Morgunblaðið - 17.04.1958, Side 9
Fimmtudagur 17. apríl 1958
MORCVISBLAÐIÐ
9
Bleyjubuxur
(Plast)
Vestur-þýzkar og
amerískar.
\f®JW1
Austurstræti 12.
Rússar kosta mest allra þjóða til sýningar sinnar
ekki nægja að sýna „krýningar-
dýrgripi, skáta og penicillin", eins
og einn blaðamaður komst að
orði.
Vestur-Þjóðverjar hafa komið
sér upp allmörgum glerhúsum.
Leggja þeir áherzlu á að sýna að
aðbúnaður manna í þýzkum
verksmiðjum sé góður. Sumir
telja að þýzka sýningin verði.
einhver hin skemmtilegasta á
þessari heimssýningu.
Spánverjar blanda saman
spænskri og serkneskri menningu
og nýtizkulegum sýningarsölum.
Svisslendingar eru eins og iðnar
býflugur í býkúpum úr gleri.
Austurríkismenn sýna land sitt
sem brú milli austurs og vesturs.
Sýningarsvæði Finna er við hlið-
ina á sýningu Norðmanna og gera
þeir enn tilraunir með sérkenni-
lega tré-byggingarlist. Ítalía opn
ar faðm sinn fyrir nýjum
skemmtiferðamönnum, vekur á-
huga þeirra á „La bella ltalia“
Ýmis lönd austan járntjalds hafa
lagt mikla vinnu í að koma upp
reisulegum sýningarhöllum. Hol-
land hefur fram að færa sér-
kennilega sýningu um hafið,
hvernig það er samtímis vinur og
erkifjandi.
Það er freistandi, að halda
hringferðinni áfram og lýsa marg
breytilegum sýningum Suður- og
Mið-Ameríkuríkjanna, eða heim-
sækja sýningarsvæði dvergríkj-
anna Luxemburg, San Marino,
Andorra og Monako, sem hafa
ekki farið eins að og Danir og
Svíar að virða einskis þennan
möguleika á kynningu í hinu
„kaupsterka“ landi, Belgíu. Við
skulum nú bregða okkur upp á
einhvern sjónarhól og fá heildar-
mynd af svæðinu, eins og það
lítur nú út við drunur frá jarð-
ýtum og krönum.
Stækkað járnatóm
Þungamiðja allrar sýningarinn
ar er eins og þegar hefur síazt
út, undarlegt risavaxið merki eða
bygging, sem nefnist ATOMIUM.
Tákn þetta er eftirlíking af járn-
atómi stækkuðu 200.000 milljón
sinnum. í byrjun var ætlunin að
merki sýningarinnar yrði stál-
turn hærri en risabyggingin Em-
pire State, en þá dó turn-teikn-
arinn Magnel og með honum hug
mynd hans.
Það hefur verið sagt, að höf-
undur Atomiums sem er Water-
keyn húsameistari, hafi fengið
hugmyndina þegar hann og kona
hans sátu saman í kyrrð og ró á
heimili sínu. Konan var að prjóna
og voru það bandprjónarnir með
stórum hnúðum sem vöktu hug-
myndaflug byggingameistarans.
Og nú er svo komið að
þessi furðulega samsetning skag-
ar 100 metra upp í loftið, þótt
hrakspármennirnir væru margir
í fyrstu.
Annars er sagt, að byggingar-
stíllinn á heimssýningunni sé
almennt heldur lágur. Þar sjást
aðeins örfá dæmi um háreista
lýsandi boga, gorma og turna.
Yfirleitt eru húsin frekar á lang-
veginn, — lárétt — og er einmitt
talið að það sýni stefnu bygging-
arlistarinnar eftir 20 ár, jafnvel
50 ár.
Belgar eru miklir garðyrkju-
menn og mjög vandlátir með
blómaskreytingar. Allt umhverfis
sýningarhallarinnar eru hvann-
grænir grasfletir og mikið blóma
skrúð. Rússarnir höfðu í hyggju
að setja upp fyrir utan sýningar-
höll sína stæði fyrir dráttarvélar,
bíla, landbúnaðarvélar, krana og
flugvélar. En sýningarnefndin
leyfir slíkt ekki. Allar sýningarn
ar verða að fara fram undir þaki.
Ekki einu sinni spútnikkinn fær
að vera utanhúss.
Hægt væri að nefna fjölda
margt annað merkilegt, eins og
stóru brúna sem hvelfist yfir allt
sýningarsvæðið og veitir glæsi-
legt útsýni yfir sýninguna. Eða
sýningargatan með Ijósabreyting
um sínum. En við skulum bíða
með lýsingu á þessu Öllu þangað
til sýningin verður opnuð og
menn af öllum þjóðum hittast í
Brússel í leit að mannlegri fram-
tíðarheimi. Þeir munu leita í dul
arfullum efnarannsóknarstofum
í Atomium, í sofandi strætum
hinnar gömlu Belgíu, í Fílahöll
Kambodja, eða í sýningarhöll
Monako, sem lítur út eins og
brúðkaupsterta, í hökuskeggi
Lenins eða Sams frænda.
Niels J. Miirer.
. Myndin er af hinni risavöxnu sýningarhöll þeirra.
Hluti af hinni furðulegu byggingarsamstæðu ATOMIUM, sem er miðja og merki sýningarinnar.
Efri hæð og ris
I Laugarneshverfi til sölu nú þegar. Hvor hæðin um
sig er ca. 195 ferm. að flatarmáli. Á hæðinni eru
5 stofur og stórt hall. 1 risinu eru 5 herbergi. Selst
saman eða hvort í sínu lagi.
Semja ber við
Ólaf Þorgrímsson, hrl.
Austurstræti 14.
Stúlka
Dugleg stúlka, ca. 20 ára gömul getur
fengið atvinnu á blaðafgreiðslu.
Tilboð auðkend „Blaðafgreiðsla“,
sendist Morgunblaðinu.
Byggingaverkfræðingur
Óskast til starfa hjá Bæjarverkfræðingnum á Akureyrl.
Umsóknir sendist fyrir 30. þ.m. til Bæjarverkfræðings,
sem gefur nánari upplýsingar.
BÆJARSTJÓRINN A AKUREYRI
10. apríl 1958.
VINNA
Nokkrar stúlkur og unglingspiltur óskast til starfa.
DÓSAVERKSMIÐJAN H.F.
Borgartúni 1. — Sími 12085.
Sér sundtím&r kvenna
eru í Sudhöllinni þriðjudaga og fimmtudaga kl. 9
e.h. Ókeypis kennsla. Öllum konum heimill að-
gangur. Sundfélag kvenna.