Morgunblaðið - 11.06.1958, Side 1
V
Ólafur Thors
Gunnar
Sigurður Bj.
Magnús
Björn
Friðjón
Ólafur Bj.
Sigurður Ág.
Kjartan
Einar
Almennir stjórnmálafundir
SjálfsiæBismanna
s
Fyrstu fundirnir verða á Akur-
eyri og Eskifirði annað kvöld
E I N S og boðað hefur verið heklur Sjálfstæðisflokkurinn tiu
aimenna stjórnmálafundi á ýmsum stöðum á landinu nú í vikunni
og uni næstu helgi. Fyrstu fundirnir verða haldnir annað kvöld
á Akureyri og Eskifirði.
A föstudaginn verða haldnir fjórir fundir: Á Isafirði, Blöndu-
csi, Slglufirði og Seyðisfirði, og á laugardag verða fundir á Breiða-
biiki á Snæfellsnesi, í Bolungarvík og á Hvammstanga. Á sunnu-
dag verður fundur í Búðardal. — öllum er heimill aðgangur að
fundunum. — Fundirnir verða haldnir, sem hér segir:
Fimmtudaginn 12. júlí
Jón
Akureyri kl. 8,30 sd.
Frummælendur, alþing-
ismennirnir Sigurður
Bjarnason og Friðjói>
Þórðarson.
Eskifirði, kl. 8,30 sd. Frummæl
endur: Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri, og Einar Sig-
urðsson, útgerðarmaður.
Föstudaginn 13. júní:
Blönduósi, kl. 8 sd. Frummæl-
endur: alþingismennirnir
Magnús Jónss. og Jón Pálma-
son.
ísafirði, kl. 8,30 sd. Frummæl-
endur: alþingismennirnir Ól-
afur Björnsson, Björn Ólafs-
son og Kjartan Jóhannsson.
Siglufirði, kl. 8,30 sd. Frum-
mælendur: alþingismennirn-
ir Friðjón Þórðarson og Sig-
urður Bjarnason.
Seyðisfirði, kl. 8,30 sd. Frum-
mælendur: Gunnar Thorodd-
sen, borgarstj., og Einar Sig-
urðsson, útgerðarmaður.
Laugardaginn 14. júní:
Breiðablik á Snæfellsnesi, kl.
8,30 sd. Frummælendur: Ol-
afur Thors, form. Sjálfstæðis
flokksins, og Sigurður Ág-
ústsson, alþm.
Bolungarvík, kl. 8,30 sd. Frum-
mælendur: alþingismennirn-
ir Björn Ólafsson og Ólafur
Björnsson.
Málgagn Djurhuus vill
samninga um landhelgi
Mótmælir aðgerðum íslendinga
Hvammstanga, kl. 8 sd. Frum-
mælendur: alþingismennirn-
ir Jón Pálmason og Magnús
Jónsson.
Sunnudaginn 15. júní:
Búðardal, kl. 3 sd. Frummæl
endur: alþingismennirnir
Magnús Jónss. og Jón Pálma
Danskur fiskifrœðingur
skýrir sjónarmið Islend-
inga í landhelgismálinu
Bandarikjamenn taldir vilja fá Islend-
inga til oð semja v/ð Breta
Kaupmannahöfn, 10. júní
DANSKA blaðið „Dagens
Nyheder“ skýrir frá því í
morgun, að danski fiski-
fræðingurinn Vedel Taan-
ing hafi talað á fundi fisk-
veiðinefndar Norðvestur-
Atlantshafsins í Halifax í
gær og rætt um hættuna
Bretar áminntir um að
styggja ekki íslendinga
ÓSLÓ, 10. júní. NTB. Formaður
sambands brezkra togaraeigenda,
Sir Farndale Phillips, beindi í
dag þeirri áskorun til brezkra
fiskkaupmanna og annarra þeirra
vinna að fiskiðnaði, að ekkert
það yrði aðhafzt sem hindra
kynni samninga við íslendinga
um Iandhelgismálin.
Sir Farndale sagði, að deilur
sem upp kæmu milli ríkja, sem
fram að þessu hefðu verið vin
samleg hvort öðru, yrðu ekki
leystar með herskipum eða flug-
vélum. Þær verða aðeins leystar
með því að deiluaðilar setjist
kringum borð og leiti að sameig-
inlegri lausn. Það væri ekki
óhugsanlegt, sagði Phillips, að
samningar við Færeyinga og
Norðmenn gætu Ieitt til lausnar
á deilu Breta og tslendinga um
fiskveiðilögsöguna.
sem stafar af rányrkju á
Norður-Atlantshafi. Kvað
hann 12 mílna landhelgi ís-
lendinga á góðum rökum
reista frá sjónarmiði fiski-
fræðinnar og rannsókna á
lífinu í sjónum. Lagði hann
áherzlu á hve mikilvægt það
væri Islendingum að vernda
fiskimið sín gegn rányrkju.
Vilja samninga
i>að er naft eftir góðum heim-
ilduni, að eftir fyrstu viðræður
þeirra Eisenhowers forseta og Mac
niillans forsætisráðherra hafi sendi
nefndir Bandaríkjanna og Bret-
lands á ráðstefnunni í Halifax
fengið fyrirmæli um að fá úr því
skorið, hvort íslendingar séu fáan-
legir til að gangast inn á sanininga
leiðina.
Bandaríkjastjórn er sögð vera
hliðholl íslenuingum í málinu, en
lítur svo á, að einhliða ákvörðun
um víkkun landhclginnar í 12
mílur sé óheppileg. — Páll.
IIÖFN, 10. júní. „Föroyatidindi**, sem er málgagn Kristians Djur-
huus, lögmanns í Færeyjum, skrifar í dag, að ekki megi búast við
miklum árangri með einhliða ráðstöfunum í landhelgismálunum.
Þess vegna óski Færeyingar samninga, bæði við Englendinga um
friðsamlega víkkun landhelginnar og við íslendinga í því skyni að
mótmæla því að færeyskir handfæra- og línubátar séu reknir af
miðum, sem þeir eiga liefðbundinn rétt til. Verði samningaleiðin
árangurslaus, verður að leggja málið fyrir Haag dómstólinn, segir
blaðið. —
Bréf Eisenhowers til
Krúsjeffs
WASHINGTON, 10. júní. Eisen-
hower forseti lagði til í bréfi sínu
til Krúsjeffs einræðisherra, að
tæknilegar viðræður um leiðir til
eftirlits með banni á kjarnorku-
tilraunum hefjist hið fyrsta.
Bréf Eisenhowers var birt í
dag. Er þar sagt, að væntanlegar
viðræður sérfræðinga eigi sér
stað án fyrirfram gerðra samn-
inga um sambandið milli kjarn-
orkubanns og annarra mikil-
vægra málefna. Vill Eisenhower
að viðræðurnar hefjist í Genf
kringum 1. júlí, en þakkar Krús-
jeff fyrir boðið um að halda þær
í Moskvu. Segir hann að sviss-
neska stjórnin hafi gefið sam-
þykki sitt varðandi Genf. Eisen-
hower kveðst ekki hafa neitt við
það að athuga að séríræðingar
frá Póllandi og Tékkóslóvakíu
taki þátt í umræðunum ásamt
rússnesku sérfræðingunum, en af
vestrænum ríkjum muni Banda-
ríkin, Bretlandi, Frakkland og e.
t. v. fleiri ríki senda sérfræðinga
á ráðstefnuna. Um „hlutlausar"
þjóðir segir Eisenhower, að hann
sé ekki mótfallinn þátttöku
þeirra síðar meir, ef sérfræðing-
arnir á ráðstefnunni telji hana
nauðsynlega eða gagnlega.
Alsírnefndin óhlýðnast de Gaulle
PARÍS, ALSÍR, 10. júní — í dag
lét formælandi franska utanríkis-
ráðuneytisins svo ummælt, að
mikilvægasta verkefni de Gaulle
forsætisráðherra væri nú að end-
urreisa einingu frönsku þjóðar-
innar. Skömmu áður hafði yfir-
öryggisnefndin fyrir Alsír og
Sahara, sem fyrir nokkrum dög-
um lofaði að styðja lögleg stjórn-
arvöld landsins, sent de Gaulle
orðsendingu þess efnis, að það
væri fljótfærni og gæti orðið
hættulegt að halda bæja- og
sveitastjórnakosningar i Alsír
áðúr en þjóðaratkvæðið um ný
stjórnskipunarlög fer fram.
De Gaulle sat á fundi með
Antoine Pinay fjármálaráðherra,
þjóðbankastjóranum og ciðrum
efnahagslegum ráðgjöfum, þegar
tilkynningin um uppreisn öryggis
nefndarinnar í Alsír var afhent
honum.
Aðkallandi vandamál
Formælandi utanríkisráðu-
neytisins sagði í sambandi við
spurningar þess efnis hvort de
Gaulle hefði í hyggju að fara til
annarra landa og ræða við banda
menn Frakka, að þetta gæti kom-
ið til mála, en það yrði ekki að
sinni, þar sem forsætisráðherr-
ann ætti nú fullt í fangi með að
endurreisa einingu þjóðarinnar,
leysa Alsír-vandamálið, stjórn-
skipunarvandann og efnahags-
vandamálin. Enn hefur ekki ver-
ið ákveðið hvenær de Gaulle
hitti Macmillan forsætisráðherra
Breta, en það getur sennilega
ekki orðið fyrr en í næsta mán-
uði. Ennfremur er talið senni-
legt að de Gaulle hitti Adenauer
kanslara Vestur-Þýzkalands, en
það getur ekki heldur orðið á
næstunni.
Samningar haldnir
Formælandinn lét svo ummælt
að de Gaulle hefði í hyggju að
leysa öryggisvandamál Frakk-
lands innan þeirra takmarka sem
gildandi samningar við önnur
ríki settu honum. Það hefði aldrei
verið ætlun hans að rjúfa gerða
samninga. Þetta ætti einnig við
um samninginn varðandi sam-
eiginlegan markað Evrópu.
Sendiboði Salans
Tilkynningin um ákvörðun
öryggisnefndarinnar í Alsír í
sambandi við bæja- og sveita-
stjórnakosningarnar barst de
Gaulle fyrir milligöngu Salans
hershöfðingja. Blaðafulltrúi Sal-
ans, Charles Lacheroy ofursti,
kom flugleiðis til Parísar í dag
og hafði orðsendinguna með-
ferðis.
Afnám stjórnmálaflokka
Ákvörðunin, sem yfiröryggis-
nefndin tók einróma í morgun,
felur líka i sér óskir um að nú-
gildandi stjórnarskrá Frakklands
verði úr gildi numin og allir
stjórnmálaflokkar leystir upp.
Ennfremur er þess krafizt að
Alsír verði óaðskiljanlegur hluti
af Frakklandi, en fái ekki jafn-
ræði eða sjálfstjórn í neinni
mynd. Nefndin vill alls enga
málamiðlun um þau markmið
sem hún setti sér þegar hún var
mynduð 22. maí s. 1.
Það eru ekkí nema fimm dag-
ar síðan de Gaulle varaði ör-
Frh. á bls. 2.