ingar sér
sigurinn.
Leikurinn var allvel leikinn af
báðum liðum. Lið Fram hefur
ekki leikið betur það sem af er
þessu móti. Hraði var meiri en
verið hefur hingað til. Þá not-
færðu þeir sér mjög vel þann
galla í vörn K.R.-inga, hvað mið-
herjinn leikur framarlega. Ungu
mennirnir Guðjón, Rúnar og Tóti
áttu allir mjög góðan leik.
Einnig voru Hilmar og Karl
sterkir.
Lið K.R. lék betur að þessu
sinni en að undanförnu. Þó
skorti enn á, að liðið leiki eins
létt og fyrir áramót. Þá mega
þeir vara sig á því, að láta mið-
herjann leika jafn framarlega
og í þessum leik. Við það mynd-
ast hættuleg eyða milli hans og
miðvarðar. Framarar munu
hafa gert allt að helmingi mark-
anna frá þessum bletti. Beztir
K.R.-inganna voru Þórir, og Karl.
Dómari var Magnús Pétursson.
Í.R. — Afturelding 40:23
Það vantaði ekki mörkin í
þennan leik, meira en eitt mark
á mínútu. Afturelding gekk ekki
heil til leiks, því að liðið vantaði
þrjá af föstum leikmönnum
þeirra. Í.R.-ingar tóku fljótt for-
ystuna í sínar hendur og jókst
bilið allt til leiksloka. í liði Í.R.
bar mest á Gunnlaugi, sem mun
hafa gert hvorki meira né minna
en 16 mörk, og Pétri, sem er
mjög vaxandi leikmaður. Hjá
Bolton Sáir-- íði
Blackfe Jtií
UNDANÚRSLITALEi u
bikarkeppninnar fóru , sl.
laugardag. Yfir 144 þúsund áhorf
endur voru viðstaddir leikina og
borguðu samtals 40 þúsund sterl
ingspund í inngangseyri. Bolton
sigraði Biackburn með tveim
mörkum gegn einu, en Manchest
er United og Fulham skildu jöfn,
tvö mörk gegn tveimur.
Blackburn byrjaði vel gegn
Boiton og hélt uppi látlausri
sókn fyrri helming hálfleiksins.
Það kom því ekki á óvart, er liðiö
skoraði á tuttugustu mínútu. —
Markið gerði miðherjinn Dobing
með skalla úr horni. Virtist nú
öllu iokið fyrir Boiton, þar eð lið
ið var mestallan tímann i vörn
og komst ekkert áfram gegn
sterkri vörn Blackburn. En á 38.
mínútu bilar vörn Blackburn illi
lega og miðherji Bolton, Gubb-
ings, kemst í gegn og skorar.
Innan mínútu brýzt Gubbings
aftur í gegn og skorar örugglega.
Á einni mínútu hefur leikurinn
unnizt og tapazt í senn.
Seinni hálfleikurinn minnti
mjög á ieik Bolton gegn Úlfunuin
í sjöttu umferð. Blackburn hélt
uppi iátlausri sókn, en komst
ekki í gegnum vörn Bolton, sem
lék örugglega út allan leikinn.
Fyrirliði Bolton, hinn heims-
frægi miðherji Lofthouse gat
ekki leikið með í þessum
leik vegna meiðsla. Lofthouse
hefur leikið mjög vel í vetur og
hefur átt mikinn þátt í velgengni
iiðsins í bikarkeppninni.Ef Loft-
house verður orðinn góður eftir
meiðslin jnun hann að öllum lík-
indum leika með liðinu í úrslita
leiknum á Wembley þ. 3. maí. —
Bolton lék á Wembley árið 1953,
þegar Blackpool sigraði með 4
mörkum gegn þremur
fVSanch. li.
Fulham 2:2
Fulham og Manchester United
skildu jöfn eftir hörkuspennandi
leik. Fulham lék mun fallegri og
virkari knattspyrnu en United;
og er talið líklegra til sigurs í
aukaleiknum, sem fram fer nk.
miðvikudag á leikvangi Arsenal
í London.
Framlína Fulham lék mjög
vel, einkum innherjarnir Hill og
Haynes, og mynduðust oft hættu
leg augnablik innan vítateigs and
stæðinganna.
Manchester skoraði þó fyrsta
markið. Hayn Crowther náði
knettinum frá framherjum Ful-
ham og sendi hann til Ernie
Taylor, sem skaut honum við-
stöðulaust inn fyrir vörn and-
stæðinganna til Carlton, sem
aði með þrumuskoti úti við
u. .ig. Stevens jafnaði litlu
seinna fyrir Fuiham með send-
ingu frá Langley bakverði.
Fulham átti nú meira í leikn-
um og komst nálægt því að skora
þegar hægri útherjinn Dwight
brenndi af frá markteig með
markið autt. Á 38. min. tókst
Fulham þó að skora. Vinstri inn
herjinn Haynes náði knettinum
í sínum eigin vitateig og sendi
hann til Dwight, sem vippaði
honum áfram tii hægri innherj-
ans Hill.
Hiil lék á vörn United og skor-
aði af stuttu færi.
Þrem mínútum seinna meiddist
Langley í árekstri við Dawson
miðherja Man. Utd. Langley varð
að yfirgefa völlinn, en lék seinni
hálfleik á vinstra kanti.
Charlton jafnaði fyrir Manch.
United, þegar 1 mín. var eítir af
fyrri hálfleik.
Manch. United tókst næstum
því að sigra , þegar Charl-
ton skaut þrumuskoti í þversiá,
þegar 10 mín. voru til leiks-
loka.
Sænska knaftspyrnu
Aftureldingu var Helgi Jónssen
beztur.
Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ voru
leiknir þrír leikir í Handknatt-
leiksmeistaramóti íslands. Fyrst
léku Haukar gegn Fram í 3. fl.
karla B. Haukar unnu 14:9.
Valur — Þróttur 27:22
Valsmenn áttu í vök að verj-
ast gegn Þrótturum fyrri háif-
leikinn. Vörn Vals var mjög
opin og allt spil þeirra mjög í
molum. í hálfleik var Þróttur 3
mörkum yfir. í seinni hálfleik
náði Valsmenn betri tökum á
leik sinum og unnu með 5 marka
mun. Beztir í liði Vals voru Geir
og Valur. Lið Þróttar var all-
sæmilegt framan af, en er liða
tók á leikinn urðu leikmennirn-
ir staðir og viljalausir. Var engu
líkara en þeim væri hjartanlega
sama, hvernig leikurinn endaði.
Skástir voru Guðmundur og
Grétar. Dómari var Frimann
Gunnlaugsson.
F.H. — Víkingur 22:12
Fyrri hálfleikur endaði 14:4
fyrir F.H. Hafnfirðingar léku á
fullum hraða og Víkingar smit-
uðust af þeim, og léku með
meiri hraða, en þeir réðu við.
í seinni hálfleik breyttu þeir um
leikaðferð og léku nú afarrólega,
sumir gerðu jafnvel ýmiss konar
kúnstir með knöttinn. Að visu
átti leikur þeirra lítið skylt við
handknattleik, en jöfnu héldu
þeir við Hafnfirðinga í seinni
hálfleik og má það kallast gott.
í liði F.H. voru Einar, Ragnar
og Birgir beztir. Hjá Víking bar
mest á Birni og Axel. Dómari
var Karl Jóhannsson.
Svíar unnu Dani
Oslo, 17. marz 1958.
DANIR og Svíar háðu 37. lands-
leik sinn í körfuknattleik í Hels-
ingborg í gær. Lauk honum með
sænskum sigri 17:14. í leikhléi
var staðan 7:4. Sænskir höfðu yf-
irleitt 3—4 mörk yfir allan tím-
ann.
í þau 37 skipti, sem þessir að-
ilar hafa leitt saman „hesta“
sína, hafa Svíar unnið 30 sinn-
um, og aldrei tapað á heimavelli.
í gær lauk fyrsta meistaramóti
Danmerkur í körfuknattleik. í
karlaflokki urðu Árhus Basket-
ball Forening fyrstu Danmerkur-
meistararnir, en háskólalið frá
Kaupmannahöfn sigraði í kvenna
flokki. — J.Á.
Oslo, 18. marz 1958.
NÝLEGA fóru 33 sænskir knatt-
spyrnumenn og þjálfarar til
Como á Ítalíu, ca. 5 míl. fyrir
norðan Milano. Þar munu þeir
dveljast í 10 daga á æfingastöð.
Þetta er einn liður í undirbún-
ingi sænska knattspyrnusam-
bandsins fyrir heimsmeistara-
keppnina.
U.S.S.R. og USA munu heyja
landskeppni í frjálsum íþróttum
í Moskvu 27.—28. júlí n.k.
USA sendir 44 karla og 20 kon-
ur til keppninnar. — J.Á.
Japönsk glíma
í SAMBANDI við íslandsmótið
í körfuknattleik fór fram sýning
á japanskri glímu að Háloga-
landi s. 1. föstudag. Glímuna
sýndu tveir flugliðar af Kefla-
víkurflugvelli ásamt tveim ung-
um glímumönnum sem aðeins
voru um 10 ára að aldri. Glímu-
mennirnir voru búnir japönskum
búningi, eða hvítum kyrtli og
hálfsíðum brókum. Sandala sína
skildu þeir eftir utan hrings og
glímdu berfættir, enda eru fætur
mikið notaðir í japanskri glímu.
Fyrst sýndu McDonald og Smith
ýmis grip og varnar og sóknar-
aðferðir, en Bandaríkjamaður út-
skýrði fyrir áhorfendum. M. a.
sýndu þeir varnir er ráðist er
að manni með hníf eða byssu.
Þóttu handtökin snör og skemmti
leg. Ennfremur fóru þeir í kapp-
glímu og tók undir í salnum er
kapparnir skullu í gólfið, en í
glímu þessari geta menn fengið
högg mikil og hörð. Glíma drengj
anna vakti fögnuð og ekki sízt
er þeir glímdu við hina full-
orðnu kappa og skelltu þeim í
gólfið.