Morgunblaðið - 01.05.1958, Qupperneq 18
18
MORCT’iSHTAfílB
Fimmtudagur 1. mai 1958
Frá einum skemmtifunda Æ.R.
Sumarstarf Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur er
að hefjast
Starfsemin fœrðist mjög í aukana í vefur
og þátttaka var mikil í hinum ýmsu
greinum
SUMARSTARF Æskulýðsráðs
Reykjavíkur er nú að hefjast, og
áttu blaðamenn í gær tal við for-
ráðamenn ráðsins. I sumar munu
unglingar eiga kost á ýmiss Kon-
ar tómstundavinnu á vegum raðs-
ins eins og verið hefur. Er hér að
nokkru leyti um að ræða *ram-
hald á vetrarstarfseminni, en
einnig bætast við ýmsar nyjar
tómstundagreinar.
Ljósmyndaklúbburinn tekur til
starfa að nýju 5. maí. Veröur
unnið fjóra daga í viku að fram-
köllun og stækkun. Unglingar eru
beðnir að tilkynna þátttöku sina
á morgun frá kl. 2—4 e. h. eða
8—9 e. h. og á laugardag kl. 3—3
e. h. Aformað er að fara í ljós-
myndatökuferðalag 1. júní, og
verður i því ferðalagi veitt til-
sögn í töku ljósmynda og með-
ferð ljósmyndavéla.
Sjóvinna og sjóróðrar hefur
verið mjög vinsæl grein, og hef-
ur fjöldi pilta sótt tíma af miki-
um áhuga. í lok maímáhaðar verö
ur efnt til tveggja eða þriggja
veiðiferða á vb. Víkingi. Einnig
er ráðgert að gera vb. Víking út
á lúðuveiðar síðar í sumar, og
verður þetta gert í samvinnu við
Vinnuskóla Reykjavíkur. Munu
14—16 piltar geta komizt í veiði-
ferð þessa. Piltar, sem áhuga hafa
á þátttöku í róðrunum ættu að
tilkynna þátttöku sína sem fyrst
í Tómstundaheimilinu að Lindar-
Jarðaberjaplö'ntur
af tegundinni Abundance höfum við nú til sölu eins
og undanfarin vor. Verða afgreiddar n.k. föstudag
og laugardag.
Atvinnudeild Háskólans.
IJPPBOÐ
á bifreiðinni G-1081 fer fram laugard. 10. maí kl.
10 f.h., þar sem hún stendur við Bæjarskrifstofuna
í Hafnarfirði.
BÆJARFÓGETI.
ATVIIMIMA
Velmenntaður ungur maður óskar eftir góðri atvinnu
strax, eða sem fyrst. Er þaulvanur allskonar skrifstofu-
störfum, bókhaldi, verðútreikningum, áætlunum, kaup-
reikningum o.s.frv. Góð enskukunnátta. — Einnig vanur
ýmsum öðrum störfum sem kæmu ef til viil til greina.
lilboð sendist Mbl. fyrir 5. maí merkt: „Áfram — 8130“.
Iðnaðarhúsnæði óskast
30—60 ferm. fyrir léttan iðnað.
Tilboð sendist afgr. blaðsins merkt: „í júní — 8140“.
götu 50. Verða fyrirlestrar haldn-
ir og kvikmyndir sýndar í sam-
bandi við sjóvinnuna.
Ákveðið hefur verið að gang-
ast fyrir stangaveiðinámskeiði, og
verður þar veitt tilsögn í með-
ferð veiðistanga. Námskeiðíö
hefst 12. maí, og félagar úr Kast-
klúbb Reykjavíkur munu veita
leiðbeiningu og sýna kvikmynd-
ir. Þeir unglingar, sem áhuga
hafa á þessari grein, geta tilkynnt
þátttöku sína á morgun og laug-
ardag að Lindargötu 50. — Jón
Pálsson, sem nú er fastur starfs-
maður hjá Æskulýðsráði, komst
svo að orði, að þessi grein yrði
vafalaust vinsæl, og hér væri um
tímabæra tilsögn að ræðá, því að
fjölmargir piltar hafa mikinn
áhuga á að kynna sér meðferð
veiðistanga.
Hjólhestaviðgerðir munu fara
fram á tveimur stöðum í bænam
í maí og júni, í vinnustofu Gagn-
fræðaskóla Verknáms og í verk-
stæði að Grenimel 9, á mánudög-
um, þriðjudögum og fimmtudög-
um frá kl. 5—8 e. h. Hefst starf-
semin næstkomandi mánudag, og
þátttöku á að tilkynna að Lindar-
götu 50.
Einnig verður efnt til nokkurra
ferðalaga í sumar auk Ijósmynda-
tökuferðalagsins, sem áður er
nefnt, og er þetta gert í
nánu samstarfi við Farfugla.
— Farið verður til Þingvalla
14.—15. júní. — Dagana 5.—6
júlí verður efnt til ferðalaga
fyrir þá, sem áhuga hafa a
jurtasöfnun.-----Kunnáttumenn
verða til leiðbeiningar í þessari
ferð. Mun unglingunum gefast
kostur á að útbúa blómapressur
í Tómstundaheimilinu, áður en
lagt er upp í ferðina. í berjaferö
verður farið 30.—31. ágúst og i
gönguferð á Esju 7. sept.
Verður reynt að vanda undir-
búning þessara ferðalaga, svo ad
þau verði þátttakendum í senn
ánægjuleg og ódýr. Nánari upp-
lýsingar verða veittar að Lindar-
götu 50.
Leik- og íþróttanámskeið verða
haldin fyrir börn og unglinga a
leikvöllum bæjarins í júní. Þetta
verður gert í samvinnu við ÍBR
og leikvallanefnd, og kunnir
íþróttakennarar munu veita til-
sögn.
— ★ —
Framkvæmdastjóri Æskulýðs-
ráðsins, séra Bragi Friðriksson,
skýrði nokkuð frá tomstundaiðj-
unni í vetur. Starfsemin færðist
mjög í aukana, og þátttaka í hin-
um ýmsu greinum starfseminnar
hefur verið mikil. Nokkuð þröngt
hefur þó verið um húsakost, en
horfur eru á, að úr því muni ræt-
ast með haustinu. Sagði formaö-
ur Æskulýðsráðs, Helgi Hermann
Eiríksson, að allar líkur væru
til þess, að ráðið fengi Goifskál-
ann til umráða í vetur, einnig
væru að skapast betri aðstæðui
í kirkjum bæjarins og félags-
heimilum. Höfuðbækistöðvar tóm
stundaiðjunnar eru að Lindargötu
50, en einnig hefur verið staríað
að einhverju leyti í öllum heiztu
bæjarhverfum í vetur, og hefur
starfsemin fengið húsaskjól í íé-
lagsheirrtilum og skólum. Tóm-
stundaheimilið að Lindargötu 50
hefur verið fullsetið í vetur, og
væri mjög vel, ef annað slik:
heimili gæti tekið til starfa hið
fyrsta.
500 þátttakendur
í vetur hafa um 500 unglingar
tekið þátt í tómstundaiðjunni
víðs vegar um bæinn. Unnið heí-
ur verið að föndri, útsaumi
módelsmíði, leikbrúðugerð, bók-
bandi, útsögun og útskurði, bast-
og tágavinnu, -smíðum, radió-
vinnu, hjólhestaviðgerðum, sjó-
vinnu og ljósmyndaiðju, sem' er
elzta greinin og mjög vinsæl. —
Haukur Sigtryggsson hefur frá
upphafi veitt ljósmyndadeildinni
forstöðu, en hann á sæti í stjórn
Félags áhugaljósmyndara, sem
stutt hefur þessa starfsemi meö
ráðum og dáð.
Fræðslu- og skemmtifundir
hafa verið haldnir að Lindargötu
og verið hinir ánægjulegustu. —
Stefnt er að því að gera tóm-
stundaiðjuna mun fjölbreyttari í
framtíðinni, svo að hún nái tii
enn fleiri unglinga. Hafa ungl-
ingunum verið veitt viðurkenn-
ingarskjöl fyrir þátttöku.
— ★ —
Auk tómstundaiðjunnar hefur
Æskulýðsráð beitt sér fyrir ýmsu
öðru. Það hefur aðstoðað við
tvenna æskulýðstónleika Sin-
fóníuhljómsveitarinnar við ióla-
söngva í kirkjum borgarinnar.
Fimm taflklúbbar hafa starfað a
vegum þess og Taflfélags Reykja-
víkur. Fimm kvikmyndaklúbbar
hafa starfað í vetur, og eru tveir
þeirra reknir í sambandi-við sókn
arnefnd Bústaðasóknar. í sam-
vinnu við þingstúku Reykjavíkur
og Áfengisvarnanefnd ReyKja-
víkur hafa verið haldnar sérstak-
ar danssamkomur fyrir æskufólk.
Er hér um tilraun að ræða en von
ir standa til, að betta geti orðið
upphaf að víðtækara starfi í þá
átt að gefa æskufólki kost á holl-
um skemmtunum.
Hefur Æskulýðsráð notið sam-
starfs og aðstoðar ýmissa aðila
í starfi sínu. Félag áhugaljós-
myndara, Farfuglar, skátar, Kenn
arar, skólastjórar, ÍBR, preatar
og einstaklingar hafa stutt starfið
á margvíslegan hátt, enda er það
stefna Æ.R. að leita slíkrar sam-
vinnu sem víðast.
I. maí í Hafnarfiröi
HAFNARFIRÐI — 1. maí hátíða-
höld Fulltrúaráðs verkalýðsfé-
laganna,. Starfsmannafélags og
Iðnnemafél. Hafnarfjarðar hefj-
ast með því að safnast verður
saman við verkamannaskýlið kl.
1,30 e. h. Klukkan 2 verður lagt
af stað í kröfugöngu undir fán
um samtakanna, og gengið um
eftirtaldar götur: Vesturgötu,
Vesturbraut, Kirkjuveg, Hellis-
götu, Hverfisgötu, Lækjargötu,
Strandgötu og staðnæmst við
Vesturgötu 6 (Bridehús). — Þai
hefst svo útifundur, og mun Sig-
urrós Sveinsdóttir, form. Full-
trúaráðsins, setja fundinn. Síðan
flytja stuttar ræður: Hermann
Guðmundsson form. Hlífar, Guð-
laugur Þórarinsson form. Starfs-
mannafélags Hafnarfjarðar, Ein-
ar Jónsson form. Sjómannafélags
Hafnarfjarðar og Birgir Dýrfjörð
form. Iðnnemafélags Hafnarfjarð
Verzlunarmannafélag
Reykjavikur
FLYTUR ÖLLUM LAUNÞEGUM BEZTU
ÁRNAÐARÓSKIR I TILEFNI AF 1. MAl.
N auðungoruppboðið
á Heiðargerði 26, sem fram átti að fara föstudaginn 2. maí
1958, kl. 2 y2 síðdegis fellur niður.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
5 eða 6 herb. hœð
I nýju húsi óskast keypt. Sér hiti og sér inngangur.
Tilboð merkt: A. G. M. — 345 óskast sent afgreiðslu
Morgunbl. fyrir 7. m’aí.
ar. Fyrir kröfugöngunni og ó úti-
fundinum leikur Lúðrasveit Hafn
arfjarðar undir stjórn Alberts
Klahns. Kl. 5 verður barna-
skemmtun í Bæjarbíói, og verða
þar fjölbreytt skemmtiatriði.
Hér fer á eftir ávarp 1. mai-
nefndarinnar hér í Hafnariirði:
1. maí er hvort tveggja í senn
hátíðisdagur verkalýðsins og oar-
áttudagur hans: Hátíðisdagur því
meiri sem fleiri og stærri sigrar
hafa unnizt og ba”áttudagur bví
meiri sem fleira er óunmð og
gera þarf til þess að verja unn-
inna sigra.
Eigi dylst það nú, fremur en
áður, að brýn nauðsyn er a pvi
að efla verkalýðshreyfinguna,
þar sem grundvöllur allra kjara-
bóta, allrar sóknar samtakanna
byggist á því að þau séu heil-
steypt og sterk.
Einhuga og samstillt verkalýðs-
hreyfing er það afl, sem alþýðan
þarfnast nú öðru fremur.
Verkalýðurinn krefst þess að
dýrtíðinni sé haldið í skefjum,
kaupmáttur launanna aukinn og
mótmælir hvers konar tilraunum
til þess að velta byrðum yfn a
bak alþýðunnar með ráðstöfun-
um, sem myndu jafngilda nýrri
gengislækkun og verða þar með
stórfelld kjaraskerðing.
Verkalýðurinn krefst þess, að
landhelgi íslands verði stækkuð
svo sem nauðsynlegt er til að
vernda fiskstofninn og hagsmun-
ir þjóðarinnar bjóða.
Verkalýðurinn krefst þess að
sérhver þjóð fái að lifa í friði.
frjáls í landi sínu og styður sér-
hverja raunhæfa tilraun til þess
að tryggja friðinn í heiminum.
Hafnfirzk alþýða!
Við heitum á alla meðlimi
verkalýðshreyfingarinnar, alla
alþýðu hæjarins, að sýna sam-
heldni sina 1. maí og taka vmkan
þátt í kröfugöngunni og útifund-
inum.
Við erum þess fullviss að mikii
þátttaka þar er einn bezti undir-
búningur að árangursríkri sókn *
hagsmunabaráttunni.
Gerum 1. maí að sigurdegi í
baráttunni fyrir atvinnu, vei-
megun og sjálfstæði þjóðarinnar.