Morgunblaðið - 11.06.1958, Síða 1

Morgunblaðið - 11.06.1958, Síða 1
V Ólafur Thors Gunnar Sigurður Bj. Magnús Björn Friðjón Ólafur Bj. Sigurður Ág. Kjartan Einar Almennir stjórnmálafundir SjálfsiæBismanna s Fyrstu fundirnir verða á Akur- eyri og Eskifirði annað kvöld E I N S og boðað hefur verið heklur Sjálfstæðisflokkurinn tiu aimenna stjórnmálafundi á ýmsum stöðum á landinu nú í vikunni og uni næstu helgi. Fyrstu fundirnir verða haldnir annað kvöld á Akureyri og Eskifirði. A föstudaginn verða haldnir fjórir fundir: Á Isafirði, Blöndu- csi, Slglufirði og Seyðisfirði, og á laugardag verða fundir á Breiða- biiki á Snæfellsnesi, í Bolungarvík og á Hvammstanga. Á sunnu- dag verður fundur í Búðardal. — öllum er heimill aðgangur að fundunum. — Fundirnir verða haldnir, sem hér segir: Fimmtudaginn 12. júlí Jón Akureyri kl. 8,30 sd. Frummælendur, alþing- ismennirnir Sigurður Bjarnason og Friðjói> Þórðarson. Eskifirði, kl. 8,30 sd. Frummæl endur: Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, og Einar Sig- urðsson, útgerðarmaður. Föstudaginn 13. júní: Blönduósi, kl. 8 sd. Frummæl- endur: alþingismennirnir Magnús Jónss. og Jón Pálma- son. ísafirði, kl. 8,30 sd. Frummæl- endur: alþingismennirnir Ól- afur Björnsson, Björn Ólafs- son og Kjartan Jóhannsson. Siglufirði, kl. 8,30 sd. Frum- mælendur: alþingismennirn- ir Friðjón Þórðarson og Sig- urður Bjarnason. Seyðisfirði, kl. 8,30 sd. Frum- mælendur: Gunnar Thorodd- sen, borgarstj., og Einar Sig- urðsson, útgerðarmaður. Laugardaginn 14. júní: Breiðablik á Snæfellsnesi, kl. 8,30 sd. Frummælendur: Ol- afur Thors, form. Sjálfstæðis flokksins, og Sigurður Ág- ústsson, alþm. Bolungarvík, kl. 8,30 sd. Frum- mælendur: alþingismennirn- ir Björn Ólafsson og Ólafur Björnsson. Málgagn Djurhuus vill samninga um landhelgi Mótmælir aðgerðum íslendinga Hvammstanga, kl. 8 sd. Frum- mælendur: alþingismennirn- ir Jón Pálmason og Magnús Jónsson. Sunnudaginn 15. júní: Búðardal, kl. 3 sd. Frummæl endur: alþingismennirnir Magnús Jónss. og Jón Pálma Danskur fiskifrœðingur skýrir sjónarmið Islend- inga í landhelgismálinu Bandarikjamenn taldir vilja fá Islend- inga til oð semja v/ð Breta Kaupmannahöfn, 10. júní DANSKA blaðið „Dagens Nyheder“ skýrir frá því í morgun, að danski fiski- fræðingurinn Vedel Taan- ing hafi talað á fundi fisk- veiðinefndar Norðvestur- Atlantshafsins í Halifax í gær og rætt um hættuna Bretar áminntir um að styggja ekki íslendinga ÓSLÓ, 10. júní. NTB. Formaður sambands brezkra togaraeigenda, Sir Farndale Phillips, beindi í dag þeirri áskorun til brezkra fiskkaupmanna og annarra þeirra vinna að fiskiðnaði, að ekkert það yrði aðhafzt sem hindra kynni samninga við íslendinga um Iandhelgismálin. Sir Farndale sagði, að deilur sem upp kæmu milli ríkja, sem fram að þessu hefðu verið vin samleg hvort öðru, yrðu ekki leystar með herskipum eða flug- vélum. Þær verða aðeins leystar með því að deiluaðilar setjist kringum borð og leiti að sameig- inlegri lausn. Það væri ekki óhugsanlegt, sagði Phillips, að samningar við Færeyinga og Norðmenn gætu Ieitt til lausnar á deilu Breta og tslendinga um fiskveiðilögsöguna. sem stafar af rányrkju á Norður-Atlantshafi. Kvað hann 12 mílna landhelgi ís- lendinga á góðum rökum reista frá sjónarmiði fiski- fræðinnar og rannsókna á lífinu í sjónum. Lagði hann áherzlu á hve mikilvægt það væri Islendingum að vernda fiskimið sín gegn rányrkju. Vilja samninga i>að er naft eftir góðum heim- ilduni, að eftir fyrstu viðræður þeirra Eisenhowers forseta og Mac niillans forsætisráðherra hafi sendi nefndir Bandaríkjanna og Bret- lands á ráðstefnunni í Halifax fengið fyrirmæli um að fá úr því skorið, hvort íslendingar séu fáan- legir til að gangast inn á sanininga leiðina. Bandaríkjastjórn er sögð vera hliðholl íslenuingum í málinu, en lítur svo á, að einhliða ákvörðun um víkkun landhclginnar í 12 mílur sé óheppileg. — Páll. IIÖFN, 10. júní. „Föroyatidindi**, sem er málgagn Kristians Djur- huus, lögmanns í Færeyjum, skrifar í dag, að ekki megi búast við miklum árangri með einhliða ráðstöfunum í landhelgismálunum. Þess vegna óski Færeyingar samninga, bæði við Englendinga um friðsamlega víkkun landhelginnar og við íslendinga í því skyni að mótmæla því að færeyskir handfæra- og línubátar séu reknir af miðum, sem þeir eiga liefðbundinn rétt til. Verði samningaleiðin árangurslaus, verður að leggja málið fyrir Haag dómstólinn, segir blaðið. — Bréf Eisenhowers til Krúsjeffs WASHINGTON, 10. júní. Eisen- hower forseti lagði til í bréfi sínu til Krúsjeffs einræðisherra, að tæknilegar viðræður um leiðir til eftirlits með banni á kjarnorku- tilraunum hefjist hið fyrsta. Bréf Eisenhowers var birt í dag. Er þar sagt, að væntanlegar viðræður sérfræðinga eigi sér stað án fyrirfram gerðra samn- inga um sambandið milli kjarn- orkubanns og annarra mikil- vægra málefna. Vill Eisenhower að viðræðurnar hefjist í Genf kringum 1. júlí, en þakkar Krús- jeff fyrir boðið um að halda þær í Moskvu. Segir hann að sviss- neska stjórnin hafi gefið sam- þykki sitt varðandi Genf. Eisen- hower kveðst ekki hafa neitt við það að athuga að séríræðingar frá Póllandi og Tékkóslóvakíu taki þátt í umræðunum ásamt rússnesku sérfræðingunum, en af vestrænum ríkjum muni Banda- ríkin, Bretlandi, Frakkland og e. t. v. fleiri ríki senda sérfræðinga á ráðstefnuna. Um „hlutlausar" þjóðir segir Eisenhower, að hann sé ekki mótfallinn þátttöku þeirra síðar meir, ef sérfræðing- arnir á ráðstefnunni telji hana nauðsynlega eða gagnlega. Alsírnefndin óhlýðnast de Gaulle PARÍS, ALSÍR, 10. júní — í dag lét formælandi franska utanríkis- ráðuneytisins svo ummælt, að mikilvægasta verkefni de Gaulle forsætisráðherra væri nú að end- urreisa einingu frönsku þjóðar- innar. Skömmu áður hafði yfir- öryggisnefndin fyrir Alsír og Sahara, sem fyrir nokkrum dög- um lofaði að styðja lögleg stjórn- arvöld landsins, sent de Gaulle orðsendingu þess efnis, að það væri fljótfærni og gæti orðið hættulegt að halda bæja- og sveitastjórnakosningar i Alsír áðúr en þjóðaratkvæðið um ný stjórnskipunarlög fer fram. De Gaulle sat á fundi með Antoine Pinay fjármálaráðherra, þjóðbankastjóranum og ciðrum efnahagslegum ráðgjöfum, þegar tilkynningin um uppreisn öryggis nefndarinnar í Alsír var afhent honum. Aðkallandi vandamál Formælandi utanríkisráðu- neytisins sagði í sambandi við spurningar þess efnis hvort de Gaulle hefði í hyggju að fara til annarra landa og ræða við banda menn Frakka, að þetta gæti kom- ið til mála, en það yrði ekki að sinni, þar sem forsætisráðherr- ann ætti nú fullt í fangi með að endurreisa einingu þjóðarinnar, leysa Alsír-vandamálið, stjórn- skipunarvandann og efnahags- vandamálin. Enn hefur ekki ver- ið ákveðið hvenær de Gaulle hitti Macmillan forsætisráðherra Breta, en það getur sennilega ekki orðið fyrr en í næsta mán- uði. Ennfremur er talið senni- legt að de Gaulle hitti Adenauer kanslara Vestur-Þýzkalands, en það getur ekki heldur orðið á næstunni. Samningar haldnir Formælandinn lét svo ummælt að de Gaulle hefði í hyggju að leysa öryggisvandamál Frakk- lands innan þeirra takmarka sem gildandi samningar við önnur ríki settu honum. Það hefði aldrei verið ætlun hans að rjúfa gerða samninga. Þetta ætti einnig við um samninginn varðandi sam- eiginlegan markað Evrópu. Sendiboði Salans Tilkynningin um ákvörðun öryggisnefndarinnar í Alsír í sambandi við bæja- og sveita- stjórnakosningarnar barst de Gaulle fyrir milligöngu Salans hershöfðingja. Blaðafulltrúi Sal- ans, Charles Lacheroy ofursti, kom flugleiðis til Parísar í dag og hafði orðsendinguna með- ferðis. Afnám stjórnmálaflokka Ákvörðunin, sem yfiröryggis- nefndin tók einróma í morgun, felur líka i sér óskir um að nú- gildandi stjórnarskrá Frakklands verði úr gildi numin og allir stjórnmálaflokkar leystir upp. Ennfremur er þess krafizt að Alsír verði óaðskiljanlegur hluti af Frakklandi, en fái ekki jafn- ræði eða sjálfstjórn í neinni mynd. Nefndin vill alls enga málamiðlun um þau markmið sem hún setti sér þegar hún var mynduð 22. maí s. 1. Það eru ekkí nema fimm dag- ar síðan de Gaulle varaði ör- Frh. á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.