Morgunblaðið - 29.05.1958, Page 19
Fimmtudagur 29. maí 1958
MORCinsni.AÐÍÐ
19
— „Bjargráðirí'
Frh. af bls. 3.
um, sem bíða eftir lánum og þeim
þúsundum, sem byggja afkomu
sína á vinnu við byggingar.
Engin loforð hafa ^engizt um
viðbótarlánsfé. Meginhluti þess
fólks, er bíður lána, hefur meðal-
tekjur eða lægri, og mun verða
að hætta við fyrirhugaðar fram-
kvæmdir, fái það ekki lán. — Ef
frumvarp þetta nær fram að
ganga mun einnig aukast mjög
fjárfesting í hálfbyggðum hús-
um, en þar liggur mikið fjár-
magn dautt. Þótt sumir menn
segi, að fjárfestingin sé of mikil,
væri það réttari stefna að banna
mönnum að byrja að byggja en
að láta hús þeirra standa auð og
hálfgerð í 1—5 ár. Hér virðist
því stefnt að auknum húsnæðis-
skorti og atvinnuleysi bygging-
armanna. Húsaleiga og húsaverð
mun einnig fara hækkandi og
valda verðbólgu.
Andvígur frumvarpinu
Ég tel samkvæmt framansögðu,
— að frumvarp þetta sé frá
hvarf frá verðstöðvunarstefnu
ríkisstjórnarinnar, er verkalýðs-
samtökin fylgdu og vilja fylgja
— að það muni leiða til vax-
andi lánsfjárþarfar, sem engin
svör hafa fengizt um, hvernig eigi
að mæta
— að hækkun á efnivörum
muni valda samdrætti í bygging
ariðnaði.
Að þessu athuguðu tel ég mig
ekki geta stuðlað að samþykkt
frumvarpsins og mun greiða
atkvæði gegn því.
Verulegar verðhækkanir
Jón Kjartansson: Við umræður
um efnahagsmálin hafa stjórnar-
liðar viðurkennt, að uppbótaleið ■
in sé ekki fær nema að vissu
marki og álögurnar geti orðið svo
miklar, að þjóðin fái ekki undir
þeim risið. Núverandi ríkisstjórn
sjálf lagði á þjóðina með „jóla-
gjöfinni“ 300—350 millj. kr. og
með þessu frumvarpi á að bæta
790 millj. kr. við. Því hlýtur sú
spurning að vakna, hvort hinar
gífurlegu verðhækkanir, sem
munu leiða af þessu frumvarpi,
séu ekki meiri en þjóðin þolir.
Ég bendi á nokkur dæmi um
verðhækkanir vegna frumvarps-
ins, og vík þá fyrst að þeim, er
bændastéttina varða:
Dráttarvélar munu hækka um
35,2%. Þetta hefur leitt til þess
að bændur í Vestur-Skaftafells
sýslu, sem höfðu pantað dráttar-
vélar'og greitt á sl. hausti, hafa
nú afturkallað pantanir sínar, all-
ir nema einn. Varahlutir í drátt-
arvélar hækka um 35,4%, mjalta-
vélar um 31%, heyvinnsluvélar
30%, fóðurbætir 43,3%
Þá eru hækkanir, er snerta
samgöngumál. Benzínið hækkar
um 25,3%, vörubílar 25%, vara-
hlutir í þá 25%, bílagúmmí um
17%. Er þá aðeins talið það, er
lýtur að bifreiðunum, en við þær
einar verða t. d. íbúar á Suður-
landi að notast.
Byggingarvörur munu einnig
hækka verulega: Sement 22,2%,
timbur 25%, bárujárn 19,2% mið
stöðvarofnar 24,2%, steypustyrkt
arjárn 19,4%, rúðugler 19—23%.
Til viðbótar við þetta má svo
nefna húsaoliu, sem mun hækka
um 25%, kaffi 13,5%, sykur
14,7%, hveiti 14,2%, kæliskápar
20%, þvota- og hrærivélar 21%.
Þannig mætti lengi telja
Af frumvarpinu mun leiða, að
þjóðin verður að minnka neyzl-
una. Hingað til Alþingis hafa bor
izt mótmæli gegn afgr. frv. frá
mörgum verkalýðsfélögum, þ.á.
m. frá ýmsum hinum stærstu í
landinu. Og nvað gerist, ef þessi
verkalýðsfélög krefjast nú kaup-
hækkana? Það hefur mjög öflugt
félag þegar gert, Hið íslenzka
prentarafélag. Ýmis félög iðnað-
arins og atvinnurekenda hafa
einnig mótmsélt þessu frumvarpi
og verður því ekki talið, að væn-
lega horfi fyrir stjórninni um
framkvæmd málsins, þótt hun
knýi frumvarpið nú gegnum Al-
þmgj
Austrið er ekki hin rétta átt
Jóhann Þ. Jósefsson: Ég hafði
vænzt þess, að öðlast nokkurn
fróðleik af að hlusta á framsögu-
' ræðu forsætisráðherra hér í dag.
En ég verð að segja, að ég er litlu
fróðari. Ráðherrann minntist á
ýmsar leiðir, sem hann taldi
koma til greina til að leysa efna-
hagsvandamálin. Hugleiðingar
hans voru þó harla fáorðar og ó-
ljósar. T.d. hafði ég vænzt þess
að fá meiri fróðleik um gengis-
breytinguna, því að vitað er, að
Framsóknarflokkurinn mun
helzt hafa hallazt að þeirri leið.
Ríkisstjórnin núverandi lofaði
í upphafi ferils síns að gera ráð-
stafanir til varanlegrar lausnar
efnahagsvandamálanna Það hef-
ur hingað til gjörsamlega mistek-
izt. Hafi þjóðin fyrir tveimur ár-
um verið í eyðimörk, verður
ekki annað séð en síðan hafi ver-
ið haldið lengra inn á þá eyði-
mörk: Dýrtíðin hefur aukizt,
eins og hvert mannsbarn verður
vart við daglega.
Hér kemur þó forsætisráðherr-
ann og segir, að frumvarpið, sem
fyrir liggux', sé stórt spor í rétta
átt. Ýmsum leikur forvitni á að
vita, í hvaða átt sé stefnt. Yfir-
leitt virðist svo að flestar gerðir
ríkisstjórnarinnar stefni í ranga
átt — í verzlunarmálunum a.m.k.
hefur t.d stefnt að járntjaldinu,
þó að langt sé frá því að almenn-
ingur í landinu telji, að það sé
hin rétta átt.
Að ræðu Jóhanns Þ. Jósefssonar
lokinni tók Gunnar Thoroddsen
til máls.
Frá ræðu hans verður sagt síðar.
Að umæðu iokinni var frv. vísað
til 2. umr og fjárhagsn. 2. og 3.
umr. fer sennilega fram í dag.
— De Gaulle
Framh. af bls. 1
til þess að mynduð yrði þíóðfylk-
ing, sagði Reynaud. Kommúnist-
| ar hafa síðustix dagar.a mjög
beitt sér fyrir því að mynduð
verði þjóðfylking með þátttöku
þeirra.
Fjölmenni
Þeir sem stóðu að hópgöng-
unni í París í dag höfðu beðið
þátttakendur um að hafa ekki í
frammi ólæti og nota ekki önn-
ur vígorð en „Lengi lifi lýðveld-
ið“. Var þess farið á leit að ekki
yrðu borin nein flokksmerki og
aðeins spjöld með ofannefndum
vígorðum. Tiu mínútum áður en
gangan hófst höfðu 25.000 manns
safnazt saman á Place de la
Nation, og jókst mannfjöldinn
stöðugt meðan farið var gegn-
um borgina. í broddi fylkingar
voru m. a. Duclos foringi komm-
únista, Pineau fyrrverandi utan-
ríkisráðherra, Ramadier hinn
aldni þingmaður sósíalista og
Mendes-France fyrrverandi for-
sætisráðherra. Þegar hópgangan
nálgaðist áfangastað sinn á
Place de la Republique mátti sjá
spjöld með vígorðum eins og
„Niður með de Gaulle" og „Nið-
ur með Massu“. Svo var farið að
syngja „Marseillaise" og nokkrir
heyruðst hrópa „Fasisminn skal
ekki sigra!“ Þegar gangan kom
á Place de la Pepublique voru
þátttakendur orðnir yfir 100.000.
Pflimlin stvður de GauIIe
Það er haft eftir goðum lieimild
um í franska þinginu, að Pierre
Pflimlin, sem baðst lausnar fyrir
stjórn sína í morgun eftir at-
kvæðagreiðsluna í þinginu i nótt,
hafi hvatt þingmenn kaþólska
lýðveldisflokksins, sem hann er
leiðtogi fyrir, til að styðja de
Gaulle. Búizt var við að de Gaulle
færi beint á fund Coty forseta,
en hann var þegar búinn að ræða
við Mollet, Pinay og Teitgen
rúma svo tíma, og var það mál
flestra, að hann hefði fyrst og
fremst rætt um það með hverju
móti bezt væri að fá de - Gaulle
í hendur stjórnartaumana og láta
hann koma fram fyrir þingið.
I Eftir fundinn við Coty sagði
Teitgen, að stjorn lýðveldisflokks
ins sæti á fundi og mundi hann
fara beint þangað og gefa skýrslu
um viðræðurnar við Coty.
Rólegt á Korsiku
AFP-fréttastofan skýrir frá
þvi, að í Ajaccio, stærsta bæn-
um á Korsíku, sé ailt með kyrr-
um kjörum, en um hvítasunn-
una hafi verið myndaðar öryggis-
nefndir í mörgum bæjum og
þorpum víðs vegar á eyjunni.
Ennfremur segir, að í allsherjar-
verkfalli sem kommúnistar stofn-
uðu til hafi aðeins um 20%
byggingaverkamanna í bænum
Bastia tekið þátt.
Jean Thomazo ofursti, sem kom
frá Alsír og var settur landstjóri
hers og borgara á Korsíku, sagði
í dag að gerðar yrðu ráðstafan-
ir til að leysa hin alvarlegu efna-
hagsvandkvæði eyjarinnar.
„Le Monde“ telur de Gaulle
skástan
Parísar-blaðið „Le Monde“,
sem er meðal áhrifamestu blaða
Frakklands, sagði í dag, að eins
og málum væri nú komið væri
valdataka de Gaulles skásta úr-
ræðið. í leiðara á fyrstu síðu
segir m. a. að fjórða lýðveldið,
sem geti ekki lifað með sæmd,
hafi ekki heldur efni á að deyja
sómasamlega. Valdataka de
Gaulles sé miklu betri en borg-
arastyrjöld, sem hljóti að brjót-
ast út, ef honum verði neitað um
völdin.
Hvað um Marscille
Útvarpið i Alsír sagði frá því
í kvöld, að ýmsir einstaklingar
og félagssamtök í Marseille hefðu
komið saman í dag til að ganga
frá stofnun „öryggis. og velferð-
arnefndar" í borginni. Borgar-
stjórnin bar þessa fregn hins veg-
ar til baka síðar í kvöld og kvað
hana gripna úr lausu lofti.
Hókin frá Alsír
.^Þjóðlega öryggisnefndin" í
Alsír hefur ákveðið að berjast til
hins síðasta fyrir því að de
Gaulle verði fengin í hendur
stjórn Frakklands auk þess sem
hún hefur sent öllum frönskum
þingmönnum aðvörun sem nálg-
ast að vera hótun þess efnis, að
hver sá sem tefji fyrir valda-
töku de Gaulles geri það á eigin
ábyrgð.
í dag hélt nefndin fund undir
stjóxn Sid Caxa, öðrum foi’manni
hennai', og ríkti'þar einhugur um
stefnuna sem fylgja beri. Massu,
hershöfðingi, sem einnig er for-
maður hennar, var ekki viðstadd-
ur. Hins vegar sat Soustelle, fyrr-
verandi landsstjóri í Alsír fund-
inn.
jaðri Parísar. Fjöldi manns hafðx
safnazt saman fyrir framan for-
setahöllina í kvöld, en um mið-
nætti hafði engin opinber yfirlýs-
ing borizt.
Þingforsetar liafi samband
de Caulle
rið
Auriol fór frá Coly án þess að
láta nokkuð nppi um vioræOur
t þeirra, en sfeömmu síðar kaliaði
Coty forseta beggja deilda þings-
ins á sinn fund í annað sinn í dag.
Eftir viðræður þeirra tilkynnti
A ll’-f réttaslof an að þeir hefðu
orðið við þeim lilmælum Coty for
seta að setja sig í samband við dc
Cauile í nótt og komast að raun
um, bvaða skilyrði hann setur fyr-
ir stjórnarmyndun.
Mollet gengur illa *
Þingflokkur sósíalista hélt fund
seint í kvöld, en um miðnætti var
honum slitið og ákveðið að koma
saman aftur í fyrramálið. Einn
þingmannanna sagði, að Moilet
hefði árangursiaust reynt að telja
flokksmenn sína á að skipta um
skoðun á de Gaulle. Jafnfram* var
sagt, að Auriol hefði neitað að
blanda sér í stjórnai'kreppuna til
að styðja de Gaulle.
— GervihnÖtturinn
Frh. af bls. 1
á loft, að allt hefði virzt ganga
vel, og öll þrjú „þrep“ eldflaug-
arinnar hefðu gegnt hlutverki
sínu, en samt hefði ekki tekizt
að koma gervihnettinum á praut
sína.
Dr. Richard W. Porter sagði í
Washingion í dag, að annarri
Vanguard-eldflaug yrði skotið
upp í næsta manuðx.
3 hnettir á lofti
Eins og sieuuur eru þrir af
bauuurtsku gervihnötiumum á
loíti. Þeir eru hnötturinn sem
skotið var á loft með Vanguard-
skeyti 17. marz, „Könnuður"
fyrsti sem skotið var á loft 31.
janúar og „Könnuður“ þriðji sem
skotið var upp 26. marz.
í fyrradag hafði „Könnuður"
fyrsti farið 1446 hringi umhverfis
jörðina, Vanguard-hnötturinn 757
hringi og „Könnuður“ þriðji 810
hringi.
Coty ræSir viS Auriol
Það var tilkynnt seint í kvöld,
að Coty forseti liefði kailað Aur-
iol fyrverandi forseta á sinn fund
kl. 22 í kvöld til að ráðgaxt við
haim um aðsteðjandi vandamál.
Allt veltur á sósíaiistum
Kl. 23 í kvöld var enn óvissa um
það, hvernig Coty sneri sér í mái- j
inu. 1 rauninni valt það á þing-
flokki sósialista, sem lýsti því yf- 1
ir í gær að hann mundi undir
engum kringumstæðum styðja de
Gaulle, en var hvattur til þess í
dag af Mollet foringja sínum að
breyta um afstöðu. Án stuðnings
sósíalista getur de Gaulle ekki
reiknað með þingmeirihluta, og
rneðan ekki liggur fyrir samþykki
sósíalista vill hershöfðinginn ekki
hitta Coty að máli, en bíður átekta
að líkindum einhvers staðar á út-
ALLT f RAFKERFIÐ
Bílaraftækjaverzlun
Halldors Ölalssonar
Rauðarárstíg 20. — Sími 14775.
Þungavinnuvélar
Simi 34-3-33
Hurðarnalnspjöld
Brétalokur
SkiltuKerom, Saoia voxóustig 8.
Hjartanlega þakka ég öllum vinum og vandamönnum er
glöddu mig með heillaskeytum og gjöfum á 70 ára afmæli
mínu, 16. þ.m.
R. Ágúst Hreggviðsson.
Móðir okkar
INGILEIF A. BARTELS
andaðist að Elliheimilinu Grnud miðvikudaginn 28. maí.
Haraldur, Henrik og Sigurður Ágústssynir.
Jarðarför dóttur minnar, systur og mágkonu
ÞÖREYJAR MAGNÚSDÓTTCR
Þórsgötu 9, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 30.
maí kl. 13,30.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hinnar látnu er bent á sumarstarf K.F.U.K. í
Vindáshlíð.
Magnús Gíslason,
Ingibjörg Magnúsdóttir, Herntann Þorsteinsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir
RAGNAR PÉTUR BJARNASON
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 31.
maí.
Athöfnin hefst með húskveðju á heimili hins látna
Austurvegi 65 Selfossi. Þeir sem vildu heiðra minningu
hins látna eru beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess.
Bílferð verður frá Bifreiðastöð Ilands kl. 15.
Katrín Elsa Jónsdóttir og börn,
Þórhildur Hannesdóttir og börn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd við frá-
fall og jarðarför
KOLBENS GUÐMUNDSSONAR
bónda í StóraÁsi.
Helga Eyjólfstlóttir, börn og tengdabörn.
Öllum þeim er sýndu samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför
SIGURLAUGAR KRISTJÁNSDÓTTUR
húsfreyju, Örlygsktöðum, vottum við okkar innilegustu
þakkir.
Vandamenn.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekn-
ingu við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar,
tengdaföður og afa
EGILS JÓNSSONAR
Súðavík.
Sérstaklega þökkum við Súðvíkingum fyrir alla þá að-
stoð sem þeir veittu okkur við jaröarför hans.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún 1. Þórðardóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn.