Morgunblaðið - 01.05.1958, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.05.1958, Blaðsíða 6
6 MUKGUHBLAOIÐ Fimmtudagur 1. maí 1958 sæki heimssýninguna í Brussell HARALDUR J. HAMÁR. blaðamaður, er um þessar mundir á heimssýningunni t Brussell, og mun hann rita nokkrar greinar þaðan. Fer sú fyrsta hér á eftir: BRUSSELL, laugardag. — Búizt er við, að 40 milljónir manna muni sækja heimssýninguna í Brussell, sem nú hefur verið opin í eina viku. Þessa fyrstu viku voru sýningargestir liðlega ein milljón, en þess er fastlega vænzt, að aukningin verði mikil næstu tvær vikurnar. Vorið kom óvenju seint í Belgíu að þessu sinni — og undanfarna daga hefur veðrið verið fremur hráslagalegt og gróður er nú fyrst að vakna til lífsins eftir vetrardvalann. Belgíu menn búast við fjölda útlendinga strax með vorinu, þó aðallega frá Hollandi, Frakklandi og Þýzka- landi. Þegar lengra kemur fram á sumarið byrjar fólksstraumur- inn frá fjarlægari löndum — og írá Bandarikjunum er búizt við a. m. k. einni milljón sýningar- gesta. Heimssýningin hefur orðiö Belgíumönnum dýr — og enda þótt fjöldi sýningafgesta fari fram úr því, sem nú er áætlað, Þá mun belgiski ríkiskassinn ekki heimta allt það inn, sern varið hefur verið til sýningar- innar. Það var því miklu fremur metnaður en gróðafýkn, sem olli því, að belgísk stjórnarvöld ákváðu að efna til þessarar miklu sýningar, sem engan á sinn líka. Markmiðið er í rauninni að hefja Brussell yfir allar aðrar borgir í V-Evrópu í voninni um að hún verði fyrir valinu sem höfuðborg „Litlu Evrópu“. Undirbúningur hefur tekið mörg ár — og talið er, að belgíski ríkissjóðurinn hafi varið sem svarar 200 millj. dollara til syn- ingarinnar sjálfrar, en auk þess helmingi meiri upphæð tii ýmissa endurbóta, sem nauðsyn- legar voru til þess að hægt yrði að taka við öllum þeim fjÖlda sýningargesta, sem búizt er við Nýjar götur hafa verið lagðar, brýr hafa verið byggðar — svo og jarðgöng víða í Brussell og við sýningarsvæðið hafa veriö byggð bílastæði fyrir 70 þús. bila Allt þetta hefur tekið ótrúlega skamman tíma. Belgíumenn eru mjög ánægðir með allar bessai framkvæmdir, enda þótt þær hafi orðið dýrar. Alls þessa var í raun inni þörf, enda þótt engin heims- sýning hefði verið haldin, segja þeir. Margir íslendingar hafa hug á því að sækja heimssýninguna i sumar. Sumir þeirra hafa aldrei komið til Belgíu áður — og þeim er ferðin enn meira tilhlökkun arefni en ella, því að Brussell er fögur borg í sumarskrúðanum — og heimssýningin ógleymanleg. Frá íslandi er hagfelldast að komast til Brussell með því að fljúga með íslenzkri flugvél tii London og taka sér þaðan íar með SABENA samdægurs tii Brussell og fara síðan sömu leið heim. Farmiðann er hægt að greiða í íslenzkum peningum a skrifstofum flugfélaganna svo að ekki er þörf að eyða þeim litla gjaldeyri, sem nú er veittur tii ferðalaga, í fargjaldið sjálft. En þegar til Brussell kemur, geta horfurnar versnað. 1 sumar verður mjög erfitt að fá hótelrum í borginni, enda þótt víðtækar ráðstafanir hafi verið gerðar til þess að hýsa sem flesta ferða- menn. Venjulega eru um 15,000 hótelrúm í borginni, en nú hefur tekizt að fjölga þeim upp í 70,000. Einstaklingar hafa verið hvattir til þess að rýma í húsum sínum eins og kostur er — og leigja ferðamönnum herbergi, sem þó eru ekki öll upp á það bezta, enda þótt verðið sé hátt. Stjórn- arvöldin hafa að vísu komið í veg fyrir allt okur á leigu gisti- herbergja — og í því skyni sett upp leigumiðstöð, sem nefnd er „Logexpo“. 1 þessari miðstöð eru öll gistirúm leigð út í sumar. Starfið er æði umfangsmikið, en „Logexpo" hefur tekið í sína þjónustu rafmagnsheila og ann- an nýtízku útbúnað — svo að starfsmennirnir geta á nokkrum sekúndum séð hvort eitthvert her bergi er laust —- og hvar það er En herbergin eru dýr, sem fyrr segir. Lélegt eins manns herbergi í íbúðarhúsi kostar sem svarar sterlingspundi yfir nóttina — og góð hótelherbergi geta farið upp í 4—5 sterlingspund. En það versta — hvað útlend- Sextugsafmæli Ófeigsstabahjóna ÞANN 8. apríl sl. átti Baldur Baldvinsson oddviti að Ófeigs- stöðum í Köldukinn, sextugsaf- shrifar úp daglega lifinu Ætlar þú til Noregs? UM það er nú rætt að hópur íslendinga, sennilega um 50 manns, fari til Noregs í sumar til að setja niður trjáplöntur, en jafnstór hópur Norðmanna komi hingað í staðinn sömu erinda. — Velvakanda skilst, að farið verði til Hörðalands, héraðsins, sem Bergen stendur í. Hefur honum borizt bréf frá íslendingi, sem dvelst á Voss, nokkra tugi km norð-austur af Bergen og segir þar frá þessari byggð. í bréfinu segir: Voss er nafn á járnbrautarbæ og sveitinm þar í kring. Að landslagi og veðráttu líkist hún meira landinu austan- en vestanfjalls í Noregi, en þó er Voss miðstöð vestlenzkra siða. Hér er það landsmálið, sem er dýrkað. Voss málið er róttækt landsmál, sem líkist íslenzkunni. Málstriðið, sem hér er háð, er stríð um orð. Landsmálið vinnur gegn dönskum orðum og ending- um. Því svíður mér oft, þegar ég fæ bréf frá íslandi með utan áskriftinni Norge. Landið heitir á sínu máli Noreg. Um Vossbúa er sagt, að höfuð- tekjur þeirra séu af skólafólki! Það er satt, að margir skólar og nemendur eru á Voss, þótt flein séu þar atvinnugreinarnar. — Oft sjást hér á götunum menn með bakpoka. Það eru bændur, sem hafa brugðið sér í bæinn til að verzla, — menn, sém hafa faaðzt á sama bænum og forfeður þeirra í marga liðu, líklega gifzt dóttur nágrannans eins og forfeðurnir og lifað í samræmi við forna siðu á annán hátt. Býlin þeirra eru lítil miðað við það, sem tið- kast á íslandi. Góð jörð er 15 ha, en allt gamla fólkið, sem ber aldurinn svo vel, sýnir, að það heíur ekki slitið sér út fyrir framavonina. Voss er samgöngumiðstöð. „AJl ar leiðir liggja til Voss“ er sagt hér um slóðir. Hér er skiptistöð á brautinni milli Osló og Bergen, rafreiðin tekur hér við af eim- reiðinni. Héðan er einnig mikið ekið til Sogns og Harðangurs á sumrin, þegar ferðamennirmr þeytast um landið. Skógrækt er aðaláhugamál fólksins. Nú og í fyrra var 1,1 millj. trjáa plantað á Voss. Skóg- arnir voru vanræktir vegna fá- fræði og áhugaleysis, en nú hafa dugandi menn vakið áhuga bænd anna með því að lofa gulli fyrir sígræna skóga. Eftir mannsaidur verður birkikjarrið vafalaust horfið, en grenið al\s ráðandi. í sumar verður efnt til skóg- viku. Fara þá Vestlendingar til íslands og Islendingar koma í staðinn. Það væri gaman að á- huginn á þessari ferð sýndi sig í góðri þátttöku ... Steinar í Stórholti ¥»AÐ voru lagðir gulir steinár í Stórholti fyrir sumardag- inn fyrsta, og voru þeir settir sunnan götunnar sem gangstétt- arafmörkun fyrir gangandi fólk. Var braut þessi 3 m á breidd. Síðan brautin var gerð, hefur öllum litlu bílunum verið lagt á þessa gangbraut, sem fólkinu er ætluð. Stóru bílarnir standa hins vegar utan við steinana og óneit- anlega jafnframt hættulega langt út í umferðina. Ég spyr þá, sem verki þessu réðu: Hefði ekki verið betra að hafa göngubrautina helmingi mjórri? Það myndi fullnægja gangandi fólki á þessari götu og fyrirbyggja, að bílar stæðu þar, sem fólk á að ganga. Eðíilega leggja allir bílum sínum við hfim ili sitt, ef unnt er. Einnig kæmi til greina að úthluta bílastæðum sem næst þessari götu. Mér finnst, að nú sé verið að bjóða hættunni heim, og vænti ég, að ráðandi menn kynni sér þetta ástand og reyni að bæta úr því. Stórholtsbúi." Skálholt VELVAKANDA hafa borizt nokkur bréf um Skálholt í sambandi við umræður þær, sem nýlega fóru fram á Alþingj um það, hvort þar skyldi settur bisk- upsstóll. — Maður nokkur gerir það að tillögu sinni, að Skálholt verði sumarsetur biskupsins yfir íslandi. Kona í Reykjavík leggur til, að vígslubiskupamir hafí að- setur á hinum fornu biskups- setrum. Sú hugmynd kom einnig fram í umræðunum á Alþingi, sbr. Morgunblaðið sl. þriðjudag, þó að reyndar hafi verið talað um, að vígslubiskuparnir bæru biskupsheiti og sinntu öðrum og fjölbreyttari verkefnum en nú. mæli. Kona hans, Sigurbjörg Jónsdóttir, átti einnig sextugsaf- mæli fyrir skömmu, eða 12. marz síðastliðinn. Mikið fjölmenni heimsótti Ófeigsstaðahjón víðs vegar að úr héraðinu á afmæli Baldurs til þess að árna þeim heilla í til- efni þessara merkisafmæla. Barst þeim hjónum mikill fjöldi heillaskeyta og veglegar gjafir frá vinum og sveitungum afmæl- isdagana, en óveður og slæm færð hamlaði því að fjólmenni heimsækti húsfreyjuna á afmæli hennar. Margar ræður voiu fluttar og kvæði fyrir minni hjón anna. Sátu gestirnar í góðum fagnaði lengi dags og fram á nótt. Mátti glögglega sjá við þetta tækifæri, hve vinsæl og vel látin Ófeigsstaðahjón eru, enda er heimili þeirra annálað fyrir greiðasemi og gestrisni. Ófeigs- staðir standa við krossgötur og þjóðbraut, og má segja, að stanz- laus straumur gesta sé þar árið um kring, en allir eru jafnvel- komnir til þess að þiggja höfð- inglegar viðtökur og veitingar á heimilí Ófeigsstaðahjóna. Baldur og Sigurbjörg hafa bú- ið á Ófeigsstöðum í 24 ár og prýtt jörð sína myndarlega. Börn þeirra eru: Svanhildur, gift Einari Kristjánssyni frá Finnstöðum og Ófeigur,- er vinn- ur að búi foreldra sinna heima. Baldvin er þriðja barn Baldurí að fyrra hjónabandi, en nann er tvígiftur. Missti Baldur fyrri konu sína eftir stutta sambúð. Bald- vin er giftur Sigrúnu Jónsdóttur frá Hömrum, og hafa þ»u stofnað nýbýli á Ófeigsstöðum. Baldur Baldvinsson er kunnur félagsmálamaður. Hann hefur lengi verið oddviti sveitar sinn- ar, átt sæti í stjórn Kaupfélags Þingeyinga um fjölmörg ár, ver- ið í stjórn Búnaðarsambands S.- Þingeyinga og Búnaðarþings- fulltrúi um 10 ára skeið, svo að nokkuð sé nefnt. —H. G. ingum viðkemur — er það, að her bergjapantanir eru ekki teknar til greina hjá Logexpo" nema að greitt sé fyrirfram. Þetta getur valdið íslenzkum ferðamönnum nokkrum erfiðleikum þar eð is- lenzku flugfélögin hafa engar skrifstofur í Brussell, en annars mundu þau vísust til þess að taka að sér slíka fyrirgreiðslu fyrir ferðamenn. Matur í veitingahúsum í Bruss- ell er frekar dýr — þó sérsiak- lega á sýningarsvæðinu. í flest- um stærri sýningarhöllunum eru einnig stórir veitingasalir — og þar er hægt að fá þjóðarrétti viðkomandi landa. Bandaríski matsalurinn er einn sá vinsæl- asti á öllu sýningarsvæðinu — og þá sérstaklega matbarinn, en þar eru jafnan langar biðraðir. Talið var til tíðinda, að þar geng'u til þurrðar pönnukökur og síróp á fimmta degi sýningarinnar, en búizt hafði verið við að hráefnið entist í 3—4 vikur. Rússneski matsalurinn er og mjög fjölsótt- ur — og Rússarnir höfðu einnig sömu sögu að segja: Kavíar og vodka gengu til þurrðar fyrr en varði — og sent var eftir auka- birgðum til Moskvu. Á hinum þjóðlegu veitingahús- um er verðið misjafnt, en mat- urinn undantekningarlaust goð- ur. Fer verðið nokkuð eftir pví, sem það er í heimalandinu og hafa Hollendingar þegar getið sér orð fyrir góðan mat við sann- gjörnu verði. í borginni eru veitingahusin yfirleitt hagstæðari — og vel er hægt að komast af með lítið, ef heppnin er með. Vín eru dýr í Belgíu og bregður íslendingum ekki við það, en bjór fæst við sanngjörnu verði. Sýningarsvæðið er um 5—6 Km. frá miðhluta borgarinnár. Þang- að er auðvelt að komast úr öll- um borgarhlutum, bæði með sporvöngum og strætisvögnum. En það fyrsta, sem Belgíumað- ur varar útlendinginn við, eru leigubílarnir. Leigubílstjórar eru óvíða verri viðureignar og leika gjarnan á útlendinga, sem þekkja ekki til borgarinnar. hjh. Myndin er tekin að kveldlagi af hluta af sýningarhöll verkfrædinga á frauska sýningarsvæðinu. Búizt við að 40 milljónir manna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.