Morgunblaðið - 17.04.1958, Síða 10

Morgunblaðið - 17.04.1958, Síða 10
10 MORCUNBT. 4 ÐIÐ Fimmtudagur 17. apríl 1958 tltg.: H.í. Arvakur, Reykjavfk. Framkvæindastjóri: bigfus Jónsson. Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Hitstjórar; Sigurður Bjarnason frá Vigur Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Ola, simi 33045 Augiysingar: Arni Garðar Knstmsson. Ritstjörn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreíðsla: Aðalstræti 6. Simi 22480 Askriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands. í lausasolu kr. 1.50 eintakið. VARHUGAVERÐUR MÁLFLUTNING- UR SEÐLABANKANS JTAN UR HEIMI AUKNING sparifjár er mik- ilvægur þáttur í eðlilegri fjárhagsþróun og fram- förum á íslandi. Möguleikar til lána út á nýbyggingar og þar með lausn húsnæðisvandræðanna eru t.d. mjög háðir sparifjáraukn ingunni. Allar skynsamlegar ráð- stafanir til aukningar sparifjár ber því að styðja. Eitt ráðið í þeirri viðleitni var þegar spari- fé fyrir nokkrum árum var gert skattfrjálst. Útgáfa vísitölutryggðra skulda- bréfa er spor í sömu átt. Sér- fróða menn greinir að vísu nokk- uð á um, hversu heppilegt það spor sé, og hvort það, þegar til lengdar lætur, nái tilgangi sín- um, einkum ef slík visitölutrygg ing hætti að vera undantekning og væri gerð að almennri reglu. Þetta er deiluefni, sem hér skal ekki gerð tilraun til að skera úr. En einungis bent á, að fjarri fer, að fróðum mönnum komi saman um, að hér sé um allsherjar bjarg ráð að ræða. Hitt verður að segja eins og er, að Seðlabankinn hefur gengið of langt í áróðri sínum fyrir sölu þessara vísitölutryggðu bréfa. I tilkynningu, sem birt var hér í blaðinu hinn 11. apríl sl. frá Landsbanka íslands, Seðla- bankanum segir m. a.: „Með útgáfu hiinna vísitölu- tryggðu skuldabréfa var brotið upp á hinu merkasta nýmæli á þessu sviði hér á landi um langt skeið, því að þá var í fyrsta sinn séð svo um, að kaupendur skulda bréfa yrðu tryggðir gegn áhætt- um verðbólgunnar.“ Énnfremur segir í þessari til- kynningu: „Kosturinn við útgáfu þessara vísitölubréfa er því tvíhliða. Um leið og kaupendur bréfanna eru tryggðir gegn óhættu verðbólg- unnar, er hér um leið aflað fjár til að standa undir íbúðarhúsa- byggingum. —--------- Er því vert að hvetja allan al- menning til að styrkja þessa fjár- öflunarviðleitni með því að kaupa vísitölubréfin og tryggja sig um leið gegn áhættu verð- bólgunnar. Ekki er úr vegi að vekja athygli á því, að vísitölu- bréf þessi eru hin heppilegasta gjöf handa börnum, sem gæti komið þeim vel síðar í lífinu“. Daginn eftir birti svo sjálfur Seðlabankinn auglýsingu, þar sem segir: „Með útgáfu vísitölutryggðra skuldabréfa var í fyrsta sinn séð svo um, að kaupendur skulda- bréfa yrðu tryggðir gegn áhættu verðbólgunnar. “ Samhliða eru birtar teikning- ar, sem sýna eiga með stærðar- mun, hversu mikils virði þessi trygging sé. Þær eru vægast sagt mjög villandi, því að munurinn á stærðum er miklu meiri en efni standa til. ★ Þessi vísitölutryggðu skulda- bréf tryggja ekki nema að mjög takmörkuðu leyti gegn áhættu verðbólgunnar. Verðbólgan hér á landi hefur vaxið stórum meira en vísitalan segir til um. Aldrei hefur sá munur orðið meiri en á valdatíma V-stjórn- arinnar. Á þeim tæpu 2 árum, sem hún hefur verið við völd, hefur verið gengið að því með óþreytandi óhuga á kerfisbund- inn hátt að láta verðhækkanir koma fram á öðrum vörum en vísitöluvörunum en halda verð- lagi þeirra sem mest í skefjum. Þetta hefur m. a. verið gert með því að leggja stórkostleg gjöld á aðrar vörur en þær, sem vísi- talan er reiknuð eftir. Ennfrem- ur með því að svipta launþega kauphækkun, sem nam 6 vísi- tölustigum og með því að greiða niður raunverulega hækkun vísi- tölunnar, svo nemur 9 stigum frá því að V-stjórnin tók við. Slíkar niðurgreiðslur nema nú alls 21—22 vísitölustigum. Með öllum þessum ráðstöfun um hefur V-stjórnin hindrað að vísitalan hækkaði meira en 5 stig. Valdhafarnir telja sig hafa unnið mikið afrek með því að koma í veg fyrir frekari hækk- un og vitna til þess sem mesta stolts vinstri stjórnarsamstarfs- ins. Sú hækkun er þó út af fyrir sig meiri en varð á tímabilinu frá árslokum 1952 þangað til áhrif verkfallsins mikla fóru að segja til sín á árinu 1955. Hvað sem um það er, þá er það ó- hnekkjanleg staðreynd að þessi 5 vísitölustiga hækkun gefur al- ranga mynd af raunverulegum vexti verðbólgunnar í landinu. Enda hefði með auknum fram- lögum úr ríkissjóði verið hægt að borga þau niður til viðbótar. Dettur nokkrum í hug að með því hefði verðbólgan verið stöðv- uð til fulls? Það fær því ekki rtaðizt, þeg- ar Seðlabankinn segir fororðs- laust að með þessu séu kaupend- ur skuldabréfa tryggðir gegn áhæ'ttu verðbólgunnar. Þeir eru einungis tryggðir gegn áhættunni sem felst í hækkun vísitöluvara en engan veginn af hækkun hinna ótalmörgu nauðsynja, sem eru utan vísitölunnar. Það er sízt af öllu lagað til þess að auka traust æskulýðsins á verðgildi sparifjár eða yfirlýsingum stjórnvalda, þeg ar hvatt er til að gefa honum þessi bréf með slíkum skýring- um. Morgunblaðið hefði kosið að þurfa ekki að benda á þessar staðreyndir, slík höfuðnauðsyn sem íslendingum er á aukningu sparifjár og fé til íbúðarhúsa- bygginga. En hér sem ella verð- ur að hafa það sem sannara reyn- ist. í skýrslu aðalbankastjóra Landsbankans á dögunum voru gefnar mjög villandi upplýsingar núverandi ríkisstjórn til fram- dráttar um hið raunverulega fjár hagsástand þjóðarinnar. Reynt var að dylja, hvernig því hefur hrakað frá því að V-stjórnin tók við. Sú mynd var fengin með því að halda sig við tilteknar tölur einar saman og gera ekki að öðru leyti grein fyrir ástandi fjármálanna, þar á meðal vöru- birgðum í landinu. Slíkur hálf- sannleikur er verri en enginn. Það víti átti að verða til varn- aðar. Þvílíkir starfshættir gera meiri skaða en gagn, jafnvel þótt í þjónustu góðs málefnis sé. Á myndinni til vinstri er Margrét prinsessa hjá ifa sínum, Kristjáni X, nokkrum vikum eftir fæðingu hennar. — Til hægri er hún ung, átján ára stúlka, ríkiserfingi Danmerkur. Margrét prinsessa — ríkiserfingi Dana — átján ára MARGRET Danaprinsessa varð 18 ára í gær og var afmælisins minnzt um alla Danmörk. Fánar blöktu alls staðar við hún, á göt- um og gatnamótum voru mynd- ir af prinsessunni — og blóm- skrúð var mikið. Margrét er rík- isarfi Danmerkur, elzt þriggja dætra Friðriks Danakonungs og Ingiríðar drottningar hans. Sam- kvæmt dönskum lögum verður ríkisarfinn myndugur 18 ára að aldri — og tekur þá sæti í ríkis- ráðinu. Tugþúsundir Dana fögn- uðu prinsessunni og konungi, er þau óku í opnum vagni á fund ríkisráðsins í gær — þar sem rík- iserfinginn tók formlega sæti. A fundinum vann Margrét eið sinn, konungur flutti stutta ræð.u — og forsætisráðherrann sömu leiðis. Fagnaði hann prinsess- unni, sem verður fyrsta drottn- ing Danaveldis síðan á 14. ð'.d. Afhenti forsætisráðherra henni eintak af Grundvallarlögunum — og síðan undirritaði prinsessati eiðstafinn. Þá sæmdi konungur ríkisarf- ann æðsta heiðursmerki Dana- veldis, Fílsorðunni — og danska þingið hefur ákveðið að prins- essunni verði greidd laun, sem síðan hækka, er hún nær 21 árs aldri. Margrét ríkiserfingi fæddist viku eftir hernám Þjóðverja árið 1940. Litla prinsessan veitti dönsku þjóðinni aukna von í erf- iðleikum styrjaldaráranna — og hún hefur jafnan verið mjög vin- sæl meðal þjóðar sinnar. Hún hefur hlotið góða menntun, haft náin kynni af þjóðlífinu og tengzt þjóð sinni sterkum böndum. Skóla hefur hún jafnan sótt með jafnöldrum sínum, fyrst í bernsku í Danmörku, síðar í Englandi, en síðustu árin hefur hún stundað kvennaskólanám í Höfn. Listfeng er hún og hefur mik- inn áhuga á náttúruvísindum. Hún hefur tekið þátt í fornleifa- rannsóknum með afa sínum, Svía konungi — og hefur notið stað- góðrar alhliða uppfræðslu. í tilefni afmælis ríkiserfingj- ans hafa verið slegnir 300 000 danskir silfurpeningar með mynd af Margréti — og Friðriki kon- ungi. Slegnir peningar eru ekki nema sem svarar einum á hverja 20 Dani (heima og erlendis) — svo að hver silfurkróna af þess- ari gerð verður með tímanum mjög verðmæt og munu margir Framhald á bls. 18. Kampmann fjármálaráðherra færði Margréti prinsessu einn hinna nýslegnu peninga á dögunum. Að vísu var sá ekki úr silfri, heldur úr gulli. Verðmæti hvers silfurpenings er 3 kr., en hann er seldur á 4 kr. — og mun hagnaðurinn renna til barnahjálpar í Grænlandi. Dönsku bændasamtökin gáfu Margréti ríkisarfa fyrirmyndarbúgarð, „Nordengaarden“ í Ring- sted, í tilefr.i 18. afmælisdagsins. Er þetta mikil og góð jörð — og er myndin tekin á dögunum af búgarðinum,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.