Morgunblaðið - 29.05.1958, Síða 10

Morgunblaðið - 29.05.1958, Síða 10
iO MORClinni 4 ÐIÐ Fimmtudagur 29. maí 1958 Ullfyfefrife Vtg.: H.í. Arvakur, Reykjavfk. Framkvæmdastjóri: Sigfus Jónsson. Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjamason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Ola, sími 33045 Auglysingar: Arni Garðar Kristinsson Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýs'ngar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480 Asknftargjald kr. 30.00 á mánuði ínnaniands. í lausasólu kr. 1.50 eintakið. VINNUFRIÐ URINN í VOÐA VINNUFRIÐUR í landinu og náið samstarf milli verka lýðssamtaka og ríkisvalds var eitt af aðalfyrirheitum vinstri stjórnarinnar, þegar hún tók við völdum fyrir tveimur árum. Þetta loforð efndi stjórnin þannig þeg- ar á árinu 1957, að mikill fjöldi verkalýðsfélaga efndi til verk- falla, og meðal annars stóð í nær allt fyrrasumar lengsta verkfall. sem háð hefur verið hér á landi. Farmenn og sjómenn gerðu verk- fall, flugmenn gerðu verkfall og iðnaðarverkamenn gerðu verk- fall. Afleiðingar þessara verk- falla voru margvíslegar truflamr á starfsemi þjóðfélagsins og á- framhaldandi kapphlaup milii kaupgjalds og verðlags. Þetta gerðist á árinu 1957. En nú er komið nýtt ár og enn blasa við vinnudeilur og verkföll . landinu. Mörg stærstu verkalýðs- félögin hér í Reykjavík hafa sagt upp samningum og boðað verk- fall. Sjálf ríkisstjórnin hefur lagt fyrir Alþingi frumvarp, þar sern gert er ráð fyrir 5—7% almenn- um kauphækkunum. En einstök verkalýðsfélög hafa gert kröfur um töluvert hærri kauphækk- anir. Vinnufriðurinn á þessu sumri virðist því ekki síður vera í voða en í fyrrasumar. Nú er svo komið að verkalýðshreyf- ingin má heita slitnuð úr öll- um tengslum við ríkisstjórn- ina. Hvert verkalýðsfélagið á fætur öðru lýsir því yfir að efnahagsmáiatillögur stjórnar innar, „bjargráðin“ gangi í berhögg við stefnu síðasta AI- þýðusambandsþings. Með þess um tillögum vinstri stjórnar- innar sé verið að velta yfir þjóðina nýju dýrtíðar- og verð bólguflóði. Á grundvelli þessara skoðana hafa verkalýðsfélögin svo krafizt meiri kauphækkana en gert er ráð fyrir í „bj argráðafrumvarpi“ stjórnarinnar. Nýtt kapphlaup er enn hafið milli kaupgjalds og verðlags í landinu. Stefnt út í öneþveiti Engum hugsandi manni hefur dulizt að með öllu þessu er stefnt út í fullkomið öngþveiti og upp- lausn í efnahagsmálum þjóðar- innar. Ríkisstjórnin sjálf hefur haft forystu um að lögbjóða hækkun kaupgjalds og fram- leiðslukostnaðar, enda þótt vitað sé að öll útflutningsframleiðsla þjóðarinnar er þegar rekin með gífurlegum halla. Við þetta bæt- ist svo að verkalýðsfélögin, sem sjá fram á stórhækkaða dýftíð og hrikalegar nýjar álögur af hálfu ríkisvaldsins hafa hafið baráttu fyrir kauphækkunum. Hvernig getur nokkur viti bor- inn maður lagt trúnað á það, að ríkisstjórn og stjórnarflokkar, sem þannig koma fram geri sér minnstu von um að efnahags- málatillögur þeirra sé líklegar til að koma á jafnvægi í fjármálum þjóðarinnar? Sannleikurinn er sá, að vinstri stjórnin virðist hafa kastað frá sér allri von um það að geta gert nokkuð af viti til lausnar efnahagsvandamálum. Það eina sem vinstri stjórnin getur gert er að leggja sífellt á nýja skatta og tolla til þess að fleyta fram- leiðslunni til bráðabirgða í ör- fáa mánuði yfir blindsker vax- andi verðbólgu og síhækkandi framleiðslukostnaðar. G»rundvöllur vinstri stjórnar hruninn Hermann Jónasson myndaði vinstri stjórn sína og kommún- ista fyrst og fremst á þeim grund velli að ekki væri hægt að leysa vandamál efnahagslífsins án sam- starfs við kommúnista, sem réðu yfir stærstu verkalýðsfélögun- um í landinu. Nú hafa þessi sam- tök, sem formaður Framsóknar- flokksins setti svo mikið traust á að myndu styðja hann, snúið við honum bakinu. Þau hafa lýst því yfir, að efnahagsmálatillög- ur vinstri stjórnarinnar hafi í för með sér „nýja verðbólguskriðu“. Þau hafa svarað bjargráðum vinstri stjórnarinnar með upp- sögnum samninga og nýjum kaup kröfum. Þannig hafa allar vonir for- manns Framsóknarflo- ins, sem svo miklu fórnaði nieð því að taka kommúnista í ríkisstjórn, brostið og að engu orðið. Hann er staddur á víðavangi, sviptur öllu trausti og ngslum við hina kommúnisku bandamenn sína í UTAN UR HEIMI Barnsfœðingum fer fjölg- andi í Evrópulöndum Hagskýrslur SÞ sýna, crð fólk giftist mun yngra en áður tiðkaðist ÁRUM saman hafði barnsfæðing- um fækkað jafnt og þétt í iðnað- arlöndum Evrópu. Segja má, að það hafi verið orðin tízka að tak marka barnahópinn sem mest. Nú er að verða breyting á þessu, því að opinberar skýrslur sýna, að barnsfæðingum fer fjölgandi í öll um Evrópulöndum, sem skýrslur ná til. Sérstök nefnd hefir undan- farið unnið að skýrslugerð um þessi mál á vegum félagsmála- deildar Sameinuðu þjóðanna, og hefir nú verið gefið út yfirlit, sem nefnist á ensku „Recent Trends in Fertility in Industria- lized Countries. Skýrsla þessi nær yfir tímabilið frá 1920—54. I formála er þess getið, að Sovétrikin. Albanía, Búlgaría, Pólland, Rúmenía, Ungverjaland og Júgóslavía séu ekki tekin með í skýrsluna sökum þess, að ekki hafi tekizt að afla nægra upp- lýsinga. Einnig er tekið fram, að skýrslur frá Grikklandi um barnsfæðingar séu ekki nákvæm- Mikilvægt atriði í yfirlitinu er bent á, að fjölg- un barnsfæðinga í Evrópulönd- um og nýlendum, sem byggðar eru Evrópufólki, sé veigamikið atriði. Rannsókn þessi þjónar ekki þeim tilgangi einum að skrifa niður tölur og notfæra þær ekki. Það er mjög mikilsvert að geta sagt nokkurn veginn fyrir um, hve mikið vinnuafl verði fyrir hendi í hverju landi fyrir sig á hverjum tíma, hve mörg börn muni verða skólaskyld á hverju ári og hve mörgum verkalýðshreyfingunni. Sá hluti | gamalmennum þurfi að sjá far- verkalýðshreyfinö-i'innar, sem borða. fylgir Alþýðuflokknum og Sjálf-1 \ öllum Evrópulöndum, sem stæðisflokknum að málum hefur i skýrslan nær til, fækkaði barns- hins vegar aldrei treyst honum. | fæðingum á árunum 1924—30. En Óhætt er að fullyrða, að yfirgnæfandi meirihluti verka lýðshreyfingarinnar hafi aldrei sett minnsta traust á hinar steigurlætisfullu yfir- lýsingar Hermanns Jónasson- ar um að hann gæti leyst vandamál íslenzks efnahags- lífs með kommúnistum að „nýjum Ieiðum“ og „varmileg um úrræðum“. Veu-kalýðurinn van- treystir Framsókn íslenzkur verkalýður treystir eftir 1930 fer barnsfæðingum að fjölga á ný. Það kom fram við rannsóknina á barnsfæðingum í Evrópulönd- um, að mæður eru nú yngri en áður og að það verður æ sjald- gæfara, að konur eignist börn eft- ir 35-—40 ára aldur. Flest börn fæðast nú snemma í hjónaband- inu, en sjaldgæft er, að börn fæð is nú orðið í hjónaböndum, sem staðið hafa í 10—15 ár. Ofnautn devfilyfja Deyfilyíjanefnd SÞ, sem undan farið hefir setið á þingi suður í Genf, hefir fengið til meðferðar Sómalískaga í Afríku. Engi- spretturnar komu yfir Rauðahaf- ið í janúarmánuði í vetur, skiptu sér og héldu sumir hóparn ir norður yfir Jemen og Saudi- Arabíu. Fóru þær yfir með ótrú- legum hraða. í febrúar og marz urðu Jór- danía, ísrael, Sýrland, írak og íran alvarlega fyrir barðinu á þessum vágestum. Einn engi- sprettuhópurinn komst alla leið til Pakistan. í aprílmánuði gerðu engispretturnar innrás í Tyrk- land, en þar hafði ekki orðið vart við engisprettur svo telj- andi væri frá því 1953. Á sex vikum fóru engisprettu- hóparnir yfir svæði, sem nær yfir 3000 ferkm til norðurs og austurs. Sem dæmi um, hve stórir þessir skorkvikindahópar eru, nefnir Lean, „að við höfum nýlega fengið upplýsingar um, að engisprettuhópur, sem er 80 km breiður, hafi gert innrás í írak “ Matvæla- og landbúnaðar- stofnunin var á verði Þessi engisprettuplága kom ekki algjörlega á óvart, og má þakka það Matvæla- og landbún- aðarstofnuninni, sem í júníbyrj- un í fyrra aðvaraði allar ríkis- stjórnir í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs og þar fyrir austan við því, að hætta væri á engisprettuplágu á þessu ári, og því væri öruggara að vera við- búinn. Þessar upplýsingar voru sendar til ríkisstjórnanna eftir beiðni Engisprettuvarnarnefnd- ar stofnunarinnar, sem einmitt sat fund í Tangier í júnímánuði í fyrrasumar, er fyrst sáust merki þess, að 1958 myndi veða „engi- sprettuár“. Nú starfa um 60 flokkar á veg- um SÞ að eftirliti með engi- sprettum í Saudi-Arabíu, Jemen Egyptalandi, írak, íran, Pakistan og Indlandi. Þessir flokkar vinna bæði að því að eyða engisprett- um og fylgjast með ferðum þeirra í varnarskyni. Matvæla- og landbúnaðarstofn. unin hefir gert allar hugsanleg- ar ráðstafanir til þess að verj- ast engisprettuplágunni, en ekki hefir tekizt að vinna bug á þessu skaðræðiskvikindi, þó að mikið hafi áunnizt. Nú óttast menn, að engispretturnar ráðist á ný inn í fran og Pakistan, og jafnvel er hætta á, að sumir hóp arnir komist alla leið til Ind- lands. Sænskir hundar leita uppi jarðsprengjur á Gaza Sænska hersveitin í liði Sam- einuðu þjóðanna í Gaza hefir fengið hunda sér til aðstoðar við að leita uppi sprengjur í eyði- mörkinni. Hundar þessir, sem eru af Scháferkyni, hafa reynzt mjög vel í Gaza. Þegar hundur hef ir f undið stað,' þar sem jarðsprengja er grafin, krafsar hann í kringum hana, þar til hann hefir rutt svo miklum sandi frá, að sprengjan' kemur í ljós. Síðan sezt hann og bíður eftir því, að húsbóndi hans komi. í eftirlitsliði SÞ 1 Gaza ríkir ánægja með hundana, því að jarð sprengjurnar hafa reynzt liðs- mönnum hættulegar og orðið nokkrum að fjörtjóni. Alþjóðavinnumálaráðstefnan í Genf Þann 4. júní hefst 41. alþjóða- vinnumálaráðstefnan í Genf. Þessa ráðstefnu sitja fulltrúar frá ríkisstjórnum, verkamönnum og atvinnuveitendum. Það er Alþjóðavinnumálastofn- unin, sem gengst fyrir ráðstefn- unni. í þeim samtökum eru nú 79 þjóðir þ.á.m. íslendingar, sem jafnan hafa sent fulltrúa á þing samtakanna hin síðari ár. hvorki Hermanni Jónassyni -né skýrslu um deyfilyf, sem oft Framsóknarflokknum í heild. Bandalagið um vinstri stjórn var ekki myndað til þess að tryggja raunverulega hagsmuni verka- lýðsins, heldur til þess að koma fram pólitískum refjum og gera valdadrauma nokkurra flokks- leiðtoga að veruleika. Um raun- veruleg tengsl og samstarf milli sjál_ verkalýðsins og vinstri stjórnarinnar var aldrei að ræða. Það sést bezt á viðhorfunum í íslenzkum stjórnmálum í dag, og afstöðu verkalýðshreyfingarinn- ar til ríkisstjórnarinnar. Það er skoðun mikils meirihluta fólks innan verkalýðsfélaganna að aldrei hafi nokkur ríkisstjórn svikið „vinnustéttirnar“ eins hrapallega og vinstfi stjórn Her- manns Jónasson . „Bjargráðafrumvarp“ stjórn arinnar kann að verða sam- þykkt á Alþingi í dag eða á morgun. Af því mun enga valda hættulegri ofnautn, er þau hafa verið notuð sem lyf til að draga úr þjáningum sjúklinga. í skýrslunni, sem samin er af læknanefnd, er bent á nauðsyn þess að brýna fyrir öllum, sem sýsla með deyfilyf, hve auðveld- lega menn falla í freistni fyrir ofnautn þeirra. Nefndin leggur t.d. til, að hætt verði að nota heroine sem deyfi- lyf, þar sem nú fást önnur lyf, er komið geta í stað þess, en ekki er hætta á, að menn venjist á að nota sem nautnalyf. Engisprettuplága herjar í Arabalönd.um Miklir hópar af engisprettum hafa undanfarið herjað í Araba- löndum og öðrum löndum fyrir botni Miðjarðarhafs og unnið mikið tjón á uppskeru bænda, segir í frétt frá Matvæla- og farsæíd leiða. Það hefur í för : landbúnaðarstofnun SÞ í Róm. með sér vaxand. verðbólgu,; Einn af sérfræðingum stofnun- samdrátt í atvinnulífi þjóðar- [ arinnar á þessu sviði, O. B. Lean, innar og versnandi lífskjör skýrir svo frá, að engisprettuhóp alls almennings. I arnir komi frá klakstöðvum á Hvert ert þú að fara? spurði Anna Gaylor ljónynjuna, sem labbaði inn í setustofuna hennar. Ekki var að undra, þó að hún spyrði, því að hún hafði ekki átt von á gestum. Þær Anna og Ijónynjan urðu mjög góðir vinir við kvikmyndatöku í Afríku fyrir nokkru. í heimi franskra kvikmynda er Anna Gaylor talin vera önnur Danielle Darrieux.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.