Morgunblaðið - 02.04.1958, Page 8

Morgunblaðið - 02.04.1958, Page 8
8 MORCVNBLifílh Miðvikudagur 2. apríl 1958 Júlíus Havsteen fyrrv. sýsfumaður: Saga kjördœmamálsins Andmæli Hermanns Jónassonar o. fl. Framsóknarmenn risu strax gegn þessari stjórnarskrárbreyt- ingu og tók alþingismaður Her- mj:nn Jónasson fram, sem þá var fg forsætisráð- herra eins og nú, m. a.: „Þær breytingar, sem hér er lagt til að gera, fara að vísu í sömu átt og breytingar þær, sem áður voru gerðar á stjórnskipun- arlögunum og stjskr. en ég hygg, að flestir séu sammála um að sú stjskr. eins og frá henni var gengið, og sú stefna sem þar var tekin upp, bæði að efni og öllu formi, sé þannig, að fæstir séu ánægðir með hana og þjóðin er yfirleitt alls ekki ánægð með hana. Þetta fyrirkomulag með uppbótarþm. o. s. frv. hefir alls ekki reynzt vel, það hefir reynzt illa. Og ég álít, að þegar við erum að lappa upp á það fyrirkomulag, sem við búum viS nú, þá mundi sú stjórn arskrá, sem við þá mundum fá, verða ennþá meira óhermi, ef ég má nota það orð, heldur en sú sem við höfum núna, eins og það að ætla að fjölga þm. upp í 54“. Læt ég nægja þessa glefsu úr mikilli ræðu, því hún er nokkurs konar stef, en rétt er að taka og fram stuttan kafla úr framsögu ræðu minnihlutans, alþingis- manns séra Sveinbjarnar Högna- sonar, því nefnd var skipuð í þetta mál, sem sjálfsagt var, en hann segir m. a. svo: ,,Allt okk- ar stjórnarfyrirkomulag frá fyrstu tíð, allt frá goðorðunum, hefur byggzt á sjálfstæðum heild um, þar sem meirihl. hefur ráð- ið. Með breytingum 1933 rofnar fyrst skarð í þetta með uppbótar- þingsætunum. Hv. þm. hafa séð, að við þetta hefur stjórnarfarið í landinu og trúin á lýðræðið veikzt. Eigum við að halda áfram að senda minnihl. þingmenn á Alþing og vita hvort hægt sé að vinna því virðingu ó þann hátt? Hinir 11 uppbótarþingmenn hafa orðið til þess að rýra virðingu þingsins, og nú á að bæta við 6-8 minnihlutaþingmönnum. Fyr ir þetta mél á að fórna öllu sam- starfi og friði, og um það sam- einast hinar mestu andstæður, allt frá svartasta nazisma til rauðasta kommúnisma. Á þeim degi urðú þeir Heródes og Píla- tus vinir. Fyrir þetta á e. t. v. að fórna frelsi, gæfu og gengi þjóð- arinnar um ókomin ár“. Þá hélt og alþingismaðurinn Bergur Jónsson sýslumaður fram þeirri hugsunarvillu f. h. Fram- sóknarflokksins, að hlutfallskosn ingar kæmu aðeins til greina og ættu aðeins við þegar kjósa ætti fleiri en tvo. í tvímenningskjör- dæmum ætti sú kosningaaðferð alls ekki heima. Ummæli Jóns Pálmasonar. Sjálfstæðisflökkurinn stóð með Alþýðuflokknum nú sem fyrr, Jón Pálmason FjórBa og siðasta grein um réttlátari kjördæmaskipun og set ég sem sýnishorn upphafið á ræðu alþingismanns Austur-Hún vetninga Jóns Pálmasonar: „Ég geri ráð fyrir því, að fá um hafi dottið j í hug, þegar stjórnarskrár- breytingin var afgreidd 1933, að sú lausn, sem þá fékkst, yrði látin standa lengi. Af þeirri reynslu, sem síðar hefur fengizt, verð ég að segja það, að mig furðar á þeirri þolinmæði, sem Sjálfstæðismenn og Alþýðuflokksmenn hafa sýnt í þessu máli, og að' þeir skuli ekki fyrr hafa borið fram frum- varp, er gengi í þá átt að auka jafnrétti kjósendanna. Ég vil lýsa ánægju minni á þeirri stefnu breytingu, sem orðið hefur hjá Alþýðuflokknum frá því sem áður var, og tel ég það góðs vita. Aðalatriði frum- varpsins er fyrir mér ákvæðin um hlutfallskosningar í tvímenn ingskjördæmum, og eins og tek- ið er fram í greinargerð og í framsögu, nægir sú breyting ein næstum því til að jafna at- kvæðatölu flokkanna. — Ég held að þessi umsögn grg. hafi við rök að styðjast. — Hins vegar er það hreinasta fjarstæða að halda því fram, eins og hér hefur verið gert, að hlutfallskosning í tví- menningskjördæmum rýri vald sveitanna, og það er líka hrein- asti misskilningur, að baráttan í Orðsendtng frá Hitaveitu Reykjavíkur Yfir hátíðarnar verður tekið við kvörtunum vegna alvai - legra bilana á Varðstofu Rafmagnsveitunnar, sítni 1 53 59, milli kl. 10 og 14. Laugardaginn fyrir páska tekur skrifstofa Hitaveitunnar við kvörtunum milli kl. 10 og 12. Hitaveita Reykjavíkur. Til leigu þessu máli standi um vald bæja annars vegar og sveita hins vegar. Og óneitanlega skýtur skökku við allt tal Framsóknar- manna hér um ranglæti hlutfalls kosninga, að þeir sjálfir hafa kom ið á hlutfallskosningu á fulltrú- um til búnaðarþings“. Mikill ágreiningur. Miklar og heitar umræður fóru fram á Alþingi um þessa stjórn- arskrárbreytingu og geta þeir, sem vilja, lesið ræðurnar í Al- þingistíðindum 1942, en ég tel þessi fáu framangreindu sýnis- horn eða útdrætti úr ræðum nægja til þess að sýna glöggt af- stöðu stjórnmálaflokkanna til málsins. Þá var ekki minna barizt á framboðsfundum í júní 1942 og leiddum við Jónas Jónsson sam- an hesta okkar á fundum í Suður Þingeyjarsýslu, þar sem hann var gjörsamlega genginn af trú sinni á réttmæti hlutfallskosninga og m. a. af þeirri ástæðu ósigrandi. Svo mikið varð ráðherrum Fram sóknarflokksins um þessa stjórn- arskrárbreytingu, að þeir rufu stjórnarsamvinnuna, og ekki man ég betur en að fjármálaráðherra Eysteinn Jónsson bæði í útvarps umræðum þá og í blaðinu „Tím- anjum“ færi fram á eða teldi rétt að beita „stöðvunarvaldi“, en svo langt inn í myrkur afturhaldsins vildi forsætisráðherra Hermann Jónasson ekki ganga. Þegar málið var fyrir kjósend- ur lagt, var um þetta þrennt bar- izt: 1. Að tekin væri upp hlutfalls- kosning í tvímenningskjör- dæmunum. 2. Að þingmönnum Reykjavíkur væri fjölgað um tvo. 3. Að Siglufjörður yrði sér- stakt kjördæmi, Svo fóru leikar, að þessar sann gjörnu ' kröfur sigruðid, sem og hlaut að verða. Stjórnarskrá lýðveldisins. Samkvæmt stjórnarskrá lýð - veldisins íslands, 31. gr., eiga nú sæti á Alþingi 52 þingmenn. í Reykjavík eru 8 kosnir hlut- bundnum kosningum, en annars staðar á landinu er 21 kjörinn í einmenningskjördæmum per- sónulegri kosningu, 12 kjörnir í 6 tvímenningskjördæmum hlut- bundinni kosningu og allt að 11 þingmenn til jöfnunar milli flokka, svo að hver þeirra hafi þingsæti í sem fyllstu samræmi j við atkvæðatölu sína við almenn ar kosningar. Uppbótarþingsætin j áttu að vera trygging fyrir því sem var kjörorð Jóns Baldvins- sonar í forustunni í kjördæma- málinu fyrir Alþðuflokkinn á ár- unum 1929 til 1931 og aftur 1942, að tryggja skyldi kjósendum jafn an rétt til ánrifa á skipun AI- j þingis, hvar sem þeir eru búsettirl á landinu og hvar í stjórnmála- flokki, sem þeir standa. Mismunandi skoðanir. Eins og að framan er sagt í ritgerð þessari, vildi Jón Bald- vinsson gera landið allt að einu kjördæmi með hlufallskosning- um og ef aðeins væri um skoð- analegt jafnrétti að ræða, væri sjálfsagt að fallast á þessa aðal- tillögu Jóns, en þá væri um leið hið staðarlega jafnrétti horfið eða mjög svo skertur hlutur fá- mennisins, sem í dreifbýlinu býr, og gátu því hvorki Sjálfstæðis- menn né Framsóknarmenn fall- izt á þessa tillögu, en á varatil- lögu Jóns, að skipta landinu í nokkur Stór kjördæmi með hlut- fallskosningu, sem upphaflega var tillaga Hannesar Hafsteins, gátu Sjálfstæðismenn fallizt en þá ri&u upp æfareiðir Framsókn armenn, sem beitt hafa öllum hugsanlegum brögðum frá 1931 til þess að koma í veg fyrir nýja kjördæmaskipun, hlutfallskosn- ingar og uppbótarþingsæti.Stefna Framsóknarmanna í kjördæma- málinu hefur verið og er enn sú, að Islendingar skuli búa við sama skipulag og var fyrir röskum mannsaldri. í framkvæmd hefði þetta afturhald Framsóknar- flokksins reynzt þannig, miðað við Alþingiskosningarnar 1953, að þá hefði Alþýðuflokkurinn fengið einn þingmann með 15,6% af gildum atkvæðum, Sósíal- isaflokkurinn sömuleiðis einn með 16,1% gildra atkvæða og Þjóðvarnarí'lokkurinn ekki kom- ið til greina. Andstæðingar ríkis- stjórnarinnar, eins og hún þá var skipuð, hefðu fengið 2 þingmenn af 42 með 41% kjósenda. Refskák Framsóknar. En Framsóknarmenn hafa óneitanlega haldið vel á sínum spilum í kjördæmamálinu og þeir eru furðuklókir mannþekkj- arar og kunna öll brögð ref- skákarinnar. Þeir tefla fram, eða máske rétt ara að orða það svo, setja íram fjóra stóla, tvö sendiherrasæti og tvö ráðherrasæti handa foringj- um Alþýðuflokksins og í þessum hægindum gleyma þeir bæði flokknum og kjördæmamálinu. Og Framsókn gerir meira. Hún lætur lagaprófessor úr sinum flokki og hagfræðiprófessor úr Alþýðuflokknum leggja ráðin á, hvernig megi takast að brjóta anda stjórnarskrárinnar, fara kringum lögin um kosningar til Alþingis, og nota sér veikleikann á kjördæmaskipuninni til þess að ná ^reinum þingmeirihluta með aðeins um þriðjung kjósenda landsins og svo nærri lá að þetta tækist með hinu svonefnda „Hræðslubandalagi", að hefðu Framsóknarmenn náð til sín sex kjósendum úr Sjálfstæðisflokkn- um í Vestur-Skaftafellssýslu og 5 kjósendum Alþýðubandalagsins í Suður-Múlasýslu, þá hefðu þessi 11 atkvæði tryggt Frarn- sóknar og Alþýðuflokknum meiri hluta og skollaleikurinn hefði heppnazt og áreiðanlega ekki ver Mjólkurísvél Tilboð óskast í SWEDEN mjólkurísvél. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld merkt: „Isvél 8397“. Húsnæði fyrir skrifstofu eða léttan iðnað, 400 ferm. til leigu 14. maí n.k. Nánari upplýsingar gefur: Mált'lutningsskrifstofa Einars B. (Juðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar og Guðmundar Péturssonar. Aðalstræti 6, III hæð (Morgunblaðshúsið) Símar: 1-2002 1-3202 og 1-3602 Austurbar AusturbæJíirbíóS tilkymiir Opið á skírdag, föstudaginn langa, laugardag, páskadag, anuan páskadag. Athugið heitur matur alia dagana. Austurbar sími 19611 ið sótzt eftir stuðningi kommún- ista. Hitt er svo annað mál, að þing meirihluti með minnahluta at- kvæða er stjórnmálalegur ráns- fengur, sem jafnlýðræðissinnuð þjóð og við fslendingar myndi ekki þola, því ég tel ekki líklegt að minnihlutastjórn á íslandi þyrði að bæta gráu ofan á svart með því að brjóta bæði lýðræði og þingræði með einræði, en þang að liggja óneitanlega sponn, þegar svona er farið. í stórum dráttum hefi ég með ritgerð þessari leitazt við að rekja sögu kjördæmamálsins og nú er svo komið að þjóðin unir ekki lengur því ófremdarástandi, sem við ’búum við. Sést þetta á greinum þeim, sem síðarihluta ársins sem leið hafa birzt í Al- þýðublaðinu, íslending og Morg- unblaðinu. Það er engin von til þess áð kaupstaðabúar þoli það ár eftir ár, að kosningarétt- ur þeirra sé aðeins metinn örlít- ið brot af rétti kjósenda í dreif- býlinu, eða eins og einn kjósandi sagði í áheyrn minni fyrir skömmu: „Það þarf 15—20 at- kvæði í Reykjavík til þess að vega upp á móti einu atkvæði í sveit eða smákaupstað". Má vera að bér sé fulldúpt í árinni tekið, en mikill sann- leikur felst í orðum þessum. Það eru atvinnuhættirnir sem valda því, aðalhlutfallið milli íbúa- og kjósendafjölda dreifbýlisins hef- ir ávallt breikkað og á því miður enn eftir að stækka, ef Framsókn arflokkurinn fær að ráða og kem ur þá veikleiki kjördæmaskipU- lagsins ennþá gx-einilegar í ljós, en þegar er orðið, og vissulega ekki á bætandi. Það er gleðilegt tímanna tákn, að það er ungur Alþýðuflokks- maður, sem fyrstur kveður. sér hljóðs í Alþýðublaðinu 8. og 9. ágúst um „hróplegt ranglæti kjördáemaskipulagsins“ og hvern ig fari fyrir þeim stjórnmála- mönnum og stjórnmálaflokkum, sem svíkja lit. Vísa ég að öðru leyti til þessara skorinorðu og vel rökstuddu greina hans um leið og ég leyfi mér að skora a alla uhga Alþýðu flokksmenn að taka nú aftur upp í kjördæmamálinu merki Jóns Baldvinssonar og treysti þeir sér ekki einir til þessa sökum „Hræðslubandalagsins", þá er ég þess fullviss, að ungir Sjálfstæð ismenn veita þeim í þessu máli fulltingi sem þarf. Að endingu þykir hlýða, að ég láti sltoðun mína í ljós um þá tilhögun, sem ég tel heppilegasta fyrir skiptingu kjördæma hér á landi. Frá upphafi hefi ég ávallt ver ið fylgjandi frumvarpi því, sem Hannes Hafstein lagði fyrir Al- þingi 1905, sem illu heilli var stöðvað fi’ekar en fellt með að eins eins atkvæðis mun, því þá þekkti hvorki þing né þjóð sinn vitjunartíma. Það er og þessi leið, sem þeir vilja fara, menntaskóla kennari Gísli Jónsson, með grein inni ,,Mynd af nýrri kjördæma- skipan", í blaðinu íslendingi 13. sept. sl. og séra Jónas Gíslason í greininni „Hugleiðingar um kjör dæmaskipan á íslandi“ sem birt ist í Morgunblaðinu 12. nóv. sl. Þessir menn báðir vilja engin uppbótarþingsæti, en binda sig við að tala þingmanna sé 52. Mér finnst vel mega fjölga töiu þingmanna upp í 59 eða 60, þannig að Norðurlandskjördæmi Gísla fái 13 þingmenn, Suðvestur landskjördæmið 7 þingmenn og Reykjavík 16—17. Þá næst býsna gott samræmi milli kjósenda- fjölda á þingmann í þeim kjör- dæmum 7, sem Gísli skiptir land inu í og þá næst bæði staðar- legt og skoðanalegt jafnrétti um land allt, sem nú er ekki til. Þau málin sem nú kalla hið unga ísland til dáða eru land- helgismálið og kjördæmamálið og ég ávarpa æskulýðinn með her ópi skáldsins og stjórnmála- mannsins: „Heilir hildar til! Heilir hildi frá!“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.