Morgunblaðið - 01.04.1958, Side 2
2
MORCVNfíL 4 ÐIÐ
Þriðjudagur 1. apríl 1958
Snmkv. skoðanakönnun ætti
Dieienbaker að fó meirihlnta
OTTAWA 31. marz.
í dag, uði, vegna þess að flokkur hans
gengu um 7 millj. Kanadamanna
að kjörborðinu og skáru úr um
það hvort stjórn íhaldsmanna
skyldi sitja áfram að völdum, en
íhaldsmenn sigruðu í þingkosn-
ingunum í fyrra og bundu þar
með endi á 22 ára óslitið valda-
tímabil frjálslyndra. í dag voru
kosnir 265 fulltrúar til setu í
neðri deild þingsins, en 831 fram
bjóðandi var í kjöri.
Diefenbaker forsætisráðherra,
foringi íhaldsmanna, sleit þingi
í febrúar, eftir að hafa setið í
forsætisráðherrastóli í 10 mán-
Brennandi
skip
LONÐON, 31. marz. — 10.000
lesta norskt farþegaskip á leið
frá Evrópu til Ástralíu tilkynnti
í kvöld, að mikill eldur hefði brot
izt út um borð, en það er nú statt
á Indlandshafi. Með skipinu eru
1,100 farþegar, og eru um 800
þeirra innflytjendur til Ástralíu.
Brezkt skip, sem var í 17 míina
fjarlægð, hélt þegar til hjálpar.
Verkfall yfirvofandi
í Ruhr
LONDON, 31. marz — Leiðtogar
stáliðnaðarverkamanna í Ruhr-
héraðinu í V-Þýzkalandi hafa
boðað verkfall í stáliðnaðinum
í næstu viku. Hefur einn samn-
ingafundur verið boðaður með at-
vinnurekendum og verður þá
gerð lokatilraun til þess að semja
um laun verkamanna. í skoðana-
könnun, sem fram hefur farið
meðal verkamanna, er Ijóst, að
um 80% þeirra eru fylgj^ndi verk
falli.
Höf ðu étið 8 hunda
CHURCHILL, Manitoba. — A
dögunum bjargaði ein af flugvél-
um kandíska flughersins liðlega
fimmtugri eskimóakonu og 14 ára
dóttur hennar frá hungurdauða í
auðninni í einu af norðurhéruð-
um Kanada, skammt sunnan við
heimskautsbaug. Kona þessi
ásamt dóttur og þrítugum syni
hafði orðið viðskila við hóp veiði-
manna, sem þau voru með. Komu
þau sér upp litlum kofa og hugð-
ust bíða þess að einhverjir veiði-
menn gengju fram á þau þar. —
En þegar þau var farið að skorta
tilfinnanlega fæðu — og höfðu
etið 8 af 10 hundum sínum —
ákvað sonurinn að leggja upp og
freista þess að komast á slóð
veiðimanna. Heppnaðist þetta —
og var boðum komið til kanad-
íska flughersins. — Fór lítil
flugvél á vettvang mæðgunum til
bjargar.
hafði ekki nægilegan meirihluta
á þingi.
Helzta stefnuskráratriði hans
í kosningabaráttunni hefur verið
aukið verzlunarsamband við
Bretland svo og aukinn ríkis-
styrkur til landbúnaðarins og
hækkuð ellilaun auk margs ann-
ars, er lýtur að lýðhjálp,
Lester Pearson, foringi íhalds-
manna hefur lagt aðaláherzluna
á lækkaða skatta og úrbætur,
sem komið gætu í veg fyrir at-
vinnuleysi.
Samkv. skoðanakönnun, sem
gerð var um allt land fyrir um
viku, ættu íhaldsmenn að hljóta
51% atkv., en frjálslyndir 30%.
Á síðasta þingi sátu í neðri deild-
inni 113 íhaldsmenn, 108 frjáls-
lyndir, 25 samvinnuflokksmenn,
10 frá Social credit-flokknum og
2 óháðir.
Balisla æilar að lála
kné fylgja kviði
HAVANA, Kúbu, 31. marz. —
Kúbanska þingið veitti Batista,
einræðisherra, í dag aukin völd
til þess að láta til skarar skríða
gegn uppreisnarmönnum. Mikill
viðbúnaður var í höfuðborginni,
lögregla og her var vel á verði,
en ekki kom til neinna átaka. —
Hafa ýmsir foringjar verka-
manna, sem grunaðir eru um að
styðja uppreisnarmenn, verið
handteknir síðustu dagana.
Þjóðlcikliúsið
og óperan
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi athugasemd frá Þjóðleik-
húsinu vegna ummæla Kristins
Hallssonar í Mbl. s. 1. sunnudag
um ísl. óperu:
Kristinn segir að leiga á hús-
inu pr. sýningarkvöld á óperunni
La Boheme hafi verið 18 þús.
krónur og er það rétt. En Þjóð-
leikhúsið óskar að taka fram að
innifalin í þessari leigu eru laun
35 hljómsveitarmanna og um 40
starfsmanna Þjóðleikhússins sem
unnu við hverja sýningu, eða
laun samtals 75 manns við hverja
sýningu, auk annars kostnaðar.
Leiðrétling á
kökuuppskrlft
Á KVENNASÉÐUNNI s. 1. sunnu-
dag varð meinleg villa í köku-
uppskrift. — Rétt er uppskriftin
þannig:
Aflangar smákökur
1 kg. hveiti.
% kg. smjörlíki.
% kg. sykur.
Tæpur peli mjólk
1 sléttf. tesk. hjartarsalt
1 egg.
Kort af Öxnadalsheiði. Til vinstri sjást Fremri-K ot, en þar varð flugvélarinnar seinast vart.
Lengst til hægri er Bakkasel, en þaðan eru %Yí— 3 km upp að flakinu.
Flugslysið
Frh. af bls. 1
flugferð sína hér í Reykjavík
laust fyrir klukkan 5 á laugar-
daginn. Flugvélin, „Cessna 172“,
er fjögurra manna vél. Hún er
frábrugðin sjúkraflugvél Björns
Pálssonar að því leyti, að hún er
með kraftminni hreyfil og með
nefhjól, í stað hjóls undir stéli,
eins og sjúkraflugvélin. Hún
flýgur með um 110 mílna hraða.
Ferðafélagarnir voru allir í
góðum hlífðarfötum, úlpum ut-
an yfir dökkum sparifötunum, er
þeir settust upp í flugvélina litlu.
Áætlað var, að flugvélin lenti á
Akureyri um klukkan 6,40 á
laugardagskvöldið.
Geir Geirsson, flugmaðurinn,
var við flugnám í Flugskólanum
Þyt og átti skólinn flugvélina. —
Hefði Geir átt að Ijúka seinasta
skriflega prófinu, í lokaprófi sínu
til þess að öðlast réttindi sem at-
vinnuflugmaður, í gær. Hann átti
nokkru af hinu verklega ólokið.
Átti hann að baki sér 160 flug-
tíma, en undir atvinnuflugmanns
próf er krafizt 200 flugtíma.
Að vetri til ber einhreyfilsflug
vélum, er þær fljúga milli Reykja
víkur og Akureyrar og raunar
annarra staða, að halda sig sem
næst byggð.
Þegar þeir félagar voru komn-
ir norður yfir Holtavörðuheiði,
munu þeir hafa flogið yfir efri
sveitir Húnavatnssýslu — hjá
Mælifelli í Skagafirði og Silfra-
stöðum og inn í Norðurárdalinn.
Þar sást til flugvélarinnar sam-
tímis frá Fremri-Kotum og Eg-
ilsá. Var klukkan þá um 6.30 um
kvöldið. Miðað við hraða flug-
vélarinnar og fjarlægðina milli
Fremri-Kota og Bakkasels í
Öxnadal, er um 5 mín flug á milli
þessarra bæja.
Flugveðrið á leiðinni var hag-
stætt, að öðru leyti en því, að
skýjabólstrar munu hafa tekið að
myndast yfir Öxnadalsheiðinni
og gengið þar á með slyddu- eða
hríðaréljum. Akureyrarflugvöll-
ur mun hafa gert árangurslausar
tilraunir til þess að kalla flug-
vélina litlu upp til þess að vara
flugmanninn við þessum éljadrög
um.
Strax klukkan 6.40, er flugvél-
in var ókomin til Akureyrar,
voru gerðar ráðstafanir til þess
að spyrjast fyrir um ferðir vélar-
innar. Flugturninn hér í Reykja-
vík, með aðstoð langlínustöðvar
Landssímans, hélt uppi fyrir-
spurnum um flugvélina, og svo
sem hálftíma síðar var lýst neyð-
arástandi. Þá kom brátt á daginn,
að til flugvélarinnar hafði sézt
Strandríki hafi einkarétf til fiskveiða
innan 12 mílna beltis með ströndum
Tillaga Kanada á Genfarráðstefnunni
GENF, 31; marz. — Fulltrúi Kanada á Genfarréðstefnunni um rétt-
erreglur á hafinu bar í dag fram formlega tillögu þess efnis, að
landhelgi verði ákveðin 3 sjómílur, en strandríki fái einkarétt til
fiskveiða á 12 mílna svæði.
Sagðist hann viðurkenna að
12 sjómílna fiskveiðitakmörk
mundu valda aflarýrnun um
stundarsakir hjá þeim sjómönn-
um sem sækja á fjarlæg mið, en
kvaðst ekki vera þeirrar skoðun-
ar, að þar yrði um alvarlegt tjón
að Tæða. Kvað hann tillöguna
borna íram í þeirri von að hun
yrði grundvöllur að samkomu-
lagi, en ólík sjónarmið hefðu
komið fram á ráðstefnurmi. Það
hefði tekið 28 ár að koma ráð
stefnunni saman — og nauðsyn-
legt væri að allt yrði gert til þess
að reyna að ná sanrkomulagi um
reglur um þessi mál.
Þá var felld á nefndarfundi
tiilaga Rússa um að banna her-
veldum að takmarka siglinga-
frelsi á höfum úti vegna heræf-
inga á alþjóðasiglingaleiðum og
í nánd við strendur erlendra
ríkja.
Samþykkti nefndin 27 máls-
grein þar sem lýst er yfir óskert-
um fiskveiðiréttindum allra á út
höfum, til þess að leggja sæsíma
strengi um úthafsbotn, alls kyns
leiðslur — og síðast en ekki sízt:
frelsi allra þjóða til þess að
fljúga .flugvélum sínum yfir út-
höfum. í brezkri viðbótartillögu
kvað svo á, að öllum ríkjum
bæri að virða þessar reglur með
tilliti til hagsmuna annarra rikja.
frá Fremri-Kotum í Norðurár-
dal, sem fyrr greinir, en í Bakka-
seli taldi heimilisfólkið sig ekki
hafa heyrt í flugvél. — Þetta
beindi athygli flugumferðar-
stjórnarinnar að Öxnadalsheiði.
— Fyrstu ráðstafanir, sem gerðar
voru í þá átt að láta kanna heið-
ina fyrir myrkur, var að einn af
Föxum Flugfélagsins, sem var á
Akureyri, hóf sig upp af Akur-
eyrarflugvelli um kl. 7, og skyldu
flugmenn skyggnast um eftir
hinni týndu flugvél. Jafnframt
þessu var leitað til flugbjörgunar
sveitanna hér í Reykjavík og eins
á Akureyri, er þegar hófu að út-
búa leitarsveitir. Þessi fyrr-
nefnda flugvél Flugfélagsins,
flaug eftir hinni fyrirhuguðu flug
leið frá Akureyri. Er kom fram
undir Öxnadalsheiði, var hríð á
heiðinni. Flugstjórinn varð að
hækka flugið og fara hátt yfir
fjöllum. — Þegar komið var yfir
í Skagafjörð, var þar bjart veður,
og þá lækkaði flugvélin aftur
flugið og þræddi síðan flugleið
litlu flugvélarinnar, eins og gert
er ráð fyrir, að hún hafi flogið,
allt til Reykjavíkur, en leitin bar
ekki árangur.
Klukkan um 10,30 á laugardags
kvöldið flaug skíðamannasveit
úr Flugbjörgunarsveitinni norður
á Sauðárkrók, tilbúin að halda
þaðan förinni áfram á skíðum,
án tafar, norður á Öxnadalsheiði.
Áður en lent var á Sauðárkrók,
flaug flugvél björgunarsveitarinn
ar yfir Öxnadalsheiði. Þá var þar
bjart veður. Var þetta gert í
þeirri von, að vera mætti, að
piltunum á hinni týndu flugvél
hefði tekizt að komast lífs af og
að þeir hefðu þá kveikt neyðar-
bál. — Sú von brást. Kolsvarta-
myrkur grúfði yfir allri heiðinni.
Flugvélin mun hafa orðið að
halda sig í nokkurri hæð til þess
að tefla ekki um of í tvísýnu. —
Þegar þetta flug ekki bar neinn
árangur, var flogið til Sauðár-
króks. Þaðan hélt svo Flugbjörg-
unarsveitin för sinni áfram, án
tafar, áleiðis inn Norðurárdal og
upp á Öxnadalsheiði.
Um klukkan 10 um kvöldið
voru Akureyringarnir ferðbúnir,
og fer hér á eftir frásögn af leið-
angri þeirra á slysstaðinn.
í leiðangri Akureyringanna
voru 45 menn og var hon-
um skipt í þrennt. Leitaði
einn Hörgárdalsheiði, annar fór
fram Öxnadal og hinn þriðji beið
átekta að Þverá í Öxnadal, tilbú-
inn að leita Hólafjall, ef til kæmi.
Tryggvi Þorsteinsson skátafor-
ingi á Akureyri hafði á hendi
stjórn leitarinnar. Var hann í
hópi 14 manna er leituðu
Öxnadalsheiði.
Leitarflokkurinn lagði af stað
frá Akureyri kl. 10 á laugardags-
kvöldið. Var farið á heimilis-
dráttarvél með beltaútbúnaði og á
jeppum fram að Engimýri í Öxna
dal, en þaðan svo á dráttarvélinni
og hengu leitarmenn aftan í
henni og létu hana draga sig á
skíðum. Sleði var aftan í vélinni
og á honum fullkominn útbúnað-
ur til þess að veita mönnunum
hjúkrun. Einnig var læknir með
í förinni. Klukkan um 6.30 um
morguninn kom leitarflokkurinn
að Bakkaseli og hafði þar enga
viðdvöl, en hélt þegar upp á
heiði. Fundu leitarmenn flakið
af vélinni mjög fljótt og var það
ca. 3—400 m vestan afréttargirð-
ingar þeirrar, sem er á heiðar-
brúninni nyrzt. Var flakið um 30
m norðan vegarins. Hefur vélin
senniiega rekið niður hægri væng
síðan stungizt ofan í hjarnið, og
svo kastazt um 30 m leið og num-
ið staðar á hvolfi. Vélin var á vest
urleið er slysið varS. Flugvélar-
flakið er heillegt en að sjálfsögðu
illa farið.
Þess var enginn kostur aS
senda fólk til leitar frá Bakka-
seli, því þar búa aðeins gömul
kona og ungur maður, sem ekki
gat tekizt ferð á hendur upp á
heiði.
Ekkert benti til þess að neinn
þeirra fjórmenninganna er í flug
vélinni voru hafi hreyft sig, eða
haft meðvitund eftir að slysið
varð. Tveir þeirra hafa henzt út
úr flakinu er það nam staðar
en tveir voru spenntir niður í
sætin. Einn þeirra félaga var með
lífsmarki er leitarflokkurinn kom
að en hafði þó enga meðvitund.
Var þegar dælt í hann hressandi
lyfjum og pencillini en slíkt bar
ekki árangur. Pilturinn kom aldr
ei til meðvitundar og dó á leið-
inni til Bakkasels. Hafði verið
búið vel um hann í mörgum svefn
pokum og hlúð að honum eftir
mætti. Leiðangurinn kom til Ak-
ureyrar með líkin kl. um 2.30 í
gærdag.
Veður var þannig á laugardag*
kvöldið að bjart var og hiti um
frostmark. Var auðvelt að leita
um nóttina því tunglskin var.
Fólk neðan til í Öxnadal hafði
talið sig heyra í flugvél, sem gat
verið sú er saknað var, en það
mun hafa reynzt einhver önnur.
Leitarflokkur beið, sem fyrr seg-
ir, að Þverá í Öxnadal reiðubúinn
að hefja leit er birti, en áður
hafði borizt frétt um að vélin
væri fundin. Er flugvélarflakið
fannst, var snúið við leitarsveit-
inni frá Reykjavík og eins þeirri
er lögð var af stað inn á Hörgár-
dalsheiði.
Á það skal bent að leit þessi
var gerð við mjög ófullkomnar
aðstæður hvað farartæki snertir.
Enginn snjóbíll er til á Akureyri
eða í Eyjafirði. Hefði svo verið
er talið fullvíst að komast hefði
mátt að flugvélinni eftir tvo til
þrjá tíma frá því að leitin hófst
eða um miðnætti á sunnudags-
nótt. Hins vegar leið um 12 V2
klukkustund frá því að slysið
varð og þar til leiðangursmenn
komu á slysstað.
Upplýsingar þessar um leitar-
förina hefir blaðið frá flugbjörg-
unarsveitinni á Akureyri.
Á Akureyri urðu tíðindin um
hina horfnu flugvél almennt
kunn milli klukkan 10 og 11 um
kvöldið. í Menntaskólanum var
þá byrjuð skólaskemmtunin.
Skólameistari lét þegar slíta sam
komunni, er hann spurði tíðind-
in.
í gær féll kennsla niður í Há-
4' skóla íslands vegna þessa mikla
slyss. Einnig var kennsla látin
niður falla í M. A. Þar mun
skólameistarinn Þórarinn Björns
son minnast atburðarins á Sal í
dag.
Það er talin sennilegasta skýr-
ingin á slysinu, að er litla flug-
vélin hafi flogið inn yfir Öxna-
dalsheiðina, hafi hún brátt lent
í hríð. Þar uppi er allt undir sam
felldri fannbreiðu. Hefur allt
runnið í eitt, í hríðinni, loft
og jörð. Hafi Geir verið að snúa
flugvélinni við, er hún snerti
jörðina. Er ekki vitað hvort held-
ur fyrr hefur snert jörðina nef,
hjól eða vængbroddui* hægra
vængs. Við það hefur flugvélin
stungizt fram yfir sig ofan í
hjarnið.
Á vegum flugmálastjórnarinn-
ar fór Sigurður Jónsson á slys-
stað til þess að gera athuganir.
Flugráð hélt fund í gær og var
flugráðsmönnum þá gerð grein
fyrir því sem þá var vitað um
aðdraganda slyssins.